Dagur - 19.06.1990, Síða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 19. júní 1990
fþróttir
Golf:
Ólafur vann Lacoste-mótið
- Haraldur Júlíusson sigurvegari í keppni með forgjöf
Ölafur Gylfason sigraði í Lac-
oste golfmótinu sem fram fór á
Jaðarsvelli á Akureyri um
helgina. Ólafur lék 18 holurnar
á 79 höggum. Haraldur Júlíus-
son sigraði í keppni með for-
gjöf á 65 höggum. Keppnin fór
fram í frábæru veðri, sól og
blíðu og var þátttaka með
besta móti.
„Skorið“ í mótinu um helgina
var reyndar slakara en oft áður
þar sem kylfingarnir áttu í mikl-
um erfiðleikum með flatirnar.
f>ær voru harðar og þau voru
mörg „púttin“ sem ekki vildu
niður. Að öðru leyti voru aðstæð-
ur með besta móti, vallarstarfs-
menn hafa unnið geysilega gott
starf að undanförnu og völlurinn
er að verða fallegri en nokkru
sinni fyrr.
Þórhallur Pálsson og Guð-
mundur Sigurjónsson komu jafn-
ir inn í keppni án forgjafar á 80
höggum hvor. Þeir þurftu því að
leika til úrslita á holum 1, 4 og 9
og þar hafði Þórhallur betur og
hreppti annað sætið.
í keppni með forgjöf varð Stef-
án Jónsson í öðru sæti en hann
lék á 67 höggum. í þriðja sæti
varð síðan Ríkarður Ríkarðsson,
„gamalkunnugt andlit,“ eins og
Stefán Einarsson, formaður
kappleikjanefndar GA, orðaði
Ólafur Gylfason skoðar „púttlínuna“. Hann sigraði í keppni án forgjafar.
Mynd: JHB
það en Ríkarður hefur verið
áberandi í síðustu mótum. Hann
lék á 68 höggum.
Lacoste veitti aukaverðlaun
þeim sem næstir voru holu á
brautum númer 6 og 18. Þórhall-
ur Pálsson hreppti snyrtivörur
fyrir að vera næstur á 6. holu,
1.36 m, en Stefán Jónsson hlaut
sólgleraugu fyrir að vera næstur á
18. holu, 1.80 m. Þess má geta að
Stefán vann einnig aukaverðlaun
fyrir að vera næstur á 18. holu í
mótinu um síðustu helgi sem
kennt var við Stjörnusól.
Þess má reyndar geta að tveir
gestir skipuðu efstu sætin á mót-
inu um helgina en þeir fengu ekki
verðlaun þar sem um lokað mót
var að ræða. Andrew Jinks, nýi
golfkennarinn sem sagt var frá í
blaðinu fyrir skömmu, lék á fæst-
um höggum, eða 76, og skammt á
eftir honum kom Rúnar Gísla-
son, GR, á 79 höggum.
Á sunnudeginum átti að leika
um Gullsmiðabikarinn en því
móti var frestað um óákveðinn
tíma vegna ónógrar þátttöku.
Stefán Jóusson varð 2. í keppni með forgjöf og hreppti aukaverðlaun fyrir að
vera næstur holu annað mótið í röð.
Hörpudeildin í kvöld:
Þór-Valur á Akureyrarvelli
- KA-menn mæta Stjörnunni í Garðabæ
6. umferð Hörpudeildar Is-
landsmótsins í knattspyrnu
lýkur í kvöld en hún hófst í
gærkvöld með leik Fram og
Víkings. Þórsarar eiga heima-
leik í kvöld og taka á móti
Valsmönnum á Akureyrarvelli
en KA-menn halda í Garðabæ-
inn og mæta lærisveinum
Jóhannesar Atlasonar í Stjörn-
unni.
Aðrir leikir í umferðinni eru
leikur ÍBV og ÍA í Vestmanna-
eyjum og leikur KR og FH á KR-
vellinum. Allir leikirnir hefjast
kl. 20.
Þórsarar virðast vera í miklu
stuði þessa dagana. Þeir hafa
leikið vel í síðustu leikjum
sínum, unnu t.d. frækilegan útisig-
ur á FH-ingum í síðustu umferð
og voru þá búnir að leika skín-
andi vel gegn KR og Fram hér
heima. Valsmenn hafa byrjað ís-
landsmótið vel í ár og reyndar
mun betur en flestir bjuggust við.
Þeir eru nú í öðru sæti deildar-
innar og virðast ætla sér stóra
hluti í sumar. Eins og kunnugt er
leikur Halldór Áskelsson, fyrrum
Þórsari, með liðinu og verður
gaman að sjá hvað hann gerir í
kvöld en hann hefur reyndar ekki
náð sér sérlega vel á strik í fyrstu
umferðum mótsins vegna meiðsla.
