Dagur - 19.05.1990, Blaðsíða 12

Dagur - 19.05.1990, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 19. maí 1990 Skrifstofa Framsóknarflokksins er að Hafnarstræti 90, Akureyri. Opin alla virka daga frá kl. 9-12 og 13-19. Kosningastjóri er Sigfríður Þorsteinsdóttir. Síminn er 180 Stuðningsmenn B-listans Utankjörfundaratkvæðagreiðsla stendur nú sem hæst. Hafið samband við skrifstofu Framsóknarflokksins og látið vita um fólk sem ekki verður heima á kjördag. Síminn er 21180. Stuðningsmenn B-listans Skrifstofa Framsóknarflokksins verður opin á kvöldin kl. 20.00-22.00. Lítið inn og takið þátt í lokaátakinu í kosningabarátt- unni. Frambjóðendur B-listans verða á skrifstofunni og taka á móti fólki. VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI Kennt verður á eftirtöldum sviðum næsta skólaár: 1. Heilbrigðissvið a) Nám til sjúkraliðaprófs. b) Nám til stúdentsprófs. c) Endurmenntun sjúkraliða samkv. eldri reglu- gerð. 2. Hússtjórnarsvið a) Grunndeild matartækna. b) Framhaldsdeild matartækna. c) Handíðabraut. d) Nám til stúdentsprófs. 3. Tæknisvið a) Samningsbundið iðnnám (1., 2. og 3. áfangi). b) Grunndeildir háriðna (nemar í háriðn þurfa að hafa samning), málmiðna, rafiðna og tréiðna. c) Framhaldsdeildir málmiðna, rafeindavirkjunar og tréiðna. d) Vélstjórnarbraut 1., 2. og 3. stig og vélavarð- arnám (1 önn). e) Tæknibraut: a) Undirbúnigsdeild sem aðfararnám að iðn- rekstrarfræði. b) Undirbúnings- og raungreinadeild sem aðfararnám að tæknifræði. f) Tækniteiknun. g) Meistaraskóli. 4. Uppeldissvið a) Nám á íþróttabraut til stúdentsprófs. b) Nám á uppeldisbraut til stúdentsprófs. 5. Viðskiptasvið a) Nám til almenns verslunarprófs. b) Nám til stúdentsprófs. 6. Fornám Nám í öldungadeild og námskeið verða auglýst síðar. Starfræksla allra námsbrauta er bundin fyrirvara um þátttöku og húsrými. Umsóknarfrestur er til 5. júní. Nemendur, sem sækja síðar um, geta ekki vænst skólavistar. Skólameistari. Allt frá því sögur hófust hefur verið sagt frá hinum ýmsu dul- arfullu fyrirbrigðum og atvik- um sem fást ekki staðist þær kenningar sem eru uppi í vís- indaheiminum. Eðlisfræðingur að nafni William Corliss gerði sér lítið fyrir og fór að safna sögnum um afbrigðileg fyrir- bæri innan vísindanna. Corliss fletti einn síns liðs í gegnum meira en fimm þúsund vísinda- tímarit og týndi úr þeim það sem mönnum hafði yfirsést á hinum ýmsu sviðum vísinda hvort sem það var í líffræði, jarðfræði, fornleifafræði, jarð- eðlisfræði, sálfræði eða stjarn- fræði. Safnið hans fyllir nú 10 stórar möppur og 6 doðranta sem hafa verið gefnir út. Þar eru tvö þúsund nákvæmar lýs- ingar á fyrirbærum sem ekki er hægt að skýra út frá þekktum kenningum eða tilgátum. Það segir sig sjálft að þessi fyrirbæri eru misjafnlega merki- leg og smáatriði eins og lýsandi fuglar eru ekki eins merkileg og fyrirbæri sem ganga í berhögg við afstæðiskenninguna eða stóru sprengju (Big Bang). Þessi atriði eiga þó það sameig- inlegt að sýna fram á að þessar svokölluðu vísindalegu „stað- reyndir11 eru ekki eins algildar og öruggar eins og talið var. Mörg af þessum dæmum eru óþægileg og Mark Twain komst ágætlega að orði um þetta þegar hann sagði, „fátt er óþægilegra en skýr dæmi um hið ómögu- lega.“ En ef það sannaðist t.d að Loch Ness skrímslið væri til þá myndi það sennilega ekki valda neinum straumhvörfum í dýrafræðinni þar sem kenning- arnar standast samt sem áður. En um þriðjúngur atriðanna í safni Corliss krefst hins vegar endurskoðunar á kenningunum og um fimmtíu atriði í safninu myndu gerbylta vísindaheimin- um ef þau standast. Vald hugans yfir líkamanum er eitt af því sem veldur mestu uppnámi í vísindaheiminum og í meira en öld hafa virt tímarit eins og Psychological Bulletin, Lancet og American Journal of Psychiatry sagt frá tilraunum í dáleiðslu sem framkalla blöðrur á húð manna. í einu tilfelli af mörgum sagði hinn þekkti sál- fræðingur Montague Ullman frá því þegar svissneskur hermaður var dáleiddur og honum sagt að innan sólarhrings myndu birtast Dulspeki Umsjón: Einar Guömann. blöðrur í kringum hægra munnvikið. Það var fylgst gaumgæfilega með honum í sól- arhring og viti menn!... morg- uninn eftir voru komnar blöðr- ur í kringum hægra munnvikið. Andleg fyrirbæri eru þó einung- is lítill hluti af þeim fyrirbærum sem Corliss hefur fjallað um. Skýrslur um sýnilegt sam- hengi á milli plánetnanna og náttbundna virkni sólarinnar eru jafn ótrúlegar. í safninu sést að í gegnum árin hefur mikið verið skrafað um samhengið þarna á milli. Nokkrir vísinda- menn telja sig hafa fundið' tengsl á milli hæðar „sjávarfalla á sólinni" og jörðinni þ.e.