Dagur - 19.06.1990, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 19. júní 1990 - DAGUR - 3
-i
fréttir
í-
Vegaframkvæmdir á Norðurlandi í ár:
Jarðgangaverkefnin eru fíárfrekust
Vegagerð ríkisins hefur sent
frá sér yfirlit um þær fram-
kvæmdir sem ráðist verður í á
vegum landsins í sumar. Á
Norðurlandi vestra verður í
sumar unnið á 15 stöðum en á
Norðurlandi eystra verða verk-
efni sumarsins 14 að tölu.
Verkefnin á Norðurlandi
eystra kosta tæpan hálfan
milljarð en gæta verður þess
þó að í einu tilfellinu er um að
ræða útboðsverk sem skila skal
síðari hluta næsta árs. Unnið
verður fyrir 273 milljónir á
árinu á Norðurlandi vestra.
Yfirlit fer hér á eftir.
Fimmtán verkefni
á Norðvesturlandi
Á Vatnsnesvegi í Vestur-Húna-
vatnssýslu verða verkefnin þrjú
talsins og verður unnið fyrir
samtals 12,6 milljónir króna.
Lagfærð verður brú á Tjarnará,
hækkaður vegur hjá Ósum og
styrktur kaflinn milli Þjórsár og
Ósa. Þess má geta að síðasta
verkefnið tekur til sín alls 6,6
milljónir króna.
Önnur verkefni á vestanverðu
Norðurlandi eru að á Svínvetn-
ingabraut við Blönduós verður
byggður upp 1,6 km vegarkafli og
nemur kostnaðurinn 14 milljón-
um króna. í Vatnsdal verður sett
nýtt ræsi í Árfarið fyrir um 4
milljónir króna, á Skagavegi
verður sett ræsi í Laxá og vegur
tengdur við ræsið en þetta verk
kostar um 3 milljónir. Nokkrar
framkvæmdir verða á leiðinni um
Bólstaðarhlíð og upp á Vatns-
skarð þar sem vegur verður
styrktur. Alls er um að ræða 5,6
km vegarkafla og kostar verkið
um 13 milljónir króna.
Á Siglufjarðarvegi er áætlað að
vinna fyrir um 32 milljónir króna
þar sem byggð verður ný brú á
Fljótaá og hún tengd. Flokkur
Gísla Gíslasonar vinnur verkið
en sami flokkur ntun byggja brú á
Brúnastaðaá í Fljótum í sumar.
Á Hegranesvegi eystri verður
byggður upp um 1,5 km kafli unt
Ás fyrir 3 milljónir króna. Á
Hegranesvegi eystri verður líka
byggður upp 1 km kafli fyrir
sömu upphæð.
Á Norðurlandsvegi milli Víði-
valla og Uppsala verður lögð
klæðing á 6 km kafla sem byggður
var upp á síðasta ári en frá Upp-
sölum að Skeljungshöfða verð-
ur vegur byggður upp og lögð
fyrri klæðing í haust. Þessi hluti
kostar um 52 milljónir króna. Á
Skagafjarðarvegi verður lokið
við að byggja upp 3,2 km leið
Laxveiði hafin í tjörn austan Laugalandsvegar:
Tuttugu og tveir laxar
á land í gærmorgun
Paradís laxveiðimannsins var
opnuð með viðhöfn, austan
Laugalandsvegar, föstudaginn
15. júní. Fjölmenni var við
opnun svæðisins og þar mátti
sjá mörg kunn andlit úr bæjar-
lífi Akureyrar.
Laxveiðisvæðið við Lauga-
landsveg var opnað kl. 16.00 með
viðhöfn og nokkrir fjölmiðla-
menn og kunn andlit úr laxveiði-
heiminum hófu veiðarnar. Veið-
in var róleg fyrst framan af, en
fyrsta fiskinn fékk Rúnar Þór
Björnsson, Ijósmyndari Morgun-
blaðsins. Fiskur Rúnars var þrjú
pund og viðureignin tók skamma
stund. „Eg var að koma úr Laxá í
S.-Þingeyjarsýslu með öngulinn í
rassinum. Nei, ég er ekki vanur
veiðimaður, en veiðigyðjan var
mér hliðholl nú," sagði Rúnar
Þór.
Yfir helgina veiddust hátt í
þrjátíu laxar í lóninu og í gær-
morgun veiddust 22 laxar, þannig
að flestir geta verið ánægðir.
