Dagur - 28.08.1990, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 28. ágúst 1990 - DAGUR - 5
Gissur Pétursson, formaður Sambands ungra framsóknarmanna undanfarin fjögur ár, mun láta af því embætti á
þinginu að Núpi um næstu helgi.
Gissur Pétursson, formaður SUF:
„Upplagt að hefja kosn-
ingabaráttuna á þinginu"
- þing Sambands ungra framsóknarmanna haldið að Núpi
í Dýrafirði 31. ágúst-2. september nk.
Þing Sanibands ungra fram-
sóknarmanna verður haldið að
Núpi í Dýrafirði dagana 31.
ágúst tii 2. september næst-
komandi. Að sögn Gissurar
Péturssonar, formanns SUF,
verða aðalmál þingsins tvö.
„Annars vegar verða örugg-
lega miklar umræður um
stjórnmálin í Ijósi þeirra stór-
kostlegu breytinga sem orðið
hafa frá síðasta SUF-þingi
1988, bæði hér innanlands með
bættri skipan efnahagsmála,
og eins utanlands og á ég þá
fyrst og fremst við breytingarn-
ar í Evrópu og bætt samskipti
austurs og vesturs,“ sagði
Gissur.
Hitt aðalmál þingsins tengist
einnig fyrirhuguðum breytingum
í Evrópu. Fyrsta dag þingsins,
föstudaginn 31. ágúst, mun
Gunnar Helgi Kristinsson, stjórn-
málafræðingur flytja erindi um
Efnahagsbandalag Evrópu, kosti
þess og galla. Erindið nefnir
hann „Island og Evrópubanda-
lagið“. Gunnar Helgi mun einnig
fjalla um afstöðu kjósenda Fram-
sóknarflokksins til aðildar að
Evrópubandalaginu, en sl. vetur
var hún könnuð allítarlega.
„Af öðrum málum má nefna
að alþingiskosningar eru skammt
undan og því verða framboðsmál
og sókn ungs fólks á þeim vett-
vangi innan Framsóknarflokksins
vafalaust mikið rædd,“ sagði
Gissur Pétursson ennfremur. Þá
má nefna að formaður Fram-
sóknarflokksins, Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra,
situr SUF-þingið og flytur erindi
um þjóðmálin.
Gissur Pétursson hefur lýst því
yfir að hann gefi ekki kost á sér
til endurkjörs sem formaður
Sambands ungra framsóknar-
manna og því ljóst að SUF-arar
kjósa sér nýjan formann á þing-
inu að Núpi. Siv Friðleifsdóttir,
sjúkraþjálfari og bæjarfulltrúi á
Seltjarnarnesi, hefur verið nefnd
sem líklegasti arftaki Gissurar í
formannsembættinu.
„Ég vonast til þess að sem flest
ungt framsóknarfólk sæki þingið
um næstu helgi, ekki síst af
Norðurlandi þar sem flokkurinn
sótti mjög í sig veðrið í sveitar-
stjórnakosningunum sl. vor.
Fylgisaukning Framsóknarflokks-
ins á Norðurlandi segir að þar er
marga unga framsóknarmenn að
finna og ég vona að ég sjái þá
sem flesta um helgina. Það er
nauðsynlegt að sýna styrk flokks-
ins nú, ekki síst þar sem alþing-
iskosningar eru á næsta leiti. Pað
er upplagt að hefja kosninga-
baráttuna á SUF-þinginu í Dýra-
firði um helgina,“ sagði Gissur
Pétursson, fráfarandi formaður
Sambands ungra framsóknar-
manna, að lokum. BB.
Dagskrá SUF-þingsins
Föstudagur 31. ágúst
Kl. 16.30 Setning - Gissur Pétursson, formaður SUF.
Kl. 16.45 Kosning embættismanna.
Skipað í nefndir.
Kl. 17.00 Ávörp gesta.
Kl. 17.30 Lögð fram drög að ályktunum.
Almennar umræður.
Kl. 19.00 Kvöldmatur.
Kl. 20.00 ísland og Evrópubandalagið - Gunnar Helgi Kristinsson
stjórnmálafræðingur. Fyrirspurnir og umræður.
Kl. 21.30 Nefndastarf.
Kl. 22.30 Kvöldvaka - þjóðdansar.
Laugardagur 1. september
Kl. 08.30 Morgunverður.
Kl. 09.00 Nefndastarf.
Kl. 11.00 Umræður.
Kl. 12.00 Hádegisverður.
Kl. 13.00 Umræður og afgreiðsla ályktana.
Kl. 14.30 Hlé - Knattspyrna og hráskinnaleikur.
Kl. 16.00 Afgreiðsla stjórnmálaályktunar.
Kl. 17.30 Kosningar.
Önnur mál.
Kl. 18.00 Þingslit.
Kl. 21.30 Kvöldskemmtun i veitingahúsinu Skálavík í Bolungarvík-
söngur, glens og gaman.
Sunnudagur 2. september
Kl. 09.30 Morgunverður.
Brottför.
Maimatilfærslur í utauríkisráðuneytinu
Nokkrar breytingar hafa orðið á
verkaskiptingu í utanríkisráðu-
neytinu að undanförnu.
Hörður H. Bjarnason hefur
tekið við starfi prótokollstjóra af
Sveini Björnssyni, sem tók við
starfi skrifstofustjóra ráðuneytis-
ins fyrr á árinu.
Sverrir Haukur Gunnlaugsson
hefur látið af starfi skrifstofu-
stjóra viðskiptaskrifstofu utan-
ríkisráðuneytisins og tekið við
stöðu fastafulltrúa íslands hjá
Atlantshafsbandalaginu í
Brussel.
Einar Benediktsson hefur látið
af störfum fastafulltrúa hjá Atl-
antshafsbandalaginu en gegnir
áfram starfi sendiherra íslands
í Belgíu, Luxemborg og hjá
Evrópubandalaginu í Brussel.
Þá hefur Róbert Trausti Árna-
son tekið við starfi skrifstofu-
stjóra varnarmálaskrifstofu.
Pústþjónusta
Pústkerfi undir flestar tegundir bifreiða.
Pakkningar, klemmur, upphengjur.
Fast verð fyrir pústkerfaskipti.
Höfum fullkomna beygjuvél.
Ryðvarnarstöðin sf.
Fjölnisgötu 6e ■ Sími: 96-26339 • 603 Akureyri.
Launafólk
Eviafirði!
Hafið gát á verðhækkunum,
og hringið í Neytendafélagið.
Verkalýðsfélögin Eyjafirði
Menntamálaráðuneytið
Fundur um byggingu
íþróttamannvirkja
iþróttanefnd ríkisins og íþróttafulltrúi boða til umræðu-
fundar um byggingu íþróttamannvirkja laugardaginn 1.
september kl. 13.15-17.00 í Borgartúni 6, Reykjavík.
Sænski verkfræðingurinn Torsten Wikenstahl mun
m.a. halda erindi um gólf í íþróttahúsum og um gerfi-
grasvelli.
Gerð verður grein fyrir því sem efst er á baugi um
byggingu íþróttamannvirkja á Norðurlöndum.
Öllum áhugamönnum og fagmönnum á þessu sviði er
heimil þátttaka á fundinum. en þátttökugjald verður kr.
400.
íþróttaanefnd rikisins.
íþróttafulitrúi ríkisins.
Vinningstölur laugardaginn
25. ágúst ’90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 1 2.052.582.-
2. 4a“® 356.790.-
3. 4 af 5 74 8.317.-
4. 3af 5 2.574 557,-
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
4.459.662.-
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002