Dagur - 21.07.1990, Side 7
af erlendum vetfvangi
Laugardagur 21. júlí 1990 - DAGUR - 7
l
Marskönnuður
Þó að menn hafi átt fyrstu spórin
á tunglinu þá verða það vélmenni
sem taka fyrstu sporin á Mars.
Við undirbúning næstu geimferð-
ar til Mars hafa vísindamenn
þróað vélmenni sem að grunni til
er smíðað úr tveimur stálbitum.
Þeir mynda stórt T sem liggur
flatt og síðan er vélbúnaðurinn
hengdur neðan í langa legginn á
T-inu. Þetta nýja vélmenni verð-
ur útbúið með tvo arma sem gera
því kleift að safna sýnum af yfir-
borðinu. Tvær myndavélar fram-
an á því gera vísindamönnum
kleift að fá nærmyndir af yfir-
borðinu. Það sem óvenjulegast er
við þetta vélmenni er hvernig það
hreyfir sig. Eftir því sem Andrew
Spiessbach, einn verkfræðingur-
inn sem vann að hönnun þess,
segir þá var „stöðugleiki aðalatr-
iðið. Vélmennið varð að vera
eins sjálfbjarga og auðið var."
Það liggur að sjálfsögðu í augum
upp því að það verða engir geim-
farar með í förinni til að hjálpa
því á fætur ef það dettur á ójöfnu
yfirborðinu á Mars. Spiessbach
og hans menn urðu því að hanna
vélmenni sem ekki gæti dottið.
Af þessari ástæðu hreyfir það
sig líkast og ormur. Þegar það
gengur setur það fyrst niður fæt-
urna sem eru á endum bitanna
sem mynda T. Síðan rennur híut-
inn með vélbúnaðinum til og set-
ur niður sína fjóra fætur svo að
færa megi T-lagaða stykkið til og
svo framvegis. Þrátt fyrir óvenju-
legt göngulag nær þetta furðulega
vélmenni 90 metra hraða á klst.
Þýtt: H.G.
Hvaða áhrif
hefur gmseng?
Rússnesk rót er einfaldlega eitt
afbrigði ginsengrótar. Ginseng
streymir inn á markaðinn undir
ýmsum nöfnum: Japanskt, ame-
rískt, síbirískt, kínverskt og kór-
eskt ginseng. Allir þeir, sem
flytja það inn og selja, fullyrða,
að ginseng sé „hressandi lyf, sem
auki mótstöðuafl líkamans og
afkastagetu manna“. Lífefna-
fræðilega virk efni í ginseng nefn-
ast ginsenosider.
Allt að þrjátíu mismunandi
ginsenosider hafa fundist í gin-
seng-rótum, en tala þeirra er
breytileg eftir þeim jarðvegi, sem
jurtin hefur vaxið í. Þess vegna
eru það t.d. ekki sörnu efni, sem
eru virk í rússneskri rót og kór-
eskri eða amerískri.
Árið 1948 uppgvötvaði vís-
indamaðurinn Israel Brekhman,
að lítið magn af ginseng-krafti
getur aukið lífsorku manna.
Þannig reyndust rússneskir her-
menn að meðaltali sex prósent
betur á sig komnir eftir að þeir
höfðu um skeið tekið ginseng
með matnum.
Við tilraunir með mýs tókst
Brekhman að auka úthald mús-
anna við hlaup og sund um ekki
minna en 34 prósent. Á þeim
árum, sem síðan eru liðin, hefur
hver vísindamaðurinn af öðrum
sannreynt niðurstöður
Brekhmans. í sænsku Læknatíð-
indunum nr. 51, 1987, var t.d.
skýrt frá rannsókn, sem fram fór
við Karolínsku stofnunina í
Stokkhólmi. Það var gerður
Sumir telja ginseng vera það nýja
undralyf, sem haldi heilsunni í lagi
alla daga. Aðrir eru þeirrar skoðun-
ar að allt eins megi naga gulrót.
samanburður á líkamlegri vinnu-
hæfni miðaldra karla fyrir og eftir
átta vikna tímabil, sem þeir voru
látnir taka ginseng og vítamín.
Niðurstaðan varð sú, að eftir
þetta átta vikna tímabil var
vinnugeta þeirra meiri og enn-
fremur fundur þeir minna til
þreytu en áður.
