Dagur - 28.08.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 28. ágúst 1990
Enska knattspyrnan:
32 mörk skoruð í
íþróttlr
/
1. deildiimi
Á laugardag hófst deilda-
keppnin í Englandi og mun
hún standa yfir næstu 8 mán-
uðina. Leikmenn 1. deildar
voru á skotskónum um helgina
og aðeins tveim af tuttugu Iið-
um í 1. deild mistókst að
skora. Upphafið lofar því góðu
fyrir það sein koma skal, en
ekki verða liðin þó dæmd af
þessum upphafsleikjum og
margt getur átt eftir að gerast
áður en upp verður staðið
næsta vor. Lítum þá aðeins
nánar á Ieiki laugardagsins.
Liverpool hóf titilvörn sína
með góðum sigri á útivelli gegn
nýliðum Sheffield Utd., en það
var enginn glæsibragur yfir leik
meistaranna þrátt fyrir 3:1 sigur.
Nýliðarnir urðu fyrir því óhappi í
fyrri hálfleik að markvörður
þeirra Simon Tracey var borinn
útaf kinnbeinsbrotinn eftir sam-
stuð við Ian Rush og það reyndist
liðinu dýrt. John Pemberton
varnarmaður sem Sheffield
keypti nýlega frá Crystal Palacc
fór í markið og tvö af mörkum
Liverpool verða að skrifast á
hann. John Barnes kom Liverpool
yfir á 59. mín., en Brian Deane
jafnaði strax fyrir Sheffield Utd.
með góðu marki. Síðan fylgdu
tvö skallamörk frá Liverpool,
fyrst Ray Houghton eftir send-
ingu Barnes og undir lokin bætti
Ian Rush þriðja markinu við eftir
undirbúning Ronnie Rosenthal
sem kom inn á sem varamaður.
Mikill áhugi var fyrir leik Tott-
enham gegn Manchester City og
áhorfendur urðu ekki fyrir von-
brigðum. Paul Gascoigne lék
mjög vel fyrir Tottenham og
skoraði þriðja og síðasta mark
liðsins eftir mikinn einleik sem
hann endaði á því að plata Tony
Coton markvörð City áður en
hann sendi boltann í netið. En
Gary Lineker var ekki síðri og
skoraði tvö góð mörk fvrir Tott-
enham. Strax á 2. inín. skoraði
hanh eftir mistök Colin Hendry
miðvarðar City og síðan bætti
hann öðru marki sínu við á 55.
mín. eftir góða sendingu frá
Nayinr. Varnir beggja liða voru
mistækar og Niall Quinh hefði
getað skorað þrívegis fyrir City.
Honum tókst að jafna með skalla
á 6. mín. eftir sendingu David
White. mistókst síðan i dauða-
færi og loks var dæmt af honum
mark. Stórskemmtilegur og
opinn leikur, en 3:1 sigur l otten-
ham þó heldur stór eftir gangi
leiksins.
Nýliðar Leeds Utd. komu
Úrslit 1. deild
Aston Villa-Southampton 1:1
Chelsea-Derbv 2:1
Everton-Leeds Utd. 2:3
Luton-Crystal Palace 1:1
Manchester Utd.-Coventrv 2:0
Norwich-Sunderland 3:2
Nottingham For.-Q.P.R. 1:1
Sheffield Utd.-Liverpool 1:3
Tottenham-Manchester City 3:1
Wimblcdon-Arsenal 0:3
2. deild
Barnsley-Brighton 2:1
Bristol Citv-Blackhurn 4:2
Charlton-Swindon 1:2
Hull City-Notts County 1:2
Ipswich-Sheffield Wed. 0:2
Leicester-Bristol Rovers 3:2
Middlesbrough-West Ham 0:0
Newcastle-Plymouth 2:0
Oxford-Port Vale 5:2
Portsmouth-W.B.A. 1:1
Watford-Millwall 1:2
Wolves-Oldham 2:3
mjög á óvart er þeir lögðu Everton
á útivelli 3:2 eftir að hafa komist
í 3:0 forystu. Liðið lék vel með
David Batty og Gary Speed sem
bestu menn, en lið Everton sem
keypti Mike Milligan fyrir £1
milljón í vikunni frá Oldham
náði sér ekki á strik fyrr en í
lokin. Chris Fairclough miðvörð-
ur og Gary Speed komu Leeds
Utd. í 2:0 forystu fyrir hlé eftir
slaka vörn heimamanna. Neil
McDonald fékk tækifæri til að
jafna leikinn í 1:1 er dæmd var
vítaspyrna á Leeds Utd. fyrir
hendi, en hann skaut framhja.
