Dagur - 23.08.1990, Page 11

Dagur - 23.08.1990, Page 11
íþróttir Fimmtudagur 23. ágúst 1990 - DAGUR - 11 i Knattspyrna yngri flokka: Úrslitakeppni í mörguin ílokkum um helgina Um helgina fara fram úrslit í 2. flokki kvenna og 3., 4. og 5. flokki karla á íslandsmótinu í knattspyrnu. KA á lið í úrslit- um í 2. flokki kvenna og 3. og 4. flokki karla, Þórsarar í 3. og 4. flokki karla og Völsungur í 5. flokki karla. í dag hefst keppni í 3. og 4. flokki karla. í 3. flokki tryggðu KA-menn sér sæti nteð sigri í Norðurlandsriðlinum en Þórsarar komust áfram eftir undanúrslit. Úrslitakeppnin fer fram á Akra- nesi. I 4. flokki unnu Þórsarar riðil- inn en KA-menn komust áfram eftir undanúrslitakeppni sem fram fór á Akureyri. Úrslita- keppnin fer fram í Garðabæ. I 5. flokki sigraði Völsungur og hreppti þannig sæti í úrslitunum. KA-menn fóru í undanúrslitin en komust ekki áfram. Úrslita- keppnin fer frant á Fylkisvelli í Reykjavík og hefst á morgun. KA á lið í úrslitum í 2. flokki kvenna. Keppnin fer fram í Keflavík og hcfst á morgun. Kári Elíson. Lyftingar: Kári með íslandsmet - lyfti 175 kg í bekkpressu Kári Elíson, kraftlyftingamað ur frá Akureyri, setti um síð ustu helgi nýtt íslandsmet bekkpressu. Kári keppti í 75 kg flokki oj lyfti 175 kg og bætti eigið met un eitt kg. Mótið fór fram á laugar daginn í Æfingastöðinni a< Smiðjuvegi í Kópavogi og va: Kári eini keppandinn fr< Norðurlandi. Opið mót á Króknum: Sigurvegarinn hlýtur ferð til Amsterdam -36 holur um helgina Hið árlega opna mót golf- klúbbs Sauðárkróks, Sauðár- krókur opið, verður haldið dagana 25. og 26. ágúst. Leiknar verða 36 holur á Hlíð- arcndavelli og hefst mótið klukkan 9.00 að morgni laug- ardags. Keppt verður í karla- og kvenna- og unglingaflokki, með og án for- gjafar og bikarar verða veittir fyrir öll verðlaunasæti. Vegleg aukaverðlaun eru síðan í boði og fyrir besta brúttóskor í mótinu er Amsterdamferð fyrir einn í verð- laun. Fyrir fæst pútt í öllum flokkum eru vönduð úr og fyrir að slá næst holu á 3. og 6. braut eru tvenn verðlaun báða dagana: Vöruúttekt hjá Golfbúð Davids á Akureyri að verðmæti 5000 kr., gjöf frá sængurfatagerðinni Ylrúnu, þrjú bindi af sögu Sauðár- króks og flugferð innanlands báðar leiðir. í tengslum við mótið bjóða Flugleiðir upp á 40% afslátt af flugfari til Sauðárkróks og Hótel Áning er með sérstakt gistitilboð. Styrktaraðilar mótsins eru OLÍS og Bókabúð Brynjars. Frestur til skráningar rennur út klukkan 20.00 á föstudagskvöld, en búist er við um 60 keppend- um. Skráning fer fram í síma 95- 35075/35714. SBG Bikarhafarnir, f.v.: Bergur Rcynisson, Hákon Ö. Birgisson, Þorgerður Jónsdóttir, Stefán Örn Guóinundsson, Níní Jónasdóttir og Björk Hlööversdóttir. Mynd: sbg Sund: Bikarmót í Sundlaug Sauðárkróks Bikarmót