Dagur - 08.09.1990, Page 5

Dagur - 08.09.1990, Page 5
Laugardagur 8. september 1990 - DAGUR - 5 Nú er blessað haustið að hell- ast ylir landsmenn með roki, rigningu, litadýrð og sláturtíð. Þá fer meira að gerast í bæjar- pólitík, menningarmálum og skólamálum og fréttirnar breytast í samræmi við það. En nú ætlum við að rifja upp frétt- ir Dags í ágúst og leggja fyrir ykkur létta getraun, Iesendur góðir. Formið þarf ekki að kynna, þið setjið bara viðeig- andi tákn á svarseðilinn og sendið okkur fyrir 3. október. Við drögum síðan úr réttum lausnum og veitum þrenn hljómplötuverðlaun. 1) Greint er frá því að grillveisl- ur hafi orðið að engu. Hver er skýringin á því? (1) Gráðugir og friðaðir hettu- mávar og bræður þeirra voru sólgnir í grillketið. (X) Gölluð grillolía var sett á markaðinn og blossaði upp bál þegar síst skyldi. (2) Lambakjötið sem vinsælast var á grillið reyndist oftar en ekki skemmt og því urðu grillveislur að engu í miðju kafi. 2) Sýning sem haldin var á Akur- eyri var í fyrirsögn kölluð „sorp- sýning.“ Hvers vegna? (1) Hér var um að ræða grafík- sýningu sem féll í heldur grýttan jarðveg. Var henni gefið þetta nafn í lesendabréfi. (X) Þetta var gjörningur sem framin var á sorphaugum Akur- eyrar og þar kom glögglega fram að það er hægt að búa til marga skemmtilega hluti úr sorpi. (2) Landvernd setti upp sýningu í Búnaðarbankanum þar sem m.a. mátti sjá sorp og ýmsar upp- lýsingar um mengun og endur- vinnslu. Vinningshafar ífrétta- getraun júhmánaðar Þegar dregið var úr réttum svörum í fréttagetraun júlí- mánaðar komu eftirtalin nöfn úr kassanum: Jóhann Sig- valdason, Norðurbyggð 9, Akureyri. Halldóra Snorra- dóttir, Stóra-Dunhaga, Hörg- árdal. Rannveig Ragnarsdótt- ir, MunkaþverárStræti 34, Akureyri. Ekki voru allir með 12 rétta að þessu sinni en rétt röð í júlí- getrauninni var þessi: 1. X 1 X 2 7. X 8. 1 9. 2 10. X 11. 2 12. X 3) Hvers vegna töfðust fram- kvæmdir við Olafsfjarðargöngin í ágústmánuði? (1) Magnaðir reimleikar skutu starfsmönnum skelk í bringu og gátu þeir ekki þolað við í göngunum í hálfan mánuð. Sótt- ist verkið mjög seint á þessu tímabili. (X) Töfin má rekja til þess að nokkrar vinnuvélar biluðu á sama tíma. (2) Vatnsmagnið í göngunum var mun meira en gert hafði verið fyrir og því þurfti að auka og þétta klæðningu. 4) Nýtt hótel er í undirbúningi á Akureyri. Hvar? (1) í Raforkuhúsinu við Glerár- götu. (X) f Skjaldborgarhúsinu við Hafnarstræti. (2) í nýbyggingu sem byrjað er á við göngugötuna. 5) Hvernig komu Norðlendingar út úr könnun á reykingum grunn- skólanema? (1) Grunnskólanemar á Norður- landi reykja áberandi minnst. (X) Stúlkur á Norðurlandi reykja mest allra á eftir stöllum sínum í Reykjavík en drengirnir eru neðstir á blaði. (2) Grunnskólanemar á Norður- landi eystra reykja meira en jafn- aldrar þeirra í öðrum landshlut- um, þrátt fyrir að dregið hafi nokkuð úr reykingum meðal þeirra. Útkoman á Norðurlandi vestra var ívið betri. 