Dagur - 07.07.1990, Qupperneq 5
Laugardagur 7. júlí 1990 - DAGUR - 5
Fréttagetraun júmmánaðar
Júní var mildur framan af á Norðurlandi og hitinn oft
nálægt 20 stigum. Upp úr miðjum mánuði fór að bera á
norðanátt sem stóð nær linnulaust fram í júlí. En við
ætlum ekki að spá í veðrið hér heldur fréttnæm tíðindi
í júnímánuði sem getið er um á síðum Dags. Fyrir-
komulagið þekkja flestir, spurningarnar eru tólf en
aðeins eitt svar rétt við hverri. Vinsamlegast fyllið út
svarseðilinn og sendið okkur fyrir þriðjudaginn 7.
ágúst. Dregið verður úr réttum lausnum og þrenn
hljómplötuverðlaun veitt. ^
1) Hvaða félag átti afmæli 6. júní
og hvað varð það gamalt?
(1) Framsóknarfélag Akureyrar-
100 ára.
(X) íþróttafélagið Þór - 75 ára.
(2) Knattspyrnufélag Akureyrar
- 70 ára.
2) Hvar héldu Sauðkrækingar
messu á sjómannadaginn?
(1) í Drangey.
(X) í Hólakirkju.
(2) Um borð í Skagfirðingi.
3) Hvað sagði Sigfús Jónsson er
hann lét af starfi bæjarstjóra
Akureyrar?
(1) „Tíminn hefur hlaupið frá
mér og ég tel að nýr bæjarstjóri
verði að spretta úr spori svo
Akureyringar nái í mark í
atvinnumálunum. “
(X) „Ég hefði gjarnan viljað sjá
meiri árangur af starfi mínu en
raun ber vitni en vil þó jafnframt
þakka öllum sem hafa stutt mig í
þessu skemmtilega starfi.“
(2) „Mér hefur líkað þetta starf
mjög vel og er sáttur við minn
hlut.“
4) Hvert er næsta skref í upp-
byggiugu íþróttavallarins á Laug-
um í Reykjadal?
(1) Lagning tartan-hlaupabrautar
í kringum íþróttavöllinn.
(X) Ráðgert er að steypa hringi
fyrir kúluvarpara og kringlukast-
ara.
(2) Byggt verður áhaldahús fyrir
sláttuvél og hrífur.
5) Hvað heitir listaverkið sem
afhjúpað var við Menntaskólann
á Akureyri 17. júní?
Vinnmgs-
hafar í maí-
getraun
Konur gerðu garðinn frægan í
fréttagetraun maímánaðar og
ekki í fyrsta sinn sem þær raða
sér í verðlaunasætin. Vinnings-
hafarnir eru Margrét Hall-
grímsdóttir, Ólafsfirði, Erla
Asmundsdóttir, Akureyri, og
Ragnheiður Þórðardóttir,
Brekku, Öngulsstaðahreppi.
Maígetraunin var allsnúin, en
rétt röð er þessi:
1) X 7) 1
2) 1 8) 2
3) 1 9) 2
4) X 10) 2
5) 2 11) X
6) X 12) 1
Sumir flöskuðu á 3. spurning-
unni og sögðu Eyfirðinga hafa
sett íslandsmet í framleiðslu
gæðamjólkur á síðasta ári en
samkvæmt frétt í Degi (og ekki
lýgur hann) voru það Þingeying-
ar. Við þökkum lesendum fyrir
þátttökuna og minnum á nýju
getraunina. SS
(1) Óðinshrafninn.
(X) Sigling.
(2) Muninn.
6) Hvað sagði Ásgeir Pétur
Asgeirsson, formaður Sjálfs-
bjargar á Akureyri, um væntan-
leg verkefni sín hjá félaginu?
(1) „Höfuðatriðið í dag er það að
efla veggboltann og fá fjárveit-
ingu til að byggja sundlaug.“
(X) „Ég ætla að beita mér fyrir
því að stokka reksturinn upp Og
það er ekkert heilagt fyrir mér í
þeim efnum, engar heilagar kýr.“
(2) „Ég ætla að reka þetta eins og
hvert annað fyrirtæki og það er
ljóst að við verðum að setja í
þriðja gír eftir að hafa verið í
bakkgír árum saman.“
7) Allir kannast nú við „Harald í
rúminu“ en við hvað starfar þessi
ágæti maður?
(1) Hann er bóndi í Enni í Við-
víkursveit og réttarstjóri Lauf-
skálaréttar.
(X) Hann er sjómaður á Hofsósi
en hefur legið rúmfastur undan-
farna mánuði.
(2) Hann er bóndi og járnsmiður
og jafnframt formaður Ung-
mennafélagsins Neista á Hofsósi.
8) Eftir hverjum er þetta haft í
fyrirsögn: „Viljum stærri bita af
kökunni“?
(1) Guðmundi Sigurbjörnssyni,
hafnarstjóra á Akureyri, um út-
hlutun fjár til hafnargerðar á
þessu ári.
(X) Einari Viðarssyni, bakara,
vegna umræðu um aukna
markaðshlutdeild Einarsbakarís.
(2) Kristjáni Möller, forseta
bæjarstjórnar Siglufjarðar, vegna
ákvæða um ferðaþjónustu í mál-
efnasamningi meirihlutans.
9) Jón A. Baldvinsson vakti
athygli á Arctic Open golfmótinu
á Akureyri. Fyrir hvað?
(1) Að gefa brúðhjón saman og
fara holu í höggi með stuttu milli-
bili.
(X) Vegna þess að hann var næst-
ur holu eftir upphafshögg á 6.
braut og fékk forláta bifreið í
verðlaun.
(2) Hann var sá eini sem sá mið-
nætursólina sem allir höfðu kom-
ið til að sjá, en aðrir komu ekki
auga á Ijósið í myrkrinu.
10) Siggerður Bjarnadóttir ekur
40 tonna grjótbíl í Grímsey.
Hvað sagði hún um starfið?
(1) „Fyrstu dagana var hálfgert
vinnustopp hjá körlunum á hin-
um bílunum því þeir höfðu aldrei
séð annað eins.“
(X) „Þetta er miklu þægilegri
vinna en fiskmatið.“
(2) „Maður var eins og barinn
harðfiskur fyrstu dagana en þetta
er gaman.“
11) „Rómantíkin komin í svefn-
pokana" segir í fyrirsögn. Hver
fullyrðir þetta?
(1) Landsþekktur höfundur ást-
arsagna á Norðurlandi vestra.
(X) Húsvörður í Skjólbrekku í
spjalli um sveitaballastemmn-
ingu.
(2) Harmonikuunnendur sem
kusu að gista í tjöldum á Lands-
mótinu á Laugum.
12) Hver fer í „ból“ Bjarnar
(Níelssonar, sveitarstjóra á Hofs-
ósi)?
(1) Haraldur í rúminu.
(X) Jón Guðmundsson á Ós-
landi.
(2) Köttur. SS
Rómantíkin er komin í svefnpokana og þessi maður gerir sér fulla grein fyrir
því. En hver sctti þessa kenningu fram?
1. Svarseðill (1, X eða 2) 7.
2. 8.
3. 9.
4. . . _ 10.
5. . _ . _. 11.
6. 12.
Nafn:
Heimilisfang:
Sími: Póstnúmer:
Utanáskriftin er: Dagur - fréttagetraun,
Strandgötu 31 Pósthólf 58 602 Akureyri