Dagur - 19.05.1990, Side 18

Dagur - 19.05.1990, Side 18
18 - DAGUR - Laugardagur 19. maí 1990 kvikmyndarýni ij[ Umsjón: Jón Hjaltason Sá myndarlegi Borgarbíó sýnir: Johnny myndarlega (Johnny Handsome). Leikstjóri: Waltcr Hill. Aðalhlutverk: Mickey Rourke. Carolco lnternational 1989. Hvernig fer þegar óhugnaði göt- unnar er breytt í laglegan pipar- svein, glæpamanni í dagfarsprúð- an verkamann, óspjölluðum sveini í kvenmannsgull? Um þetta fjallar Johnny myndarlegi og það á heldur aumlegan hátt. Því veldur hinn bandaríski spennutryllir, eða öllu heldur löngunin til að skapa einn slíkan. Bíóið byrjar sem spennumynd. Aðalsöguhetjan Johnny, sem Mickey Rourke leikur af sinni vanaföstu lífsleti, er hörmulega vansköpuð en innan við ófagran skrápinn er að finna skynsem- isveru. Gáfurnar eru notaðar í miður góðum tilgangi og sögu- hetjan er sett í steininn. Þar kynnist hún bandarískri heil- brigðisþjónustu sem minnir einna helst á sænsku samtrygginguna, ef marka má það sem fyrir augun ber. Afleiðingin er að lýtalæknar taka til við að laga Johnny. Útkoman verður lýtalaus Rourke. Enginn talar um sjúkra- húsreikninga, bandaríska vel- ferðarkerfið axlar þá sjálfsagt. í kjölfarið er Johnny náðaður og um skeið virðist kvikmyndin ætla að feta svolítið manneskjulegar slóðir. En ónei, tryllir var það heillin. Reynt er að gera Johnny að hetju en maðurinn kennir svo mikið í brjósti um sjálfan sig að hetjuímyndin verður væmin og slepjuleg. Og svo undir lokin kemur að skuldajöfnun og Johnny gefur upp öndina. Ég gleymdi víst að minnast á það að Vantar þig dýnur? í sumarheimilið ★ Hjólhýsið Tjaldvagninn eða rúmið. Margar gerðir af svampdýnum í öllum stærðum. Geri tilboð ef óskað er. Áklæði og gluggatjaldaefni á mjög góðu verði. Sendi í póstkröfu. Svampur og bólstrun, Austursíðu 2, sími 96-25137 vinur Johnnys (sjálfsagt sá eini) var drepinn nálægt upphafi myndar og eftir það hlaut hefnd- in að verða hlutskipti Johnnys. Ég efast um að aðstandendur Johnnys hafi nokkru sinni séð kjarna myndefnisins; barátta ein- staklingsins við að verða hann sjálfur. Fyrst er það samfélagið sem kastar honum fram og til baka og ælir honum seinast ofan í klósettið og vill ekkert af honum vita. Seinna, þegar félag manna hefur ákveðið að gefa honum uppreisn æru og taka hann inn sem meðlim, hefur hann þunga byrði blóðhefndarinnar að bera. í hvorugt sinnið er einstaklingur- inn eigin herra. Murphy og Pryor, glerfínir hið ytra, dauðar teiknimyndafígúrur hið innra. Stemkarlinn Borgarbíó sýnir: Gleðinætur í Hariem (Harlem Nights). Leikstjóri: Eddie Murphy. Aðalhlutverk: Eddic Murphy og Richard Pryor. Paramount Pictures 1989. Bandarískir auglýsingaskrumarar gældu við þá ímynd að þessi fyrsta kvikmynd Murphys sem leikstjóra mætti í fyllingu tímans líkja við The Sting, hún yrði þó ögn betri og vitaskuld „svört“. Eitt og annað gekk á við gerð myndarinnar, leikkonan Michael Michele höfðaði mál á hendur Murphy fyrir kynferðislega áreitni og brot á samningi en hann hafði þá rekið hana úr Gleðinóttum í Harlem. í hennar stað kom Jasmine Guy (betur þekkt í sjónvarpsþáttunum A Different World) í hlutverk flá- ráðu ástkonunnar. En því miður, allt kom fyrir ekki og Murphy tók loks land á Akureyri mér til sárr- ar raunar. Gallinn við Gleðinæturnar er sá að leikstjórinn (og handrits- höfundurinn) Murphy hefur alls ekki getað gert upp við sig hvort hann ætlaði að gera gamanmynd með svolitlu krimma ívafi eða glæpamynd á léttum nóliim. Pá koma meintir brandarar í Har- lem afskaplega kunnulega fyrir sjónir; það er ekki mikil hug- kvæmni að baki stamandi hnefa- leikara eða feitri konu að pína karl. Síst meira hugmyndaflug liggur í sköpun hetjunnar; blóð- laus steinkarl sem skýtur tá af kerlingu og bætir við þriðja aug- anu í enni ástkonunnar. Þetta kæruleysi fyrir lífi og dauða á víst að vera fyndið; tilfinningadoði hetjunnar á líka að vera fyndinn. Harlemnætur verður aldrei flokkuð með The Sting, svo mik- ið er víst. Akureyringar! Frambjóðendur Fram- sóknarflokksins bjóða Akureyringum 60 óra og eldri til kaffisam- sœtis að Hótel KEA sunnudaginn 20. maí nk. kl. 15.00 Dagskró: Kór aldraðra syngur undir stjórn frú Sigríðar Schiöth. Frambjóðendur flytja óvörp. Stefón Vilhjólmsson fer með gamanmól. Ingimar Eydal stjórnar fjöldasöng. Þeir sem þurfa á akstri að halda hringi í skrifstofu flokksins, sími 21180 og 11180 á laugardag eða sunnudag. Stjómandi: Valgerður Sverrisdóttir alþingismaður

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.