Dagur - 29.06.1990, Side 11
Föstudagur 29. júní 1990 - DAGUR - 11
i
íþróttir
b
Akranesvöllur - Hörpudeild:
Skagamenn nýttu færin
sigruðu Þórsara 3:1
Þórsarar mættu Skagamönn-
um á Akranesi í fyrrakvöld og
töpuðu með einu marki gegn
þremur. Þessi leikur var að
rnörgu leyti ekki ójafn en
Skagamenn höfðu það umfram
að skapa fleiri færi og nýta
hluta þeirra.
Strax í upphafi leiksins varði
Friðrik í tvígang góð skot frá
Hörpudeild
Urslit í 7 . umferð:
KA-ÍBV ÍA -Þór 1:1 3:1
Valur-KR 2:1
FH-Fram 2:1
Víkingur-Stjarnan (léika í kvöld)
Valur 7 5-1-1 13: 6 16
Fram 7 4-1-2 14: 3 13
ÍBV 7 4-1-2 9:11 13
KR 7 4-0-3 11: 9 12
FH 7 3-0-4 11:10 9
Víkingur 6 2-2-2 7: 7 8
ÍA 7 2-2-3 8:11 8
KA 7 2-1-4 7:11 7
Stjarnan 6 2-1-3 7:12 7
Þór 7 1-1-5 4:11 4
Markahæstir:
Guðmundur Steinsson, Fram 6 Sigurjón Kristjónsson, Val 5 Hörður Magnússon, FH 4 Páimi Jónsson, FH 3
Antony Karl Gregory, Val 3 Árni Sveinsson, Stjörnunni 3
Goran Micic, Víkingi 3 Hlynur Stefánsson, ÍBV 3 Ríkharður Daðason, Fram 3 Ormarr Örlygsson, KA 3 Ragnar Margeirsson, KR 3
Pétur Pétursson, KR 3
Karli Þórðarsyni. Skagamenn
sóttu öllu meira á fyrsta kaflan-
um og á 19. rnínútu var Bjarki
Pétursson í ákjósanlegu færi en
tókst ekki að nýta sér það.
Fyrsta mark IA kom á 24. mín-
útu og var Haraldur Ingólfsson
þar að verki. Tíu mínútum síðar
fengu Þórsarar aftur á sig mark
þegar dæmt var hönd á Sigurð
Lárusson í Þórsvörninni. Guð-
björn Tryggvason skoraði örugg-
lega úr vítinu og útlitið orðið
dökkt hjá norðanmönnunum.
Þórsarar með Bjarna Svein-
björnsson sem besta mann voru
ekki alveg slegnir út af laginu við
þetta því skömmu fyrir leikhlé
skapaði Bjarni hættu við ÍA-
markið þegar hann komst einn
inn fyrir vörnina en skaut fram-
hjá markinu.
Skammt var liðið á síðari hálf-
leikinn þegar Bjarki bætti þriðja
marki Skagamanna við. Bjarni
Sveinbjörnsson svaraði fyrir Þór
stuttu síðar þegar hann fékk
sendingu frá Luka Kostic eftir
aukaspyrnu. Það sem eftir lifði
leiksins gerðist fátt markvert,
Skagamönnum tókst auðveldlega
að halda sóknarmönnum Þórs
niðri þó að spil Þórsara úti á vell-
inum væri oft á tíðum gott.
Gul spjöld voru sýnd þeirn Nóa
Björnssyni og Árna Þór Árna-
syni.
Lið ÍA: Gísli Sigurðsson, Jóhannes Guð
laugsson, Heimir Guðmundsson, Alex
ander Högnason, Sigurður B. Jónsson
Brandur Sigurjónsson, Karl Þórðarson
Sigursteinn Gíslason, Bjarki Pétursson
Guðbjörn Tryggvason, Haraldur Ingólfs
son (Arnar Gunnlaugsson 75. mín).
Lið Þórs: Friðrik Friðriksson, Lárus Orr
Sigurðsson (Sævar Árnason 80. mín
Sigurður Lárusson, Siguróli Kristjáns
son, Nói Björnsson, Luka Kostic, Árn
Þór Árnason, Bjarni Sveinbjörnsson,
Ólafur Þorbergsson (Júlús Tryggvason
60. mín), Hlynur Birgisson. IÓH
íþróttir helgarinnar:
Slagur Akureyrarliðanna
á mánudagskvöldið
- tvö golfmót á Akureyri á sunnudaginn
Fjölmargt verður um að vera á
íþróttasviðinu um helgina.
