Dagur - 29.06.1990, Side 12
Fjölbreytt
kaffihlaðborð
alla sunnudaga frá kl. 15-17.
Hægt að sitja úti ef veður leyfir.
Það styttist í skattseðlana:
„Passar að
taka sumar-
Mð áður“
- segir Gunnar Rafn
skattstjóri Nl. eystra
Norðlendingar mega fara að
setja sig í stellingar vegna
væntanlegra álagningarseðla
frá skattstofunum á Siglufirði
og Akureyri. Eftir u.þ.b. mán-
uð fara seðlarnir að streyma
inn um bréfalúgurnar, sumum
til gremju, öðrum til geðs.
„Það passar fyrir fólk að fara
að skella sér í sumarfrí áður og
koma aftur endurnært fyrir lok
júlí,“ sagði Gunnar Rafn Ein-
arsson, skattstjóri í Norður-
landsumdæmi eystra, í samtali
við blaðið.
Skattskrá Norðurlandsum-
dæmis vestra fyrir árið 1989 verð-
ur lögð fram til sýnis í dag og
næstu daga á skattstofunni á
Siglufirði, bæjarskrifstofunni á
Sauðárkróki og hjá umboðs-
mönnum skattstjóra í öðrum
sveitarfélögum. „Pað hefur eng-
inn áhuga á að skoða þessar
skrár, en við verðum að fylgja
lögunum,“ sagði Bogi Sigur-
björnsson, skattstjóri Norður-
landsumdæmis vestra. Skattskrá
síðasta árs fyrir Norðurlands-
umdæmi eystra verður til sýnis
einhvern tímann á næstunni.
Eftir að álagningarseðlarnir
koma í hendur manna hafa þeir
30 daga kærufrest. Innan tveggja
mánaða frá því að kærufrestur
rennur út skal skattstjóri hafa
lokið úrskurði á kærum. Ef menn
sætta sig ekki við úrskurð skatt-
stjóra þá er aftur 30 daga kæru-
frestur, sem er veittur til ríkis-
skattanefndar.
Eftir að staðgreiðslukerfi
skatta var tekið upp hafa endur-
greiðslur aukist til skattgreiðenda
og því meira um að menn fái
glaðning í þess orðs fyllstu merk-
ingu, heldur en „óglaðning í
hendurnar frá hinu opinbera.
bjb
Guðný Gerður stillir upp vopnabúri forfeðra Eyfirðinga.
Sýning í Minjasafninu á Akureyri:
Landnám í Ejjafírði
- munir frá Granastöðum í
fyrsta sinn til sýnis
I ár eru liðin 1100 ár frá því að
landnám í Eyjafirði hófst með
komu Helga magra, Þórunnar
hyrnu og venslamanna þeirra.
Akureyringar munu væntan-
lega minnast þessara tímamóta
í Lystigarðinum í kringum 29.
ágúst en Minjasafnið á Akur-
eyri ríður á vaðið með sýning-
unni Landnám í Eyjafirði sem
opnuð verður á sunnudaginn.
Á sýningunni gefst almenningi
í fyrsta sinn kostur á að sjá muni
sem fundist hafa við fornleifa-
uppgröft að Granastöðum í Eyja-
firði, en þar hefur Bjarni Einars-
son, fornleifafræðingur, stundað
rannsóknir frá árinu 1987. Þær
rannsóknir standa enn og má
búast við að fleira finnist sem get-
ur varpað ljósi á líf fólks í Eyja-
firði á landnámsöld.
Að sögn Guðnýjar Gerðar
Gunnarsdóttur, safnvarðar, eru
flestir gripirnir á sýningunni
fengnir að láni frá Þjóðminja-
safni íslands. Þetta eru munir frá
landnámsöld sem fundist hafa í
héraðinu og á sýningunni er leit-
ast við að draga upp mynd af lifn-
aðarháttum Helga magra og af-
komenda hans.
