Dagur - 19.06.1990, Síða 16
í gærmorgun valt dráttarbifreið frá Möl og sandi hf. á lóð DNG í Glæsibæjarhrcppi. Moldarhlass á vagninum festist
með þeim aflciðingum að vagninn fór á hliðina þegar sturtutjakkur gaf sig. Tjónið nemur milljónum króna. Ekki
urðu nein slys á fólki. 1 gær var ekki Ijóst hvort grind dráttarbifreiðarinnar hefur skekkst. Mynd: ehb
Úrskurðað um vafaatkvæði á Skagaströnd:
Dómur kjörstjómar stendur
- G-listinn áfrýjar til ráðuneytis félagsmála
Lögfræðinganefndin, sem
skipuð var vegna kosningakær-
unnar á Skagaströnd, skilaði af
Frekar erilsöm helgi var hjá
lögreglunni á Blönduósi.
Straumur ferðamanna var mik-
ill enda gott ferðaveður. Tveir
vélhjólamenn voru sviptir öku-
réttindum fyrir of hraðan akst-
ur og tvö umferðarslys urðu,
en engin alvarleg meiðsli. Há-
tíðahöldin fóru samt vel fram
og góð þátttaka í þeim.
Á föstudaginn lenti bíll inn á
planið hjá Víðigerði og hafnaði
þar á tveimur bílum. Orsökin er
talin vera of mikill hraði miðað við
aðstæður, en engin slys urðu á
fólki. Á sunnudaginn varð síðan
vélhjólaslys þegar ökumaður vél-
hjóls lenti á hliðina og rann aftan
á bíl hjá Neðra Vatnshorni í V.-
Húnavatnssýslu. Hann viðbeins-
sér úrskurði í gær. Samkvæmt
honum stendur úrskurður
kjörstjórnar Höfðahrepps,
brotnaði og hlaut skrámur, en
hjólið er nær gjörónýtt. Fleiri bif-
hjólamenn komu við sögu á
sunnudaginn því að tveir voru
teknir á 139 og 154 km hraða í
Langadalnum og sviptir ökurétt-
indum. Töluvert var einnig um
það að ökumenn bíla ækju yfir
leyfilegum hraða og voru um 50
manns stöðvaðir af þeim sökum.
Hátíðahöldin á Blönduósi
gengu samt vel fyrir sig og allt fór
samkvæmt áætlun. Þó bar það
helst til tíðinda að nýja bæjar-
stjórnin sigraði hina gömlu í
knattspyrnuleik og var það víst
sökum mikillar markvörslu svo
að ef marka er það ætti stjórnin
að geta varið sig gegn skotum
almennings á nýju kjörtímabili.
SBG
þess efnis að eitt utankjör-
staðaratkvæðis var dæmt ógilt
vegna skorts á vitundarvottum.
Kristinn Jóhannsson, umboðs-
maður G-listans, sem lagði
fram kæruna, sagðist í samtali
við blaðið ætla að áfrýja
úrskurði lögfræðinganna til
félagsmálaráðuney tisins.
Kristinn var ekki ánægður með
úrskurð lögfræðinganna. „Ég
verð nú að segja það eins og er að
mér finnst þetta hálf flausturslega
gert hjá þeim. Þeir hafa verið að
flýta sér það mikið að kæran er
ekki tekin til greina nema að
hluta. Ég fór fram á endurtaln-
ingu atkvæða í kærunni en þeir
minnast ekki á hana í úrskurðin-
um. Ég mun áfrýja í ráðuneytið,
þó ekki væri nema fyrir að fá
endurtalningu," sagði Kristinn.
„Það er bara lagabókstafurinn
sem blífur, en réttur kjósandans
er enginn. Ef þetta hefur for-
dæmisskyldu um aldur og ævi, þá
líst mér ekki á það,“ sagði Krist-
inn ennfremur, og var mikið niðri
fyrir. Hann taldi það nánast
öruggt að hann myndi áfrýja fyrir
hönd G-listans, en var ekki bjart-
sýnn með framhaldið. -bjb
Blönduós:
Erill hjá laganna vörðum
- tveir sviptir ökuréttindum vegna hraðaksturs
Viðbygging Hagkaups á Akureyri:
Samíð við Harald og Guðlaug hf.
Fyrir skömmu voru opnuð til-
boð í byggingu viðbótarhús-
næðis hjá Hagkaupi á Akur-
eyri. Fjögur tilboð bárust og
endurreiknun tilboða er lokið.
Gengið var til samninga við
lægstbjóðendur, sem eru Har-
aldur og Guðlaugur hf. Tilboð
þeirra var 96,6% af kostnaðar-
áætlun. Viðbyggingin er 600
fermetrar að stærð og fram-
kvæmdir við hana hefjast fljót-
lega.
Kostnaðaráætlun hönnuða var
kr. 22.688.595. Haraldur og
Guðlaugur hf. buðu kr.
21.927.018. Önnur tilboð komu
frá Pan sem bauð 22.369.326,
SJS-verktakar buðu 23.109.119
og Aðalgeir Finnsson hf.
23.125.860.
Byggingin kemur til vestur út
frá núverandi verslunarhúsnæði
Hagkaups og út á miðja Norður-
götuna. Norðurgötu verður því
lokað á meðan framkvæmdir
standa yfir. Áætluð verklok eru
1. október nk.