6) Hvað sagði stjórnarformaður Hraðfrystihúss Keflavíkur eftir að ákveðið var að selja Útgerðar- félagi Akureyringa Aðalvíkina? Lesendur fá þakkir fyrir þátt- tökuna og vinningshafar fá að vanda sendan úttektarseðil á hljómplötu í Hljómdeild KEA í verðflokki 07, en hann hét áður 09. Nú er upplagt að krækja sér í plötu fyrir áramót, enda hægt að nota þær sem jólagjafir ef svo ber undir. SS Gjaldskrá Stnetisvagna Akureyrar (1) „Hér er stigið mikið óheilla- spor í atvinnumálum á Suður- nesjum og er hætt við að landið sporðreisist ef við fáum ekki álver í staðinn." (X) „Við erunt einu skipi fátæk- ari." (2) „Þið eruð einu skipi ríkari, Akureyringar." 7) Hver sigraði í Akureyrarriðli íslandsmótsins í atskák? (1) Gylfi Þórhallsson. (X) Rúnar Sigurpálsson. (2) Kári Elíson. tist og komu börn þar við sögu. 8) Hvaða þrjú verk mun Leikfé- lag Akureyrar setja upp í Sam- komuhúsinu í vetur? (1) Farsa eftir Böðvar Guð- mundsson sem nefnist Ættarmót- ið, söngleikinn Kysstu mig Kata og nýtt leikrit um utangarðsmenn eftir lítt þekktan Akureyring. (X) Ærslaleikinn Fló á skinni, söngleikinn Óperudrauginn og nýtt stofudrama eftir Guðmund Steinsson. (2) Söngleikinn um Kátu ekkj- una, nýtt íslenskt leikrit eftir óþekkt leikskáld á Akureyri svo og Fjalla-Eyvind Jóhanns Sigur- jónssonar. 9) Hvað sagði Jóhann Stefáns- son eftir að hafa vígt nýju sund- laugina á Grenivík? (1) „Þetta er í lagi meðan maður nær til botns." (X) „Aldurinn skiptir engu þeg- ar sundið er annars vegar." (2) „Ég vildi að ég væri aðeins yngri." 10) Nýtt hús var vígt við hátíð- lega athöfn á Kópaskeri. Hvaða hús? (1) Seinni áfangi heilsugæslu- stöðvarinnar. (X) Nýuppgert sláturhús Fjalla- lambs hf. (2) Nýbygging Pósts og síma. 11) Strætisvagnar Akureyrar boðuðu breytta gjaldskrá. í spurningu nr. 11.) hverju eru breytingarnar fólgnar? (1) Barnafargjöld gilda upp að 16 ára aldri í stað 12 áður. (X) Foreldrar fá magnafslátt ef þeir ferðast nteð þrjú börn eða flciri. (2) Grunnskólanemar fá frítt í strætó gegn framvísun skóla- skírteina. 12) Ekkert varð af sameiningu yfirstjórna ístess og Krossaness. Ilvaö sagði framkvæntdastjóri ístess eftir að þetta varð Ijóst? (1) „Við lögðum fram ákveðnar tillögur unt sameiginlega yfir- stjórn sent hefði sparað báðum fyrirtækjunum mikið fé. Því mið- ur virtust Krossanessmenn ekki hafa neinn áhuga og harma ég þessa niðurstöðu." (X) „Við hefðum kosið að fara lengra með málið og athuga bet- ur hvort ekki væri flötur fyrir meira og nánara samstarfi. Hins vegar hefur stjórn Krossaness ekki hlaupið undan merkjum og við höfurn ekkert upp á þá að klaga." (2) „Við teljunt að fyrirtæki með álíka starfsemi sem standa vegg í vegg geti ekki komist hjá sam- starfi. Það var mikill ágreiningur um málið í stjórn Krossaness, en þótt niðurstaðan hafi orðið þessi vil ég ekki gefa hugmyndina endanlega frá mér." SS Einn riðill íslandsinótsins í atskák var haldinn á Akureyri. Hver skyldi nú hafa sigrað? (Spurning nr. 7.) 1. Svarseðill (1, X eða 2) 7. 2. 8. 3. 9. 4 10. 5. 11. 6. _ 12. Nafn: Heimilisfang: Sími: Póstnúmer: Utanáskriftin er: Dagur - fréttagetraun, Strandgötu 31 ■ Pósthólf 58 ■ 602 Akureyri Fréttagetraun ágústmánaðar

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.