Lærðir menn deila þó um þess-
ar niðurstöður, eins og allt
annað. Við tilraunir með líkams-
þol - og þegar tilraunirnar eru
gerðar á mönnum - koma margir
óvissuþættir við sögu. Sumir
segja, að óþarfi sé að kaupa dýrt
ginseng, þegar hægt sé að fá nóg
af ódýrum gulrótum, sem líka
séu heilnæm fæða. Ef við hins
vegar - þrátt fyrir óvissuna -
göngum út frá því, að ginseng
auki dug manna, er eðlilegt að
spyrja: Hvernig er hægt að skýra
þennan aukna dug?
Tilgátur manna eru þær, að
ginsenosider-efnin hafi áhrif á
hormónakerfi líkamans og þar
með á brennslu fæðunnar. Við
tilraunir á músum kemur t.d.
fram, að fái þær ginseng verður
líkamskerfi jseirra fært um að
brenna meira magni af fitusýrum,
án þess að mjólkursykur aukist í
blóðinu og vöðvarnir verði stífir
og viðkvæmir. Það hefur með
öðrum orðum þau áhrif, að vöðv-
arnir þola líkamlega áreynslu
lengur en ella.
Aðrar tilraunir benda til þess,
að regluleg inntaka ginsengs auki
það súrefnismagn, sem líkaminn
tekur til sín og þá jafnframt þol
vöðvanna.
Þá má líka spyrja, hvort gin-
seng geti verið hættulegt. Því er
til að svara, að ekki er vitað til
þess, að ginseng geti verið hættu-
legt heilsu manna miðað við að
teknir séu eðlilegir skammtar. Af
öryggisástæðum vara þó sumir
næringarfræðingar ófrískar kon-
ur og fólk með háan blóðþrýsting
við því að taka ginseng.
Þegar heimsmeistarakeppnin á
skíðum fór fram í Lahti 1989 lá
við að norska kvennaliðinu yrði
vísað frá keppni vegna ginsengs-
efnis. Og það heyrist öðru hvoru
um íþróttafólk, sem fallið hafi á
lyfjaprófi vegna ginsengs. Það
eru eigi að síður miklar líkur til
þess, að þetta fólk hafi látið
eitthvað annað ofan í sig fyrir
utan ginseng - eitthvað af svarta
listanum - t.d. amfetamín.
En síðasta orðið í umræðum
um ginseng hefur enn ekki verið
■ (Bengt Bengtsson í Fakta 7/89. - t'.J.)
Hvert er leyniorðið þitt?
Ertu oröin þreytt/þreyttur á aö
þurfa að pukrast með leyninúm-
erið í hraðbankanum? Eða passa
að óviðkomandi nái ekki í tölurn-
ar á greiðslukortinu þínu? Það
eru líkur til að þetta vandamá!
verði brátt úr sögunni. Vfsinda-
menn við rannsóknarstofur Bell
fyrirtækisins í New Jersey hafa
hannað kerfi sem þekkir eiganda
sinn á röddinni. Þetta fer þannig
fram að menn fá afhent kort með
örtölvukubbum sem skráð er f
„afrit" af sérstöku leyniorði sem
menn velja sér sjálfir. Til þess aö
fá síðan afgreiðslu í hraöbanka
eða sjálfsala sem tekur greiðslu-
kort stingurðu kortinu í sérstaka
rauf og segir síðan leyniorðið.
Tækið ber saman myndina á
kortinu og myndina sem það bjó
til úr því sem þú sagðir.
Tim Feustel, sá sem á heiður-
inn af kerfinu, segir að það greini
röddina rétt í 99 tilvikum af
hundrað (ef þú ert kvefaður
lækkar nákvæmnin í 98 skipti af
hundrað.)
Ef vélin þekkir þig ekki á rödd-
inni þá hefurðu samt sem áður
möguleika á að slá inn leyninúm-
erið þitt.
Kannski eru bestu fréttirnar þó
þær að það er talið að rödd manna
sé jafn einstök og fingraför, svo
jafnvel snjallasta eftirherma er
ekki fær um að herma eftir þér.
„Það er vandalaust að leika á
mannseyrað," segir Feustel, „en
ckki vélina."
Bell áætlar að kerfið verði
komið á markaö innan árs.
Þýtt: H.G.
Hvorki kvel' né eftirherma geta villt uin fyrir þessari nýju tækni.