Dagur - 28.08.1990, Side 13
Þriðjudagur 28. ágúst 1990 - DAGUR - 13
Uppsetnmgu raf-
girðinga ábótavant
- fúskið í fyrirrúmi, að mati Rafmagnseftirlits ríkisins
Notkun rafgirðinga fer vaxandi
í landinu. Helstu eigendur raf-
girðinga eru Vegagerð ríkisins,
Skógrækt ríkisins, Landgræðsla
ríkisins, sveitarfélög, félaga-
samtök, bændur og einstakl-
ingar. Fæstir þessara aðila
ráða fagmenn til að setja upp
rafgirðingar. Útkoman er sú,
að girðingar leka víðast hvar
spennunni til jarðar og þjóna
ekki tilgangi sínum. Þessi
spennuleki veldur víða síma-
truflunum. Rafgirðingar eru
víða settar inn í gamlar og úr
sér gengnar gaddavírsgirðingar
og skapa hættu fyrir menn og
skepnur. Merkingum er ábóta-
vant. Eigandi rafgirðingar sem
veldur truflunum á símakerf-
inu getur orðið skaðabóta-
skyldur gagnvart Pósti og
síma.
Undanfarin ár hefur Rafmagns-
eftirlit ríkisins haft talsverð
afskipti af rafgirðingum, minnt á
reglur urn uppsetningu þeirra og
leiðbeint um frágang á vettvangi.
Símatruflanir
af völdum rafgirðinga
Á sl. ári fór fram athugun á síma-
truflunum í V.-Skaftafellssýslu af
völdum rafgirðinga. Hálfur tugur
tæknimanna frá RER og Pósti og
síma vörðu hartnær viku í þessar
rannsóknir á girðingu eins sveita-
býlis. Ekki var bónda gert að
greiða kostnað í þctta sinn. En
lög kveða skýrt á um það, að sím-
ann megi ekki trufla, og að „raf-
orkuvirki skuli vcra þannig gerð,
notuð og haldið við og eftir þeim
litið að hætta eða truflanir af
þeim verði svo litlar sem við
verði komið“.
Vítaverður frágangur
Fyrir skömmu fór eftirlitsmaður
frá Rafmagnseftirlitinu á vett-
vang og mældi einar 20 rafgirð-
ingar á svæðinu frá Hrútafiröi
austur í Öxarfjörð. Er skemmst
frá því að segja að engin þessara
girðinga stóðst fyllilega þær kröf-
ur sem gerðar eru um frágang og
uppsetningu. Víða var spenna
það lág, að girðingin var í raun
gagnslaus. Merkingum var víðast
hvar ábótavant, jafnvel á ferða-
mannaslóðum, þar sem mikið er
um mannaferðir. Rafgirðing get-
ur verið hættuleg viðkomu, sér-
staklega þeim sem eru með ein-
hverjar hjartatruflanir. Slitnir
spennuvírar námu við jörðu.
Uttaki á spennuvír frá spenni að
girðingu var víða ábótavant.
Gamlar gaddavírsgirðingar með-
fram vegi eða götuslóða voru
sums staðar notaðar til að bera
óeinangraðan spennuvírinn út á
hina eiginlegu rafgirðingu, víðast
hvar án nokkurrar auðkenningar.
Petta er vítavert og ólöglegt.
Víða vex jarðargróður upp í girð-
ingu með þeim afleiðinguin að
spenna glatast til jarðar og girð-
ingin missir gildi sitt af þeim
sökum.
Faglegar leiöbeiningar
virtar að vettugi
Spenna glatast víða til jarðar af
öðrum og alvarlegri orsökum,
nefnilega þeiin, að ekki er farið
eftir faglegum leiðbeiningum um
uppsetningu spennugjafans, ein-
angrun á spennuvírnum út á girð-
inguna og á girðingunni sjálfri,
svo og frágangi jarðskauta.
Inn eru fluttir staurar úr svo-
nefndu „INSUL" timbri, sérstak-
lega ætlaðir í rafgirðingar, cnda
mikið notaðir erlendis. Það hefur
verið álit manna, að staurar þess-
ir væru það einangrandi, að ekki
þyrfti að nota sérstaka einangr-
ara fyrir vírana, til að varna
leiðni til jarðar, enda felur nafnið
það í sér. Þetta er ekki svo. Þess-
ir staurar, sem og aðrir tréstaur-
ar, blotna í votviðrum, drekka í
sig vatn í rökum jarðvegi og leiða
rafmagn til jarðar. Sjávarselta
gerir þá ennþá leiðnari. Ef tré-
staurar eru notaðir í rafgirðingar,
verður að nota einangrara fyrir
vírana.
Farið að settum reglum
og leitið upplýsinga
Innflytjendur hafa dreift leiö-
beiningum til kaupenda um upp-
setningu girðinganna, en svo
virðist sem ekki sé hirt um að
fara eftir þeim. En eigendur eru
ábyrgir. Það er þeirra hagur að
fara eftir settum rcglum um upp-
setningu og frágang girðinganna:
1. Hafið samráð viö rafveitu
svæðis þess sem girða á og fáið
upplýsingar um legu jarðskauta
húsveitna og legu spennistöðv-
arskauta, svo og legu raf-
magns- og símastrengja. Fjar-
lægð rafgirðingar frá slíkum
lögnum skiptir meginmáli.
2. Fáið löggiltan rafverktaka til
að sjá um uppsetningu spennu-
gjafa, íagningu aðtauga að
girðingunni og tilkynnið upp-
setninguna til viðkomandi raf-
veitu.
