Dagur - 21.08.1990, Blaðsíða 8

Dagur - 21.08.1990, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 21. ágúst 1990 Hörpudeild Úrslit í gærkvöld: Víkingur-Fram ÍA-ÍBV FH-KR KA-Stjarnan Fram Valur KR ÍBV Stjarnan Víkingur FH KA Þór ÍA Markuliæstir: Hörður Magnússon, FH 12 Guðmundur Stcinsson, Fram 9 Tómas Ingi Tómasson, ÍBV 8 2. deild Víöir-ÍR 2:0 UBK-ÍBK 0:1 Grindavík-Leif'tur 0:2 Tindastóll-KS 2:1 Fylkir-Selfoss 5:2 Víöir 14 9-4-1 26:15 31 Fylkir 14 9-2-3 31:12 29 UBK 14 6-4-4 17:11 22 Selfoss 13 6-1-6 30:24 19 ÍBK 13 6-1-6 13:14 19 ÍR 14 6-1-7 16:21 19 Tindastóll 14 5-2-7 16:23 17 Grindavík 14 4-2-8 15:27 14 Leiftur 14 3-4-7 12:20 13 KS 14 4-1-9 16:25 13 Markahæstir: Kristinn Tómasson, Fylki 10 Salili Porca, Selfossi 9 Grétar Einarsson, Víði 8 Izudin Dervic, Selfossi 8 3. deild Reynir-Þróttur R. Einherji-Haukar TBA-Þróttur N. ÍK-Dalvík Völsungur-BÍ Þróttur R. Haukar ÍK Þróttur N. Dalvík Völsungur Reynir BÍ Einherji TBA Markahæstir: Jóhann Ævarsson, BÍ 15 Ólafur Viggósson, Þrótti N. 12 Þráinn Haraldsson, Þrótti N. 12 Garðar Níelsson, Reyni 10 Júlíus Þorfinnsson, ÍK 10 Óskar Óskarsson, Þrótti R. 10 Sigurður Hallvarðsson, Þrótti R. 10 0:5 1:2 0:7 1:1 2:1 15 13-1- 1 47:12 40 15 11-1- 3 35:17 34 15 11-1- 3 38:21 34 15 6-2- 7 42:33 20 15 6-2- 7 28:25 20 15 5-5- 5 24:22 20 15 6-2- 7 28:34 20 15 4-2- 9 27:34 14 15 2-4- 9 22:38 10 15 1-0-14 11:70 3 0:1 3:4 1:3 0:3 15 10-1- 4 28:10 31 14 9-2- 3 25:15 29 15 9-2- 4 23:16 29 15 8-4- 3 27:27 28 15 7-2- 6 20:17 23 15 4-7- 4 16:15 19 15 6-1- 8 20:24 19 15 5-1- 9 15:20 16 14 2-2-10 7:21 8 15 2-2-1116:31 8 deild/D-riðiU Hvöt Kormákur Neisti Geislinn Þrymur 8 6-1-1 18: 7 19 8 5-0-3 21: 8 15 8 4-2-2 13: 5 14 8 1-2-5 5:26 5 8 1-1-6 8:19 4 Markahæstir: Albert Jónsson, Kormáki 9 Ásgeir Valgarðsson, Hvöt 6 Hörður Guðbjörnsson, Kormáki 6 Magnús Jóhannesson, Neista 6 4. deild/E-riðiil Magni HSÞ-b UMSE-b S.M. Austri Rau. Narfi 10 8-2-0 53:11 26 10 8-1-1 50:10 25 10 4-2-4 34:15 14 10 4-1-5 23:26 13 9 1-0-8 12:58 3 9 1-0-8 6:58 3 Markahæstir: Kristján Kristjánsson, Magna 15 Viðar Sigurjónsson, HSÞ-b 13 Ásgrímur Reisenhaus, UMSE-b 9 Ari Hallgrímsson, HSÞ-b 8 Baldvin Hallgrímsson, UMSE-b 8 Hörpudeildin: KA-menn stein- lágu fyrir Stjömunni - og hafa falldrauginn enn á hælunum Jón Grétar Jónsson var frískastur KA-manna. Mynd: KA-menn máttu játa sig sigr- aða er þeir mættu Stjörnu- mönnum á Akureyrarvelli í gærkvöld. Nýliðarnir skoruðu þrívegis án þess að KA-mönn- um tækist að svara fyrir sig og sigla lygnan sjó en KA-menn eru ekki enn lausir við fall- drauginn. Það voru aðeins 10 mínútur liðnar af leiknum í gærkvöld þeg- ar Árni Sveinsson náði forystunni með gullfallegu marki. Dæmd var aukaspyrna á vallarhelmingi KA og Árni skaut af 35 metra færi, boltinn kom í kollinn á ein- um varnarmanni KA og þaðan flaug hann upp í samskeytin á KA-markinu. Þrátt fyrir að liðin léku ekki vel var leikurinn nokkuð opinn og fjörugur lengst af. Bæði lið fengu nokkur ágæt færi en mörkin urðu ekki fleiri í fyrri hálfleik. í seinni hálfleik byrjuðu KA- menn með látum og pressuðu strax stíft. Hafsteinn Jakobsson fékk dauðafæri á 52. inínútu þeg- ar hann stóð einn fyrir opnu marki eftir frábæran