Fyrst ber að geta dagskrárliða
tengdum Íþróttahátíð ÍSÍ en í
dag fer fram holukeppni í
karla- og kvennaflokki á öllum
golfvöllum landsins. Auk þess
má geta Kvennahlaups í
Kjarnaskógi við Akureyri kl.
15.30 á morgun.
Að vanda rúllar boltinn á
knattspyrnuvöllum vítt og breitt
um Norðurland. Fyrstudeildar-
liðin, KA og Þór, mætast á
mánudagskvöld á Akureyrarvelli
og má búast við að þar verði hart
barist að vanda.
í 2. deild fer fram heil umferð í
kvöld. Siglfirðingar spila við
Breiðablik í Kópavogi, Leifturs-
menn keppa við ÍR í Reykjavík
og Tindastóll fær Selfoss í heim-
sókn.
í 3. deild spila í kvöld Haukar
og Einherji í Hafnarfirði, Þróttur
og TBA á Neskaupstað og Dal-
vík og ÍK á Dalvík.
I kvöld verður einnig leikið í
Norðurlandsriðlunum í fjórðu
deild. í D-riðli keppa Geislinn og
Þrymur og Kormákur og Hvöt en
í E-riðlinum verður hörkuleikur
þegar mætast Magni og UMSE-b
á Grenivík. í þeirn riðli leika
einnig HSÞ-b við Austra og SM
við Narfa.
Eins og fram kom í upphafi
verður mikið um að vera á golf-
völlunum en fleiri golfmót verða
um helgina. Tvö mót verða hjá
Golfklúbbi Akureyrar á sunnu-
dag. Annars vegar er um að ræða
svokallað Blöndumót sem er
opið unglingamót, styrkt af
Mjólkursamlagi KEA. Á sama
tíma verður keppt um Jóhanns-
bikar á opnu öldungamóti þar
sem leiknar verða 18 holur, með
og án forgjafar. Mótið gefur stig
til landsliðs og er þess að vænta
að gestir komi víða að.
Golfklúbbur Húsavíkur verður
með KÞ-mót og á Sauðárkróki
verður fyrri hluti firmakeppni.
JÓH
Eitt af fáum marktækifærum KA í ieiknum gegn ÍBV. Kjartan Einarsson skýtur hér á markið á lokamínútum leiks-
ins en góður markvörður Eyjamanna, Adolf Oskarsson sá við honum.
Hörpudeild 7. umferð:
Baráttugleðma vantaði
- KA og ÍBV gerðu 1:1 jafnteíli í slökum leik á Akureyri
Óhætt er að segja að leikur
IBV og KA á Akureyrarvelli í
fyrrakvöld hafi verið slakur.
Allt spil vantaði í leikinn hjá
báðum liðum og sú litla barátta
sem sást var Eyjamanna. Jafn-
tefli voru sanngjörn úrslit en
deila má um réttmæti víta-
spyrnu sem dæmd var á varn-
armann ÍBV.
Fyrstu 10 mínútur leiksins og
síðustu 15 mínúturnar voru þeir
leikkaflar sem eitthvað geröist.
Jón Grétar átti strax í upphafi
skot að marki ÍBV en boltinn fór
í hliðarnetið. Stuttu síðar fengu
KA-ntenn aukaspyrnu við víta-
teig ÍBV en Adolf Óskarsson,
besti maður Eyjamanna, varði
skot Ormarrs af öryggi.
Þegar um 10 mínútur vorur
liðnar kont fallegasta sókn leiks-
ins. Þórður fékk langa sendingu
upp í vinstra hornið og gaf háa
sendingu þvert yfir vítateiginn.
Þar var Ormarr fyrir og skallaði
boltann inn á vítateiginn fyrir
fætur Heimis Guðjónssonar sem
skaut föstu skoti yfir markið.
Eftir þessa byrjun datt botninn
úr leiknum og boltinn kom nán-
ast aldrei nálægt markinu.
Sama var uppi á teningnum í
síðari hálfleik. Eyjamenn virtust
þó heldur hressast við hvíldina í
búningshcrberginu og þegar fáar
mínútur voru liönar átti Hlynur
gott skot yfir mark KA. Undir
miðjan hálfleikinn missti Þórður
af boltanum í góðu færi við Eyja-
markið og stuttu síðar skaut lngi
Sigurðsson yfir KA-markið.
Honunt brást hins vegar ekki
bogalistin þegar um 15 mínútur
voru til leiksloka þegar hann
skoraði gullfallegt mark fyrir
ÍBV'. KA-vörninni tókst ekki að
hreinsa frá eftir fyrirgjöf, boltinn
•barst út að vinstra vítateigshorn-
inu þar sem Ingi kom eins og
eintreið og hamraði boltann upp í
fjærhornið. Staðan 1:0.
