Dagur - 23.08.1990, Blaðsíða 1

Dagur - 23.08.1990, Blaðsíða 1
73. árgangur Akureyri, fímmtudagur 23. ágúst 1990 160. tölublað ,Er ekki sumarið dásamlegt?“ Myntl: Golli Skilyrði Hollustuverndar fyrir álveri: Líta ekki dagsins ljós fyrr en í lok september - meginskilyrðin sett óháð staðsetningu verksmiðjunnar Skilyrði Hollustuverndar ríkis- ins fyrir starfsleyfi væntanlegr- ar álverksmiðju á íslandi munu ekki liggja fyrir fyrr en í lok septembermánaðar. A sama tíma er stefnt að ákvörðun um staðsetningu væntanlegrar verksmiðju en aðilar samnings um álverksmiðju hér á landi fylgjast með starfi Hollustu- verndar á næstunni. Ólafur Pétursson, forstöðu- maður mengunarvarnasviðs Hollustuverndar, sagði í samtali við Dag í gær að þessi skilyrði verði þau sömu, hvort heídur sem álveri verði valinn staður við Eyjafjörð, Reyðarfjörð eða á Keilisnesi. „Frá þessum tillögum verður þó ekki gengið endanlega fyrr en búið verður að ákveða staðsetningu verksmiðjunnar og því verða þær væntanlega á síð- ustu stigum málsins slípaðar sam- kvæmt þeim stað sem ákveðinn verður," segir Ólafur. Ólafur segir að ekki hafi verið leitað til Hollustuverndar um þessi skilyrði fyrr en mjög nýlega og því vinni starfsmenn Hollustu- verndar nú undir mikilli tíma- pressu. Pau skilyrði sem Hollustu- vernd þarf að setja í tengslum við starfsleyfi fyrir álverksmiðju eru hversu rnikil mengun megi vera í útblæstri slíkrar verksmiðju, hve mikil vatnsmengun megi vera, hvernig beri að fara með úrgang frá verksmiðjunni og síðast en ekki síst hvernig hátta beri eftir- liti með vatns- og loftmengun. JÓH Hörgárdalur: Óprúttiim þjófur stal girðingarefm Hrúta^örður: „Nýi veguriim“ fyrir hreppsneftid - ógnandi umferðarhraði Fresturinn til að skila athuga- semdum við skipulag á breyt- ingu vegar í Hrútaiirði milli Staðarskála og Brúar rann út þann 16. þessa mánaðar og að sögn Þórarins Þorvaldssonar, oddvita og hreppstjóra Stað- arhrepps, bárust nokkrar athugasemdir við skipulagið. Þessar athugasemdir mun síð- an hreppsnefndin taka fyrir og gera umsögn um hverja athuga- semd og síðan umsögn um tillögu vegagerðarinnar í heild. Til þess hefur hreppsnefnin átta vikur og getur því leitað álits tæknimanna ef þurfa þykir. Þórarinn bjóst við að haldinn yrði sveitarfundur um málið áður en þeir skiluðu sínum umsögnum til skipulagsnefndar. í skipulagslögum segir síðan að skipulagsstjóri skuli ganga endanlega frá uppdrættinum, nokkur tími mun því Itða þar til Ijóst verður hvort af tilfærslu veg- arins verði, en að sögn Þórarins eru ýmsar hugmyndir uppi, um þessa breytingu á veginum, hjá Hrútfirðingum. „Það er þó annað sém veldur okkur hér rneiri áhyggjum og það er sá mikli hraði sem er á stöku bíl eða hjóli sem fer hér um. Ekki þessir menn sem laumast upp fyrir hundraðið heldur þeir sem hreinlega þjóta fram úr bíl- unurn sem eru á hundrað km hraða. T.d. í sumar þegar verið var að smala saman fé til að keyra á afréttir var varla reyn- andi að koma með það nálægt veginum þó að bíll með blikkandi Ijós og maður væru til að reyna að hægja á umferðinni. Flestir tóku tillit til þess, en margir sinntu þessu ekki. Síðan hefur vegagerðin verið að bæta klæðn- inguna hérna og hraðakstur á þeim köflum er lífshættulegur. Við þessu verður eitthvað að gera, enn spurningin er hvað, því það eina sem virðist duga ér lögreglan með sínar hraðamæl- ingar," sagði Þórarinn Þorvalds- son í lok samtalsins. SBG Húnavatnssýslur: Minnkandi hraðakstur í umdæmi ísbergs - færri teknir í ár en í fyrra Umferðarhraðinn í gegnum Húnavatnssýslur virðist hafa minnkað að sögn Kristjáns Þorbjörnssonar aðalvarðstjóra. Sérstaklega virðast menn hafa hægt á sér síðustu