Dagur - 23.08.1990, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 23. ágúst 1990
Króksmótið í knattspyrnu á Sauðárkróki:
Dalvíkmgar sigursælir sem
-um 300 knattspyrnumenn á aldrinum 5-12 ára skoruðu 250 mörk í 53
Króksmótið í knattspyrnu var háð á Sauðárkróki um síð-
ustu helgi þar sem um 300 ungar knattspyrnuhetjur af
Norðurlandi á aldrinum 5 til 12 ára voru samankomnar.
Tindastóll stendur fyrir Króksmótinu og er það orðinn
fastur liður á keppnistímabili yngstu flokka flestra norð-
lenskra félaga. Að Jþessu sinni mættu 7 félög til leiks, frá
Húsavík, Dalvík, Olafsfirði, Siglufirði, Hofsósi, Sauðár-
króki og Blönduósi. Dalvíkingar voru sigursælir sem fyrr á
Króksmóti, sigruðu í 5. og 6. flokki, en heimamenn hirtu
gullverðlaunin í 7. flokki.
fá. Svo og gerðu þeir foreldrar
Mótið hófst snemma laugar-
dags í ekkert allt of góðu veðri,
en keppendur létu það lítið á sig
krakkanna og aðrir aðstandendur
sem fjölmenntu og fylgdust með
Frá úrslituleiknum í 6. flokki milli Dalvíkur og Tindastóls-A. Sókndjarfur
Dalvíkingur sækir að markverði Tindastóls, en án árangurs, og varnarmaður
Tindastóls er við öllu búinn. Mynd: -bjb
■„>v-<-«r7yE»
TILB0Ð
Skólafatnaður
á börnin
Gallabuxur margar gerðir, st. 4-16 ...
Galiabuxur fóðraðar, st. 4-12 .......
Telpna og drengja kakíhuxur, st. 4-16
verð frá kr. 1.915
...... kr. 2.495
verð frá kr. 1.245
Akrýl peysur, st. 80-120 ...... kr. 960
Akrýl peysur, st. 6-14 ........ kr. 1.145
Jogging peysur, margar gerðir, st. 116-176 verð frá kr. 500
Úlpur, st. 98-128 ............. kr. 2.620
Úlpur, st. 8-14 ............... kr. 2.985
Fóðraðir skór í stærðum 28-39 . kr. 1.1995
KEA Hrísalundur,
VfSA
kjallari
leikjunum af mikilli innlifun.
Leikmenn voru óspart hvattir til
dáða og óneitanlega urðu yngstu
keppendurnir hálf utangátta þeg-
ar þeir sáu foreldra sína á línunni
hrópandi og hoppandi.
„Klikkaði“ í 12.
umferð bráðabanans
Eftir hátt í 30 leiki á laugardag
var efnt til vítaspyrnukeppni í
flokkunum þremur sem kepptu,
þ.e. 7., 6. og 5. flokkur. Víta-
skytta 5. flokks var Davíð Þór
Rúnarsson Tindastól-A og mark-
maður 5. flokks var Víðir Krist-
jánsson, einnig úr Tindastól-A.
Vítaspyrnukeppnin í 6. flokki var
einkar hörð og jöfn og endaði
með bráðabana milli leikmanns
Dalvíkur og Hvatar frá Blöndu-
ósi. Það var eftir 12 umferðir sem
Dalvíkingurinn „klikkaði“ og þar
með var Blöndósingurinn Guð-
Lið Tindastóls sem sigraði í 7. flokki B-liða, en einhverja leikmenn vantar á
myndina. Mynd: -bjb
Hart var barist í úrslitalcik Dalvíkinga og Siglfirðinga í 5. flokki og hér er
barist um einn skallabolta. Mynd: -bjb
Að loknum fyrri keppnisdegi var haldin heljarinnar grillveisla fyrir leikmenn
í Króksmótinu, þar sem „aðeins“ 1200 pylsum var rennt niður með tilheyr-
andi meðlæti. Mynd: sbg
Víðir Kristjánsson, markmaður 5. Frá vinstri á þessari mynd eru víta-
flokks, og Davíð Þór Rúnarsson, skytta og markmaður 6. flokks með
vítaskytta 5. flokks, með verðlaunin sín verðlaun, þeir Guðjón Sveinsson
sín, báðir úr Tindastól. Mynd: -bjb
og Guðni Sturluson, báðir úr Hvöt
frá BlÖnduÓSÍ. Mynd: -bjb
fyrr
leikjum!
