Dagur - 28.08.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 28. ágúst 1990
Bækur og virðisaukaskatturinn:
Bókakaup bíða fram yfir næstu helgi
- verðlækkun á bókum um 20% frá
Verslunarhús KEA á Hauganesi. Mynd: gg
KEA-verslunin á Hauganesi:
Tilboð Hjartar Herberts-
sonar til athugunar
- ekki enn gengið frá neinu
Bækur, ritaðar á íslensku, eiga
að lækka í verði um 19,68%
næstu helgi en sem kunnugt er
fellur virðisaukaskattur af
íslenskum bókum niður frá 1.
september. Olafur Ragnar
Grímsson, fjármálaráðherra,
hefur sent bóksölum og bóka-
útgefendum bréf þar sem hann
Framkvæmdir við byggingu
einangrunarstöðvar fyrir gælu-
dýr í Hrísey eru þegar orðnar
langt á eftir upphaflegri áætlun
en upphaflega var gert ráð fyr-
ir að taka stöðina í notkun nú í
haust. Húsið verður um 70 m2
að stærð.
Að sögn Sigurborgar Daða-
dóttur dýralæknis, hefur bygg-
ingaverktakinn þegar steypt
sökkla húsins en ekkert hefur
síðan þokast vegna seinagangs í
kerfinu. Núna er beðið eftir
teikningum af húsinu en það
verður byggt í nafni Einangrun-
arstöðvar holdanauta í Hrísey og
verður með sömu yfirstjórn og
starfsmenn en eflaust jjarf að
fjölga starfsmönnum þegar
beinir því til þessara aðila að
verðlækkun þessi skili sér til
neytenda og það strax.
„Miklu skiptir að verðlækkun
sú sem af niðurfellingin leiðir af
sér skili sér af fullu til neytenda,
bæði í verði á útgefnum bókurn
sem lækka í verði nú 1. septem-
ber og einnig í verði þeirra bóka
starfsemin verður kominn á fullt
skrið. Framkvæmdir hófust í des-
embermáuði 1989 en þá var
smáupphæð á fjárlögum, og einn-
ig í ár, en miðað við þá upphæð
mun bygging hússins taka a.m.k.
10 ár.
Opnuð var bráðabirgðastöð í
sumar og eru nú í henni einn
hundur og einn köttur. Stöðinni
verður lokað aftur strax og þau
dýr losna úr einangruninni og
ekki tekin inn fleiri, því ekki er
fyrirsjáanlegt að rrkisvaldið ætli
sér að ljúka nauðsynlegunt bygg-
ingaframkvæmdum á næstunni.
Nýlega týndist köttur sem var
þarna í einangrun en hann fannst
aftur og lýkur sinni einangrun á
öðrum stað. GG
1. september
sem gefnar verða út nú í haust.
Ég treysti því að bóksalar og
bókaútgefendur liggi hvergi á liði
sínu í þeim efnum,“ segir fjár-
málaráðherra í bréfi sínu til þess-
ara aðila.
Verðlagsstofnun hefur heitið
liðveislu sinni við verðlagsaðhald
og mun líta eftir því að þessi
verðlækkun komist strax á.
Ríkisskattstjóri hefur sent út
bréf þar sem sundurliðað er hvað
fellur innan þessara niðurfelling-
arákvæða og hvað ekki. Sem
dæmi má nefna að skattur verður
innheimtur af landabréfum þótt
hann verði ekki innheimtur af
landabréfabókum. Eyðublöð,
almanök, vöruleiðbeiningar og
ýmislegt smáprent verða heldur
ekki undanþegin virðisauka-
skatti.
Áhrif niðurfellingar virðis-
aukaskatts á bókum á framfærslu-
vísitöluna er um 0,18 stig til
lækkunar. JÓH
Bíll lenti utan vegar í Öxnadal
í gærmorgun og skcmmdist
töluvert. Þetta var bílaleigubíll
sem erlendir feröamenn óku
og sluppu þeir ómeiddir frá
veltunni.
