Dagur - 21.07.1990, Page 8
8 - DAGUR - Laugardagur 21. júlí 1990
Kartöf I ugey msl u r
Aku rey rarbæjar
Vinsamlegast athugið að hreinsun úr kart-
öfluhólfum þarf að vera lokið fyrir 1. ágúst.
Eftir þann tíma verður geymslan tæmd.
Kartöflugeymslan verðuropin kl. 13.00-17.00, frá
23.-31. júlí.
Umhverfisdeild.
tmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^^^^mmmm
Fornminjar á hverju strái
- Með hvaða hætti eru hóparnir
skipaðir í ferðum á borð við
þessa?
„Við auglýstum í grunnskólun-
um sem eru með nemendur 13
ára og eldri. Það komu flestir úr
Glerárskóla en ekki veit ég hvers
vegna. Auðvitað bárust mun
fleiri umsóknir en rými leyfði
þannig að við skrifuðum nöfnin á
blöð sem við settum í hatt og síð-
an var einfaldlega dregið. Pað er
ekki hægt að gera þetta öðru-
vísi,“ sagði Unnur.
Þessar vikur hafa alltaf ákveð-
ið þema og sagði Unnur að þema
þessarar viku hefði verið „Kultur
og fritid“, eða menning og tóm-
stundir. Víkingasveitin, tónlistar-
og danshópurinn heyrðu undir
menninguna en íþróttahópurinn
undir tómstundir, svo og tónlistin
og dansinn að hluta.
- Víkjum þá að starfinu í
Vásterás. Hvað voruð þið að
bralla þarna, Magnús?
„Við keyrðum á milli og
skoðuðum gamla staði, hús og
hauga.“
Unnur: „Okkur var sýnt geysi-
lega margt frá fyrrum tímum, allt
frá bronsöld. Svíarnir eru miklir
snillingar í að halda upp á sínar
AKUREYRARB/ÍR
siði,“ sagði Unnur og lýsti hún
tilhögun ferðarinnar í stórum
dráttum:
Töluverð samskipti
milli vinabæjanna
„Við fórum 23. júní klukkan
fimm um morguninn í Fokker til
Keflavíkur. Þaðan var flogið til
Gautaborgar og frá Gautaborg
var keyrt norður til Vásterás, en
við gistum eina nótt á leiðinni á
stað sem heitir Skara. Par er stór
skemmtigarður sem heitir Skara
Sommarland og vakti hann mikla
hrifningu. Við gistum á fínu
hóteli í Skara og krakkarnir
fengu að fara á diskótek, sem var
líka skemmtileg reynsla fyrir
marga.
Pegar við komum til Vásterás
var tekið á móti okkur í Brygg-
argárden, en þar var miðpunkt-
urinn, eins konar stoppistöð há-
tíðarinnar. Okkur var skipt niður
og bjuggu sumir á hótelum og
aðrir á einkaheimilum. Hluti af
hópnum fór á stað sem heitir
Apalbyen. Þú bjóst þar
Magnús,“ sagði Unnur og beindi
máli sínu til Magnúsar.
„Já, þetta var nokkurs konar
sumarhúsahverfi og þarna voru
ýmis leiktæki, mini-golf, keilusal-
ur og fleira. Þarna var líka stór
matsalur þar sem við hittumst og
borðuðum saman,“ sagði Magn-
ús.
- Aður en við förum nánar út í
dvöl ykkar í Vásterás er kannski
rétt að rifja upp þetta vinabæja-
samstarf.
„Já, það er ákveðið vinabæja-
samstarf í gangi og það er keðju-
verkandi. Pað er búið að halda
vinabæjamót í Randers og Ála-
sundi, nú var það í Vásterás,
næsta ár verður það í Lahti og
1992 á Akureyri. Það eru tölu-
verð samskipti milli vinabæjanna
og nú eru t.d. krakkar frá Ákur-
eyri úti í Vásterás í vinnuskiptum
og krakkar þaðan eru hér. Síðan
hittast bæjarfulltrúar vinabæj-
anna í tengslum við þessi vina-
bæjamót,“ sagði Unnur.
Þess má geta að Vásterás fagn-
ar 1000 ára afmæli sínu um þessar
mundir og því er mikið um
dýrðir. Á sama tíma og krakk-
arnir voru úti sýndu 25 leikhópar
frá Norðurlöndunum í Vásterás.
Fylgst með fornleifauppgreftri, en í Vásterás og nágrenni má hvergi stinga
niður skóflu án þess að rekast á fornminjar.
Villisvín grilluð á teini fyrir grísaveisluna.