undirbúning Jóns Grétars en hitti boltann illa. Snemma í hálfleiknum tók Guðjón Þórðarson, þjálfari KA, áhættu þegar hann skipti Erlingi Kristjánssyni útaf fyrir Þórð Guðjónsson sem fór í sóknina. Seinna fór Gauti Laxdal af velli og Árni Hermannsson kom inn á. KA-menn sóttu síðan ákaft en komust ekki lengra en að vítateig Stjörnunnar. Fengu þeir ekki eitt einasta færi eftir þessar breyting- ar. Hins vegar opnaðist vörnin hinum megin og jjað fór svo að Stjörnumenn bættu tveimur mörkum við í stað þess að KA- menn jöfnuðu. Má segja að þau hafi bæði verið mjög slysaleg fyr- ir KA-menn. Það fyrra kom á 78. mínútu. Stjörnumenn fengu aukaspyrnu á miðjum vellinum og sendu langa sendingu inn í teig KA. Þar stóð Lárus Guðm- undsson umkringdur varnar- mönnum KA og skallaði á furðu- legan hátt framhjá Hauki Braga- syni sein var frosinn í markinu. Síðasta markið kom svo á 87. mínútu. Haukur virtist þá hafa boltann við endalínuna en Ragn- ar Gíslason náði að stela honum og senda fyrir markið. Þar var Valdimar Kristófersson aleinn og átti ekki í vandræðum með aö þruma í tómt markið. Sigur Stjörnunnar var sanngjarn. KA-menn voru að vísu með boltann bróðurpartinn af leiknum en fyrir það fást engin stig. KA-menn tóku áhættu og töpuðu en breytingarnar hefðu allt eins getað skilað þremur stigum. Hjá KA var Jón Grétar frískur en Arni Sveinsson og Sveinbjörn Hákonarson voru bestir Stjörnu- manna. Lið KA:Haukur Bragason, Bjarni Jónsson, Steingrímur Birgisson, Halldór Halldórsson, Heimir Guðjónsson, Erlingur Kristjánsson (Þórður Guðjónsson á 56. mínútu), Hafsteinn Jakobsson, Gauti Laxdal (Árni Hermannsson á 71. mínútu), Ormarr Orlygsson, Kjartan Ein- arsson, Jón Grétar Jónsson. Lið Stjörnunnar: Jón Otti Jónsson, Magriús Bergs, Birgir Sigfússon, Bjarni Benediktsson, Sveinbjörn Hákonarson, Lárus Guðmundsson, Ingólfur Ingólfsson, Árni Sveinsson, Ragnar Gíslason, Valdimar Kristófersson,: Valgeir Baldursson (Heimir Erlingsson á 62. mínútu). Gult spjald: Kjartan Einarsson, KA. Dómari: Eyjólfur Ólafsson r- ágætur. Línuverðir: Guðmundur Haraldsson o£ Marinó Þorsteinsson. Þórsarar komnir hálfa leið niður - eftir 1:2 ósigur gegn FH á föstudag Útlitið er nú orðið æði svart hjá Þórsurum eftir 2:1 ósigur gegn FH á Akureyrarvelli á föstudagskvöldið. Það var markaskorarinn mikli, Hörður Magnússon, sem skoraði bæði mörk FH áður en Árni Þór Árnason minnkaði muninn fyrir Þór. Fátt virðist nú geta bjargað Þórsurum frá falli, lið- ið þarf að leika mjög vel í síð- ustu umferðunum og að auki verður það að treysta á hag- stæð úrslit í öðrum leikjum. í fyrri hálfleiknum á föstudags- kvöldið var ekki hægt að sjá að Þórsarar væru að berjast fyrir til- verurétti sínum í 1. deild. FH- ingar réðu lögum og og lofum og áttu tvö ágæt færi áður en Hörður náði forystunni fyrir þá á 32. mínútu. Lárus Orri var þá allt of seinn að losa sig við boltann á eigin vallarhelmingi og missti hann á endanum. Hörður fékk sendingu inn að teig, lék aðeins áfram og sendi af öryggi framhjá Friðriki í marki Þórs. Hann bætti öðru marki við á 4U. mínútu þeg- ar hann fékk boltann eftir skalla frá Andra og skaut föstum jarð- arbolta í markið. í upphafi síðari hálfleiks átti sér stað