Meðal sýningargripa má nefna
skartgripi og vopn sem fundist
„Gullæði“ í kringum Landsmót hestamanna tekur á sig ýmsar myndir:
130 þúsund fyrir fimm daga
- sex manna flölskylda flytur út fyrir þýska hestamenn
Ævintýralega háar fjárhæðir
hafa verið nefndar í sambandi
við leigu á húsnæði í Skagafirði
á meðan Landsmót hestamanna
stendur yfir. Dagur fékk í gær
staðfest eitt dæmi sem hljóðaði
upp á 130.000 krónur í leigu á
heilu húsi í 5 daga, en innifalið
í því verður morgunmatur og
kvöldverður.
Fyrir ári hringdi íslenskur
maður í konu eina í Skagafirði og
spurði hana hvort sveitabær sem
hún er tengd yrði ekki auður þeg-
ar landsmótið yrði. Á þessum
tíma var enginn í húsinu, en til
stóð að þar yrði flutt inn svo kon-
an gaf manninum það svar að
hún byggist ekki við því að það
yrði autt, en vissi það samt ekki
Sjúkrahúsin á Húsavík og Siglufirði:
Gengur erfiðlega að ráða
hjúkrunarfræðinga í afleysingar
Engin lokun eða samdráttur
að neinu marki er fyrirhugað-
ur á starfsemi sjúkrahúsanna
á Siglufirði og Húsavík í
sumar, en Ijóst er að erfiðlega
gengur að ráða afieysinga-
fólk, þó sérstaklega hjúkrun-
arfræðinga.
Sjúkrahúsið á Siglufirði rúm-
ar 43 sjúklinga, og þar verður
enginn samdráttur, en tekisl
hefur að ráða það afleysinga-
fólk sem nauðsynlegt er til að
halda óbreyttri starfsemi. Hins
vegar mega engin forföll verða
til þess að sú áætlun raskist
ekki.
Breyting verður hins vegar á
sjúkraflutningum á Siglul'irði
frá og með 1. júlí nk, en þá tek-
ur lögreglan við þeim,
en
aksturinn hefur verið unninn í
sjálfboðaliðastarfi sl. 10 ár.
Bæjarfélagið átti að standa
straum af þeim kostnaði til síð-
ustu áramóta, en með breyting-
um á verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga eru sjúkraflutning-
ar alíarið komnir á herðar ríkis-
valdsins.
Með þessum breytingum fær
lögreglan á Siglufirði til baka
eitt stöðugildi, en búið var að
fækka um einn mann í löggæsl-
unni. Sjúkrabifreiðin verður
fyrst um sinn staðsett við
sjúkrahúsið, en væntanlcga
verður byggt fljótlega yfir hana
við lögreglustöðina.
Á Húsavík verður hugsan-
lega eitthvað dregið úr innlögn-
um á sjúkrahúsið yfir mesta
sumarleyfistímann hjá starfs-
fólkinu, en langlegudeildin er
nú fullskipuð. Sjúkrahúsið á
Húsavík getur tekið á móti 64
sjúklingum og er fæðingardeiid
þar meðtalin, en skortur á
hjúkrunarfræðinguin kann að
hafa þau áhrif að fækka þarf
innlögnum.
Auglýst héfur verið cftir
hjúkrunarfræðingum í dagblöð-
urn og fagblöðum hjúkrtinr”
fræðinga, en viðbrögð verið
sáralítil. Næsta vor útskrifast
fyrstu hjúkrunarfræðingarnir
frá Háskólanum á Akureyri,
alls 12 stúlkur, og reikna má
með að einhverjar þeirra komi
til afleysinga á norðlenskum
sjúkrahúsum sumarið 1991.
GG
fyrir víst.
Núna, ári seinna, hringir mað-
urinn aftur og segir að það sé
vika þar til þeir fyrstu fimm
komi. Konan varð auðvitað mjög
hissa og leist ekki meira en svo á,
því í húsinu býr nú sex manna
fjölskylda. Hún hafði heldur
aldrei gefið manninum ákveðið
svar, en samt hafði hann auglýst
húsnæðið. Tilboð hans hljóðaði
upp á 130.000 krónur fyrir hús-
næði, morgunmat og kvöldmat í
fimm daga fyrir tíu Þjóðverja.
