Dagur - 19.05.1990, Blaðsíða 20

Dagur - 19.05.1990, Blaðsíða 20
Þórshöfn: Mokfiskirí hjá báta- ílotanum „Svona góður bátaafli hefur ekki verið á þessum tíma undanfarin ár. Aflinn hjá bát- unum samanlagt hefur oft ver- ið 30-50 tonn eftir daginn,“ sagði Jóhann A. Jónsson, framkvæmdastjóri Hraðfrysti- stöðvar Þórshafnar í gær. „Þetta hefur verið mikil törn að undanförnu og ef eitthvað er vantar okkur fólk í vinnu. Hér eru komnir fjölmargir aðkomu- bátar líkt og í fyrra en munurinn er sá að þetta er allt fyrr á ferð- inni nú en þá,“ sagði Jóhann. Jóhann sagði að þessi afli feng- ist í netin grunnt undan landi. Allur afli bátanna er unninn í Hraðfrystistöðinni en á meðan þessi hrota stendur er togarinn Stakfell á veiðum og frystir aflann. Hraðfrystistöðin hefur tekið við rekstri togarans í kjöl- far þeirra aðgerða sem ráðist var í til bjargar Útgerðarfélagi N- Þingeyinga. Jóhann segir þessar aðgerðir nú á lokastigi en í stór- um dráttum fólust þær í því að Hlutafjársjóður kom inn í Hrað- frystistöðina með ] 19 milljónir króna og Hraðfrystistöðin jók hlutafé sitt í Útgerðarfélaginu um 100 milljónir. Auk þess fékk ÚNÞ vaxtaleiðréttingu, byggða- styrk og niðurfellingu á almenn- um viðskiptaskuldum. JÓH Kjartan Einarsson, sóknarmaður í liði íslandsmeistara KA, og Friðrik Friðriksson, markvörður Þórs, brugðu á leik fyrir ljósmyndara Dags í gær. Mynd. KL ' íslandsmótið í knattspyrnu 1. deild: Boltínn byrjar að rúlla í dag Boltinn byrjar að rúlla á knattspyrnuvöllum landsins í dag. Blásið verður til leiks í fyrstu umferð fyrstu deildar Islandsmótsins í knattspyrnu klukkan 14. Athygli Akureyringa beinist að sjálfsögðu að Þór og KA. Þórsarar fá í heimsókn í dag nýliða Stjörnunnar í Garðabæ og hefst leikur liðanna kl. 16 á malarvelli Þórs við Glerárskóla. KA-menn fara suður yfir heiðar á morgun og leika gegn FH á grasvellinum að Kaplakrika í Hafnarfirði. Leikur liðanna hefst kl. 16. Þeir Friðrik Friðriksson, markvörður Þórs, og Kjartan Einarsson, hinn skæði sóknar- maður KA, vildu ekkí spá um úrslit leikjanna um helgina. Kjartan fingurbrotnaði í Meist- arakeppni KSÍ gegn Fram í vik- unni og þarf því að gera sér að góðu að horfa á félaga sína berjast við FH-inga í Hafnar- firði á morgun. Hann gerir sér hins vegar vonir um að verða klár í slaginn í fyrsta heima- leiknum gegn Val nk. föstu- dagskvöld. „Ég vil engu spá um úrslit leiksins í dag,“ sagði Friðrik markvörður Friðriksson. „Þetta verður örugglega erfitt, í þess- um leik sem og öðrum leikj- um.“ óþh Könnun Kjarna hf. á Akureyri á vinsældum íslenskra stjórnmálamanna: Halldór nýtur mestrar hylli Halldór Asgrímsson, sjávar- útvegsráðherra, er sá stjórn- málamaður á Islandi sem Akureyringar meta mest. Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, kemur þar næst á eftir og Davíð Oddsson, borgarstjóri í Reykjavík, í þriðja sæti. Þetta er niðurstaða könnunar sem Kjarni hf. á Akureyri fram- kvæmdi dagana 11. og 12. maí sl. Spurningin sem lögð var fyrir fólk var eftirfarandi: „Hvaða íslenska stjórnmálamann metur þú mest?“ Þessari spurningu svöruðu 214 Akureyringar 18 ára og eldri. Halldór Ásgrímsson, sjávar- útvegsráðherra, hlaut atkvæði 70 Akureyringa, helmingi færri, eða 35, nefndu Steingrím Hermanns- son, forsætisráðherra, og 20 nefndu Davíð Oddsson. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkis- ráðherra, nefndu 12 Akureyring- ar, 11 Ólaf Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, 10 Þorstein Pálsson, formann Sjálfstæðis- flokksins, 9 Jón Sigurðsson, iðn- aðarráðherra, og Jóhönnu Sig- urðardóttur, félagsmálaráðherra, 8 Guðrúnu Agnarsdóttur, 4 Guðmund Bjarnason, heilbrigð- isráðherra og Svavar Gestsson, menntamálaráðherra, 3 Júlíus Sólnes, umhverfisráðherra, Steingrím J. Sigfússon, sam- gönguráðherra, og Þórhildi Þor- leifsdóttur. Tvö atkvæði hlutu þeir feðgar Ingi Björn Albersson og Albert Guðmundsson. Eitt atkvæði hlutu Árni Gunnarsson, Eyjólfur Konráð Jónsson, Hall- dór Blöndal, Helgi Seljan, Jónas Jónsson frá Hriflu, Karvel Pálmason, Kári Gunnarsson, Sverrir Hermannsson og Ólafur Thors. óþh Hægviðri „Það má heita að verði indælis