Dagur - 23.08.1990, Síða 5

Dagur - 23.08.1990, Síða 5
lesendahornið Fimmtudagur 23. ágúst 1990 - DAGUR - 5 Ótrúlegur yíírgangur berjatínslufólks Sunnudagur 19. ágúst 1990. Eins og flestir vita, þá hafa sumir bændur auglýst berjamóa sína og leyft almenningi að tína þar ber gegn vægu gjaldi. Svo eru aðrir sem eiga móa og hyggjast nýta í tilefni af aftanákeyrslu: Er ekki úrvals fólkí Svarfaðardal og Dalvík? í Degi hinn 19. júlí sl. er pistill frá konu á Dalvík. Tilefnið er að þakka, sem maklegt er, 17 ára pilti fyrir að gefa sig fram og til- kynna að hann hafi hent það óhapp að bakka á kyrrstæðan bíl konunnar. Sennilega hefir hún aldrei heyrt að hægt sé að lofa svo einn að lasta ekki annan. í lok pistilsins segir hún: „Hefði fullorðin manneskja bakkað aftan á bílinn, þá hefði hún örugglega keyrt í burtu, þar sem ekkert vitni var að þessari aftanákeyrslu." Ég hefi alltaf haft þá skoðun að úrvals fólk væri í Svarfaðardal og þá einnig á Dalvík. En eftir þessa staðhæfingu konunnar hvarflar að mér hvort ég þurfi að endur- skoða þessa afstöðu mína. Sigurveig Guðmundsdóttir. berin sjálfir en eru svo óheppnir að hann liggur meðfram fjölförn- unt þjóðvegum. Nú hefur það borið við, trekk í trekk, að bláókunnugt fólk ryðst inn fyrir girðingu, án þess að spyrja kóng né prest og fyllir þar dunka sína og dollur af berjum og heldur svo heint, býsna stolt og hreykið með afraksturinn. Skyldi þessu fólki nokkurn tíma verða bumbult eða fá berjaskitu af stolnum berjunum???!!! Sem dæmi um yfirganginn urð- um við vitni að því að maður á besta aldri hugðist hjálpa rosk- inni móður sinni yfir girðinguna að berjamónum. Nú var vandi á höndum, ekki gat hann vippað þeirri gömlu yfir vandræðalaust. Vinurinn fann þó ráð, girðingin var einfaldlega troðin niður og eyðilögð!! Ansi er ég hrædd um að lóða- eigendum á Akureyri (eða hvar sem er) brygði í brún ef einhverj- ir birtust í görðunum þeirra með ílát sín og ætluðu „bara“ að tína rifsber! Hvað þá ef þessir sömu brytu niður girðinguna? Gott fólk! Ég skora á ykkur að tína berin góðu í auglýstum berjalöndum eða að minnsta kosti að biðja um leyfi hjá land- eigendum. Og hana nú! Heimasæta. PS. 20. ágúst 1990. í dag hófst gæsaveiðitíminn og strax í morgun birtist fyrsti veiði- maðurinn óboðinn með hagla- byssu í berjamónum! f-------------------- f Vaglaskógur og verslunarmannahelgin: Röng mynd af ástandinu hefur verið dregin upp - nær væri að taka á þessu máli í stað þess að níða unglingana niður Skóláitíurfyrir strh og stelpur í miklu únái •Lvt^ \<& Vandaðar vörur - gotl vero Vöruhús KEA Sigurður Bjarklind hringdi: „Mér finnst að það sem komið hefur fram um hegðun unglinga í Vaglaskógi um verslunarmanna- helgina sé fyrst og fremst þrennt: a) að þau hafi öll verið 13 ára; b) að þau hafi öll verið dauðadrukkin og c) að þau hafi eyðilagt skóginn áður en þau fóru. Þetta er þvílík vitleysa að ekki er hægt að sætta sig við umfjöllun sem þessa. Ég sé það líka að sum af þessum bréfum sem birst hafa í fjölmiðlum um þetta mál eru frá fólki sem aldrei kom í skóginn á þessu tímabili. Sjálfur fór ég þrisvar sinnum í skóginn þessa daga, bæði sem embættismaður í eftirlitsferð og í