Tindastóls í sundi var haldið þann 20. ágúst síð- astliðinn og þar kepptu ung- tnenni frá Umf. Fljót og Umf. Tindastól uni bikara fyrir besta samanlagðan árangur í hverju kyni og aldursflokki. Það var Kiwanisklúbburinn Drangey á Sauðárkróki sem gaf bikarana. Sundíþróttin er í mikilli lægð á Sauðárkróki og búið að vera svo síðustu árin. Hér á árum áður var áhuginn mun meiri og margir ágætir sundmenn á Króknum að sögn manna. Sundlaug staðarins er 25 m útisundlaug með ágætum áhorfendapöllunt svo að aðstaða til sundiðkunar er nokkuð góð. í mótinu var keppt í aldurs- flokkunum 12 ára og yngri, 13-14 ára og 15-16 ára. Keppendur voru um tuttugu samtals frá UMFF og UMFT. Úrslit urðu þessi: 100 m flugsund pilta 15-16 ára Mín. 1. Bergur Reynisson UMFF 1,28,06 100 m flugsund stúlkna 15-16 ára 1. Halldóra Elíasdóttir UMFF 1,56,05 50 m flugsund drengja 13-14 ára Sek. 1. Hákon Ö. Birgisson UMFT 39,9 2. Hjörtur Jónsson UMFT 47,2 3. Hreiðar Steinþórsson UMFT 56,8 50 m flugsund telpna 13-14 ára 1. Þorgerður Jónsdóttir UMFF 44.5 2. María Númadóttir UMFF 51.1 50 m flugsund sveina 12 ára og yngri 1. Stefán Örn Guðmundss. UMFT 47,7 50 m flugsund meyja 12 ára og yngri 1. Níní Jónasdóttir UMFT 46.2 2. Margrét Siguröard. UMFT 48,2 3. María Siguröardóttir UMFT 51.4 100 m baksund pilta 15-16 ára Mín. 1. Bergur Reynisson UMFF 1,41,6 2. Þórhaflur Barðason UMFF 2,08,3 100 m baksund stúlkna 15-16 ára 1. Björk Hlöðversdóttir UMFT 1,38,0 2. Halldóra Elíasdóttir UMFF 2,10,8 50 m baksund drengja 13-14 ára Sek. 1. Hákon Ö. Birgisson UMFT 44,0 2. Hjörtur Jónsson UMFT 45.2 3. Hreiðar Steinþórsson UMFT 57,8 50 m baksund telpna 13-14 ára 1. Þorgerður Jónsdóttir UMFF 43,0 50 m baksund sveina 12 ára og yngri 1. Stefán Örn Guðmundss. UMFT 45,9 2. Valberg Sveinsson UMFF 1,17,5 50 m baksund meyja 12 ára og yngri 1. Níní Jónasdóttir UMFT 48,7 2. María Ó. Sigurðard. UMFT 48.8 3. Kristrún Ó. Sigurðard. UMFT 50,2 100 m bringusund pilta 15-16 ára Mín. 1. Ríkharður Ríkharðss. UMFF 1,36,9 2. Þórhallur Barðason UMFF 1,37,2 3. Bergur Reynisson UMFF 1,41,0 100 in bringusund stúlkna 15-16 ára 1. Björk Hlöðversdóttir UMFT 1,47,3 2. Halldóra Elíasdóttir UMFF 2,10,2 100 m bringusund drengja 13-14 ára 1. Hákon Ó. Birgisson UMFT 1,39,4 2. Hjörtur Jónsson UMFT 1,43,6 3. Hreiðar Steinþórsson UMFT 1,45,5 100 m bringusund telpna 13-14 ára 1. Þorgerður Jónsdóttir UMFF 1,38,1 2. María Númadóttir UMFF 2,09,7 50 m bringusund sveina 12 ára og yngri 1. Stefán Örn Guðmundss. UMFT 49,5 2. Valherg Sveinsson UMFF 1,08,1 3. Guðni Geir Hilmarsson UMFF 1.14,0 50 m bringus. meyja 12 ára ogyngri Sek. 1. Níní Jónasdóttir UMF'I' 49,1 2. Harpa Hauksdóttir UMFF 51,6 3. María Ó. Sigurðard. UMFT 53,5 100 m skriösund pilta 15-16 ára Mín. 1. Bergur Reynisson UMFF 1,13,5 