vikurnar. Á sama tíma á síðasta ári var búið að taka 715 ökumenn fyrir of hraðan akstur í Húnaþingi, en í ár eru þeir 627. Sá sem mældist á mestum hraða í fyrra var á 194 kílómetra hraða á klukkustund, en í ár er metið 151 kílómetri á klukkustund. Svo virðist vera að radarmæl- ingaátak lögreglunnar, og e.t.v. hraðakstursauglýsingarnar í fjöl- miðlum og víðar, séu loksins farnar að bera einhvern árangur, að minnsta kosti í Húnavatns- sýslum. SBG Leikfélag Akureyrar: Létt yfir komandi leikári - m.a. farsi eftir Böðvar og bandarískur söngleikur Einhvern tíma á tímabilinu frá sunnudagskvöldi og fram á þriðjudag var talsverðu magni af girðingarefni stolið í Hörg- árdal. Hann hefur sennilega hugsað sem svo þjófurinn, að allt í lagi væri að taka þetta girðingarefni, vegagerðin væri jú ríkið og ríkið munaði ekki mikið um þetta. Eigandi efnis- ins var hins vegar blakdeild KA sem þar með varð fyrir tjóni sem nemur að minnsta kosti eitt hundrað þúsund krónum. Blakdeild KA hefur að undan- förnu staðið í margs konar fjár- öflun fyrir starfsemi vetrarins. Eitt verkefnið sem blakmenn tóku að sér var að girða meðfram nýjum vegi í Hörgárdal, alls uni 5 kílómetra kafla. Efnið keyptu blakmenn sjálfir, staura, net og gaddavír. Að sögn Gunnars Garðarsson- ar formanns blakdeildar var unn- ið í girðingarvinnunni fram til klukkan átta síðastliðið sunnu- dagskvöld. Þegar síðan átti að halda vinnunni áfram á þriðju- daginn að búið var að stela nær öllu efni sem eftir var nema staurum. Um er að ræða 10-12 rúllur af neti og 8 rúllur af gadda- vír. Ljóst er að til að flytja efnið hefur þurft talsvert stóran bíl og sennilega a.m.k. tvo menn því efnið er talsvert fyrirferðarmikið og vegur senniiega um 400 kfló. „Þetta er auðvitað stór biti fyr- ir blakdeildina sem nú þarf að kaupa nýtt efni til þess að geta klárað verkefnið,“ sagði Gunnar Garðarsson í samtali við Dag. Gunnar segir að rannsóknarlög- reglunni á Akureyri hafi verið til- kynnt um þjófnaðinn en vill beina því til vegfarenda um Hörgárdalinn á umræddum tíma að þeir gefi upplýsingar ef þeir hafa orðið varir við grunsamlegar mannaferðir á umræddum tíma. ET íslcnsk verk og vinsæll söng- leikur einkenna komandi leikár hjá Leikfélagi Akur- eyrar. Siguröur Hróarsson, leikhússtjóri, sagði í samtali við Dag að léttara væri yfir verkefnunum en á síðasta leikári og hann kvaðst bjart- sýnn á góðar viðtökur áhorf- enda. Aðeins heimamcnn koma nálægt fyrsta vcrkefninu, cn það er nýtt íslenskt leikrit eftir Jóhann Ævar Jakobsson. Hann hefur verið búsettur á Akureyri undanfarna áratugi og má því kallast heimamaður. Þetta er fyrsta leikritið sem hann sendir frá sér. Það fjallar um þrjá utangarðsmenn í íslensku þjóð- félagi, skemmtilegar persónur, að sögn lcikhússtjórans, sem þeir Þráinn Karlsson, Gestur Einar Jónasson og Hannes Örn Blandon túlka. Frumsýning er áætluð 12. október. Næsta verkefni er einnig nýtt, þjóðlegur farsi eftir Böðvar Guömundsson sem nefnist Ætt- armótið. Þetta er nokkuð l'jöl- mennur ærslaleikur með söngvum, sannkölluö fjöl- skylduskemmtun. Frumsýning verður 26. desember. Eftir áramót verður settur upp vinsæll bandarískur söng- leikur, Kiss me Kate, með tón- list eftir Cole Porter. Sigurður sagöi aö þetta væri rómantískur söngleikur af viðráðaníegri stærð og mjög skemmtilegur. Síðasta verkefni LA verður uppfærsla á Skrúðsbóndanum eftir Björgvin Guðmundsson í samvinnu við Akureyrarkirkju í tcngslum við kirkjulistaviku. Að sögn Sigurðar er þetta magnaður harmlcikur sem LA hefur tvisvar sett upp áður en nú verður hann fluttur með kór Akureyrarkirkju og fær tónlist Björgvins að njóta sín. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.