Imra Varadi bætti þriðja marki
Leeds Utd. við á 59. mín. þá loks
tóku leikmenn Everton við sérog
þeir Pat Nevin og John Ebbrell
löguðu stöðuna með tveim
mörkum. Undir lokin varð John
Lukic í rnarki Leeds Utd. að taka
á öllu sínu til að tryggja liðinu
stigin þrjú.
Josef Venglos hinn nýi stjóri
Aston Villa fékk góðar móttökur
hjá áhorfendum fyrir leikinn
gegn Southampton, en oft hristi
hann höfuðið meðan á leiknum
stóð og virtist ekki allskostar
ánægður með sína menn. Matthew
Le Tissier hjá Southampton átti
ntjög góðan leik og náði forystu
fyrir lið sitt snemma í leiknum
auk þess sem hann skallaði tví-
vegis í þverslá eftir hornspyrnur.
Tony Cascarino náði að jafna fyr-
ir Aston Villa með hörkuskalla
eftir sendingu Tony Daley í fyrri
hálfleik og þar við sat. Nigel
Spink í marki Villa varði mjög
vel í lciknum og kom í veg fyrir
sigur Southampton.
Sunderland komst í 1. deild er
lið Swindon var dæmt til að leika
áfram í 2. deild vegna misferlis í
fjármálum og liðið stóð sig vel
á útivelli gegn Norwich. Lið
Norwich leikur ávallt vel þrátt
fyrir að bestu menn liðsins séu
jafnan seldir. I sumar voru þeir
Andy Linighan og Andy Towns-
end seldir, en þrátt fyrir það náði
liðið 3:2 sigri gegn Sunderland.
Dale Gordon og Tim Sherwood
komu Norwich í 2:0 forystu í
fyrri hálfleik, en Peter Daven-
port og Marco Gabbiadini náðu
að jafna fyrir Sunderland. Sigur-
mark Norwich skoraði Ruel Fox
eftir að Robert Rosario hafði
skallað boltann fyrir fætur hans.
Chelsea sigraði Derby 2:1 á
heimavelli sínum þar sem David
Lee náði forystu fyrir Chelsea
strax á 5. mín. með skalla úr
þvögu leikmanna framan við
mark Derby. Chelsea hafði yfir-
burði í fyrri hálfleik, en á fyrstu
mín. síðari hálfleiks jafnaði
Dean Saunders fyrir Derby með
góðu skoti. Bæði lið fengu síðan
góð færi, en þeir Peter Shilton í
marki Derby og Dave Beasant í
marki Chelsea voru í miklum
ham. Shilton átti þó ekki mögu-
leika á að verja glæsilegt skot
Peter Nicholas eftir að auka-
spyrna Dennis Wise hafði hafnað
í stönginni. Pað reyndist sigur-
mark leiksins, en Derby fékk þó
færi á að jafna á síðustu mín. er
liðið fékk vítaspyrnu, en Beasant
varði spyrnuna frá Saunders,
Fyrri hálfleikurinn hjá Man.
Utd. og Coventry var ekki til að
hrópa húrra fyrir, en sá síðari var
skárri. Steve Bruce náði forystu
fyrir Utd. með skalla eftir horn-
spyrnu Dennis Irwin á 58. mín.
og Irwin var aftur á ferðinni á 72. ■
mín. er hann sendi fyrir mark
Coventry þar sem Neil Webb
kastaði sér fram og skallaði í
mark. Tæplega 47.000 áhorfend-
ur sáu leikinn á Old Trafford og
voru ánægðir með 2:0 sigur sinna
manna.
Eftir daufan og markalausan
fyrri hálfleik gegn Wimbledon
komu leikmenn Arsenal ger-
breyttir inná í þann síðari og Paul
Merson náði forystu fyrir liðið
með skalla á 56. mín. eftir send-
ingu Anders Limpar sem átti
mjög góðan leik á vinstri kantin-
um. Þrem mín. síðar skoraði
fyrirliði Wimbledon, Keith Curle
sjálfsmark aðþrengdur af Alan
Smith og í lokin bætti varamað-
urinn Perry Groves við þriðja
marki Arsenal sem þarna vann
sanngjarnan sigur eftir að hafa
átt í vök að verjast í fyrri hálf-
leiknum.
Luton náði að merja jafntefli í
heimaleik sínum gegn Crystal
Palace. Það var Eric Young mið-
vörðurinn sem Palace keypti frá
Wimbledon í sumar sem náði for-
ystu fyrir lið sitt í fyrri hálfleik.