veður um allt íand. Það verður að vísu einhver norðlæg átt um helgina og það þýðir að verður eitthvað meira skýjað hjá ykkur. En við vonum að verði alveg þurrt,“ sagði Eyjólfur Þorbjörnsson, veðurfræðingur á Veðurstofu íslands um helg- arveðrið á Norðuriandi. Eyjólfur sagði að hitinn yrði alveg sæmilegur, að minnsta kosti í Eyjafirði. „Þetta verður tiltölulega rólegt veður, engin alvöru norðanátt." Eyjólfur sagði að reikna mætti með morgun- þoku eins og verið hefði undan- farna daga. óþh Aflabrestur í grálúðimni Lítil veiði hefur verið hjá skag- firsku togurunum undanfarið. Grálúðuveiðin hefur brugðist hjá þeim sem öðrum togurum. Skagfirðingur SK-4 er á leið til Bremenhaven með 155 tonn af blönduðum afla. Skagfirðingur á söludag þann 23. og er búist við góðri sölu. Grálúðan hefur undafarin ár verið uppistaðan í þeim afla sem borist hefur á land í maí. „Það verður að segjast að þetta er afla- brestur hjá okkur núna. Grálúð- an veiðist ekki og við erum að fá skot í ufsa og ýsu. Fiskurinn er nýlega hrygndur og dreifður og þess vegna illveiðanlegur,“ sagði Gísli Svan hjá Útgerðarfélaginu Skagfirðingi. Skafti SK-3 er í slipp á Akur- eyri og verður þar fram yfir helgi. Hann verður botnskrapaður og málaður um helgina. Engin vinna hefur verið hjá Skildi hf. og er togarinn Drangey á veiðum en hann sér Skildi hf. fyrir hráefni. Vinna hefur verið í frystihúsinu á Hofsósi og einnig í frystingu og saltfiskverkun Fiskiðju Sauðárkróks. kg Hesthúshverfið í Breiðholti: „ÚrbótaneM“ í máJið MA-stórhátíð þann 16. júní: Undirbúmngur koirmrn í fiillan gang Nú er Ijóst að efnt verður til stórvcislu í íþróttahöllinni á Akureyri að kvöldi 16. júní n.k. þar sem saman koma stúdentar frá Menntaskólan- um á Akureyri, kennarar og velunnarar skólans. Undir- búningur að hátíðinni er i höndum 25 ára stúdenta en samið hefur verið við Baut- ann á Akureyri um fram- kvæmd veislunnar. Þessa dagana er verið að senda út dreifibréf til gamalla M.A.-inga þar sem fram kemur að tilgangur með þessari hátíð sé sá að veita stúdentum frá M.A., kennurum og gestum þeirra tækifæri til að hittast og skemmta sér í „anda og stemmningu „students lycklige dag“ og rifja þar upp minningar frá skólaárunum með viðeig- andi meðlæti, skemmtiatriðum og söng,“ eins og segir í bréf- inu. Hátíð þessi ber upp á 110 ára afmæli skólans og þegar 60 ár eru liðin frá því skólinn fékk heimild til.að brautskrá stúdenta. íþróttahöllin getur rúmað allt að 1000 manns til borðs en ætl- unin er að setja upp viðamikla skemmtidagskrá þar sem m.a. verður að finna tönlistarflutning þekktra M.A. félaga. Forsvarsmenn hátíðarinnar segja þegar mikinn áhuga á hátíðinni og á næstu vikum verði Ijóst hversu margir boða komu sína á hátíðina. JÓH Hestamenn á Akureyri fund- uðu í Skeifunni á fimmtudags- kvöldið sl. Fundarefnið var hesthúsabyggðin í Breiðholti ofan Akureyrar og væntanleg stofnun hesthúseigendafélags, til að standa að hagsmunamál- um eigenda hesthúsa í hverf- inu. Mörgum finnst að margt mætti betur fara í hverfinu. Girðingar eru víða mjög lélegar og hestar ganga lausir. Rusl og skítur er yfirþyrmandi, kofar eru víða utan skipulags og götur eru væg- ast sagt lélegar Fundur þessi var að tilhlutan stjórnar Léttis, féiags hesta- manna á Akureyri. Að sögn Stefáns Bjarnasonar, formanns Léttis, komu menn saman til að ræða þessi mál vítt og breitt og hvað mætti gera til úrbóta. Til fundarins mættu Jón Geir Ágústsson, byggingafulltrúi, og Valdimar Brynjólfsson, heil- brigðisfulltrúi. Nefnd hestamanna var skipuð í málið, en í henni eru: Sigurborg Daðadóttir, Gunnar Frímanns- son, Örn Birgisson og Guðlaug Hermannsdóttir. Væntanlega verður fimmti maðurinn síðan skipaður frá Akureyrarbæ. ój Dauðaslys á Majorka Sautján ára piltur frá Árnesi í Aðaldal, Þórólfur Baldvin Hilmarsson, lét lífið í mót- orhjólaslysi á Majorka á Spáni sl. miðvikudagskvöld. Pilturinn var þar staddur í skólaferðalagi með skólafélög- um sínum úr Framhaldsskól- anum á Laugum. Pilturinn mun hafa verið á litlu mótorhjóli og varð hann fyrir bíl með fyrrgreindum afleiðingum. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.