Dagur - 19.06.1990, Page 9
8 - DAGUR - Þriðjudagur 19. júní 1990
íþróttir
4. deild:
HSÞ-b hafði
beturí
toppslagnum
HSÞ-b sigraði UMSE-b í 3:0 3. umferð
E-riðils 4. deildar í Mývatnssveit á laug-
ardaginn. Leikurinn var heldur slakur
og lítið fyrir augað en leikmenn HSÞ-b
nýttu færin og það réði úrslitum. HSÞ-
b situr nú í efsta sæti riðilsins með 7
stig, UMSE-b er í öðru sæti með 6 stig
og Magni í því þriðja með 4 stig og leik
til góða.
Mikill hliöarvindur stóö á völlinn og lið-
in áttu erfitt meö að hemja boltann. HSÞ-
b náöi forystunni nteð marki á 15. mínútu
og staðan í hléi var 1:0. Liöið bætti síöan
tveimur mörkum við í síöari hálfleik án
þess að UMSE-b næöi að svara fyrir sig.
Þórir Þórisson skoraöi tvö mörk fyrir HSÞ-
b og Viðar Sigurjónsson eitt.
Bæði lið áttu heldur slakan dag, einkum
þó gestirnir. Þeir fengu þó færi til að skora
en tókst ekki að nýta þau.
Fyrsti sigur
Austra
- vann Narfa 4:2
Austri frá Raufarhöfn vann sinn fyrsta
sigur í 4. deild íslandsmótsins í knatt-
spyrnu þegar liðið lagði Narfa frá Hrís-
ey 4:2 á laugardaginn. Leikurinn fór
fram á Árskógsstrandarvelli en Narfa-
menn Ieika heimaleiki sína þar í sumar.
Jafnræði var með Iiðunum í fyrri hálflcik
og náðu Austramenn forystunni tvívegis
en Narfi náði að jafna í bæði skiptin og
staðan í hléi var 2:2.
í síðari hálfleik voru gestirnir heldur
sterkari og bættu við tveimur ntörkum og
tryggðu sér sigurinn. Sigurður Helgi Ólafs-
son skoraði þrjú mörk fyrir Austra og Pét-
ur Jónsson eitt. Björn Eiríksson og Sigur-
jón Sigurbjörnsson skoruöu mörk Narfa.
Hvöt lagði
Þrym í rokinu
Hvöt frá Biönduósi bar sigurorð af
Þrym á Sauðárkróki sl. laugardag með
þremur mörkum gegn tveimur.
Leikurinn fór fram í sterkum vindi á
malarvellinum á Króknum og má segja að
vindurinn hafi ráðið lögum og lofum á vell-
inum. Hvatarmenn sýndu samt hversu
sterkir þeir eru, en Þrymsliðið seiglaðist
þó áfram með vindinn með sér t seinni
nálfleik. Staðan í hléi var 2:0 fyrir Hvöt. r
Mörkin gerðu fyrir Hvöt þeir Asgeir
Valgarðsson (2) og Guðmundur Sveins-
son, en fyrir Þrym voru það Magnús Er-
lingsson og Jón Hallur Ingólfsson sem
skoruðu,________________SBG
Neisti tók
Geisla í
kennslustund
Neistl á Hofsósi tók Geisla frá Hólma-
vík í kennslustund á Hofsósvelli sl.
laugardag. Neistamenn gerðu átta
mörk gegn engu marki Geisla.
Augljóst var hvort liðið var betra á
Hofsósi því að það var sárasjaldan sem að
Geislarnir náðu að skína í gegnum vörn
Neista. Leikurinn hefði átt að enda með
enn stærri sigri Neista því að þeir hreinlega
óðu í færum, en nýttu sér einungis lítinn
hluta þeirra.
Mörkin fyrir Neista gerðu: Magnús
Jóhannesson (3), Oddur Jónsson (3) og
Ingvar Magnússon (1). Eitt markanna átta
var síðan sjálfsmark. SBG
-------------------jHI
2. deild:
Breiðablik hafði
betur í rokinu
- sigraði Leiftur 3:1
Breiðablik sigraði Leiftur 3:1
þegar liðin mættust í Kópavogi
á föstudagskvöld. Yeðrið var í
einu af aðalhlutverkunum og
má segja að liðin hafi átt sinn
hálfleikinn hvort, Breiðablik
lék undan vindinum í fyrri
hálfleik og var þá sterkari aðil-
inn en dæmið snerist við í þeim
seinni. Þrátt fyrir það náðu
Blikar að skora tvívegis í seinni
hálfleik og tryggja sér sigur
sem var a.m.k. of stór miðað
við gang leiksins.
