Dagur - 29.06.1990, Síða 3
Föstudagur 29. júní 1990 - DAGUR - 3
fréttir
Auðkúlu- og Eyvindarstaðaheiði:
380 tonnum af áburði dreift með Páli Sveinssyni
Flugvél Landgræðslu ríkisins,
Páll Sveinsson, er nú að dreifa
áburði á Auðkúlu- og Eyvind-
arstaðaheiði. Gert er út frá
Sauðárkróki og alls eru það
380 tonn af áburði sem fara til
dreifingar með vélinni á þetta
svæði í ár. Byrjað var á verk-
inu í síðustu viku, en ekkert
var hægt að fljúga á sunnudag
og mánudag vegna veðurs.
Aætlað er að verkinu Ijúki
þann 30. júní.
Uppgræðslutilraunir á þessu
svæði hófust árið 1981 og eru
nú orðnir þar um 1630 hektarar
af uppgræddu landi og samtals
um 1700 hektarar sem dreift er á.
í fyrra var sáð í hluta af svæðinu,
en í ár er einungis um áburðar-
Árni Sigurbergsson og Pétur Steinþórsson flugmenn og í baksýn er verið að
setja áburð á Pál Sveinsson. Myndii: SBG
dreifingu að ræða. Hin 48 ára
gamla Douglas DC-3 vél Land-
græðslunnar stendur fyrir sínu og
flytur í hverri ferð um 4 tonn af
áburði inn á heiðar. Ekki er
dreift á allt þetta svæði með Páli
Sveinssyni, heldur dreifa bændur
um 50 tonnum til viðbótar við
þessi 380, á svæði þar sem hægt
er að komast um á dráttarvélum.
Landsvirkjun kostar þessa
uppgræðslu að öllu leyti. Er það
hluti af Blöndusamningnum sem
var gerður við bændur í Húna-
vatnssýslu þegar hafist var handa
við byggingu Blönduvirkjunar.
Blaðamaður Dags brá sér í
eina ferð inn að Helgafelli með
þeim Pétri Steinþórssyni og Árna
Sigurbergssyni. Pétur hefur flog-
ið síðastliðin 14 sumur hjá
Landgræðslunni, en vinnur ann-
ars sem flugmaður hjá Landhelg-
isgæslunni. Árni er aftur á móti
flugmaður hjá Flugleiðum, en frá
því 1973 hafa flugmenn Flugleiða
Umferðarráð:
Okumenn hvattir tíl að
virða hraðatakmörkin
„Hraðahrottar“ eru þeir
stundum nefndir sem valda
sjálfum sér og öðrum stór-
hættu með hraðakstri í
umferðinni. Alltaf tilheyra ein-
hverjir þessum flokki, en góðu
heilli fer þeim fækkandi.
Síendurteknar fréttir af ofsa-
akstri bifhjólanna valda lögreglu
og Umferðarráði miklum áhyggj-
um. Prátt fyrir mjög alvarleg slys
meðal bifhjólamanna láta þeir
sér ekki segjast, heldur halda
áfram að taka áhættu sem er
algjörlega óréttlætanleg.
Hvatning lögreglu og Umferð-
arráðs til ökumanna almennt um
að draga úr hraða í umferðinni
hefur hins vegar greinilega borið
árangur. Það gerist nú æ ofan í æ,
að allir ökumenn sem mældir eru
í kerfisbundnu hraðaeftirliti lög-
reglu séu innan löglegra marka.
Slíkar fréttir hafa borist frá
nokkrum stöðum á landinu, enda
þótt alltaf reynist einhverjir aka
of hratt og sumir alltof hægt. Þá
berast einnig oft kvartanir um að
hraðatakmarkanir, þar sem við-
gerðir standa yfir á vegum, séu
ekki virtar og sömu sögu er að
segja þar sem fjölfarinn þjóðveg-
ur liggur gegnum byggð. Þar aka
sumir á sama hraða og á þjóðveg-
inum utan þéttbýlis, enda þótt
þar megi búast við umferð gang-
andi fólks og hámarkshraði eigi
að vera mun minni.
Umferðarráð sendi lögreglu-
Viimuskólinn
bregður á leik
Gott er að líta upp frá amstri
hversdagsins annað slagið og það
var einmitt það sem Vinnuskól-
inn á Sauðárkróki gerði í fyrradag.
