Dagur - 19.06.1990, Blaðsíða 1

Dagur - 19.06.1990, Blaðsíða 1
73. árgangur Akureyri, þriðjudagur 19. júní 1990 114. tölublað LACOSTE Peysur • Bolir HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 Norðurland vestra: Grasið fellur - sláttur hafinn eða að heQast Menn eru nú farnir að dusta rykið af Ijánum á Norðurlandi vestra og sumir hófu slátt um helgina. Sprettutíð hefur líka verið með besta móti og ef nokkurn tímann hefur verið hægt að heyra grasið gróa þá hefur það verið í ár. í Skagafirði hófst sláttur á nokkrum bæjum um helgina og munu fleiri fylgja í kjölfarið í vik- unni því að gróðratíðin hefur verið slík. Eitthvað hefur þó roðamaur verið að ergja suma bændur og hafa menn þurft að úða tún sín gegn honurn. Hjá búnaðarsamböndunum í Húnavatnssýslum var sömu sögu að segja og í Skagafirði, sláttur að hefjast og nokkrir byrjaðir. Kom mönnum saman um að gróður væri um hálfum mánuði fyrr á ferðinni heldur en á síðasta ári. Það virðist enn vera dálítið ríkt í mönnum að fara eftir gömlu dagahjátrúnni í sambandi við slátt. Flestir vilja byrja að slá á laugardegi (til lukku) eða sunnu- degi (til sólar). Þessi gamla trú leynist í hugum margra þó að menn viðurkenni það kannski ekki, en svo mikið er víst að ekki er mikið um það að menn hefji slátt á mánu-, þriðju- eða mið- vikudögum og hvernig skyldi standa á því? SBG Dósakúlur konrnar til Akureyrar Þá eru dósakúlur komnar til Akureyrar. Björn Jósep Arnviðarson, formaður umhverfisnefndar Akur- eyrarbæjar, tók þær formlega í notkun á tjaldsvæðum bæjarins í gær með því að setja eitt stykki tóma gosdrykkjardós ofan í eina þeirra. Auk kúlunnar á tjaldsvæðinu eru nú staðsettar dósakúlur við versl- unar- og þjónustumiðstöðina Kaupang og Shell Hörgárbraut. Von er á fleiri kúlum innan tíðar. Það er skátafélagið Klakkur á Akureyri sem hefur veg og vanda að þessu þarfa umhverfisátaki á Akureyri og rennur ágóði af dósasöfnuninni til félagsins. Skátafélagið mun einnig bjóða fólki upp á að ná í dósir í heimahús og mun fjármunum sem safnast vegna þessarar þjónustu fram til 1. júlí nk. verða varið til að fjármagna ferð félaga í Klakki á Landsmót skáta að Úlfljótsvatni 1.-8. júlí nk. óþh Enduruppbygging Krossanesverksmiðjunnar: Kostnaðurinn hleypur á tugum milljóna rnnfram áætlun - hluthafar hugsa sín mál þar til á föstudag en þá verður ákvörðun tekin í ljósi nýrra upplýsinga Stjórn og eigendur Krossaness standa nú frammi fyrir miklum vanda. Ljóst er að kostnaður við enduruppbygginu Krossa- nesverksmiðjunnar nemur tug- um milljóna króna umfram það sem áætlað hafði verið eft- ir brunann sl. vetur. Hólm- steinn Hólmsteinsson, stjórn- arformaður, segir að upphæð- in sé á bilinu fímmtíu og fímm til sextíu milljónir króna. Þess- ar upplýsingar komu fram á hlutahafafundi í Krossanesi á fímmtudaginn. í samtali við Dag sagði Hólm- steinn að hann hefði verið van- trúaður á þær tölur sem lagðar voru fyrir um kostnað við endur- uppbygginguna síðasta vetur, og talið þær of lágar. Nú hafi komið á daginn sem hann og aðrir grun- uðu, að kostnaðurinn yrði mun meiri en ráð var fyrir gert þá. „Við gerum ráð fyrir að þetta sé nákvæm tala, þannig að ekki komi bakreikningar. Inni í þessu er starfsmannaaðstaða, sem var ekki í fyrri áætlun, og í þeirri áætlun var heldur ekki neitt sem hét þrif og hreinsun á lóðinni. Þetta hefur orðið mjög til hækk- Akureyri: Dýraspítali í Breiðholtshverfi? Bygginganefnd Akureyrarbæj- ar hefur gefíð kost á Ióð í Breiðholtshverfí fyrir dýraspít- ala og hesthús. Elfa Ágústs- dóttir, dýralæknir, lagði inn umsókn til bygginganefndar þar sem hún óskaði eftir lóð í nágrenni Breiðholtshverfís. Elfa sagði í samtali við blaðið að málið sé ekki komið lengra. Margt eigi eftir að skoða varð- andi lóðina áður en til fram- kvæmda geti komið og því sé of snemmt að segja til um hvort þarna muni rísa dýraspítali. Uppi var hugmynd um annan stað fyrir dýraspítala en Elfa seg- ir freistandi að koma upp dýra- spítala í námunda við hesthúsa- hverfi Akureyringa, sérstaklega hvað varðar hestalækningar og einnig að