einkaerindum. Ég kom í skóginn bæði á föstu- dag, laugardag og sunnudag og get ekki annað sagt en mikill meirihluti þess fólks sem þarna var hafi hagað sér ágætlega og að drykkjuskapur hafi ekki verið áberandi mikill þó að ég sé ekki að draga fjöður yfir það að krakkarnir hafi þarna verið til að drekka og skemmta sér. Og þarna voru ekki eingöngu ungl- ingar þó vel megi vera að ein- hverjir hafi verið niður í 13 ára. Flestir voru liins vegar frá 15 til 20 ára. Við skulunt heldur ekki gleyma því að þarna var fólk sem komið var vel yfir þennan aldur og á það hefur ekki verið minnst einu orði. Lýsingarnar hafa því verið mjög ýktar. En það sem mér fannst hins vegar ljótast að sjá þarna var hópur af fólki sem komið var vel yfir 20 ára aldur sem var dauða- drukkið og með mjög ógnandi framkomu. Ég reyndi þetta persónulega og ég veit að krakk- arnir voru til hópa mjög hrædd við þetta lið enda hafði það í hót- unum. Ég hef kynnst unglingum bæði í leik og starfi og get ekki annað en borið þeim vel söguna. Petta er langflest fyrirmyndarfólk. Þau eru hreint ekki verri en sú kyn- slóð sent nú er að skrifa urh þessi mál. Við skulum ekki gleyma því hvernig sú kynslóð gekk um í Þjórsárdal og Þórsmörk á sínum tíma. Því kynntist ég af eigin raun og þetta er hreint ekki verra. Það sem fór úrskeiðis í Vagla- skógi ætti að vera okkur umræðu- efni í stað þess að krakkarnir séu níddir niður og þeim fundið allt til foráttu. Við ættum frekar að reyna að finna leiðir til úrbóta. Það sem ég held að farið hafi úrskeiðis þarna og gerði að verk- um hvernig svæðið leit út hafi verið aðfaranótt mánudagsins og þegar liðið var að yfirgefa skóginn. Þá held ég að þau hafi hreinlega tæmt ruslið út úr tjöld- unum. Þetta byggi ég fyrst á fremst á því sem ég sá þarna. Fyrir okkur er betra að hafa krakkana aðeins nær okkur því auðvitað vilja þau fara eitthvað um þessa helgi. Ég veit um marga foreldra sem heimsóttu börn sín í skóginn um þessa helgi til að grennslast um að allt væri í lagi hjá þeim og þannig á þetta auð- vitað að vera. Ég tek það fram að ég er ekki að segja að þarna hafi allt verið í lagi en það sem þarna gerðist er ekki í samræmi við þá mynd sem dregin hefur verið upp. Að mínu mati ætti að vera lítill vandi að koma þannig málunt fyrir að gæsla og sorphirða væri á svæð- inu. Nú er verið að tala um að loka skóginum vegna þessa sem er algjör firra. Nærtækara væri að gariga í þctta mál og bæta það sem bæta þarf.“ Opið liús 24.-26. ágúst Föstudagur 34. ágúst 0900-1800 Laugardagur 25. ágúst 1000-1700 Sunnudagur 26. ágúst 1300-1700 Kynnt verður starfseml Tölvufrœðsliuuiar á komandi mánuðum td. eftirtalin námskeið: ★ Skrifstofutækni ★ PC-grunn ★ MS-DOS stýrikerfið ★ Ritvinnslu ★ Töflttreikni ★ Gagnagrunn ★ Forritun ★ Windows Ásamt mörgum öðrum áhugaverðum nám- skeiðum. Komið og kynnið yklcur starfsemi Töhatfræðslunnar. Innritun og upplýsingar á námskeið vetrarins er hafin í síma 27899. Aulviii iiiciiiitiiii betri atviiiiiiiiiiöí>iileikar Greiðslulcjör við allra liæfi. ALLIR VELKOMNIR - VEITINGAR. (M Töivufræðslan Aktireyri hf. Glerárgötu 34, IV. hæð, 600 Akureyri, síxni 27899.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.