3. Merking rafgirðinga meðfram
götuslóða eða vegi á að vera
þannig, að vel sjáist milli viö-
vörunarskiltanna. RER getur
útvegað þessi skilti. Skilti sem
innflytjendur nota jafnframt
sem auglýsingu fyrir sjálfa sig
eru ekki í samræmi við lög og
reglur.
4. Orðsending RER nr. 1/83 og
nr. 3/89 taka af öll tvímæli um
tæknilega útfærslu rafgirð-
inga, en eftirlitsmenn RER og
rafveitna um land allt vcita
allar nánari upplýsingar.
Rafmagnseftirlit ríkisins.
Endurreisn Þjóðleikhússins
í fuilum gangi
Framkvæmdir við endurreisn
Þjóðleikhússins gangá vel. Múr-
broti vegna lagfæringa og breyt-
inga er nær lokið og uppbygging
hafin af fullum krafti á vegum
ístaks, en menntamálaráðherra
og Páll Sigurjónsson forstjóri
ístaks hafa undirritað verksamn-
ing upp á urn 150 millj.kr. Búið
er að slá upp mótum fyrir nýjar
svalir og verða þær steyptar á
næstu dögum. Þá er búið að
panta ýmsan búnað sem þarf að
endurnýja og menntamálaráð-
herra og Stálhúsgögn hf. hafa
undirritað samning um smíði
stóla fyrir liðlega 15 millj. kr.
Þeir verða eins útlits eins og
gömlu stólarnir og með eins
áklæði, nýofnu. Framkvæmdum
við sal, ganga á annarri hæð og
Kristalssal verður lokið 15.
febrúar á næsta ári og þá hefst
leikstarfsemi í húsinu á ný. í
sumarlokun næsta sumar verður
síðan m.a. lokið við frágang á
göngum á jarðhæð, anddyri og í
Leikhúskjallaranum, en hins veg-
ar er gert ráð fyrir að Leikhús-
kjallarinn verði opnaður aftur í
næsta mánuði eftir lokun í sumar
vegna framkvæmdanna.
Vegna endurnýjunar og breyt-
inga á lögnum og öðrum þáttum í
innviðum Þjóðleikhússins má
segja að hluti hússins hafi verið
færður í fokhelt ástand, en nú er
niðurrif á lokastigi og vinna iðn-
aðarmanna á uppbyggingu hafin
af fullum krafti, eins og áður
segir.
Árni Johnsen hefur tekið við
formennsku í Bygginganefnd
Þjóðleikhússins, en Skúli Guð-
mundsson fráfarandi formaður
sinnir sérstaklega framkvæmda-
þáttum á vegum Framkvæmda-
deildar Innkaupastofnunar ríkis-
ins, sem hann veitir forstöðu.
Gunnar St. Ólafsson verk-
fræðingur, sent verið hefur verk-
efnisstjóri bygginganefndar lætur
af störfum í ágústmánuöi, en
umsjónarmaöur verkkaupa er
Gunnar Torfason ráögjafarverk-
fræðingur og annast hann eftirlit
ásamt Kolbeini Kolbeinssyni
staðarverkfræöingi. Að jafnaði
vinna um 30 manns daglega að
endurreisn Þjóðleikhússins í hús-
inu sjálfu en verða um 70 þegar
líða tekur á haustið.
(Frcttatilkynning).
—
AKUREYRARB/ER
Frá Vatnsveitu
Akureyrar
Frá og með 1. sept. n.k. er hægt að sækja
um tengingu við Vatnsveitu á skrifstofu Hita-
veitu Akureyrar Hafnarstræti 88b.
Þá er einnig hægt að sækja um á skrifstofu
Vatnsveitunnar á Rangárvöllum.
Ránargötubúðin auglysir!
Sjósiginn gæðafiskur, hákarl, saltfiskflök, rækjur, frosin
flök, fyrsta flokks Laxárlax, Hólmavaðsreyktur lax, stór-
lúðubitar, Mývatnssaltreyð, skötuselur, fiskfars.
Og með þessu fiskúrvali nýjar kartöflur, guilauga á
ágætu verði.
Opið alla daga frá 9.00 til 22.00.
Erum ekki dyrarí - bara minni.
Q/Tfl verslun-vinnsla
Ránargötu 10 • Sími 27122.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu við
andlát og útför,
BORGHILDAR JÓNSDÓTTUR
Þingvallastræti 2, Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Hjúkrunarheimilinu
Seli.
Jakob Frímannsson,
Jakob Frímann Magnússon, Borghildur Magnúsdóttir.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu,
GUÐBJARGAR BENEDIKTU KRISTINSDÓTTUR,
Vesturgötu 6, Ólafsfiröi.
Gylfi Jóhannsson,
Kristinn S. Gylfason, Fanney Jónsdóttir,
Stefán Veigar Gylfason, Sigríður Svansdóttir,
Steinunn S. Gylfadóttir,
Ruth Gylfadóttir, Víðir B. Björnsson,
Alda A. Gylfadóttir, Smári Sigurðsson
og barnabörn.
Útfararskreytlngar
Kransar-krossar - kistuskreytúigar
Sjáum um alla skrevtingu í kirkju/>
upangi Aku.cy.i
ímar 24800 og 24830
Þökkum hlýhug og samúð við andlát og útför,
STEFÁNSJÓHANNESSONAR.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks á hjúkrunarheimilinu Hlíð.
Börn hins látna og aðrir aðstandendur.