Breiðabliksmenn voru mun
meira með boltann í fyrri hálfleik
og réðu ferðinni. Þeir náðu þó
aðeins að skora einu sinni og þar
var að verki Willum Þór Þórsson
með þrumuskoti af löngu færi.
í seinni hálfleik var röðin kom-
in að Leiftursmönnum. Þeir náðu
strax upp mikilli pressu og þegar
um 10 mínútur voru liðnar jafn-
aði Þorlákur Árnason metin en
meiddist um leið og var borinn
útaf. Leiftursmenn sóttu áfram
en færin létu á sér standa og þeg-
ar um 15 mínútur voru til leiks-
loka skoraði Grétar Steindórsson
fyrir UBK úr vítaspyrnu, þvert á
gang leiksins.
Leiftursmenn voru síðan full
ákafir í sókninni eftir þetta enda
engu að tapa og Blikar innsigluðu
sigur sinn fáum mínútum fyrir
lokaflautið með marki Grétars
Steindórssonar.
Miðað við gang leiksins og fær-
in sem liðin fengu var þessi sigur
ekki sanngjarn. Blikar nýttu færi
sín hins vegar betur og fengu því
stigin þrjú. Lið þeirra var jafnt en
Örn Torfason og Hörður Benó-
nýsson voru mest áberandi í liði
Leifturs.
Fjölþrautamót
í Mosfellsbæ
Dagana 26. og 27. júní nk. fer
fram fjölþrautarmót á vegum
Frjálsíþróttasambands Islands
í Mosfellsbæ. Keppt verður í
tugþraut karla og sjöþraut
kvenna.
Tugþraut karla er liður í undir-
búningi fyrir landskeppni í tug-
þraut milli íslands, Hollands og
Belgíu sem fram fer í Amster-
dam dagana 21. og 22. júlí nk.
Mótið hefst kl. 17.30 báða dag-
ana.
2. deild:
Stór ósigur KS
gegn FylMsmönnum
- tapaði 1:6 í Reykjavík
KS-ingar máttu þola stóran
ósigur er þeir mættu Fylki í 4.
umferð 2. deildar íslandsmóts-
ins í knattspyrnu í Reykjavík á
föstudagskvöld. Þegar upp var
staðið höfðu heimamenn skor-
að sex mörk en gestirnir aðeins
eitt. Fylkismenn sitja í efsta
sæti deildarinnar með fullt hús
eftir fjóra leiki en KS er í
þriðja neðsta sæti með 3 stig.
Leikurinn á föstudagskvöldið
var nokkuð köflóttur. Fyrri hálf-
leikur var nokkuð jafn og KS
sótti ekkert minna en Fylkir.
Fylkismenn náðu hins vegar að
skora þrívegis áður en flautað var
til hlés og má segja að þau mörk
hafi öll verið af ódýrari gerðinni.
í síðari hálfleik lék KS með
vindinn í bakið og þeir náðu
fljótlega að minnka muninn með
marki Hlyns Eiríkssonar.
Skömmu síðar var Fylkismannin-
um Guðmundi Baldurssyni vikið
af leikvelli og KS-ingar sóttu í sig
veðrið. Það voru hins vegar Fylk-
ismenn sem skoruðu næsta mark
úr skyndisókn og við það hrundi
leikur KS-inga og heimamenn
bættu tveimur mörkum við fyrir
leikslok. Finnur Kolbeinsson
skoraði tvö mörk fyrir Fylki og
þeir Guðmundur Baldursson,
Kristinn Tómasson, Hörður
Valsson og Örn Valdimarsson
skoruðu eitt mark hver.
Mark Duffield, þjálfari og
leikmaður KS, sagði í samtali við
Dag að það háði greinilega KS-
liðinu að hafa ekkert getað æft á
grasi. „Við æfum á möl og spilum
svo útileikina á grasi og það kem-
ur auðvitað ekki vel út. En gras-
völlurinn kemst í gagnið innan
skamms og þá breytist allt. Við
erum búnir með þrjá erfiða úti-
leiki og ég er bara bjartsýnn á
framhaldið,“ sagði Mark Duff-
ield.