skrítið atvik. Árni Þór renndi sér þá glannalega í Hall- dór Halldórsson, markvörð FH sem brást reiður við, greip um andlit Árna og henti honum í jörðina. Dómari leiksins, Guð- mundur Stefán Maríasson, sá hins vegar ekki ástæðu til neinna aðgerða og verður það að teljast furðuleg ákvörðun. Þórsarar lifnuðu við eftirfþví sem leið á seinni hálfleikinn og fljótlega voru FH-ingar -flestir komnir í vörnina. Þeir misstu reyndar Ólaf Þorbergssomútaf á 33. mínútu fyrir að sparka fólsku- lega í Kristján Gíslason en sóttu samt áfram af kappi og skoruðu á 80. mínútu. Sævar Árnason :var þá í góðu færi en hitti ekki bolt- ann sem barst til Árna Þórs sem renndi honum í tómt markið, Þórsarar voru í sókn þar til leiknum lauk en náðu ekki að jafna þrátt fyrir að þeir fengju þrjú kjörin færi í síðustu sókninni en FH-ingar björguðu þá tvívegis nánast á línunni. Þegar á heildina er litið verður sigur FH að teljast sanngjarn. Þórsarar voru vissulega óheppnir að jafna ekki í lokin en FH-ingar voru búnir að fá færin til að gera út um leikinn. Hörður var besti maður liðsins, mjög útsjónarsam- ur og hættulegur sóknarmaður. Hjá Þórsurum var Friðrik bestur. Lið Þórs: Friðrik Friðriksson, Hlynur Birgisson, Árni í>ór Árnason, Bjarni Sveinbjörnsson, Júlíus Tryggvason, Lár- us Orri Sigurðsson (Sævar Árnason á 67. mínútu), Nói Björnsson, Sigurður Lárus- son, Siguróli Kristjánsson, Þorsteinn Jónsson, Þórir Áskelsson (Ólafur Þor- bergsson á 58. mínútu). Lið FH: Halldór Halldórsson, Andri Marteinsson, Birgir Skúlason, Björn Jónsson, Guðmundur Hilmarsson, Guð- mundur Valur Sigurðsson, Hörður Magnússon, Kristján Gíslason, Ólafur Kristjánsson, Þórhallur Víkingsson, Magnús Pálsson. Gul spjöld: Guðmundur Valur Sigurðs- son, FH, og Nói Björnsson, Þór. Rautt spjald: Ólafur Þorbergsson, Þór. Dómari:Guðmundur Stefán Maríasson. Hafði þokkaleg tök á leiknum en gerði stór mistök. Árni Þór virðist hér í þann mund að stanga Guðmund Hilmarsson í leiknum á föstudag. Mynd: GoiH Þriðjudagur 21. ágúst 1990 - DAGUR - 9 fþróttir 2. deild: Leiftursmenn halda enn í vonina Leiftursmenn eygja enn von um að halda sæti sínu í 2. deild eftir 2:0 útisigur á Grindavík á föstudagskvöldið. Leifturs- menn léku mjög vel og skynsamlega og uppskáru verðskuldaðan sigur. Liðið hefur nú þokað sér úr neðsta sætinu, hefur hlotið 13 stig, jafnmörg og KS en hefur betra markahlutfall. Grindavík hef- ur hlotið 14 stig og Tindastóll 17 þannig að útlit er fyrir æsi- spennandi fallbaráttu í síðustu umferðunum. Leikurinn í Grindavík þróaðist þannig að Grindvíkingar voru meira með boltann en Leifturs- menn héldu sóknarmönnum þeirra vel í skefjum og var sókn- arleikur norðanmanna mun markvissari og hættulegri. Grind- víkingar áttu ekki eitt einasta skot að marki Leifturs í fyrri hálf- leik en einn skalla sem Þorvaldur Jónsson varði vel. Það var Halldór Guðmundsson sem náði forystunni fyrir Leiftur Tindastóll tók á Siglflrðingum Tindastóll bar sigurorð af Sigl- firðingum í baráttuleik um fall- sætin í 2. deild sl. föstudags- kvöld. „Stólarnir“ sigruðu á heimavelli sínum með tveim- ur mörkum Guðbrands Guð- brandssonar gegn einu marki Mark Duffield, 2:1. Fyrri hálfleikur var fjörugur og