Dagur


Dagur - 19.06.1990, Qupperneq 11

Dagur - 19.06.1990, Qupperneq 11
Þriðjudagur 19. júní 1990 - DAGUR - 11 Pjóðhátíðardagurinn á Akureyri: Hefðbundin dagskráratriði Knattspyrnufélag Akureyrar stóð fyrir 17. júní hátíðarhöld- unum á Akureyri að þessu sinni ásamt Hestamannafélag- inu Létti og Bílaklúbbi Akur- éyrar og var dagskráin næsta hefðbundin. Skemmtunin fór hið besta fram í ágætu veðri en margir kvörtuðu þó yfir brota- löm í framkvæmd dagskráratr- iða, sérstaklega á íþróttavell- inum. Akureyringar vöknuðu við lúðrablástur og trumbuslátt að morgni þjóðhátíðardagsins. Bíla- klúbbur Akureyrar stóð fyrir hópakstri um götur bæjarins með lúðrasveit og blásarsveit í farar- broddi. Pá buðu Léttismenn börnum á hestbak á flötinni neð- an við Samkomuhúsið og félagar í unglingadeild Léttis sýndu listir sínar. Bílaklúbbur Akureyrar var með sýningu og keppni af ýmsum toga. Kl. 13 var lagt af stað í skrúð- göngu frá Dynheimum að íþrótta- vellinum og þangað var hersingin komin fyrir kl. hálf tvö. Á íþrótta- vellinum gerðist ekki neitt lang- tímum saman nema hvað Lúðra- sveit Akureyrar lék nokkur lög á milli þagna. Loks eftir meira en klukkutímahark fór eitthvað að rofa til en tæknileg vandræði settu strik í reikninginn. Lítið heyrðist í Kór Akureyrarkirkju og misvel í ræðumönnum. Séra Þórhallur Höskuldsson var með helgistund, séra Pétur Pórarins- son flutti hátíðarræðu, fjallkona flutti ávarp og nýstúdent hélt ræðu, fallhlífarstökkvarar svifu til jarðar og bæjarstjórnarfull- trúar hlupu við fót. Helsta skemmtun barnanna meðan á þessari dagskrá stóð fólst í sæl- gætisáti og því að horfa á eftir gasblöðrum sem losnuðu úr greipum eigenda sinna og hurfu út í buskann. Betur tókst til á Ráðhústorgi síðdegis. Götuleikhús fór um svæðið og Leikklúbburinn Saga flutti brot úr Fúsa froskagleypi. Eddi og fiskarnir léku fyrir dansi. Um kvöldið var einnig skemmti- dagskrá á Ráðhústorgi með hljóðfæraslætti og gamanmálum Ómars Ragnarssonar. Sérstaka athygli vöktu harmonikuleikarar í göngugötunni og stóðust sumir ekki mátið og stigu gömlu dans- ana. Eddi og fiskarnir léku fyrir dansi á torginu og dagskránni lauk um kl. 1 eftir miðnætti. SS/Myndir: KL ENGINHUS ÁNHITA JJJ ARABIA Hreinlætistæki DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI SÍMI (96)22360 á Akureyri í kvöld á milli kl. 19 og 23 mun Skátafé- lagið Klakkur standa fyrir dósasöfnun í bænum. Þér gefst nú tækifæri á því að styrkja gott málefni um leið og þú losar þig við tómar dósir af heimilinu. Þetta getur þú gert á 3 vegu: 1. Hringt í okkur í síma 26894 - 25963 - 21812 — 24675 og við sækjum heim. 2. Komið í Skátaheimilin: Hvamm Hafnar- stræti 49, kjallara Glerárkirkju, og í kjall- ara Lundaskóla. 3. Fara með dósirnar í dósakúlurnar: Við Kaupang, við Shell Hörgárbraut, og á tjaldstæðið sunnan sundlaugar. Þökkum væntanlegan stuðning. SKÁTAFÉLAGIÐ KLAKKUR

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.