KKI:
Æfíngabúðir í körfiibolta
- dagana 25.-29. júní
Körfuknattleikssamband ís-
lands hefur ákveöið að standa
fyrir æfingabúðum í körfu-
knattleik dagana 25.-29. júní
nk. Æft verður í íþróttahúsi
Seljaskóla í Reykjavík undir
stjórn Torfa Magnússonar og
Páls Kolbeinssonar.
Þessar búðir eru í tengslum við
Íþróttahátíð ÍSÍ. Körfuknatt-
leikssambandið hefur fegnið
aðalþjálfara Indiana Purdue
University í Bandaríkjunum,
Andy Piazza, til að koma til
íslands og sjá um æfingabúðirnar
með þeim Torfa og Páli. Koma
Piazza er mikill fengur og munu
þátttakendur í æfingabúðunum
vafalaust læra mikið af honum.
Þess má geta að hann lék með og
þjálfaði KR keppnistímabilið
1977-’78 og gerði þá KR-inga að
íslandsmeisturum.
Æfingabúðirnar verða tvískipt-
ar, fyrir börn 9-13 ára frá kl. 10-
15 og fyrir unglinga 14-17 ára frá
kl. 18-22.
Hörður Benónýsson lék vel í Kópavogi en náði þó ekki að skora.
Mynd: KL
Heppnissigur Tindastóls
- á ÍBK
Heppnin var með Tindastóls-
liðinu þegar það vann ÍBK sl.
föstudagskvöld á Sauðárkróki
1:0. Guðbrandur Guðbrands-
son gerði mark Tindastóls á 5.
mínútu leiksins og dugði það
þeim til sigurs þrátt fyrir linnu-
litlar sóknir Keflvíkinga.
Leikurinn hófst með miklum
látum og strax á 5. mínútu gerðu
varnarmenn Keflvíkinga mistök,
þannig að Björn Sigtryggsson
komst inn í sendingu og náði að
renna knettinum til Guðbrands
sem sendi hann af öryggi í netið
hjá Ólafi Péturssyni markverði.
Eftir þetta mark sóttu Keflvík-
ingar nær látlaust í fyrri hálfleik.
Aldrei náðu þeir þó að skapa sér
nein teljandi marktækifæri held-
ur var eins og það vantaði alltaf
rnann inni í vítateig Tindastóls til
að spyrna knettinum í markið.
Tindastólsliðið átti þó sínar sókn-
ir annað slagið og í einni þeirra
átti Sverrir Sverrisson ágætan
skalla að marki ÍBK, en boltinn
fór yfir markið.
Seinni hálfleikur byrjaði eins
og sá fyrri endaði, með sóknum
Keflvíkinga og fékk Gestur
Gylfason góð tækifæri til að jafna
leikinn, því hann komst tvisvar á
auðan sjó inni í teig Tindastóls.
Stefán Árnarsson náði samt að
verja frá Gesti eins og öðrum
Keflvíkingum og hélti markinu
hreinu. Þegar um 15 mínútur
voru liðnar af seinni hálfleik fór
samt að færast sóknarþor í
Tindastólsliðið aftur og átti það
ágætis tækifæri, en nýttu þau ekki
frekar en Keflvíkingar sín og
leikurinn endaði 1:0 fyrir heima-
mönnum.
Bestu leikmenn hjá ÍBK voru
Jóhann Magnússon og Freyr
Sverrisson. Hjá Tindastól sýndi
Björn Björnsson góðan leik og
þeir Guðbjartur Haraldsson og
Ólafur Adolfsson stóðu fyrir sínu
í vörninni.
„Það eru stigin sem telja.
Markið í upphafi leiksins breytti
kannski hugarfari minna manna
og baráttan var mikil í seinni
hálfleik. Við eigum eftir að bæta
mikið, en samt erum við að vinna
leiki og eins og ég sagði áðan það
eru stigin sem telja,“ sagði Bjarni
Jóhannsson, þjálfari Tindastóls,
eftir leikinn. SBG
Sverrir Sverrisson og félagar voru heppnir að fá þrjú stig úr viðureigninni við
ÍBK.
Þriðjudagur 19. júní 1990 - DAGUR - 9
Bikarkeppni kvenna:
Þór í aðra umferð
eftir sigur á Þrótti N.