Að öðru leyti virðist umferðin
hafa gengið að mestu klakklaust
Líkur eru á aö verslunarrekstur
leggist af á Hauganesi í haust,
en þá mun KEA loka verslun
fyrir sig á Norðausturlandi um
helgina en að sögn lögregluþjóna
var nrikið urn að fólk færi til berja
og einnig sáust gæsaskyttur á
kreiki.
Hjá Akureyrarlögreglunni var
helgin fremur róleg. SS
sinni. Viðræður hafa verið í
gangi milli Hjartar Herberts-
sonar og Sigurðar Jóhannes-
sonar fulltrúa kaupfélagsstjóra
um leigu á húsnæðinu, en ekki
hefur verið gengið frá neinu.
Hjörtur Herbertsson segist
hafa gert ákveðið leigutilboð í
húsnæði kaupfélagsins á Hauga-
nesi, en ekkert sé enn frágengið,
enda spili hans eigin húsnæðismál
þarna innf, þ.e. hvort hann leigi
eða kaupi íbúðarhúsnæði á
Hauganesi ef af samningum
verði. GG
Einangrunarstöð gæludýra í Hrísey:
Skortir íjárveitingu til
að ljúka byggingimm
BíU út af í Öxnadal
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda að Hrafnagili í Eyjafirði
„Hefur hin rnikla trygging gert
bændur sljóa og sinnulausa?“
- spurði Jóhannes Kristjánsson, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda í framsöguræðu
Á grundvelli sölutalna og spár
um sölu lambakjöts í ágúst á
verðlagsárinu 1989 til 1990,
mun heildarsala á milli þess árs
og ársins á undan, dragast
saman um 791 tonn Það sam-
svarar 9,2% sölusamdrætti á
milli verðlagsára og myndi
þýða að birgðir af kindakjöti í
landinu yrðu um 1700 tonn 1.
september en voru um 2050
tonn á sama tíma í fyrra. Það
þýðir að birgöir hafa minnkað
um 17% milli verðlagsára þrátt
fyrir minnkandi sölu. Reiknað
er með að heildarsala kinda-
kjöts verði um 8000 tonn á
verðlagsárinu. Þetta kom fram
á aðalfundi Landssamtaka
sauðfjárbænda, sem haldinn
var á Hrafnagili á sunnudag og
mánudag.
Eitt meginmál aðalfundarinns
var undirbúningur að nýjum
búvörusamningi en núverandi
samningur rennur út að tveimur
árum liðnum, 31. ágúst 1992. í
skýrslu formanns Landssamtak-
anna, Jóhannesar Kristjánssonar
á Höfðabrekku, kom fram að við
setningu laga um núgildandi
búvörusamning hafi staðgreiðsla
afurða og afnám umboðssölu-
kerfis, sem áður hafi gilt, orðið
að veruleika. Þannig hafi að
miklu leyti rofnað þau tengsl sem
bændur höfðu við afurðastöðvar.
Með tilkomu búvörusamnings-
ins, þar sem ríkið ábyrgðist
greiðslu á ákveðnu magni kinda-
kjöts til framleiðenda, hafi tengsl
bænda við markaðinn einnig
rofnað. Ríkið hafi tekið á sig
kostnað af birgðahaldi kinda-
kjöts og ábyrgð á því sem ekki
seldist. Þá benti Jóhannes á að
annað kjöt sem kæmi í sláturhús
væri að mestu leyti á ábyrgð slát-
urleyfishafa sjálfra og því ekki
óeðlilegt frá þeirra sjónarmiði að
leggja meiri áherslu sölu þeirrar
vöru sem fyrst. í framhaldi af því
varpaði Jóhannes Kristjánsson
þeirri spurningu fram hvort þessi
mikla trygging og forsvar fyrir
framleiðendum kindakjöts og
sláturleyfishöfum hafi ekki gert
ntenn sljóa og sinnulausa í þessu
efni.
Jóhannes vitnaði í erindi, sem
Halldór Pálsson flutti hjá Rækt-
unarfélagi Norðurlands árið
1982. Þar ræddi hann meðal ann-
ars um afleiðingar útflutnings-
uppbóta og trygginga til fram-
leiðenda og vinnslustöðva. Árið
1982 kvaðst Halldór óttast að
þetta öryggi hefði slævt skyldutil-
finningu sumra sláturleyfishafa,
ullarmóttökuaðila og mjólkur-
samlaga fyrir því að fá öll verk
unnin sem hagkvæmast, það er
að ná sem mestri framleiðni í
milliliðaþjónustunni. Því til við-
bótar nefndi Halldór að lítill
hvati virtist hafa verið til þess hjá
sláturleyfishöfum að selja vöruna
eins fljótt og nokkur tök væru á.
