Dagur - 21.07.1990, Síða 3
Laugardagur 21. júlí 1990 - DAGUR - 3
Umfjöllun um Arctic open og akureyrskt golf: Bamwell á beiraii línu í Bandaríkiunum
Hið árlega miðnæturgolfmót Goifklúbbs Akureyrar, Arctic Open, vekur sífellt meiri athygli erlendis. Eftir mótið í júní sl. hafa erlendir frétta- menn keppst um að skrifa um það og fjölmargar greinar birst í erlendum blöðum, nú síðast forsíðugrein í hinu þekkta blaöi Wall Street Journal, 9. júlí sl. Með greininni í Wall Street Journal vaknaði áhugi banda- rískra útvarpsstöðva á akur- eyrsku golfi og hefur David Barnwell, golfkennari á Akur- eyri, fengið upphringingar frá fjórum þarlendum stöðvum. Tvær þeirra hafa þegar tekið viðtal við hann og var þeim báð- um útvarpað beint í Bandaríkj- unum. Önnur er staðsett í Bost- on og útvarpar þar en hin stöðin. CBS, útvarpar um gervöll Bandaríkin og má reikna með að tugmilljónir hlustcnda hafi heyrt viðtalið við David. „Ég var spurður um golf á Akureyri, Arctic Open, miðnæt- urgolf, golfvöllinn og um Akur- eyri,“ sagði David Barnwell í samtali við Dag. „Þetta hefur vakið mikla athygli og ég er viss um að fjöldi fólks keniur til Akureyrar næsta sumar til aö spila golf. Maðurinn hjá CBS átti erfitt með að trúa að veðriö væri eins gott hér og ég sagði honum en hann spurði svo hvort hann gæti komið hingað að spila golf, ef hann tæki næstu flugvél, og mér kæmi ekkert á óvart ef hann kæmi,“ sagði David og kvaðst að vonunt hafa verið dálítið stress- aður að tala í beinni útsendingu í Bandaríkjunum. í greininni í Wall Street Journ- al fjallar blaðantaðurinn, Tony Horwits, í léttum dúr um Arctic Open, spjallar við nokkra kepp- endur, lýsir vellinum og ræðir þó nokkuö um veðurfarið, sem ekki var upp á það allra besta meðan tnótið fór fram. Þrátt fyrir það er greinin vinsamleg og hefur svo sannariega aukið á jákvæða uin- fjöllun um akureyrskt golf. -vs
Skógræktarfélag Eyfirðinga:
Blómleg starfsemi í sumar
Sumarið er tími skógræktar,
eins og gefur að skilja, og í
Eyjafirði verður óvenjumikið
um að vera í þeim efnum þetta
sumarið, að sögn Hallgríms
Indriðasonar hjá Skógræktar-
félagi Eytirðinga. Búið er að
gróðursetja 55.000 plöntur á
útivistarsvæðinu í Kjarna og í
Nausta- og Hamraborgum, en
það er sá fjöldi sem fjárveiting
fékkst fyrir. Auk þess er unnið
að uppbyggingu nýs leikvallar í
Kjarna, ásamt grisjun og
hreinsun.
Plöntuuppeldi er líka umfangs-
mikill þáttur í starfsemi félagsins
og nálgast framleiðslan 500.000
piöntur í vor og hefur verið mjög
góð plöntusala það sem af er.
Núna er unnið að hreinsun og
umpottun en sumargræðlingum
verður væntanlega stungið niður
eftir h.u.b. viku.
í byrjun ágúst hefst síðan
vinna í ýmsum reitum víða um
sveitir og er hún aðallega fóigin í
því að fara yfir svæðin, grisja og
gróðursetja. í sumar verður aðal-
lega gróðursett á Vöglum og
Þelamörk og í Vaðlareit, auk
þess sem Hallgrímur sagðist von-
ast til að hægt væri að grisja og
endurgirða hluta af Garðsárreit.
í fyrra var grisjað í Leyningshól-
um og á eftir að ganga frá þar eft-
ir þær framkvæmdir.
Skógræktarfélagið fékk líka
úthlutað um 40.000 plöntum í
Landgræðsluskógaátakinu og
voru þær settar niður á Melgerð-
ismelum, að hluta til í sjálfboða-
vinnu ýmissa aðila. Ráðgert er
að gróðursetja meira í haust og
sagði Hallgrímur að þetta væri
vonandi fyrsti áfanginn í enn
umfangsmeiri skógrækt á þessum
stað.