Hálfur veiðidagur kostar kr. 1500
og síðan hver veiddur fiskur kr.
350. Allir þeir veiðimenn, sem
blaðamaður Dags hafði tal af,
voru mjög ánægðir með framtak
Gísla Jónssonar og Ferða-
skrifstofu Akureyrar og höfðu á
orði, að veiðarnar væru kærkom-
in nýjung í bæjarfélaginu og gæfu
Akureyri aukið vægi sem ferða-
mannastað. ój
milli Varmalækjar og Mælifellsár
auk þess sem lögð verður klæðing
frá Varmalæk að Svartárbrú.
Þetta verk kostar í heild um 11
milljónir króna.
Fjárfrekasta verkefni sumars-
ins á Norðurlandi vestra er við-
gerð á Strákagöngum sent kosta
mun tæpar 100 milljónir króna.
Göngin verða styrkt, sett upp
vatnsvarnarlag, lagnir og endur-
nýjað gólf.
Olafsfjarðargöngin
stærst verkefna
á Norðurlandi eystra
Vinna við jarðgöng ber einnig
hæst á lista verkefna á Norður-
landi eystra í ár. Sem kunnugt er
veröur lokið við jarðgöngin í
Ólafsfjarðarntúla á árinu, for-
skála og vegtengingar en verk-
efnið í heild kostar í ár um 345
milljónir króna og eru verklok
áætluð í nóvember. Skyld þessu
verkefni er framlenging vegteng-
ingar við göngin fyrir um 15 ntillj-
ónir en flokkar Vegagerðar rík-
isins áætla að Ijúka því í ágúst.
í Svarfaðardal verður sett mal-
arslitlag á 3 knt kafla milli Hreið-
arstaðakots og Hóls. A svoköll-
uðum Bakkavegi í Arnarnes-
hreppi verður skipt um ræsi við
Pálmholtslæk í ágústmánuði og á
Dagverðareyrarvegi verður 5,6
km vegkafli styrktur og mölbor-
inn á sama tíma.
Áfram verður haldið fram-
kvæmdum á Norðurlandsvegi um
Öxnadal. Samtals verður þar
unnið fyrir 80 milljónir króna en í
því felst klæðing á veginum milli
Steðja og Bægisár en 8,8 km leið
frá Bægisá að Þverá veðrur
undirbyggð og skal því verki lok-
ið fyrir 15. september 1991.
Afleggjarinn af Norðurlands-
vegi til Svalbarðseyrar verður
byggður upp í sumar og kostar
verkið 14 milljónir króna.
1 Mývatnssveit verður ráðist í
þrjú minni verk. Um að ræða
seinna lag klæðingar á leiðinni
milli Vagnbrekku og Stekkjar-
ness sem unnið verður að í júlí og
seinna lag klæðingar á veginum
milli Garðs og Skútustaða, alls
2,9 km. Þá verður lagt seinna lag
klæðingar á Flugvallarveginn.
Á Hólsfjallavegi verður ekið
malarslitlagi í verstu kaflana í
júlímánuði og á sama tíma veðr-
ur klæöing sett á veginn milli
Brúarlands og Hafralónsár á
Norðausturvegi. Loks verður
unnið fyrir 9 milljónir króna við
Raufarhöfn þar sem seinna lag
klæðingar verður sett á veginn að
flugvellinum. Þetta verk verður
einnig unnið í næsta mánuði.
JÓH
Forseti íslands:
Tuttugu Islendingar sæmdir
heiðursmerki fálkaorðunnar
Forseti Islands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, sæmdi um
helgina aö tillögu orðunefndar
tuttugu Islendinga heiöurs-
merki hinnar íslensku fálka-
Útskrift í Háskólanum á Akureyri:
Þóra Regína með hæstu meðaleinkmm
Ellefu nemendur útskrifuðust
úr rekstrardeild Háskólans á
Akureyri á föstudaginn. Há-
skólanum og Félagsstofnun
stúdenta bárust peningagjafir
við það tækifæri.
Skipting nemenda var þannig
að fimm útskrifuðust sem iðn-
rekstrarfræðingar og sex sem
rekstrarfræðingar. Þóra Regína
Þórarinsdóttir fékk hæsta meðal-
einkunn, 8,16. Hún var á iðn-
rekstrarbraut.