Þar sem ekki var í neitt annað
hús að venda fyrir aumingja
Þjóðverjana, ákvað fjölskyldan
að taka þessu tilboði og nú er
verið að gera allt klárt til að taka
á móti mönnunum sem koma á
þriðjudag og miðvikudag. Fjöl-
skyldan flytur auðvitað út á
meðan, en þarf þó ekki að búa í
tjaldi.
Þetta er aðeins eitl dæmi af
mörgum sem heyrst hefur af. Fáir
vita hvað er satt, en þessi litla
saga er þó sönn.
Dagur veit það með vissu að í
vetur var mikið leitað eftir hús-
næði, en þá var framboð lítið og
þess vegna geta hafa komið há
tilboð í það sem þá bauðst. Síðan
þegar líða fór að landsmóti og
sögur um stórar fjárhæðir að
ganga fjöllum hærra, virtist fólk
taka við sér og bauð fram hús-
næði í stórum stíl. Aðallega eru
það nú erlendir gestir sem gista í
húsum, en hinn íslenski hesta-
maður virðist láta sér nægja
tjaldið. SBG
hafa í kumlum í héraðinu, forna
húsviði frá Möðrufelli í Eyjafirði
og Þórslíkanið svonefnda, en það
hefur valdið fræðimönnum mikl-
um vangaveltum allt frá því það
fannst í nágrenni Akureyrar árið
1816.
Sýningin Landnám í Eyjafirði
verður formlega opnuð sunnu-
daginn 1. júlí og hún verður opin
á venjulegum opnunartíma
Minjasafnsins fram til 15. sept-
ember. Þá má geta þess að Ijós-
myndasýningin Akureyri - svip-
myndir úr sögu bæjar verður opin
í Laxdalshúsi frá kl. 15-17 í
sumar. SS
ÓlafsQörður:
mennaumhelgina
Það stefnir í eitt allsherjar ætt-
armót í Ólafsfirði um helgina.
Burtfluttir Ólafsfirðingar
hyggjast halda á heimaslóð og
sameinast um að græða upp
særðan heimahagann.
Að sögn forsvarsmanna Ólafs-
firðingafélagsins á höfuðborgar-
svæðinu er von á fullri rútu af
burtfluttum Ólafsfirðingum heim
í fjörðinn kæra um helgina og þá
hafa fleiri gamlir Ólafsfirðingar
boðað komu sína. Ætlunin er að
pota fjölda trjáplantna niður í
jörðina og hefst sú athöfn fyrir
hádegi á morgun. Síðdegis verð-
ur efnt til heljarmikillar grill-
veislu og Miðaldamenn setja síð-
an punkt yfir i-ið með tónaflóði á
balli í Tjarnarborg annað kvöld.
óþh
Sj ávarútvegsbrautin
á Dalvík:
Metaðsókn
Ahugi á námi við stýrimanna-
og fiskvinnslubraut Dalvíkur-
skóla eykst ár frá ári, og á
næsta skólaári setjast fleiri á
skólabekk á þessum brautum
en nokkru sinni fyrr.
Á 2. stigi stýrimannabrautar
verða 18 nemendur í vetur, og er
það aukning um 4 nemendur sem
koma frá Isafirði og Reykjavík
eftir nám á 1. stigi þar. 13 hafa
sótt um skólavist á 1. stigi og 25 á
fiskvinnslubraut, og eru það
nemendur víðs vegar af land-
inu, eða allt frá Tálknafirði aust-
ur á Fáskrúðsfjörð þótt flestir
komi frá Norðurlandi.
Á síðasta ári stunduðu rúm-
lega 30 nemendur nám við sjáv-
arútvegsbrautina á Dalvík, en
þeir verða um 60 næsta ár, svo
þar er um verulega aukningu að
ræða. Samkvæmt samstarfssamn-
ingi Verkmenntaskólans á Akur-
eyri og Dalvíkurskóla heitir
deildin nú Verkmenntaskólinn á
Akureyri, sjávarútvegsbraut á
Dalvík.
Skólastjóri sjávarútvegsbraut-
ar er Þórunn Bergsdóttir, og við
skólauppsögn sl. vor varð hún
fyrst kvenna á íslandi til að út-
skrifa stýrimenn. GG