2. Þórhallur Reynisson UMFF 1,41,3 100 m skriðsund stúlkna 15-16 ára 1. Björk Hlöðversdóttir UMFT 1,27,9 50 m skriðsund drengja 13-14 ára Sek. 1. Hákon Ö. Birgisson UMFT 35.9 2. Hjörtur Jónsson UMFT 36,8 3. Hreiðar Steinþórsson UMFT 44,1 50 m skriðsund telpna 13-14 ára 1. Þorgerður Jónsdóttir UMFF 40,9 2. María Númadóttir UMFF 48,4 50 m skriðsund sveina 12 ára og yngri 1. Stefán Örn Guðmundss. UMFT 39,3 2. Valberg SveinssonUMFF UMFT 54,5 Úrslitakeppni 4. deildar hefst um helgina: Hvöt og Magnl fá þrjá heimaleiki Úrslitakeppni 4. deildar íslandsmótsins í knattspyrnu hefst á laugardaginn. Eins og fram koin í þriðjudagsblaöinu urðu Hvöt frá Blönduósi og Magni frá Grenivík sigurvegar- ar í Norðurlandsriðlunum og taka því þátt í lirslitunum. Hin fjögur liðin eru Grótta frá Sel- tjarnarnesi, Víkverji frá Mos- fellsbæ, Skallagrímur frá Borg- arnesi og Sindri frá Höfn í Hornafirði. Leikin verður einföld umferð og hljóta tvö efstu liðin sæti í 3. deild að ári. Hvöt og Magni fá bæði þrjá heimaleiki og tvo úti- leiki og byrja bæði heima á laug- ardaginn. Magnamenn fá Gróttu í heimsókn og Hvöt Víkverja. 50 m skriðsund meyja 12 ára og yngri 1. Níní Jónasdóttir UMFT 39,4 2. Harpa Hauksdóttir UMFT 41,2 3. María Ó. Sigurðard. UMFT 42,4 Að móti loknu var keppendum og starfsfólki boðið í kaffi og kökur í Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki þar sem fulltrúar Kiwanisklúbbsins afhentu bikara og önnur verðlaun voru veitt. SBG 3. flokkur: KA bikarmeistari Norðurlands í síðustu viku fór fram úrslita- leikur í bikarkeppni 3. flokks í knattspyrnu á Norðurlandi. KA og Þór léku til úrslita og sigruðu KA-menn 7:1. Bikarkeppni 3. flokks er skipt niður eftir landshlutum og til- kynntu aðeins þrjú lið þátttöku, KA, Þór og KS. Þórsarar sátu hjá í fyrstu umferð og þá sigruðu KA-menn KS tvívegis. Síðan léku KA og Þór tvívegis, fyrri leiknum lauk 1:1 en KA-menn unnu þann seinni 7:1 eins og fyrr segir. Brynjólfur Sveinsson, Helgi Arason og fvar Bjarklind skoruðu allir tvö mörk fyrir KA en eitt markanna var sjálfsmark. Ómar Kristinsson skoraði niark Þórs. Miðvikudaginn 29. ágúst mætast Magni og Hvöt á Grenivík og sunnudaginn 2. september leikur Magni við Sindra á Hornafirði og Hvöt við Gróttu á Blönduósi. Miðvikudaginn 5. september leika Hvöt og Sindri á Blönduósi og Magni og Skallagrímur á Grenivík og í síðustu untferð- inni, sem frant fer sunnudaginn 9. september, mætir Hvöt Skalla- grínji í Borgarnesi og Magna- menn Víkverja í Mosfellsbæ. 2. flokkur: Tveir leikir í kvöld Tveir leikir fara fram í íslands- móti 2. flokks í knattspyrnu á Norðurlandi í kvöld. KA og Breiðablik mætast á Akureyri og KS og Afturelding á Siglufirði. Báðir leikirnir hefjast kl. 19.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.