Ræður og ávörp fluttu Harald-
ur Bessason, háskólarektor, og
Stefán G. Jónsson, forstöðumað-
ur rekstrarsviðs háskólans. Gísli
Konráðsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri, færði Háskólanum
peningagjöf frá Sparisjóði Akur-
eyrar og Arnarneshrepps. Hall-
dór Blöndal, alþingismaður,
færði Félagsstofnun stúdenta
peningagjöf frá Búnaðarbanka
Islands. Valur Arnþórsson,
bankastjóri, færði félagsstofnun
einnig peningjagjöf frá Lands-
banka íslands. EHB
orðu. Einn þeirra, Helgi
Bergs, fv. bankastjóri Reykja-
vík, fékk stórriddarakross fyrir
störf að bankamálum. Tveir
Norölendingar voru sæmdir
riddarakrossi, Friðgeir Guð-
jónsson, ráðsmaöur Holti í
Þistilfiröi, fyrir störf í þágu
landbúnaðar og fjallskila og
Sigurður Pétur Björnsson, fv.
bankaútibússtjóri Húsavík,
fyrir störf að félags- og banka-
málum.
Hinir sautján sem voru sæmdir
riddarakrossi hinnar íslensku
fálkaorðu eru: Ásgrímur Krist-
jánsson, fv. yfirsíldarmatsmaður
Reykjavík, fyrir störf að gæða-
málum íslenskra sjávarafurða
Björn Hermannsson, tollstjóri
Reykjavík, fyrir störf í opinbera
þágu, Björn Sigurbjörnsson,
dr. phil Vínarborg, fyrir vísinda-
störf, Gréta Bachmann, þroska-
þjálfi Reykjavík, fyrir störf að
málefnum þroskaheftra, Gunnar
Wendler Jóhannsson, forstöðu-
maður Frankfurt, fyrir landkynn-
ingarstörf, Hannes Pétursson,
skáld Reykjavík, fyrir ritstörf,
Hulda Valtýsdóttir, blaðamað-
ur Reykjavík, fyrir störf að skóg-
ræktarmálum, Jón G. Tómas-
son, borgarritari Reykjavík, fyrir
störf að sveitarstjórnarmálum,
séra Jónas Gíslason, vígslu-
biskup Reykjavík, fyrirr störf að
kirkjumálum, Ólafur E. Ólafs-
son, fv. kaupfélagsstjóri Reykja-
vík, fyrir störf að mannúðar- og
félagsmálum, Rut Ingólfsdóttir,
fiðluleikari Reykjavík, fyrir störf
að tónlistarmálum, Sigríður
Haraldsdóttir, hússtjórnarkenn-
ari Rcykjavík, fyrir íræðslustörf.
Sigurður Hclgason, forstjóri
Reykjavík, fyrirstörf að flugsam-
göngum, Tómas Árni Jónsson,
Iæknir Reykjavík, fyrir störf að
heilbrigðismálum, Valtýr Há-
konarson. fv. skrifstofustjóri,
fyrir störf að siglingamálum,
Valur Valsson, bankastjóri
Reykjavík, fyrir störf að banka-
málum og Þór Guöjónsson, fv.
veiðimálastjóri Reykjavík, fyrir
störf að lax* og silungsveiðimál-
um. óþh
Umferðarráð:
Hvetur til sameiginlegra
aðgerða gegn hraðakstri
Vegna tíðra alvarlegra umferð-
arslysa á þjóðvegum landsins,
hefur Umferðarráð sent öllum
lögreglustjórum landsins bréf
þar sem hvatt er til sameigin-
legra aðgerða gegn gáleysisleg-
um og of hröðum akstri.
Á næstunni mun lögreglan
væntanlega herða eftirlit með því
að ökumenn haldi sig á löglegum
hraða og þar með vonandi fækka
umferðarslysum. Einn viðmæl-
enda blaðsins í lögreglunni taldi
að hin válegu tíðindi hefðu
eitthvað hægt á ökuhraðanum,
en þetta væri mál sem lögreglan
væri sívakandi yfir.
Mjög rólegt hefur verið hjá
lögreglunni hér norðanlands að
undanförnu. Á vorin hefur oft
gosið upp innbrotafaraldur með-
al unglinga eftir að skóla lýkur,
en að sögn rannsóknarlögregl-
unnar hefur enginn innbrotafar-
aldur gert vart við sig nú.