Síöasta vika júnímánaðar er mörgum unglingum frá
Akureyri minnisstæð en þá dvaldi um 50 manna hópur
í Vásterás, vinabæ Akureyrar í Svíþjóð. Þetta voru
fjórir hópar unglinga á aldrinum 13-17 ára ásamt farar-
stjórum og öðrum fulltrúum bæjarins og til að fræðast
um ferðina gripurn við einn fararstjóra og tvo unglinga
í spjali.
Unnur Þorsteinsdóttir var farar-
stjóri 10 manna hóps sem kallaði
sig víkingasveitina og sérhæfði
sig f fornminjum. Auk víking-
anna voru í ferðinni íþróttahóp-
ur, þjóðdansahópur og þjóðlaga-
tónlistarsveit, en þátttakendur í
þessum hópum sýndu dansa,
fluttu tónlist og tóku þátt í íþrótta-
dagskrá. Við ætlum að slást í för
með víkingasveitinni og fulltrúar
hennar eru auk fararstjórans þau
Magnús Stefánsson og Árný
Leifsdóttir.
„Við áttum að kynna okkur
víkingalíf, fornar rústir og gamla
Víkingasveitin samankomin í sumarblíðunni.
Skjaldarmerki Akureyrar við Vinabrunninn í Vásterás.
gömlu minjar og eyða miklum
tíma og peningum í varðveislu
fornminja. Svæðið í kringum
Vásterás virðist vera eitt þjóð-
minjasafn, enda má hvergi stinga
niður skóflu án þess að fá leyfi frá
fornminjasafninu því það finnst
alltaf eitthvað. Þeir leggja metn-
að í það að halda þessu öllu til
haga og kortleggja.“
Skóladanskan gagnslítil
og enska notuð í staðinn
Unnur nefndi sem dæmi að þau
hefðu séð stórt svæði sem búið
var að mæla út fyrir nýbyggingar.
Þar voru fornleifafræðingar að
störfum því þeir þurftu að rann-
saka svæðið nákvæmlega og kort-
léggja áður en byggingafram-
kvæmdir gátu hafist.
Þau skoðuðu ýmsa staði í Vást-
erás og nágrenni og dvöldu mikið
í Vallby Friluftsmuseum, sem er
lítið þorp með gömlum húsum,
svipað að uppbyggingu og Ár-
bæjarsafn. Forstöðumaður forn-
minjasafns var leiðsögumaður í
öllum slíkum ferðum og fræddi
víkingasveitina um forfeðurna og
lifnaðarhætti þeirra.
í ferðinni voru líka krakkar frá
hinum vinabæjunum þannig að
norrænir jafnaldrar kynntust
nokkuð. Þau Magnús og Árný
voru sammála um að skóladansk-
an hefði komið að litlum notum
og þau hefðu því talað ensku við
krakkana frá Svíþjóð, Dan-
mörku, Noregi og Finnlandi.
Þau létu mjög vel af ferðinni,
enda margt skemmtilegt að
skoða. Fyrir utan fornminjarnar
nefndu þau skemmtigarða, grísa-
veislu, skipaskurð og alls kyns
skoðunarferðir og uppákomur.
„Það var alltaf nóg að gera og
þetta var mjög garnan," sögðu
Magnús og Árný einum rómi.
Magnús var í Glerárskóla og
Árný í Síðuskóla. Þau höfðu
bæði skroppið út fyrir landstein-
ana áður en þessi ferð var sérstök
reynsla sem þau hefðu ekki viljað
missa af. SS
Hvers vegna er nágranni
þinn áskrifandi að
Heimaerbezt
Vegna þess að það er staðreynd að „Heima er
bezt“ er eitt af vinsæiustu tímaritum hérlendis.
Þú ættir að hugleiða hvort ekki væri skynsamlegt að slást
í þennan stóra áskrifendahóp, og eignast þar með gott
og þjóðlegt íslenskt tímarit við vægu gjaldi, sem þú fengir
sent heim til þín í hverjum mánuði. Utfylltu þess vegna
strax í dag áskriftarseðilinn hér fyrir neðan og sendu hann
til „Heima er bezt“, pósthólf 558,602 Akureyri, og þú munt
um leið öðlast rétt til að njóta þeirra hlunninda sem eru
því samfara að vera áskrifandi að „Heima er bezt“.
Nýir áskrifendur fá eldri árgang í kaupbæti.
x ----’---,---------------_-------------
Til „Heima er bezt, pósthólf 558,602 Akureyri.
Ég undirrit óska að gerast áskrifandi að tímaritinu
„Heima er bezt“.
□ Árgjald kr. 2.000,00.
□ Sendið mér blaðið frá 1. janúar 1990.
Nafn:__________________________________
Heimili:_______________________________
Akureyringar í vinabæjasamstarfi:
víkingaslóðum í Vasterás