Dagur - 21.08.1990, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 21. ágúst 1990 - DAGUR - 11
IVladonna.
Madonna og LaToya rífast:
Eru brjóstin ekta?
Það er kalt á toppnum og til að
halda sér þar verða menn víst að
berjast með kjafti og klóm. Þetta
gildir að minnsta kosti um
poppbransann. Að undanförnu
hefur í Bandaríkjunum farið tals-
vert fyrir hávaðarifrildi milli
tveggja kvenna sem talsvert láta
að sér kveða í þessum bransa,
Madonnu og LaToya Jackson. Sú
síðarnefnda hefur raunar nýlega
átt í útistöðum við bróður sinn
Michael sem var víst ekki alls
kostar ánægður með allt það sem
hún skrifaði í nýútkominni sjálfs-
ævisögu. Nú rífast þær hins vegar
eins og hundur og köttur um það
hvor hafi látið gera á sér aðgerð
til að fegra og stækka brjóstin og
hvor hafi ekki gert það og ef þær
gerðu það þá hvor þeirra hefur
verið heppnari með árangurinn.
Þetta er auðvitað afar stórt mál
og full ástæða til útkljá það og þá
að sjálfsögðu í fjölmiðlum.
í viðtali við tímaritið National
Enquirer lét LaToya nýlega hafa
eftir sér að Madonna hafi látið
gera aðgerð á brjóstum sínum og
að það hafi verið eina leiðin fyrir
hana til þess að líkjast kven-
manni. „Mín eru eðlileg, en
hennar eru keypt,“ sagði hún.
Ja stórt er kveðið og ekki getur
Madonna verið þekkt fyrir að
svara ekki í sömu mynt.
„Ég veit það af því að kunnug-
ir sögðu mér það, að brjóstin á
LaToya uxu á einni viku,“ sagði
Madonna hæðnislega í öðru
tímariti. Þegar blaðamaðurinn
spurði Madonnu síðan út í mynd-
ir af henni í öðru blaði þar sem
hún hafði berað á sér annað
brjóstið, svaraði kella einfald-
lega: „Ef þú hefur þau þá flíkaðu
þeim, ókei!“
Og við gefum LaToya orðið.
„Madonna er ekki hefðarkona,
hefur aldrei verið það og mun
aldrei verða það. Hún ætti að
vera síðust allra til að ráðast á
aðra vegna útlitsins. Fyrir
aðgerðina líktist hún einna mest
karlmanni. Ég sá myndina af
þessu brjósti hennar og ég verð
að segja að þau eru enn ekki jafn
falleg og mín. Hún ætti þá frekar
að segja: „Ef þú hefur keypt þau
þá sýndu þau.“
Við látum þetta nægja að sinni
I cn það er Ijóst að Madonna verð-
ur að svara fyrir sig til að þessum
málefnalegu umræðum verði
| fram haldið.
LaToya Jackson.
Afs^orin blóm
BlömásÉreytingar og gjafavaravið öll
tækifæri.
til húsbyggjenda
og hönnuða
Frá og meö 1. september 1990 skulu öll erindi
sem leggjast eiga fyrir bygginganefnd Akureyrar
berast byggingafulltrúa a.m.k. viku fyrirfund skv.
grein 3.1.9. í byggingareglugerð.
Byggingafulltrúinn á Akureyri
Launafólk
Eyjafirði!
Stööugt verðlag byggir á
ströngu aðhaldi.
Látið Neytendafélagið vita
um óeðlilegar verðhækkanir
í síma 22506.
Verkalýðsfélögin Eyjafirði