Eyjamenn voru ekki lengi í
paradís því þremur mínútum síð-
ar var Jón Grétar hiridraður í
vítateig ÍBV og þrátt fyrir mót-
mæli Eyjamanna dæmdi Ólafur
Sveinsson víti. Ormarr jafnaði
með skoti í stöngina og inn og
segja má að eftir þetta hafi bar-
áttuneisti beggja liöa slokknað á
ný.
Frískastur í liði KA var Orm-
arr en Adolf ntarkvörður var
besti maður ÍBV.
Lið KA: Haukur Bragason, Stcingrímur
Birgisson. Halldór Halldórsson, Gauti
Laxdal, Bjarni Jónsson. Hcimir Guð-
jónsson, Jón Grctar Jónsson. Ormarr
Örlygsson. Hafstcinn Jakohsson. Kjart-
an Einarsson, Þórður Guðjónsson.
Lið ÍBV: Adolf Óskarsson. Friðrik
Sæbjórnsson. Hcimir Hallgrímsson.
Elías Friðriksson, Jon Bragi Arnarson,
Bcrgur Ágústsson. Andrcj Jcrina. Ingi
Sigurðsson, Hlynur Stcfánsson, Tömas
Ingi Tómasson. Sigurlás Þorleifsson.
JÓH
Essomót KA um aðra helgi:
Stærsta mót í einiim flokki
Essomót KA hefst á Akureyri
næstkomandi fimmtudag. Hér
er um að ræöa stærsta mót sem
efnt er til í einum aldursflokki
og hefur Essomótið aldrei ver-
52 lið mæta til keppni
ið fjölmennara í þau fjögur
skipti sem það hefur verið
haldið. Keppendur koma nú
frá 21 félagi víðs vegar um
landið og leika alls 52 lið á
3. deild:
Reynir lá í Reykjavík
Reynismenn á Arskógsströnd
héldu til Reykjavíkur í fyrra-
Minningarsjóður Jónasar
Sigurbjörnssonar:
Eun opið fyrir framlög
Nú eru síðustu forvöð að
leggja fram stofnfé í minning-
arsjóð um Jónas Sigurbjörns-
son sem stofnaður var á upp-
skeruhátíð Skíðaráðs Akureyr-
ar í vor.
Jónas lést í fyrra langt fyrir ald-
ur fram. Minningarsjóðnum er
ætlað að styrkja ungt og efnilegt
skíðafólk á Akureyri. Við stofn-
un sjóðsins lögðu fyrirtækin Sam-
herji og ísberg fram stofnframlag
og var ákveðið að opin yrði bók í
Landsbankanum á Ákureyri fyrir
framlög. Númer hennar er 265478
og er fólk hvatt til að leggja
sjóðnum lið. JÓH
kvöld og töpuðu fyrir Þrótti
ágætum leik. Sigurinn var ekki
ósanngjarn enda Þróttarar
með einna sterkasta lið 3.
deildar.
í fyrri hálfleik sköpuðu Þrótt-
arar sér nokkur færi en tókst ekki
að reka smiðshöggið á sóknirnar.
Fyrsta markið kont ekki fyrr en
skömmu fyrir leikhlé en í síðari
hálfleik, mættu Reynisntenn
ákveönari til leiks og tókst að
halda Þrótturum í skefjum.
Sigurinn var þó aldrei í verulegri
hættu og undir lokin bættu Þrótt-
arar öðru marki við og innsigluðu
sanngjarnan sigur.
JÓH
mótinu.
Essomótið í knattspyrnu er
fyrir knattspyrnumenn í 5.
flokki. í fyrra voru 36 lið á mót-
inu en eru nú 52 sem sýnir vax-
andi áhuga félaganna á þessu
móti. KA sér um allt mótshald en
Esso er styrktaraðili mótsins eins
og nafnið bendir til.
Búist er við að um 800 manns
tengist þessu móti á einn eða
annan hátt þ.e. keppendur, for-
eldrar, fararstjórar og starfsmenn
Sú nýbreytni verður nú á Esso-
mótinu að félögin mega einnig
senda C-lið til keppni en hingað
til hafa aðeins A- og B-lið spilað.
Mótið hefst kl. 9 á fimmtu-
dagsmorgun á vallasvæði KA og
verður leikið á fjórum völlum.
Urslitaleikirnir verða síðdegis á
laugardag en mótsslit verða fyrir
hádegi á sunnudag, eða fyrr en
vanalega sem helgast af úrslita-
leik á HM síðar um daginn.
í tengslum við mótið verður að
venju efnt til keppni í bandí í
íþróttahöliinni og þar taka öll 52
liðin þátt. JÓH