greinilegt að bæði lið ætluðu sér stóra hluti. Tindstælingar höfðu vindinn með sér og á 9. mín. skoraði Guðbrandur Guðbrands- son eftir aukaspyrnu Björns Björnssonar sem fór í varnarvegg KS-inga og lyftist við það inn í teiginn þar sem Guðbrandur var réttur maður á réttum stað og þrumaði boltanum í netið. Á 14. mín. var Guðbrandur aftur á ferðinni í teig KS og Kristján Karlsson markvörður felldi hann en ekkert var dæmt. Skömmu síðar var dæmt mark af KS vegna rangstöðu. Tindstælingar sóttu meira, en á 31. mín. fékk Jón Örn Þorsteinsson, Siglfirðingur, dauðafæri eftir sendingu frá Haf- þóri Kolbeinssyni, en boltinn fór yfir markið. Annað mark Tinda- stóls kom síðan á 39. mín. og var Guðbrandur þar aftur að verki eftir sendingu frá Guðbjarti Har- aldssyni. Þessi var staðan í hálfleik og sanngjörn miðað við gang leiks- ins. Síðari hálfleikurinn var öllu kraftminni og meira jafnræði 2. flokkur: Jafnt hjá Þór og KA KS vann Selfoss Þór og KA skildu jöfn, 2:2, í íslandsmóti 2. flokks í knatt- spyrnu á Þórsvellinum á fimmtudaginn. Staðan í leik- hléi var 1:1. Þórsarar byrjuðu vel og náðu forystunni á 4. mínútu með imarki Axels Vatnsdals. Þórsarar voru sprækari framan af fyrri hálfleik en KA-menn komu . smátt og smátt meira inn í leikinn og Þórður Guðjónsson jafnaði metin þegar ein mínúta var til hlés. KA-menn byrjuðu betur í seinni hálfleik og Jóhann Arnar- son kom þeim yfir. Skömmu síð- ar var KÁ-manninum Jóhannesi Baldurssyni vísað af leikvelli og Sverrir Ragnarsson jafnaði fyrir Þórsarar fljótlega eftir það. í lok- in pressuðu Þórsarar nokkuð stíft en náðu ekki að bæta við mörkum. Á Siglufirði mættu heimamenn Selfyssingum á sunnudaginn og sigruðu með einu marki gegn engu. Ekki tókst að afla upplýs- inga um markaskorara þar með liðunum. Á 61. mín átti Hólmar Ástvaldsson ágætan skalla að marki KS, en Kristján varði snilldarlega. Siglfirðingar náðu ekki að minnka niuninn fyrr en á 78. mín. og var það Mark Duffield sem skoraði beint úr aukaspyrnu. Úrslitin urðu því 2:1. Bestu leikmennirnir voru Guðbrandur Guðbrandsson og Guðbjartur Haraldsson hjá Tindastól og Mark Duffield hjá KS. Dómari leiksins var Ólafur Ragnarsson og var hann fremur slappur, leyfði of mikið en sleppti um leið of miklu. SBG/bjb strax á 7. mínútu. Hann vann boltann og slapp innfyrir vörnina áður en hann renndi í netið. Seinna markið kom á 71. mín- útu og það gerði Þorlákur Árna- son. Hann komst inn fyrir vörn- ina og markvörðurinn braut á honum þannig að vítaspyrna var dæmd sem Þorlákur tók sjálfur. Sigur Leifturs var tvímælalaust sanngjarn og liðið sýndi að meira býr í því en staða þess segir til um. Liðið lék aftarlega með Ómar Torfason eins og herfor- ingja í vörninni og Þorvald mjög öruggan fyrir aftan. Þá kom liðið Grindvíkingum oft í vandræði með skæðum skyndisóknum. Dómari var Ólafur Sveinsson og dæmdi hann ágætlega. 