jón Sveinsson orðinn vítaskytta
síns flokks. Félagi hans úr Hvöt,
Guðni Sturluson, var markmaður
6. flokks í keppninni. I 7. flokki
var Gunnar Jósteinsson leikmað-
ur Völsungs hlutskarpastur í víta-
spyrnukeppninni og Ágúst Ingi
Ágústsson Tindastól besti mark-
maðurinn.
1200 pylsum torgað
í grillveislu
Þegar vítaspyrnukeppni lauk var
efnt til mikillar grillveislu við
Gagnfræðaskólann, þar sem
aðkomukeppendur gistu og áðu.
Það voru „aðeins“ 1200 pylsur
sem fóru ofan í grillveislugesti og
að sjálfsögðu var „ein með öllu“
vinsælust. Nokkrir foreldrar
leikmanna Tindastóls á Króks-
mótinu voru knattspyrnudeild til
hjálpar við framkvæmd mótsins
og sáu mömmurnar um að fæða
knattspyrnumennina sem gistu í
Gagnfræðaskólanum og fylgdar-
menn þeirra. Þar var boðið upp á
hollan morgunmat og hádegismat
á laugardag og sunnudag. Ein-
hverjir efast kannski um hollustu
hádegismatarins á sunnudag en
ekki efuðust „pollarnir" því þeir
fengu hamborgara og franskar
með tilheyrandi, og líkaði vel.
Lítið gefíð eftir í
úrslitaleikjum
Króksmótið fór fram í ágætis
veðri á sunnudeginum. Mótið
endaði með úrslitaleikjum í 6. og
5. flokki og þar voru Dalvíkingar
sigursælir. Dalvík vann Tinda-
stól-A 5:0 í 6. flokki og úrslita-
leikurinn í 5. flokki á milli Dal-
víkur og KS-A var einkar spenn-
andi. Þar var lítið gefið eftir en
Dalvíkingar stóðu uppi sem sig-
urvegarar, unnu Siglfirðinga 2:1.
Siglfirðingar, jafnt leikmenn sem
forráðamenn, tóku tapinu miður
vel og verður að segjast að fram-
koma þeirra eftir leikinn var
þeim eigi til fyrirmyndar. En nóg
um það, gengur bara betur næst.
Mótinu lauk með verðlauna-
afhendingu. í 7. flokki b-liða
vann Tindastóll-B með 7 stig,
KS-B varð í öðru sæti með 5 stig
og Tindastóll-C í þriðja með ekk-
ert stig. Síðastnefnda liðið vakti
mikla athygli, en þar léku yngstu
keppendur mótsins, allt niður í 5
ára aldur. Keppni í 7. flokki a-
liða var jöfn og spennandi en það
var Tindastóll-A sem bar sigur úr
býtum með 9 stig, næstir komu
KS-A með 8 stig og bronsið hlutu
Völsungar sem fengu 6 stig.
Eins og komið hefur fram
hlutu Dalvíkingar gullið í 6.
flokki og Tindastóll-A silfrið.
Bronsið í 6. flokki hlaut KS-A
eftir leik um sætið við Tindastól-
B. í 5. flokki hafnaði Tindastóll-
A í þriðja sæti, vann Leifturs-
menn í framlengdum leik um
bronsið, 3:1. Það voru síðan Sigl-
firðingar sem fengu silfurverð-
laun í 5. flokki og Dalvíkingar
hömpuðu gullinu. Það var ekki í
fyrsta skiptið því Dalvíkingar
hafa verið sigursælir á Króksmót-
inu frá því það var haldið í fyrsta
sinn sumarið 1988 með formleg-
um hætti. Það má því búast við
að Dalvíkingar mæti örugglega á
næsta Króksmót til að verja þá
titla sem þeir fengu í ár.
250 mörk í 53 leikjum
Á Króksmótinu um síðustu helgi
voru alls spilaðir 53 leikir á 3
knattspyrnuvöllum. t leikjunum
53 voru skoruð nákvæmlega 250