Dagur - 21.07.1990, Page 5
Laugardagur 21. júlí 1990 - DAGUR - 5
HESTAR
Umsjón: Kristín Linda Jónsdóttir
Hestaleiga
- Alda h/f Melgerði Eyjafirði
Þeir sem ekki eiga hross en hafa
áhuga á að bregða sér á bak
eiga þess kost að heimsækja
einhverja af þeim fjölmörgu
hestaleigum sem bjóða upp á
lengri eða skemmri útreiðatúra.
Sumar hestaleigur bjóða einnig
upp á nokkurra daga hesta-
ferðalög. Fyrir þá sem vilja
meira en þetta venjulega skipu-
leggja fyrirtæki eins og t.d.
íshestar löng ferðalög um
byggðir eða óbyggðir.
Margþætt starfsemi hjá
Öldu h/f í Melgerði
Ein þessara hestaleiga er Alda
h/f Melgerði Eyjafirði sem er
fjögurra ár gamalt hlutafélag
um fímmtíu hluthafa. Að Mel-
gerði rekur hlutafélagið ferða-
þjónustu, tamningastöð og
hestaleigu. Par starfar nú í sum-
ar bráðhresst og skemmtilegt
ungt fólk þau Arnaldur Bárðar-
son, Magnús Árnason og Sigrún
Brynjarsdóttir. Þar er boðið
upp á gistingu hvort heldur sem
er í svefnpokaplássi eða upp-
búnum rúmum. Þar er níu
holu golfvöllur og seld eru
veiðileyfi í Eyjafjarðará.
Tamningstöð og
hrossasala
Alda h/f rekur tamningastöð og
eru þar nú á milli 20 og 30 hross
í tamningu. Þar er tekið á móti
reiðhestum í hagagöngu eigend-
ur hestanna geta hvort heldur
sem er gist í Melgerði eða
komið þangað til að ríða út um
byggðir Eyjafjarðar. í Melgerði
er rekin umboðssala fyrir hross
og eru nú um tuttugu hross þar
til sölu af ýmsum verðflokkum.
Starfsmenn Öldu ætla að efna
til sölusýningar á hrossunum á
Melgerðismelum í dag laugar-
dag klukkan fjögur.
Hestaleiga
í Melgerði er starfrækt hesta-
leiga og starfsfólkið þar býður
upp á útreiðatúra allt frá hálf-
tíma að lengd og upp í nokk-
urra daga ferðalög. Klukkutíma
útreiðatúr hjá hestaleigunni í
Melgerði kostar 1.000,- kr. á
mann, þrír tímar kosta 2.300.-
kr. og eftir það kostar hver
klukkustund 500,- kr. Ef um
hópa er að ræða er veittur af-
sláttur en unnt er að taka á móti
allt að tuttugu manns í einu.
Marga krakka langar að
prófa að fara á hestbak og þá er
upplagt að fara með þau í Mel-
gerði eða aðrar hestaleigur og
leyfa þeim að setjast í
hnakkinn. Viðskiptavinir hesta-
leigunnar Öldu eru ekki síður
íslendingar en útlendingar. Pað
er kjörið tækifæri fyrir þá sem
hafa áhuga á að kynnast hestum
að nýta sér þá þjónustu sem
hestaleigur hafa að bjóða.
Toppurinn á tilverunni, samloka, súkkulaði og svali.
Á hinni hliðinni.
Áð í Hrossadal,
Ferðalög á hestum
Yið íslendingar sem búum við langan og harðan vetur verð-
um að gæta þess að njóta okkar stutta en bjarta sumars sem
allra best. Sumarið er jafiian viðburðaríkt hjá hestamönnum.
Sumarið í sumar er líka alveg sérstakt það er landsmótssum-
ar. Nú er landsmótið liðið og víst er að þeir sem dvöldu á
Vindheimamelum yfir mótsdagana eiga oft eftir að fletta upp
í myndaalbúmi minninganna og ræða úrslit og dóma í góðra
vina hópi. Allt sumarið rekur hvert hestamótið annað þátt-
takendur í þeim skipta þúsundum. Þrátt fyrir það má telja
víst að mun fleiri taki hnakk sinn og hest og leggi land undir
fót í lengra eða skemmra hestaferðalag. Flestir hestamenn
eru á einu máli um að hápunktur hestamennskunnar séu
ferðalög á hestum. Eins dags eða margra daga um byggðir
eða óbyggðir, einn með hestunum sínum eða í góðra vina
hópi. Það er með ferðalög á hestum eins og önnur ferðalög
að öllu skiptir að allir komi heilir heim. Til að svo megi verða
er fyrsta skilyrðið að bæði menn og hestar séu í góðri þjálfun
og vel undir ferðina búnir. Það er ölhim hollt í streitu
nútímaþjóðfélags að stíga í hnakkinn og halda á vit íslenskra
fjalla og dala.
