Dagur - 29.06.1990, Síða 7

Dagur - 29.06.1990, Síða 7
Föstudagur 29. júní 1990 - DAGUR - 7 FENRIS byggir á þátttöku unglingalcikhópa frá öllum Norðurlöndunum, einum frá hverju landi. Hér er hópurinn frá Noregi „Teskjeteatret“ fyrir utan leikhúsið sitt „Folkets hus“ í Nittedal skammt frá Ósló. Fenris ’89 Strax eftir að FENRIS ’85 lauk var hafist handa við undirbúning FENRIS II sem varð að veru- leika sumarið 1989. Við í Leik- klúbbnum Sögu byrjuðum að æfa um veturinn og réðum Margréti Pétursdóttur sem leikstjóra. Fyrirkomulagið á FENRIS II var á þá leið að þátttakendur skyldu semja leikritið að öllu leyti sjálfir, en þeir voru 101. í upp- hafi var ákveðið að það skyldi fjalla um sex konungborin syst- kini sem byggju yfir æðri mætti, og ævintýralega leit þeirra að sjö- unda systkininu sem hafði verið rænt. Hver leikhópur átti svo að leggja til eina til tvær senur. Við íslendingarnir lékum drauga sem systkinin hittu á leið sinni, og einnig lögðum við fram hugmynd um eldgos og hraunflæði, sem all- ir leikendur tóku þátt í og að sjálfsögðu voru það leikararnir sem léku flæðandi hraun! Það voru ýmis ævintýri sem systkinin lentu í, t.d. hittu þau álfa og tröll, konung hafsins, þau þurftu að berjast við mengun og margt fleira. Áður en ferðin hófst voru tvær æfingar í Danmörku, þar sem all- ir hittust, nema íslendingar sök- um þess hve dýrt er fyrir okkur að ferðast. En frá okkur fóru fjórir fulltrúar, og kom það ekki að sök að við skyldum ekki geta fjölmennt á þessar æfingar. Ferðin hófst svo loks í júní eft- ir þrotlausar æfingar um vetur- inn, og fórum við með Norrænu til Danmerkur. Par voru æfingar í viku frá morgni til kvölds undir handleiðslu leikarans Paul Vers- ahn og Margrétar. Það var mikil vinna að koma leiksýningunni saman, koma ljósum upp o.þ.h. en það tókst auðvitað að iokum. í Danmörku voru þrjár sýningar og svo var farið til Noregs, þá Finnlands og Svíþjóðar, þaðan til Færeyja og loks til íslands. Alls Fenris ’85 Fenris ’85 var fyrsta uppfærslan á þessu samnorræna leikverkefni. Það samanstóð af 80 unglingum frá öllum Norðurlöndunum. Leikverkið hét „Hringrásin", og er þá átt við hringrás lífsins. Verkið byrjaði á lífi og endaði á dauða. Hver hópur, sem alls voru 5, fékk sitt nafn á þætti og átti hann að spinna út frá því, og naut íslenski hópurinn hjálpar Þráins Karlssonar. Þættirnir voru alls 6, þ.e.: 1. „Líf“ í umsjá Færeyinga 2. „Náttúran" í umsjá Norð- manna 3. „Manneskjan“ í umsjá íslend- inga 4. „Draumar" í umsjá Svía og Finna 5. umsja 6. „Raunveruleikinn“ Dana „Dauðinn" í umsjá allra Iand- anna sameiginlega Eftir að hver hópur hafði sett saman 20 mín. þátt, var æft sam- an í eina viku í Danmörku og einnig saminn lokakaflinn um dauðann. Síðan var haldið af stað. Fyrst var sýnt í Danmörku, og þá var haldið til Svíþjóðar og sýnt þar. Þá lá leiðin til Færeyja og var endað á íslandi. Fjaröflun Fenris ’85 fólst í styrkjum frá sjóðum og fyrirtækj- um, og að baki íslenska hópsins stóð öflugt foreldrafélag sem hafði hönd í bagga með fjáröfl- un. Auk þess borgaði hver þátt- takandi 500 kr. danskar í þátt- tökugjald. Eftirtaldir aðilar hafa stutt Leikklúbbirm Sögu til Síberíufarar: Leikfélag Akureyrar íslandsbanki, Akureyri Landsbanki íslands, Ráðhústorgi Flugleiðir, Akureyri Sporthúsið, Hafnarstræti 94 Pedromyndir, Hafnarstræti 98 Bókabúðin Edda, Hafnarstræti 100 íbúðin, Kaupangi urðu sýningar 13, þar af þrjár hérna á íslandi. Ferðin var óskaplega skemmti- leg, en oft vorum við nokkuð þreytt. Ferðalög milli landa tóku íangan tíma, því við ferðuðunist með rútum, Íestum og skipum, og það getur jú verið ansi lýjandi að sitja í rútu í 10 tíma, vera svo í skipi í 14 tíma og fara svo beint á æfingu! En það þurfti að æfa í hverju landi með tilliti til nýrra aðstæðna. En þrátt fyrir þetta gátum við alltaf fundið okkur tíma til að bregða á leik og gera eitthvað skemmtilegt. Skoða okkur um o.