Þórsstúlkur tryggðu sér sæti
2. umferð bikarkeppni kvenna
er þær lögðu Þrótt frá Nes-
kaupstað á Þórsvellinum á
föstudagskvöldið. Úrslitin
urðu 2:0 í slökum leik þar sem
Þórunn Sigurðardóttir og stöllur
hennar eru komnar í 2. umferð í
bikarnum.
Þór hafði greinilega yfirburði
en gekk illa að nýta sér þá.
Þróttarar byrjuðu með miklum
látum en Þórsarar náðu smám
saman yfirtökum. Engin mörk
voru þó skoruðu í fyrri hálfleik.
í síðari hálfleik skoraði Ellen
Óskarsdóttir fyrir Þór strax í
upphafi og eftir það var aldrei
spurning hvorum megin sigurinn
lenti. Leikurinn fór eftir þetta að
mestu fram á vallarhelmingi
Þróttar en Þór tókst þó aðeins að
bæta einu marki við. Það mark
skoraði Soffía Frímannsdóttir
um miðjan hálfleikinn.
Eins og fyrr segir var leikur
þessi slakur og lítið fyrir augað.
Þróttarar einbeittu sér að varnar-
leiknum og Þórsurum gekk illa
að brjóta vörn þeirra á bak aftur
þrátt fyrir að þær væru greinilega
sterkari aðilinn.
Eins og fram hefur komið áttu
KA-stúlkur að leika við KS á
föstudagskvöldið. Ekkert varð af
þeim leik þar sem Siglfirðingar
gáfu leikinn og er KA-liðið því
einnig komið í 2. umferð.
3. deild:
Einstaklingsíramtak Garðars
tryggði Reyni sigur á Einherja
Reynir sigraði Einherja 2:1
þegar liðin mættust á Árskógs-
strönd í 4. umferð 3. deildar á
föstudagskvöldið. Sigur Reyn-
is getur ekki talist sérlega
sannfærandi, Einherjamenn
voru meira með boltann lengst
3. deild:
Völsungar í basli
Völsungur sótti Þrótt R. heim
um helgina í 3. deildinni í
knattspyrnu. Þróttarar náðu
að knýja fram sigur, tvö mörk
gegn einu, einni mínútu fyrir
leikslok í annars nokkuð jöfn-
um leik.
Nokkuð hvasst var þegar liðin
mættust og setti það mark sitt á
leikinni. Völsungar léku undan
vindi í fyrri hálfleik og sóttu þá
öllu meira en Þróttarar, en náðu
samt ekki að skapa sér verulega
Kvennalandslið U-16:
Fimm úr
Breiðabliki
í hópnum
Sigurður Hannesson og Steinn
Helgason, þjálfarar kvenna-
landsliðs íslands skipað leik-
mönnum 16 ára og yngri, hafa
valið 16 stúlkur til að taka þátt
í Norðurlandamóti stúlkna
sem fram fer í Svíþjóð dagana
25. júní til 2. júlí nk.
Hópurinn er þannig skipaður:
Markmenn:
Kristín Loftsdóttir KR
Ragnheiður Agnarsdóttir BÍ
Aörir leikmenn:
Heiða Ingimundardóttir Reyni S.
Berglind Jónsdóttir Val
Elín Gunnarsdóttir Val
Anna Steinsen KR
Elísabet Sveinsdóttir UBK
Hrafnhildur Gunnlaugsdóttir UBK
Katrín Oddsdóttir UBK
Unnur Þorvaldsdóttir UBK
Rósa Brynjólfsdóttir UBK
Hulda Hlöðversdóttir Haukum
Magnea Guðlaugsdóttir ÍA
Anna Valsdóttir ÍA
íris Steinsdóttir ÍA
Ásdís Þorgilsdóttir ÍBK
Þetta er í þriðja sinn sem
Norðurlandamót í þessum ald-
urshópi er haldið en í fyrsta sinn
sem ísland tekur þátt. Island er í
riðli með Hollandi, Noregi og
Svíþjóð.
góð marktækifæri. Heimamenn
áttu ágætar rispur inn á milli og
það voru þeir sem gerðu eina
mark fyrri hálfleiks þegar Daði
Harðarson, aldursforseti þeirra,
skoraði beint úr aukaspyrnu. f
seinni hálfleik höfðu Þróttarar
vindinn í bakið og sóttu öllu
meira, en Völsun^ar náðu engu
að síður að jafna. Ásmundur Arn-
arsson skoraði gott mark eftir
hornspyrnu. Það var síðan einni
mínútu fyrir leikslok að Ásmund-
ur Helgason skoraði sigurmark
Þróttara. Þróttur stefnir nú hrað-
byri á 2. deild en hið unga lið
Völsungs verður að taka sig veru-
lega á ef það ætlar að vera með í
toppbaráttunni. óhú
af en gekk illa aö skapa sér
færi og máttu því sætta sig viö
ósigur.