Á vegum Skógræktarfélags
Eyfirðinga vinna að jafnaði um
50 manns yfir sumartímann og
eru starfsmenn unglingavinnunn-
ar þar meðtaldir. -vs
Eyjagörður:
Vaxandi vinsældir Hraftia-
gils sem ráðsteftiustaðar
Hrafnagil í Eyjafirði hefur not-
ið stöðugt vaxandi vinsælda
undanfarið sem staður fyrir
ráðstefnur, ættarmót, nám-
skeið og hvers kyns mannfagn-
aði af því tagi. Staðurinn er í
þægilegri fjarlægð frá Akur-
eyri, ekki nema 10 km eða svo,
og virðist vera að margir kjósi
að halda slík mót í kyrrðinni í
Eyjafirðinum en hafa þó
Akureyri rétt við bæjardyrnar.
í Hrafnagilsskóla er rekið
Edduhótel á sumrin og sam-
kvæmt upplýsingum sem þar
fengust eru nokkur fjölmenn mót
bókuð þar í sumar. Þar má nefna
tvö ættarmót, sem samtals 350
manns sækja og einnig er nokkuð
um ráðstefnur. Samtök sykur-
sjúkra þinguðu að Hrafnagili í
júnímánuði og Upplýsingaþjón-
usta landbúnaðarins verður með
ráðstefnu í ágúst.
Einnig eru fyrirhugaðar 2-3
ráðstefnur til viðbótar í sumar en
eftir er að ganga endanlega frá
þeim málum.
Að öðru leyti hefur verið
þokkalega mikið um ferðamenn
á Edduhótelinu. Júnímánuður
var að vísu ekkert sérstakur en
mikið er bókað í júlí og er tölu-
vert um að hópar komi og gisti 3-
4 daga, auk þeirra sem ferðast á
eigin vegum -vs
Vísitala byggingarkostnaðar:
0.1% hærri en í júní
Hagstofan hefur reiknaö út
vísitölu byggingarkostnaðar
eftir verðlagi um miðjan júlí
1990.
Reyndist hún vera 171,9 stig,
eða 0,1% hærri en í júní (júní
1987=100). Þessi vísitala gildir
fyrir ágúst 1990. Samsvarandi
vísitala miðuð við eldri grunn
(desember 1982=100) er 550 stig.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala byggingarkostnaðar
hækkað um 18,3%. Síðustu þrjá
mánuði hefur vísitalan hækkað
urn 1,5% og samsvarar það 6,3%
árshækkun.
í hvíldarstöðu.
Mynd: Golli
Ólympíuleikunum í stærðfræði lokið:
Frosti Pétursson
frá Akureyri
hlaut bronsverðlaun
- besti árangur íslendings frá upphafi
Frosti Pétursson frá Akureyri
náði þeim frábæra árangri að
hljóta bronsverðlaun á Ólymp-
íuleikunum í stærðfræði sem
nýlokið er í Kína. Þetta er
besti árangur íslendings frá
upphafi í þessari erfiðu
keppni, þar sem úrvalslið
fjölda þjóða taka þátt.
Fregnir af mótinu eru nokkuð
óljósar enn sem komið er og ekki
vitað hversu margir tóku þátt.
Fyrirkomulagið í því er á þá leið,
að um helmingur keppenda hlýt-
ur verðlaun. Yfirleitt hafa kepp-
endur á Ólympíuleikunum verið
í kringum 200 og samkvæmt því
hljóta 17 manns gullverðlaun, 33
silfurverðlaun og 50 bronsverð-
laun. Sé tillit tekið til þess að
flestir keppenda hafa mun meira
stærðfræðinám að baki en íslend-
ingar, sem hafa yfirleitt verið
með neðstu þjóðum, þá verður
þetta að teljast afburðagott afrek
hjá Frosta að fá bronsverðlaun.
Á Ólympíuleikunum í Ástralíu
fyrir tveimur árum fékk Guð-
björn Freyr Jónsson, þá nemandi
í Menntaskólanum á Akureyri,
fm—mmm—mmm^m—^—^mmmmm~
Otrúlegt úrval
kjötrétta á útigrillið
Hrísalundi
Frosti Pctursson.
bronsverðlaun en Frosti mun
hafa lent í hærra sæti en Guð-
björn gerði þá.
Frosti er nemandi við Mennta-
skólann á Akureyri og eru for-
eldrar hans þau Erna Indriða-
dóttir. deildarstjóri RÚVAK, og
Pétur Reimarsson, framkvæmda-
stjóri Sæplasts hf. á Dalvík. -vs