Dagur - 28.08.1990, Side 15
myndosögur dags
p-
ARLAND
..og meö húsvagn meö sjón-|
varpi og örbylgjuofni fyrir aft-J
an þigl!
ANDRES OND
HERSIR
Ég skal gera þetta sjálfur elskan ■
ég tek bara það nauðsynlegasta.
Guð ætlaði karlmönnum ekki að
pakka niður sjálfum.
BJARGVÆTTIRNIR
Snippet tekur til verka
með hnífnum sínum...
Varlega Matty! Haföu hendurnar fyrir
aftan bak þar til Snippet hefur losað^
# Horfnú
kýrnar
Það bar við á bæ einum í
Eyjafirði, seint á öldinni
sem leið, að þegar heimilis-
fólkið skundaði til fjóss árla
morguns í endaðan ágúst,
sást hvorki tangur né tetur
af kúnum. Þótti mönnum
þetta að vonum kyndugt og
litu hver á annan í ráðaleysi
og forundran án þess þó að
nokkur fyndi hjá sér hvöt til
að kenna hver öðrum um
hvarfið, enda heimilismenn
annáiuð prjiðmenni, guð-
hræddir og kirkjuræknir svo
af bár í héraðinu. Eftir
drykklanga stund áræddi þó
bóndinn að segja það sem
þeim öllum bjó í brjósti.
„Það er eitthvað bogið við
þetta, sennilega yfirnáttúru-
legt,“ sagði hann og greip til
buxnastrengs síns í þeim
tilgangi helstum að girða
vaðmálið betur í mittið.
Engum sögum fer af öðru
en honum hafi lukkast það.
• Vinnu-
maðurinn
Þrátt fyrir almenna' guð-
hræðslu viðstaddra datt
einhverjum í hug, óvíst hver
það var, að um náttúrulegar
orsakir væri að ræða.
Beindust böndin einna helst
að vinnumanninum, sem
auk þess að vera Þingeying-
ur, hafði heyrst blóta í laumi
einhverju sinni á næstliðn-
um áratug. Aukinheldur
hafði hann sýnt kúnum
óeðlilega mikinn áhuga, all-
ar götur síðan hann kom
fyrst á bæinn. Kvað svo,
rammt að þessu um tíma að
kýrnar voru orðnar ansi
hvumpnar í viðmóti.
En hvað um það, gengið var
á vinnumanninn og hann
krafinn sagna um ferðir sín-
ar um nóttina. Vinnumaður
kvaðst hafa legið sofandi á
fleti sínu alla nóttina og frá-
leitt farið úr húsi. Báru
menn brigður á þessar
útskýringar hans, þar eð
hann var alræmdur fyrir að
ganga um á nóttunni, þrátt
fyrir að hann hafi alltaf neit-
að þvílíkum aðdróttunum
og sagst hafa verið sofandi.
Stormaði bóndi og lið hans
inn í húsið og að fleti vinnu-
manns. Og viti menn, undir
rúminu lágu rótnagaðar
beinagrindur fjörutíu kúa og
var greinilegt á öllu að
nokkur svengd hafi gripið
vinnumann um nóttina og
hann lagt sér kýrnar til
munns með húð og hala.
Eftir sem áður hélt vinnu-
maður því fram að hann hafi
ekki brugðið blundi alla
nóttina en sönnunargögnin
voru slík aö heimilisfólkið
réð sér ekki fyrir bræði,
stökk á vinnumanninn og
reif hann í sig. Slæmt þótti
mönnum þó að hafa enga
mjólk til að skola máltíðinni
niður með. Segir svo ekki
meira af því.
Þriðjudagur 28. ágúst 1990 - DAGUR - 15
dagskrá fjölmiðla
Sjónvarpid
Þridjudagur 28. ágúst
17.50 Syrpan (18).
18.20 Beykigróf (4).
(Byker Grove.)
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Yngismær (143).
19.20 Hver á ad ráöa? (8).
(Who's the Boss.)
19.50 Dick Tracy.
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Allt í hers höndum.
(Allo, Allo).
Þáttaröö um gamalkunnar, seinheppnar
hetjur andspyrnuhreyfingarinnar og mis-
greinda mótherja þeirra.
20.55 Á langferðaleiðum (3).
Þriðji þáttur: Á slóðum Hó Sjí Mínhs.
í þessum breska heimildarmyndaflokki er
slegist i för með frægu fólki eftir fornum
verslunarleiðum og fleiri þjóðvegum
heimsins frá gamalli tið.
21.50 Ef að er gáð.
Þvagfæravandamál.
í þessum þætti fjalla þær Guðlaug Maria
Bjarnadóttir og Erla B. Skúladóttir um
þvagfæravandamál sem sum börn eiga
við að striða en Gestur Pálsson læknir
aðstoðaði þær við handritsgerðina.
22.05 Samsæri (1).
(A Ouiet Conspiracy).
Fyrsti þáttur.
Breskur spennumyndaflokkur i fjórum
þáttum, byggður á sögu Erics Amblers.
Maður að nafni Carter er ritstjón frétta-
bréfs, sem gefið er út í Strassbourg, en
hann man sinn fífil fegurri. Vinnuveitandi
hans deyr í bílslysi en þegar Carter fer aö
rannsaka málið kemst hann aö því að
maðkar eru í mysunm.