KA-menn hlutu sín fyrstu stig
á íslandsmótinu í ár er þeir lögðu
Víking á Akureyrarvelli í síðustu
umferð. Þeir hafa örugglega ekki
hugsað sér að láta þar við sitja og
verða örugglega grimmir í Garða-
bænum. Stjörnumenn hafa kom-
ið nokkuð á óvart og má búast
við að þeir ætli sér að leggja
meistarana. Má því búast við
hörkuviðureignum bæði syðra og
hér norðanlands í kvöld.
Bágur ijárhagur skíðasambandsins:
600 þúsund króna
tap á síðasta árí
- 15 ára og yngri fá að keppa á
bikarmótum og Skíðamóti Islands
Skíöaþing 1990 var haldið í
Reykjavík 8. og 9. júní sl.
Þingið var umfram allt vinnu-
þing og voru þar m.a. sam-
þykkt ný lög fyrir Skíðasam-
bandið, svo og breytingar á
mörgum reglugerðum þess.
Merkasta nýjungin hvað varð-
ar keppendur er sennilega sú
að nú mega unglingar, sem
orðnir eru 15 ára, keppa í
bikarmótum fullorðinna og á
Skíðamóti Islands. Fjárhagur
sambandsins á síðasta ári var
þröngur og nam tap á rekstrin-
um um 600 þúsund krónum.
Á þinginu var samþykkt að
ekki sé lengur skylt að halda
Handknattleikur:
KA-menn til Sikilejjar í
taka þátt í
Handknattleikslið KA hefur
þegið boð um að taka þátt í
móti á Sikiley í september.
Leikið verður í tveimur borg-
um í eynni og auk KA taka
þátt í mótinu tvö ítöisk lið, og
er annað þeirra Ítalíumeistari
í handknattleik, og að öllum
líkindum tvö sterk júgóslav-
nesk lið.
„Það er einn úr stjórn hand-
knattleiksdeildarinnar sem er
mikið á Italíu að selja fisk. Þar
barst einhvern tímann í tal að
hann væri í tengslum við ís-
lenskt handknattleikslið og
þetta boð korn í framhaldi af
því,“ sagði Einar Jóhannsson,
formaður handknattleiksdeildar
KA. Einar sagði að þessi
keppni hefði verið árlegur við-
burður í nokkur ár og ltalirnir
hefðu haft áhuga á að fá
íslenskt lið til að taka þátt í því.
KA-liðið þarf að sjá um að
koma sér til Ítalíu en eftir að
þangað kemur sjá ítalirnir um
að greiða allan kostnað. Þessi
ferð kemur liðinu án efa vel því
þarna gefst færi á alvöru leikj-
um nokkrum dögum áður en ís-
landsmótið hefst.
Leikið verður í sex daga með
einum frídegi á milli. „Við höf-
um síðan möguleika á að dvelja
í æfingabúðum í einhverja daga
þannig að þetta verður sjálfsagt
tíu til tólf daga ferð í allt," sagði
Einar.
ítalskur handknattleikur hef-
ur ekki verið hátt skrifaður til
þessa en Einar sagði að búast
mætti við að breyting yrði þar á.
„Þeir eru að fara að leggja pen-
inga í þetta og þar verður um
gríðarlegar upphæðir að ræða.
Það má því alveg búast við að
ítalir komi sterkir upp í hand-
boltanum á næstu árum,“ sagði
Einar Jóhannsson.
Unglingameistaramót íslands
fyrir 13-14 ára og 15-16 ára á
sama stað. Þá voru samþykktar
reglugerðir fyrir Öldungamót
íslands og Andrésar Andar leik-
ana.
Á þinginu var samþykkt fjár-
hagsáætlun upp á rúmar 14 millj-
ónir kr. og af þeirri upphæð er
reiknað með að rúmar 7,7 millj-
ónir kr. renni beint til rekstrar
landsliðanna.
Sigurður Einarsson var kosinn
formaður til eins árs og þeir fjórir
sem hlutu kosingu í stjórn til
tveggja ára eru Bjarni Þórðar-
son, Jón Á. Jónsson, Walter
Hjartarson og Benedikt Geirs-
son. Fyrir í stjórn eru Valur
Pálsson, Hans Kristjánsson,
Sigurður Aðalsteinsson og
Sigurður Þ. Sigurðsson.
Fram kom á þinginu að búið er
að staðfesta sjö alþjóðleg FIS
mót fyrir konur og karla sem
fram eiga að fara í Reykjavík, á
ísafirði, Dalvík og Akureyri dag-
ana 12.-20. apríl 1991. A næsta
vetri verður haldið Heimsmeist-
aramót í alpagreinum í Austur-
ríki og er eitt stærsta verkefni
nýrrar stjórnar að undirbúa
íslenska keppendur fyrir þau
stórátök.
Ekki er enn búið að ráða þjálf-
ara fyrir landsliðin en reikna má
með að þau mál komist í höfn
undir mánaðamótin næstu.