á.s. hreyfingar á efnismassa sólar- innar miðað við ákveðna stöðu plánetna og hámarks og lág- marks sólbletta og sjávarfalla þó í örsmáum mæli sé. Meðal vísindamanna hefur verið hrundið af stað hreyfingu til að kanna þessi frávik frá hin- um ýmsu kenningum þar sem núorðið er greint frá sífellt fleiri frávikum og Corliss hefur verið boðin þátttaka í þessari hreyf- ingu. Reyndar er til sértök grein innan vísindanna sem kallast „frávikafræði" og er innan við aldar gömul. Meðal þess sem er í þessu atriðasafni um frávik eru efa- semdir um stóru sprengju, (Big Bang) og hvort lífræn efni geti leynst í loftsteinum ásamt atriðum eins og frásögnum um drauga- tungl auk smátungla á braut um jörðu sem stjörnufræðingar hér og þar í heiminum hafa sagt annað slagið frá. Árið 1890 sagðist þýski stjörnufræðingur- inn G. Waltemath hafa séð og athugað heilt smátunglakerfi umhverfis jörðina. Árið 1960 sagðist pólski stjörnufræðingur- inn K. Kordilewski hafa fundið tvo þokukennda hluti á braut umhverfis jörðu í sömu fjarlægð og tunglið. Stjörnufræðingurinn John Bagby segist einnig hafa gert athuganir sem staðfesta tilvist a.m.k. tíu smástirna á braut um jörðu sem eru brot úr stærra tungli sem hann segir að hafi brotnað sundur árið 1955. Carliss segist viss um að mikið af þessum frásögnum séu full- gildar og eigi sér einhverja skynsamlega skýringu og hann segir: „Ég tel sjónarvott vera sjónavott og að það dragi ekk- ert úr gildi hans þó hann sé löngu dauður." Jarðeðlisfræðin hefur ekki heldur sloppið. Árið 1964 horfði skipshöfn á sammiðja hringi af ótrúlegustu litbrigðum yfir sjóndeildarhringnum þar sem sólin var nýlega sest. Torfu af sandál rigndi af himnum ofan í bænum Handon í Englandi 1918. Árið 1931 heyrðu menn djúpan tón koma upp úr eyði- mörk nokkurri í Perú. Þeir sem halda að forfeður okkar hafi verið getuiausir tæknilega séð ættu að lesa bók- ina Ancient Man (Frummaður- inn). Þar kemur fram að Mayarnir lögðu 62.5 mílna langan og 30 til 35 feta breiðan veg í beinni línu á milli borg- anna Yaxuna og Coba. Hann var hlaðinn úr höggnu grjóti og yfirborðið var úr steinsteypu. Enn þann dag í dag telst hann stórkostlegt verkfræðiafrek. í bók Corliss The Incredible Life (Hið ótrúlega líf) er eitt og annað sem valdið hefur vanga- veltum og deilum. Hún fjallar að mestu um óþekktar dýrateg- undir en einnig er þróunarkenn- ing Darwins sett undir smásjá og meðal þeirra mörgu atriða sem getið er í bókinni má nefna þá uppgötvun að bambusplöntur bíómstra stundum allar á sama tíma. Stundum geta liðið tuttugu til þrjátíu ár án þess að heill bambuslundur blómstri en þá blómstra trén skyndilega öll í einu, bera ávexti og deyja sam- tímis. Og það sem merkilegra er er það að það skiptir engu máli þó sum trjánna séu flutt heimshorna á milli frá sínum upprunalega lundi. Trén biómstra samt öll á sama tíma. Líka þau sem voru flutt! Á þriðja áratugnum tóku 11 tegundir fugla skyndilega upp á því að rífa upp vaxlokin á mjólkurflöskum á dyraþrepum heimila út um allar Bretlands- eyjar. Hvernig gátu fuglarnir vitað um næringu í flöskunum þar sem þær voru lokaðar? Fann hver fugl upp á þessu hjá sjálfum sér eða lærðu þeir þetta hver af öðrum? Sjálfsagt mætti lengi telja upp fyrirbæri sem verða ekki auð- veldlega skýrð. Þar á meðal er svífandi fólk sem hittist árlega á ráðstefnu svokallaðra svifyoga, fólk sem gengur á eldi án þess að brennast, fólk sem hefur hamskipti árlega þannig að húð- in flagnar af og eitt og annað sem gengur í berhögg við vís- indin. En Corliss er eíasemda- maður og reynir að skoða öll þessi frávik frá viðurkenndum kenningum á hlutlausan hátt og er alls ekki andhverfur hinum hefðbundnu vísindum auk þess sem hann dregur allar ályktanir út frá upplýsingum frá viður- kenndum vísindaritum en ekki frá persónulegum skoðunum. Hann bendir á að það hafi sýnt sig í gegnum mannkynssöguna að það eigi ekki að taka fínpúss- aðar kenningar eins og þróunar- kenninguna, afstæðiskenning- una eða landrekskenninguna sem sjálfsagðan hlut heldur að endurskoða allar slíkar kenn- ingar reglulega til að vera viss um að við viðurkennum þær ekki einungis vegna þess að þær líta vel út. Út frá þeim upplýs- ingum sem hann hefur viðað að sér segist hann bara geta sagt að hann sé ekki viss um neitt fyrir víst.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.