Allir í „góðu formi“
Eins og áður var sagt er regla
númer eitt, tvö og þrjú að bæði
menn og hestar séu í góðri þjálf-
un og vel undir ferðina búnir.
Knaparnir hafa mun meiri
ánægju af ferðinni séu þeir svo
hnakkvanir að þeir sleppi við
rasssæri og aumar axlir. Þrátt fyr-
ir að slysin geri ekki boð á undan
sér eiga vel þjálfaðir knapar síður
á hættu að detta af baki og slasast
í hita leiksins.
Það er jafnvel enn mikilvægara
að reiðskjótarnir séu í góðu
formi. Líkurnar á að hestur
hnjóti, detti, misstigi sig eða slas-
ist aukast þegar hann þreytist.
Pannig dregur góð þjálfun bæði
úr hættunni á óhöppum og
ofþreytu.
Umgengni hestamannna
á ferðalögum
Hestamenn sem ferðast um
óbyggðir íslands þurfa að sjátf-
sögðu að gæta þess að hrossin
valdi ekki tjóni á viðkvæmum
gróðri. Hálendi íslands er ekki
beitiland og hestamenn verða að
sjá sóma sinni því að liafa nægt
fóður meðferðis handa hrossun-
um. Á suntum áningarstöðum
hestamanna á hálendinu er starf-
rækt fóðursala yfir sumarið og er
það ntjög lofsvert framtak. Pað
er góð regla að ganga frá áningar-
stöðum eins og við viljum sjálf
koma að þeim.
Góð samvinna við landeigend-
ur er mikils virði. Pað ætti aldrei
að gleymast að loka hliði eða að
fá leyfi til að tjalda eða dvelja í
gangnakofum. Á vegum ferða-
þjónustu bænda er hestamönnum
víða boðin góð aðstaða, húsnæði,
fæði og hagar. Slíkir áningarstað-
ir setja notalegan svip á ferðina
auk þess eru íslenskir bændur
höfðingjar heim að sækja og víð-
ar en á ferðaþjónustubæjum er
tekið vel á móti hestamönnum.
Heilsa hesta á ferðalögum
í bók Helga Sigurðssonar Hesta-
heilsu kemur fram að helti og
ýmiskonar sár eru algengustu
vandamál sem upp koma á ferða-
lögum. Næst þar á eftir eru harð-
sperrur vöðvabólga og hrossa-
sótt.
Mikilvægt er að járna ferða-
hesta nokkrum dögum fyrir
brottför. Hestar með botnsigna
hófa og þunnan hófbotn þurfa á
plastbotnum að halda. Bólgna
fætur er best að kæla strax með
því að láta hestinn standa í köldu
vatni í hálftíma til klukkutíma.
Nauðsynlegt er að bera sótt-
hreinsandi lyf strax á sár til að
forðast ígerð.
Harðsperrur og vöðvabólga
eru afleiðing ofþreytu og of-
reynslu og sérstaklega algeng
þegar kalt er og blautt. Pá geta
ábreiður komið sér vel.
Snögg ofkæling og ofþreyta eru
algengustu orsakir hrossasóttar á
ferðalögum.
Best er að hafa fyrstu áfangana
stutta og gæta þess að hestarnir
fái tækifæri til að kasta af sér
þvagi. Lausir hestar ættu ekki að
þurfa að hlaupa langar leiðir með
beisli. Sjálfsagt er að fylgjast vel
með hrossunum í rekstrinum
hvort þau séu óhölt og frísk og
hvort skeifur séu lausar eða
steinn fastur í hófi.
Góður búnaður
Pað er margt sem kemur sér vel
að hafa í hnakktöskunni en að-
eins það nauðsynlegasta kemst
fyrir. Auk hlífðarfata, nauðsyn-
legustu járningaráhalda, skeifna,
nestis og sárasmyrsla er gott að
hafa meðferðis léttan kaðal eða
línu úr rafgirðingu til að nota
þegar áð er og þegar þarf að ná
hestum eða skilja hópa að.