Reynismenn fengu óskabyrjun
Garðar Níelsson tryggði Reyni dýr-
mæt stig á föstudaginn.
og náðu forystunni eftir aðeins
þriggja mínútna lcik. Þá kom
sending fyrir Einherjamarkið og
þar var Páll Gíslason einn og yfir-
gefinn í vítateignum og skoraði
af öryggi.
Reynismenn virtust gefa nokk-
uð eftir í framhaldinu og Ein-
herjamenn réðu ferðinni. Þeir
sóttu nokkuð stíft og voru nokkr-
um sinnum nálægt því að skora
en fengu þó engin dauðafæri.
Staðan í hléi var 1:0.
Síðari hálfleikur hófst eins og
sá fyrri endaði, Einherjamenn
voru meira með boltann en
Reynismenn áttu ágætar sóknir
inn á milli. Þegar um 20 mínútur
voru til leiksloka fengu Vopnfirð-
ingar vítaspyrnu og úr henni
skoraði Gísli Davíðsson.
Skömmu fyrir leikslok tryggðu
Reynismenn sér svo sigurinn og
var þar um algert einstaklings-
framtak Garðars Níelssonar að
ræða. Hann náði boltanum af
varnarmanni Einherja við hliðar-
línuna og óð upp kantinn og inn í
teig. Þar náði hann að lauma
boltanum í markið af þröngu færi
og tryggja Reynismönnum stigin
þrjú.
Dalvíkingar náðu í stig austur
- gerðu jafntefli 2:2 við Þrótt
Sigurvin Jónsson markmaður
Dalvíkinga varði vítaspyrnu er
Dalvík gerði jafntefli við Þrótt
er liðin léku í Neskaupstað sl.
föstudagskvöld í rigningar-
slabbi.
Dalvtkingar voru ívíð sterkari
í fyrri hálfleik, og m.a. skaut Jón
Örvar Eiríksson í stöng úr
dauðafæri, en það voru samt
Þróttarar sem skoruðu fyrsta
markið á sjöttu mínútu eftir
hornspyrnu, og var þar að verki
Árni Freysteinsson fyrrum
leikmaður KA. Á 30. mínútu
jafnaði Ágúst Sigurðsson fyrir
Dalvík, og þannig var staðan í
hléi.
Á áttundu mínútu seinni hálf-
leiks náði Þráinn Haraldsson aft-
ur forystunni fyrir Þrótt með
marki úr vítaspyrnu og aðeins
tveimur mínútum síðar var aftur
dæmd vítaspyrna á Dalvík, en
Sigurvin markmaður varði spyrnu
Þráins. Skömmu síðar fékk
Ágúst Sigurðsson hjá Dalvík að
sjá rauða spjaldið eftir brot á
markmanni Þróttara en dómar-
inn hafði áður sýnt honum það
gula fyrir ósæmilegt orðbragð.
Fjórum mínútum fyrir leikslok
jafnaði svo Jón Örvar Eiríksson
leikinn eftir stungusendingu inn
fyrir vörn Þróttara.
Leikurinn var nokkuð jafnari í
seinni hálfeik án þess að verulega
hættuleg tækifæri sköpuðust utan
þeirra sem mörkin komu úr svo
líklega hefur jafntefli verið sann-
gjörnustu úrslitin. Dómari var
Sigurjón Kristjánsson, og var
talsvert ósamræmi í dórnuin
hans. GG
3. deild:
TBA fékk skell
- tapaði 0:8 á ísafirði
TBA-menn fengu heldur betur
skell á Isafirði á föstudags-
kvöldið. Þeir léku þar við BI í
4. umferð 3. deildarinnar og
máttu hirða boltann átta sinn-
um úr netinu án þess að þeir
næðu að svara fyrir sig. Úrslit-
in réðust á upphafsmínútum
seinni hálfleiks þegar ísflrðing-
arnir skoruðu þrjú mörk á
fyrstu fimm mínútunum og eft-
ir það má segja að norðan-
menn hafl aðeins verið áhorf-
endur að leiknum.