Aðalhlutverk: Joss Ackland, Sarah
Winman, Jack Hedley og Mason Adams.
23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok.
Stöð 2
Þriðjudagur 28. ágúst
16.45 Nágrannar.
17.30 Krakkasport.
17.45 Einherjinn.
18.05 Mímisbrunnur.
(Tell Me Why.)
18.35 Eðaltónar.
19.19 19:19.
20.30 Neyðarlinan.
(Rescue 911.)
21.20 Ungir eldhugar.
(Young Riders.)
22.10 Tracy.
Áströlsk framhaldsmynd um hvirfilbylinn
Tracy sem lagði borgina Darwin í rúst.
Lokaþáttur:
Aðalhlutverk: Chris Haywood, Tracy
Mann og Nicholas Hamrnond.
23.45 Sofið hjá.
(Cross My Heart).
Þetta er mannleg gamanmynd um þau
David og Kathy sem bæði eru einhleyp og
eru að fara á sitt þriðja stefnumót.
Aðalhlutverk: Martin Short, Annette
O'Toole, Paul Reiser og Joanna Kerns.
Bönnuð börnum.
01.15 Dagskrárlok.
Rás 1
Þriðjudagur 28. ágúst
6.45 Veðurfregnir Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið.
Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15. Auglýsingar
laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn - „Á Saltkráku"
eftir Astrid Lindgren.
Silja Aðalsteinsdóttir les (17).
9.20 Morgunleikfimi - Trimm og teygjur.
9.30 Landpósturinn - Frá Vestfjörðum.
10.00 Fréttir.
10.03 Þjónustu- og neytendahorniö.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur.
11.53 Á dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit.
Daglegt mál.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Dánarfregnir • Aug-
lýsingar.
13.00 í dagsins önn - Barnaheimilið
Ástjörn.
13.30 Miðdegissagan: „ManiUareipið“ eft-
ir Veijo Meri.
Eyvindur Erlendsson les (7).
14.00 Fréttir.
14.03 Eftirlætislögin.
15.00 Fróttir.
15.03 Basil fursti - konungur leynilög-
reglumannanna.
16.00 Fréttir.
16.03 Aö utan.
16.10 Dagbókin.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi.
18.00 Fréttir.
18.03 Sumaraftann.
18.30 Tóniist • Auglýsingar • Dánarfregnir.
18.45 Veðurfregnir • Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar.
19.32 Kviksjá.
20.00 Fágæti.
20.15 Tónskáidatími.
21.00 Innlit.
21.30 Sumarsagan: „Á ódáinsakri" eftir
Kamala Markandaya.
Einar Bragi les þýðingu sína (5).
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan.
22.15 Veðurfregnir • Orð kvöldsins.
22.30 Leikrit vikunnar: „Simavinir" eftir
Jónas Jónasson.
23.15 Djassþáttur.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur.
01.00 Veðurfregnir.
Rás 2
Þriðjudagur 28. ágúst
7.03 Morgunútvarpið - Vaknað til lifsins.
' Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson
hefja daginn með hlustendum.
08.00 Morgunfróttir.
- Morgunútvarpið heldur áfram.
Heimspressan kl. 8.25.
09.03 Morgunsyrpa.
11.03 Sólarsumar
með Jóhönnu Harðardóttur.
- Þarfaþing kl. 11.30.
12.00 Fréttayfirlit.
12.20 Hádegisfréttir.
- Sólarsumar heldur áfram.
14.10 Brot úr degi.
16.03 Dagskrá.
- Veiðihornið rétt fyrir kl. 17.00.
18.03 Þjóðarsálin.
- Þjóðfundur i beinni útsendingu, sími 91-
686090.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Zikk zakk.
20.30 Gullskifan.
21.00 Nú er lag.
22.07 Landið og miðin.
01.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Fréttir eru sagðar kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9,
10, 11,12,12.20, 14,15, 16, 17,18, 19, 22
og 24.
Næturútvarpið
01.00 Nætursól.
02.00 Fréttir.
02.05 Gleymdar stjörnur.
03.00 í dagsins önn.
03.30 Glefsur.
04.00 Fréttir.
04.03 Vélmenniö.
04.30 Veðurfregnir.
- Vélmennið heldur áfram leik sinum.
05.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
05.01 Landið og miðin.
06.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
06.01 Áfram ísland.
Ríkisútvarpið á Akureyri
Þriðjudagur 28. ágúst
8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.35-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Bylgjan
Þriðjudagur 28. ágúst
07.00 Eiríkur Jónsson og talmálsdeild
Bylgjunnar.
09.00 Fróttir.
09.10 Páll Þorsteinsson.
11.00 Valdis Gunnarsdóttir.
14.00 Snorri Sturluson.
17.00 Síðdegisfréttir.
17.15 Reykjavík síðdegis.
18.30 Haraldur Gislason.
22.00 Ágúst Héðinsson.
02.00 Freymóður T. Sigurðsson.
Hljóðbylgjan
Þriðjudagur 28. égúst
17.00-19.00 Axel Axelsson.