3. deild: Einherji í mikilli fallhættu - TBA fallið Heil umferð fór fram í 3. deild Islandsmótsins í knattspyrnu á laugardag. Þróttarar úr Reykjavík styrktu enn stöðu sína á toppi deildarinnar með stórsigri á Árskógsströnd, 5:0, Haukar sigruðu Einherja 2:1 á Vopnafirði, Þróttur N. sendi TBÁ í 3. deild með 7:0 sigri á Ákureyrarvelli, IK og Dalvík gerðu 1:1 jafntefli í Kópavogi og Völsungur sigraði BI 2:1 á Húsavík. Reynir átti ekki mögu- leika gegn Þrótti Þróttarar höfðu mikla yfirburði gegn Reynismönnum á Árskógs- velli. Þeir náðu þó aðeins að skora eitt mark í fyrri hálfleik en Reynismenn fengu einnig sín færi. I seinni hálfleik var nánast um einstefnu að ræða og Þróttar- ar bættu fjórum mörkum við. Sigurður Hallvarðsson og Sigfús Kárason skoruðu tvö mörk hvor og Haukur Magnússon eitt. Reynismaðurinn Kristján Sig- urðsson fékk að líta rauða spjald- ið í leiknum og var það í þriðja skiptið í sumar. Voru Reynis- menn afar ósáttir við þann dóm. Dökkt útlit hjá Einherja Staðan er ekki glæsileg hjá Ein- herja eftir 1:2 tap gegn Haukum. Einherji náði forystunni í fyrri hálfleik með marki Arnars Gests- sonar og staðan var 1:0 þar til 15 mínútur voru til leiksloka. Þá jafnaði Guðjón Guðmundsson leikinn og Brynjólfur Jóhannes- son skoraði svo sigurmarkið í lokin eftir mikla pressu. Ein- herjamenn eru í mikilli fallhættu, hafa hlotið 10 stig og eru í næst neðsta sætinu. 4. deild: Hvöt og Magni í úrslitakeppnina Narfi vann sinn fyrsta sigur Hvöt frá Blönduósi og Magni frá Grenivík tryggðu sér sigur í Norðurlandsriðlunum tveimur í 4. deild Islandsmótsins í knattspyrnu um helgina. Hvöt gerði þá markalaust jafntefli við Geislann á Hólmavík og Magni sigraði UMSE-b 3:2 í Eyjafirði. Liðin fara áfram í úrslitakeppni efstu liðanna úr riðlunum og leika þar um tvö sæti í 3. deild að ári. Kormákur lagði Neista Kormákur sigraði Neista 2:0 á Hvammstanga á laugardaginn. Leikurinn var nokkuð harður en ágætlega leikinn. Neistamenn voru ekki minna með boltann í leiknum en vörn Kormáks var sterk og liðið fékk betri færi. Það voru Hörður Guðbjörnsson og Rúnar Guðmundsson sem skor- uðu mörkin. Markalaust á Hofsósi Geislinn og Hvöt gerðu marka laust jafntefli á Hofsósi á laugar- dag. Hvatarmenn voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum en í seinni hálfleik jafnaðist leikurinn og liðin sóttu á víxl en án árang urs. Magni með tvö úr vítum Nokkur taugaspenna var í leik UMSE-b og Magna í Eyjafirði á föstudagskvöldið. Um miðjan fyrri hálfleik var brotið á Kristjáni Kristjánssyni, þjálfara Magna, í vítateig UMSE-b og úr vítaspyrnunni skoraði Jón Ing- ólfsson. Eftir það fór leikurinn að mestu fram á miðjum vellinum en sóknir Magna voru hættulegri og átti liðið m.a. skot í slá. í seinni hálfleiknum fengu Magnamenn aðra vítaspyrnu og úr henni skoraði Kristján Kristj- ánsson. Hinrik Þórhallsson, þjálfari UMSE-b, minnkaði muninn fyrir UMSE-b en Kristj- án var aftur á ferðinni skömmu síðar fyrir Magna. Baldvin Hall- grímsson skoraði svo síðasta mark leiksins fyrir UMSE-b. Austri stóð í HSÞ-b Leikur Austra og HSÞ-b fór fram á Raufarhöfn og var vindur nokkuð mikill. Sigurður Helgi Ólafsson náði forystunni fyrir Austra á móti vindinum en Ari Hallgrímsson jafnaði metin. Jón- as Hallgrímsson bætti öðru marki við og Þröstur Sigurðsson skoraði það þriðja áður en Sigurður Helgi Ólafsson minnkaði muninn fyrir Austra. Óvæntur sigur Narfa Narfi frá Hrísey vann sinn fyrsta sjgur þegar liðið lagði SM nokk- uð óvænt á Árskógsvelli. Úrslitin urðu 3:2 en staðan í hléi