Fyrri hálfleikur var nokkuð
jafn en BÍ-liðið var þó greinilega
.terkari aðilinn. Þeir voru mun
fljótari en gestirnir og spiluðu
ágætlega. Staðan í hléi var 2:0.
í seinni hálfleik mættu TBA-
menn ákveðnir til leiks og ætluðu
að gera stóra hluti. Það fór hins
vegar á annan veg. Þrjú klaufa-
mörk á fyrstu fimm mínútunum
gerðu út um leikinn og eftir það
var aðeins spurning um hversu
oft ísfirðingarnir næðu að skora.
Þeir svöruðu þeirri spurningu
með þremur mörkum og úrslitin
því 8:0. Jóhann Ævarsson var
áberandi í liði BÍ og skoraði
fimm mörk, Haukur Benedikts-
son skoraði tvö og Ólafur Peters-
en eitt.
Hörpudeild
Valur - ÍBV 4:1
Fram 5 4-1-0 13:0 13
Valur 5 3-1-1 9:4 10
KR 5 3-0-2 7:6 9
ÍBV 5 3-0-2 6:9 9
Stjarnan 5 2-1-2 6:9 7
FH 5 2-0-3 7:6 6
Víkingur 5 1-2-2 6:7 5
ÍA 5 1-2-2 4:8 5
Þór 5 1-1-3 2:6 4
KA 5 1-0-4 3:9 3
Markahæstir:
Guðm. Steinsson, Fram 6
Antony Karl Gregory, Val 3 Árni Sveinsson, Stjörnunni 3
Goran Micie, Víkingi 3 Hlynur Stefónsson, IBV 3 Ríkharður Daðason, Fram 3 Sigurjón Kristjánsson, Val 3
2. deild
Úrslil í 4. iimfcrö:
Víðir - Sclloss
UBK - Lciftur
Grindavík - ÍR
Tindastóll - ÍBK
Fylkir - KS
0:3
3:1
0:1
1:0
6:1
Fvlkir 4 4-0-0 13: 3 12
ÚBK 4 3-1-0 10: 3 10
Tindastóll 4 2-1-1 5: 3 7
Víðir 4 2-1-1 4: 5 7
ÍBK 4 2-0-2 4: 4 6
Selfoss 4 1-1-2 6: 6 4
Leiftur 4 1-1-2 3: 7 4
KS 4 1-0-3 4: 9 3
ÍR 4 1-0-3 4:10 3
Grindavík 4 0-1-3 5: 9 1
Markahæstir:
Grétar Steindórsson, UBK 5
Guöm. Baldursson, Fylki 3
Öm Valdimarsson, Fylki 3
3. deild
Úrslit í 4. umferð:
Þróttur R.-Völsungur 2 :1
Haukar-IK 1 :0
Þróttur N.-Dalvík 2 :2
BÍ-TBA 8 :0
Reynir Á.-Einherji 2 :1
Þróttur R. 4 4-0-0 16: 4 12
ÍK 4 3-0-1 12: 5 9
Haukar 4 3-0-1 10: 7 9
Dalvík 4 2-1-1 7: 7 7
Rcynir 4 2-0-2 8:10 6
Völsungur 4 1-1-2 5: 6 4
Þróttur N. 4 1-1-2 7: 7 4
BÍ 4 1-0-3 11:10 3
TBA 41-0-3 2:13 3
Einherji 4 0-1-3 3:12 1
Markahæstir:
Óskar Óskarsson, Þrótti R. 6
Jóhann Ævarsson, BÍ 5
Brynjar Jóhanncsson, Haukum 4
Garðar Níelsson, Reyni 4
4. deild
- D-riðill
Úrslit í 2. umferð:
Þrymur-Hvöt 2:3
Neisti-Geislinn 8:0
Hvöt 2 2-0-0 6:3 6
Neisti 2 1-0-1 9:3 3
Kormákur 1 1-0-0 3:1 3
Þrymur 2 0-0-2 3:6 0
Geislinn 1 0-0-1 0:8 0
- E-riðill
Úrslit í 3. umferð:
SM - Magni
HSÞ-b - UMSE-b
Narfi - Austri
HSÞ-b
UMSE-b
Magni
S.M.
Austri Rau
Narfi
3 2-1-0 8:
3 2-0-1 14:
2 1-1-0 6:
3 1-0-2 3:
3 1-0-2
2 0-0-2
1:3
3:0
2:4
3 7
3 6
44
63
5: 9 3
2:13 0