Haldinn var hálfgerður íþrótta-
dagur, að vísu einungis fyrir
hádegi. Keppt var í ýmiss konar
íþróttum, m.a. var keppt við
flokkstjórana í körfubolta eins og
sést á myndinni. Eftir keppni í
íþróttahúsinu fóru síðan allir í
sund. Um 120 krakkar eru nú í
vinnuskólanum og að sögn Guð-
brands Guðbrandssonar, for-
stöðumanns, voru allir ánægðir
með að fá að líta aðeins upp frá
vinnunni og bregða á leik, því að
nóg hefur verið að gera fyrir
krakkana í því að snyrta og hugsa
um gróður bæjarins o.fl. I fyrra-
kvöld fóru síðan allir á diskótek í
Bifröst. SBG
stjórum um allt land bréf nýlega
og hvatti til aukins eftirlits með
umferðarhraða. Viðbrögð hafa
verið mjög góð og eftirlit hefur
aukist mikið og verið ennþá
markvissara en áður.
Umferðarráð hvetur ökumenn
til að virða hraðatakmörkin. Með
því móti minnkar hætta á alvar-
legum umferðarslysum til muna.
Hraður akstur sem ekki hæfir
aðstæðum er langoftast meginor-
sök alvarlegra slysa.
(Frcttatilkynning.)
Greinilegur niunur sést þar sem uppgræðsla hefur átt sér stað eins og hér á
Auðkúluheiði.
mannað anrtað sætið í Páli
Sveinssyni í sjálfboðavinnu.
Greinilega mátti sjá rendur í
landslaginu þar sem dreift hcfur
verið, eins og sést væntanlega á
meðfylgjandi rnynd.
Sveinn Runólfsson, land-
græðslustjóri, sagði að veðrið
hefði sett töluvert strik í reikn-
inginn að þessu sinni og tafið fyr-
ir dreifingu. Lítið var hægt að
fljúga á föstudag og laugardag og
ekkert á sunnudag og mánudag.
Sveinn sagði að þessari dreifingu
myndi samt vonandi Ijúka þann
þrítugasta, en eftir það verður
haldið til Húsavíkur og dreift þar
inn á heiðar. SBG
Ástand grasvallarins á Siglufirði:
Vönurinn daftiar vel
- segir félagsmálafulltrúi bæjarins
„Það eru hviksögur að gras-
völlurinn á Hóli sé nánast
ónýtur“ sagði Hjörtur Hjart-
arson félagsmálafulltrúi
Siglufjaröarbæjar aðspurður
um ástand vallarins, en lið
Siglfirðinga í 2. deild hefur
enn ekki leikið á veliinum
það sem af er sumri.
Ástand vallarins í fyrra var
nokkuð dapurt, og aðalástæðan
var sú að veturinn þar á undan
lá á honum klaki, en það gerðist
ekki nú. Nú voraði hins vegar
betur og hann dafnar vel. Um
ástæðu þess að Siglfirðingar
hefðu ckki enn leikið á grasi
sagðist Hjörtur ekki vita, það
væri alfarið þcirra ákvörðun, en
hann taldi það ekki ólíklegt að
næsti leikur þeirra yrði leikinn
að Hóli.
íþróttabandalag Siglufjaröar
sér um rekstur íþróttavallanna
cn þcir eru hins vegar eign
Siglufjarðarbæjar og þess vegna
er fulltrúi bæjarins hafður með í
ráöum.
Næsti hcimaleikur KS í 2.
deild er viö Grindvíkinga
mánudaginn 2. júlí. GG
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKlRTEINA RlKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* 10.000 GKR. SKÍRTEINI
1977-2 fl. 10.09.90-10.09.91 kr. 7.940,24
1978-2 fl. 10.09.90-10.09.91 kr. 5.072,81
1979-2 fl. 15.09.90-15.09.91 kr. 3.307,03
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 10.000,00
1985-1. fl.A 10.07.90-10.01.91 kr. 41.894,69
1985-1. fl.B 10.07.90-10.01.91 kr. 28.876,75**
1986-1. fl. A 3 ár 10.07.90-10.01.91 kr. 28.877,45
1986-1.fl.A4ár 10.07.90-10.01.91 kr. 30.744,38
1986-1. fl.B 10.07.90-10.01.91 kr. 21.297,65**
1986-2.fl.A4ár 01.07.90-01.01.91 kr. 26.517,71
1987-1. fl.A 2 ár 10.07.90-10.01.91 kr. 23.139,58
Innlausnarverö er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
‘*Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs ferfram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þarjafnframtframmi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, júní 1990
SEÐLABANKIÍSLANDS