var 2:1 fyrir Narfa. Narfaliðið barðist mjög vel og vann verðskuldaðan sigur. SM náði forystunni en í kjölfarið fylgdu þrjú mörk Narfa áður en SM minnkaði muninn. Viðar Ólason skoraði tvívegis fyrir Narfa og Sigurjón Sigur- björnsson skoraði eitt en mörk SM skoruðu Heimir Finnsson og Sverrir Júlíusson. TBA fallið í 4. deild TBA-menn féllu í 4. deild þegar þeir töpuðu 0:7 fyrir Þrótti N. á Akureyrarvelli. TBA-menn léku fyrri hálfleikinn aðeins 10 en byrjuðu þó vel undan vindinum og sóttu nokkuð. Þróttarar náðu þó fljótt tökum á leiknum og skoruðu þrívegis fyrir hlé. í seinni hálfleik var um einstefnu að ræða. Ólafur Viggósson og Kristján Svavarsson skoruðu tvö mörk hvor og Árni Freysteins- son, Þráinn Haraldsson og Arn- mundur Sigurðsson eitt hver. Dalvíkingar heppnir Dalvíkingar höfðu heppnina með sér í Kópavogi. ÍK náði foryst- unni strax á 7. mínútu og fengu síðan nokkur góð færi sem fóru öll í súginn. Það var hins vegar Ágúst Sigurðsson sem skoraði næsta mark og jafnaði leikinn og staðan í hléi var 1:1. í seinni hálf- leik jafnaðist leikurinn nokkuð en ÍK-ingar voru þó hættulegri en náðu ekki að knýja fram sigur. Völsungur um miðja deild Völsungar sigla lygnan sjó í deildinni eftir sigurinn á ÍK. Leikurinn var jafn en Húsvík- ingarnir áttu opnari færi. Það var markakóngurinn Jóhann Ævars- son sem náði forystunni fyrir B1 og vildu Húsvíkingar meina að hann hefði verið rangstæður. 10 mínútum seinna skoruðu ísfirð- ingar sjálfsmark og þegar 15 mínútur voru til leiksloka skoraði Helgi Helgason sigurmark Völsungs. Enska knattspyrnan: Stórmeistarajafiitefli á Wembley Á laugardaginn fór fram upn- unarleikurinn í ensku knatt- spyrnunni, en þá áttust við Englandsmeistarar Liverpool og bikarmeistarar Manchester Utd. á Wembley. Þetta var í fjórða sinn sem þessi lið mæt- ast í FA-Charity Shicld og Liverpool hefur enn ekki tekist að bera sigurorð af Utd. í þess- ari keppni. Nú gerðu liðin 1:1 jafntefli og voru þau úrslit mjög sanngjörn og liðin skiptast því á um að varðveita sigurlaunin. Manchest- er liðið byrjaði betur og þeir Bri- an McClair og Mark Hughes fengu færi, en Liverpool náði þó smám saman betri tökum á leikn- um þó að tækifærin létu á sér standa. Gary Pallister lék mjög vel í vörn Útd., en Liverpool saknaði Alan Hansen í varnarleik sínum og Utd. náði forystunni á síðustu mín. fyrri hálfleiks. Vörn Liver- pool fraus er Mike Phelan sendi fyrir markið og Clayton Black- more skoraði af stuttu færi eftir að Hughes hafði misst af boltan- um. Síðari hálfleikurinn var fjör- ugri og Liverpool náði að jafna á 49. mín., er dæmd var vítaspyrna á Pallister fyrir að fella John Barnes í teignum. Strangur dómur, en úr vítaspyrnunni skor- aði Barnes sjálfur af öryggi framhjá Les Sealey í marki Útd. Fleiri urðu mörkin ekki og bæði lið virtust sætta sig við úrslitin. Steve Bruce var fyrirliði Utd. í stað Bryan Robson sem er meiddur og eftir leikinn sagði hann að ekki hefði átt að dæma vítaspyrnuna þar sem Pallister hefði farið í boltann. Hann kvaðst bjartsýnn á gott gengi Manchester liðsins í vetur og þeir hefðu verið nær sigri í leiknum en Liverpool liðið. Þ.L.A.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.