Palace lék betur í leiknum, en
það dugði ekki til sigurs því Ian
Dowie náði að jafna fyrir Luton í
síðari hálfleik og tryggja liði sínu
stig úr leiknum.
Q.P.R. kastaði frá sér tækifæri
á sigri í leik sínum á útivelli gegn
Nottingham For„ er liðið slakaði
á í síðari hálfleik. Forest hóf þó
Nayim og félagar hjá Tottenham stefna á meistaratitil í vor.
leikinn af miklum krafti, en nris-
tókst að skora og gestirnir náðu
smám saman undirtökunum. Des
Walker miðvörður Forest hélt
Mark Falco miðherja Q.P.R. í
skefjum, en Roy Wegerle lék
lausum hala og var sífellt hættu-
legur. Hann átti skot í stöng og
náði síðan forystu fyrir Q.P.R, á
29. mín. eftir hornspyrnu. Þrátt
fyrir yfirburði Q.P.R. náði
Forest að jafna á 6. mín. síðari
hálfleiks. Dæmd var vítaspyrna
fyrir brot á Gary Crosby og úr
henni skoraði Nigel Jemson.
Leikmenn Q.P.R. fengu næg færi
eftir það til að tryggja sér sigur-
inn, en mistókst í upplögðum
færum. Þorvaldur Örlygsson kont
ekki við sögu í leiknum, en ætti
að fá tækifæri fljótlega ef ekki
verður breyting til batnaðar á
leik liðsins.
2. deild
• Swindon sem hafði unnið sér
rétt til að leika í 1. deild í vetur,
en var síðan dæmt til að leika
áfram í 2. deild hóf tímabilið vel.
Liðið sigraði Charlton á útivelli
2:1, en Charlton féll úr 1. deild í
vor.
• Sheffield Wed. sem féll einnig
í vor vann góðan 2:0 sigur á úti-
velli gegn Ipswich.
• Sama gerði Millwall sem einnig
féll í vor, liðið sigraði Watford
2:1 á útivelli.
• Wolves tapaði 2:3 á heimavelli
gegn Oldham þar sem Ian Marsh-
all skoraði öll mörk Oldham, en
Steve Bull gerði bæði mörk
Wolves.
• Af þeim liðum sem komu upp
úr 3. deild sigruðu bæði Notts
County og Bristol City, cn Bristol
Rovers tapaöi á útivclli gegn
Leicester. Þ.L.A.
Staðan 1. deild
Arsenal 1 1-0-0 3:0 3
Liverpool 1 1-0-0 3:1 3
Tottenham 1 1-0-0 3:1 3
Manchester Utd. 1 1-0-0 2:0 3
Leeds Utd. I 1-0-0 3:2 3
Norwich 1 1-0-0 3:2 3
Chelsea 1 1-0-0 2:1 3
Aston Villa 1 0-1-0 1:1 1
Crystal Palace 1 0-1-0 1:1 1
Luton I 0-1-0 1:1 1
Nottiugham For. 1 0-1-0 1:1 1
Q.P.R. 1 0-1-0 1:1 1
Southamplon 1 0-1-0 1:1 1
F.verton 1 0-0-1 2:3 0
Sunderland 1 0-0-1 2:3 0
Derbv 1 0-0-1 1:2 0
Manchester Citv 1 0-0-1 1:3 0
Sheffield Utd. 1 0-0-1 1:3 0
Coventry 1 0-0-1 0:2 0
Wimbledon 1 0-0-1 0:3 0
2. deild
Oxford 1 1-0-0 5:2 3
Bristol Citv 1 1-0-0 4:2 3
Newcastle 1 1-0-0 2:0 3
Sheffield Wed. 1 1-0-0 2:0 3
Leicester 1 1-0-0 3:2 3
Oldham 1 1-0-0 3:2 3
Barnslev 1 1-0-0 2:1 3
Millwali 1 1-0-0 2:1 3
Notts County 1 1-0-0 2:1 3
Swindon 1 1-0-0 2:1 3
Portsmouth 1 0-1-0 1:1 1
W.B.A. 1 0-1-0 1:1 1
Middlesbrough 1 0-1-0 0:0 1
West Ham 1 0-1-0 0:0 1
Bristol Rovers 1 0-0-1 2:3 0
Wolves 1 0-0-1 2:3 0
Brighton 1 0-0-1 1:2 0
Charlton 1 0-0-1 1:2 0
Hull City 1 0-0-1 1:2 0
Watford 1 0-0-1 1:2 0
Blackburn 1 0-0-1 2:4 0
Ipswich 1 0-0-1 0:2 0
Plvmouth 1 0-0-1 0:2 0
Port Vale 1 0-0-1 2:5 0