Frystihúsaeigendur vildu gjarnan
geyma hana sem lengst, Iíklega af
því að geymslan gæfi svo mikið í
aðra hönd. Að lokinni tilvitnun í
þetta erindi spurði Jóhannes
hvort nokkuð hafi breyst og benti
á að í Reykjavík stæði ónotað
stórhýsi og hamlaði allri starf-
semi ákveðins úrvinnslufyrirtækis
stórlega.
Jóhannes ræddi nokkuð um
félagsmál sauðfjárbænda. Þegar
landssamtökin voru stofnuð fyrir
fimm árum hafi mikill áhugi og
nokkuð almenn þátttaka verið til
staðar í flestum héröðum. Þegar
vonir um sölu lambakjöts á
erlendum mörkuðum hafi brugð-
ist, myndaðist félagsleg deyfð og
Aðalfundur Landssamtaka
sauðfjárbænda var haldinn á
sunnudag og mánudag að
Hrafnagili í Eyjafirði. Á fund-
inum var m.a. samþykkt að
leggja til að kindakjöti verði
miðlað milli afurðastöðva og
að kannaðir verði möguleikar
á stofnun kjötmarkaðar á
höfuðborgarsvæðinu.
Aðalfundur Landssamtaka
sauðfjárbænda lagði til að í stað
ýmsir hafa gagnrýnt stjórn lands-
samtakanna fyrir að vanrækja
innanlandsmarkaðinn. Jóhannes
kvað þá gagnrýni ekki á rökum
reista. Stjórninni hefði ávallt ver-
ið ljóst mikilvægi innanlands-
markaðarins þótt störf sam-
bandsins hafi beinst nokkuð að
möguleikum á Bandaríkjamark-
aði fyrstu mánuðina sem þau
störfuðu. Þá benti Jóhannes á að
félagsleg deyfð virðist meiri á
þeim svæðum þar scm sauðfjár-
búskapur er ríkjandi atvinnu-
grein en hinum þar sem staða
hugmynda um landssölusamtök
kindakjöts verði því beint til
framleiðsluráðs og landssamtaka
sláturleyfishafa að eitthvað verði
gert til að auðvelda miðlun kjöts
milli afurðastöðva. Benti fundur-
inn á hugsanlegt milliverð, til-
flutning afurðalána, reglur um
eðlilegan greiðslufrest eða afslátt
sem leiðir að því markmiði.
Aðalfundurinn samþykkti
einnig að beina því til starfshóps
hans er talin tvísýn.
í lok skýrslu sinnar benti
Jóhannes á að framundan sé tími
mikilla breytinga í sauðfjárrækt.
Því sé mikilvægt að sauðfjár-
bændur geri upp við sig hvað gera
skuli og beindi því til fundar-
manna að um þrjár leiðir væri að
velja. Að láta sem ekkert sé. Að
freista þess að halda núverandi
stöðu. Að freista landvinninga í
samkeppni við önnur matvæli á
markaðnum og beita álíka vopn-
um og aðrir sem berjast á þeim
markaði. ÞI.
urn sölu lambakjöts að kannaður
verði áhugi á möguleikum á
stofnun kjötmarkaðar á höfuð-
borgarsvæðinu í tengslum við
sláturtíð, þar sem boðið yrði upp
á hangið, ófrosið kjöt, sem væri
mun ódýrara en frosið og geymt
kjöt. Þá taldi fundurinn nauðsyn-
legt að gerðar verði ýtarlegar
rannsóknir á efnainnihaldi kinda-
kjöts sem hægt væri að nota við
kynningu þess. pj
Miðlun kjöts miHi
afurðastöðva og stofíiun kjöt-
markaðar á höfuðborgarsvæðinu
- meðal hugmynda Landssambands sauðprbænda