vera nálægt bænum. „Þetta kemst vonandi fljótlega á hreint," segir Elfa. JÓH unar. Síðan var bætt við sjóðara, sem talið var nauðsynlegt í fram- leiðslulínuna, og hann kostar um tuttugu milljónir króna. Þessir þrír þættir vega þyngst. En marg- ir voru mjög vantrúaðir á kostri- aðaráætlunina í vetur, þar á með- al ég. Menn óttuðust að hún færi fram úr, og nú er það orðin stað- reynd,“ segir Hólmsteinn. Hólmsteinn segir að sá vandi sem við blasi sé spurningin um hvernig eigi að fjármagna mis- muninn. Eins og málin hafi verið lögð upp á sínum tíma hafi verið talið að Krossanes þyldi ekki meiri skuldsetningu og lántökur en þá voru. Því sé greinilegt að leysa þurfi málið á annan hátt en með lántöku sem lendi á verk- smiðjunni að greiða. Nýtt hlutafé þurfi að koma til, svo rekstrar- grundvelli verksmiðjunnar sé ekki teflt í hættu. „Við viidum gera hluthöfum strax grein fyrir stöðunni, og þeir eru að hugsa málið,“ segir hann. Hluthafar munu taka ákvörð- un á föstudaginn, en þessar upp- lýsingar munu hafa komið eig- endum loðnubátanna fjögurra, sem gengu inn í fyrirtækið, tals- vert á óvart. Páll R. Sigurðsson, vélaverk- fræðingur, hefur skipulagt vinnsl- una í Krossanesi að nýju. Hann segir að nokkuð dýrari leið hafi verið farin við enduruppbygging- una en sú sem áður hafi verið tal- að um. Aðferðin við bræðsluna verði hefðbundnari og áþekk því sem gerist í öðrum loðnubræðsl- um hér á landi. Meðal tækja sem verða endurnýjuð eru sjóðari, þurrkari og skilvindukostur. Einnig má nefna nýjan rafskauta- ketil til gufuframleiðslu. Lagnir að þessum tækjum verða einnig mikið endurnýjaðar. Verksmiðj- an á að verða tilbúin í nóvember. Um síðustu áramót skuldaði Krossanesverksmiðjan um 700 milljónir króna. EHB Blönduóshöfn lokuð vegna framkvæmda: Á meðan græða Skagstrendingar Höfnin á Blönduósi hefur ver- ið lokuð síðustu tvær vikur vegna framkvæmda. Verið er að endurnýja þekjuna á bryggjunni og steypa nýja. Framkvæmdir standa yfír út júnímánuð og á meðan þurfa bátar frá Blönduósi að landa á Skagaströnd og Hvamms- tanga. Undirbúningsvinna hófst í fyrra og það var um síðustu mán- aðamót sem loka varð bryggjunni fyrir lönd.un báta og skipa. Blönduósbátar hafa að mestu snúið sér til Skagastrandar með aflann, en einhverjir hafa landað á Hvammstanga. „Það er auðvitað slæmt að tapa hafnargjöldunum út af þessu en við því er ekkert að segja. Það verður að gera þetta. Verkinu miðar vel og verður lokið á áætl- un, jafnvel fyrr," sagði Ófeigur Gestsson, bæjarstjóri á Blöndu- ósi, í samtali við Dag. -bjb Akureyri: Eldur í kyndi- klefa hjá KEA - æfing í Sæbjörgu Slökkviliðið var kallað út tvisv- ar sinnum í gærmorgun. í fyrra skiptið var það kvatt um borð í slysavarnaskipið Sæbjörgu og sköminu síðar var tilkynnt um eld í kyndiklefa hjá bygginga- vörudeild KEA í Lónsbakka. Fyrra útkallið reyndist vera æfing en það síðara var alvara. Nokkrar skemmdir urðu vegna reyks, en slökkviliðinu tókst að ráða niðurlögum eldsins á skömmum tíma. Um hálfellefuleytið var til- kynnt um eld um borð í Sæbjörgu og sagt að einn maður væri týnd- ur í skipinu. Fimmtán mínútum síðar var búið að bjarga mannin- um. Slökkviðliðsmenn voru bún- ir að kynna sér aðstæður í Sæbjörgu á æfingu en í þessu útkalli var búið að breyta ýmsum skilrúmum til að gera reykköfur- um erfiðara fyrir. Frekar litlar skemmdir urðu vegna eldsins í kyndiklefanum f Lónsbakka. Eldsupptök eru talin vera vegna neistaflugs. -bjb Vegaframkvæmdir á Norðurlandi: Unnið fyrir 800 milljómr A þessu ári verður unnið við alls 29 verkefni á vegum á Norðurlandi. Samkvæmt nýút- komnu yfírliti Vegagerðar rík- isins er kostnaður vegna þess- ara verkefna um 800 milljónir króna. Stærstur hluti þessarar upp- hæðar er vegna jarðganganna í Ólafsfjarðarmúla sem verða tek- in í notkun undir lok þessa árs. Þá eru tæpar 100 milljónir vegna viðgerðar á Strákagöngum. Unnið verður við flest þessara verkefna í sumar og er vinna víða þegar hafin. Yfirlit yfir þessi verkefni er að finna á bls. 3. JÓH

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.