Viðbyggingin fer undir versl-
unar- og lagerrými og gólfflötur
verslunarinnar verður um 1500
fermetrar þegar byggingu lýkur.
Að sögn Þórhöllu Þórhallsdóttur,
verslunarstjóra í Hagkaupi, er
viðbyggingin kærkomin og bætir
alla aðstöðu til muna, bæði fyrir
viðskiptavini og starfsfólk. -bjb
Frétt um heimsókn Grenvíkinganna birtist í norska staðarblaðinu Fjording-
en 23. mai sl.
Grenvíkingar 1 vinabæjarheimsokn:
Finuntíu manna hópur
til Stryn
Fimmtíu manna hópur frá
Grenivík er senn á förum til
vinabæjarins Stryn í Noregi,
sem er 6-7000 manna bær í
Norðurfirði, skammt norður af
Björgvin. Þessi heimsókn
stendur frá 26. júní til 3. júlí og
er rækilega greint frá henni í
norska blaðinu Fjordingen og
þar má sjá að heilmikil dagskrá
bíður gestanna frá Grenivík.
„Vi har med oss eit kirkekor
og representantar fraa Grenivik
kommune. Alle gler seg stort til
turen,“ segir Guðný Sverrisdótt-
ir, sveitarstjóri, í samtali við
Fjordingen.
Dagur hafði samband við Guð-
nýju og sagði hún að fimmtíu
manna hópur frá Grenivík myndi
fara til Stryn; sveitarstjórnar-
menn og Kirkjukór Grenivíkur.
En hvert er upphafið að þessum
vinabæjatengslum?
í Noregi
„Vinabæjasamtökin voru
stofnuð haustið 1988 þegar hópur
frá Stryn kom til okkar á Greni-
vík. Síðan ætlum við að endur-
gjalda þessa heimsókn núna,“
sagði Guðný, en Fjordingen
greinir einmitt frá því að sveitar-
stjórnarmenn og blandaður kór
frá Stryn hafi farið í sérlega vel
heppnaða heimsókn til Grenivík-
ur haustið 1988.
Guðný og félagar eiga ýmislegt
í vændum. Bæjaryfirvöld í Stryn
ætla að fara með hópinn vítt og
breitt um héraðið, s.s. upp á
Strynfjallið og á marga skemmti-
lega staði. Auk skoðunarferða
verður boðið upp á tónleika,
kvöldvökur, guðsþjónustu og
fleira.
„Þetta er heilmikil dagskrá.
Við verðum örugglega ekki
úthvíld þegar við komum úr þess-
ari ferð,“ sagði Guðný. SS
Gestabók Sesseljubúðar fannst á öskuhaugum á „Króknum"
Hvernig getur á því staðið að
gestabók slysavarnaskýlisins
Sesseljubúðar á Öxnadais-
heiði finnst á öskuhaugunum
á Sauðárkróki? Þessari
spurningu hefur ekki verið
svarað og kannski fæst aldrei
svar við henni. Það er þó
staðreynd að við eftirgrennsl-
an slysavarnakvenna á Akur-
eyri, sem hafa el'tirlit með
Sesseljubúð, í síðasta mánuði
kom í Ijós að gestabókin var
horfin. Um hvítasunnuna
hringdi einn góður maður á
Sauðárkróki í eina konuna í
Slysavarnadeild kvenna á
Akureyri og sagðist hafa
fundið bókina á öskuhaugum
bæjarins.
Þær Svala Halldórsdóttir,
Gréta Stefánsdóttir og Guð-
björg Árnadóttir, félagar í
Slysavarnadeild kvenna á Akur-
eyri, litu inn á ritstjórn Dags í
gær og sögðu blaðamanni áður-
greinda sögu. Gestabókina
höfðu þær meðferðis. Hún lítur
ekki illa út og Ijóst er að hún
hefur haft stutta viðdvöl á ösku-
haugunum á Sauðárkróki.
Slysavarnakonur á Akureyri
hafa haft umsjón með Sesselju-
búð undanfarin ár. Þær dytta að
skýlinu og sjá til þess að þar sé
allt í röð og reglu. Alla jafna
koma þær tvisvar sinnum við í
skýlinu á ári og í síðasta mánuði
þegar þær fóru í árlega hrcins-
'unarferð í Sesseljubúð var að-
koman ömurleg. Hinu og þessu
hafði verið stolið úr skýlinu og
það var svart af skít. Gestabók-
inni hafði verið hnuplað, eins
og áður segir. Ekki er vitað
hver tók hana eða hvenær í
vetur. Síðast hafa gestir skráð
nöfn sín í hana í desember sl.
Þær Svala, Gréta og Guð-
björg sögðust vera orðlausar
yfir umgengni í skýlinu í vetur
og með ólíkindum væri að fólk
tæki nauðsynleg áhöld úr skýl-
inu ófrjálsri hendi. Þær sögðu
ljóst að ef framhald yrði á þessu
væri ekki um annað að ræða en
leggja niður slfk slysavarna-
skýli. Það væri þó algjört neyð-
arbrauð.
Vísa á fyrstu síðu gestabókar-
innar er þörf ábending til söku-
dólgsins eða -dólganna: Gangið
vel um þennan griðastað/og
geymið sjúkunt varabirgðir all-
ar/því ekki er það réttlátt, eða
hvað,/að allt sé horfið þegar
neyðin kallar. óþh