þ.h. Aðsókn á sýningar var ágæt og við fengum ágæta dóma. Það var á fundi sem haldinn var í Dynheimum, síðasta kvöld- ið sem við vorum öll saman áður en hópurinn lagði af stað heim, sem við fengum að vita að e.t.v. myndum við öll hittast aftur næsta sumar, því okkur stæði til boða að fara til Sovétríkjanna. Þessar fréttir gerðu kveðjustund- ina léttbærari þó að fréttin væri nokkuð óraunveruleg í hugum okkar, og við vissum varla hvort við ættum að trúa okkar eigin eyrum. Nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum fer fram í skrifstofu embættisins, Húsavík, á neðangreindum tíma: Ásgötu 25, Raufarhöfn, talinn eig- andi Sigurður Einarsson, fimmtu- daginn 5. júlí 1990, kl. 10.00. Uppboðsbeiðandi er: Landsbanki íslands. Ásgötu 3, Raufarhöfn, þingl. eigandi Björn Hallgrímsson, fimmtudaginn 5. júlí 1990, kl. 10.15. Uppboðsbeiðendur eru: Örlygur Hnefill Jónsson hdl. og Veðdeild Landsbanka íslands. Baughóli 25, Húsavik, þingl. eig- andi Aðalsteinn Karlsson, fimmtu- daginn 5. júlí 1990, kl. 10.10. Uppboðsbeiðandi er: Innheimtumaður ríkissjóðs. Garðarsbraut 29, Húsavík, þingl. eigandi Garðar Geirsson, fimmtu- daginn 5. júlí 1990, kl. 10.30. Uppboðsbeiðandi er: Innheimtumaður ríkissjóðs. Hlöðufelli, Húsavík, þingl. eigandi íþróttafélagið Völsungur, fimmtu- daginn 5. júlí 1990, kl. 10.40. Uppboðsbeiðendur eru: Innheimtumaður ríkissjóðs og Byggðastofnun. Höfðavegi 8, Húsavík, þingl. eig- andi Óskar Guðmundsson, fimmtu- daginn 5. júlí 1990, kl. 10.50. Uppboðsbeiðandi er: Fjárheimtan hf. Höfða 3, verkstæðishúsi, þingl. eig- andi Fjalar hf„ fimmtudaginn 5. júlí 1990, kl. 11.00. Uppboðsbeiðandi er: Iðnlánasjóður. Iðnaðarhúsi, Suðurgarði, Húsavík, þingl. eigandi Korri hf. Húsavík, fimmtudaginn 5. júlí 1990, kl. 10.05. Uppboðsbeiðandi er: Fiskveiðasjóður. Langanesvegi 11, þingl. eigandi Kaupfélag Langnesinga, fimmtu- daginn 5. júlí 1990, kl. 11.10. Uppboðsbeiðandi er: Eggert B. Ólafsson hdl. Rimari, Grenivík, þingl. eigandi Grávara hf„ fimmtudaginn 5. júlí 1990, kl. 11.30. Uppboðsbeiðandi er: Innheimtumaður rikissjóðs. Söltunarst. v/Höfðabr„ Raufarhöfn, þingl. eigandi Fiskavík hf„ fimmtu- daginn 5. júlí 1990, kl. 11.30. Uppboðsbeiðandi er: Innheimtumaður ríkissjóðs. Uppsalavegi 2, Húsavík (efri hæð), þingl. eigandi Auðunn A. Víglunds- son o.fl., fimmtudaginn 5. júlí 1990, kl. 11.40. Uppboðsbeiðendur eru: Örlygur Hnefill Jónsson hdl„ Veð- deild Landsbanka Islands og Árni Pálsson hdl. Vaðlafelli, Svalbarðsströnd, þingl. eigandi Jóhannes Halldórsson, fimmtudaginn 5. júlí 1990, kl. 11.50. Uppboðsbeiðandi er: Árni Pálsson hdl. Vesturvegi 4a, þingl. eigandi Þórs- hafnarhreppur, fimmtudaginn 5. júlí 1990, kl. 12.00. Uppboðsbeiðendur eru: Innheimtumaður ríkissjóðs og Veð- deild Landsbanka íslands. Sýslumaður Þingeyjarsýslu. Bæjarfógeti Húsavíkur. Kennarar! Kennara vantar í grunnskóla Svalbarðsstrandar í alm. kennslu yngri barna, hannyrðir og mat- reiðslu. Örstutt frá Akureyri. Nánari uppl. veita skólastjóri í síma 96-26125 eöa 96-24901, eöa formaður skólanefndar í síma 96- 27910 eöa 96-26866. Skólanefnd. INNLAUSNARVERÐ VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS Í1.FL.B1985 Hinn 10. júlí 1990 er ellefti fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggöra spariskírteina ríkissjóös meö vaxtamiðum í 1. fl. B1985. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 11 veröurfráog með 10. júlí nk. greittsem hérsegir: Vaxtamiöimeö 5.000,-kr. skírteini kr. 476,45 Vaxtamiðimeð 10.000,-kr. skírteini kr. 952,90 Vaxtamiði með 100.000,- kr. skírteini kr. 9.529,50 Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. janúar 1990 til 10. júlí 1990 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1006 hinn 1. janúar 1985 til 2905 hinn 1. júlí 1990. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða nr. 11 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka fslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. júlí 1990. Reykjavík, 29. júní 1990 SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.