Dagur - 13.09.1990, Síða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 13. september 1990
RÉTTARDAGUR:
Hraunsrétt
í Aðaldal
Réttað var í Hraunsrétt í Aðaldal sl. mánudag í fallegu haustveðri. Það var
þurrt og hlýtt og væsti hvorki um menn né skepnur. Undirbúningur fyrir
réttarferðina hjá blaðamanninum hófst kvöldið áður með leit að gúmmístíg-
vélum í geymslunni. Aðrir fjölskyldumeðlimir hafa líklega öfundað konu
sem gæti látið það eftir sér að skreppa í réttir í vinnutímanum. AHtjent vant-
aði ekki stríðnina og ýmiss konar búnaður var boðinn til láns fyrir ferðalagið
- lopapeysa, regngalli, sjóstakkur og húsbóndinn sagði: „Það þýðir ekkert
fyrir þig að leita að þessum stígvélum en ég skal lána þér bússurnar mínar. í
réttinni pissa rollurnar bara niður í stígvélin þín. Það eru allir á bússum í
réttum.u Ekkert þessara góðu boða um búnað var þegið, og í réttina var farið
þrátt fyrir viðvaranir um óskemmtilegar aðstæður sem fólk gæti lent í á slík-
um stöðum. Réttarferð er veisla fyrir skynfærin; það er margt skemmtilegt
sem ber fyrir augað, eyrað heyrir þennan sérstæða margradda klið frá mönn-
um og skepnum, sem gefa frá sér lykt sem blandast anganinni af gróðrinum
og kaffísopinn bragðast sérlega vel við réttarvegginn. Blaðamaður ræddi við
nokkra heimamenn og gesti, naut þess að fylgjast með lífínu í Hraunsrétt og
hélt síðan heim í þurrum stígvélum, en með þrjá marbletti - því að framan á
rollum eru horn.
Finnar á Hraunsrétt:
Iikt réttum í Lapplandi
Ingimundur Jónsson, yfirkenn-
ari viö Framhaldsskólann á
Húsavík var í Hraunsrétt sem
fararstjóri 31 Finna frá Riihim-
aki, vinabæjar Húsavíkur í Finn-
landi. Ingimundur var spurður
hvað Finnar væru að gera á rétt-
um í Aðaldal.
„Þetta er bekkur sem undir-
búið hefur heimsókn til íslands í
tvö og hálft ár, en þau eru nú á
sínu síðasta ári í grunnskóla. Þau
eru búin að vera tvo daga í
Reykjavík, en komu til Húsavík-
ur í gærkvöld og verða þrjá daga
hjá okkur og dvelja á heimilum
jafnaldra sinna. Hópnum fylgja
tveir kennarar, nokkrir foreldrar
og fulltrúar frá Norræna félaginu
og bænum."
- Hvernig líst gestunum á
réttarmenninguna?
„Ég heyri það á fullorðna fólk-
inu að þetta er mikið ævintýri fyr-
ir það, því það er fátt um fé í
Finnlandi. Á eftir förum við í
Mývatnssveit og við erum mjög
heppin með veðrið í dag miðað
við það sem verið hefur að
undanförnu."
- Ert þú vanur að skreppa í
réttir á haustin?
„Nei, ég hef afskaplega lítið
gert af því svo þetta er eiginlega
líka nýtt fyrir mér. Réttir eru
auðvitað ekki svipur hjá sjón
miðað við það sem var áður, en
nú er féð ekki nema einn þriðji á
við það sem var þegar flest var í
réttinni. Svo er enginn maður
drukkinn og ekkert slegist og það
er óttaleg ómynd. Þó fylgir þessu
alltaf viss stemmning."
Nú var verið að reka síðustu
kindurnar úr safnhringnum í
almenninginn en ein tók sig út úr
hópnum og freistaði þess að
komast til fjalls á ný. Einn Finn-
anna, líffræðikennari, tók sprett-
inn á eftir kindinni en hún hljóp
alla af sér þar til óþreyttir
unglingar tóku við og kindin náð-
ist lafmóð eftir mikinn eltingar-
leik. Dagur spurði kennarann,
sem komst í svo nána snertingu
við réttarstemmninguna, hvort
hann hefði hug á að gerast fjár-
bóndi á íslandi. Hann sagði svo
ekki vera en það hefði verið mjög
skemmtileg reynsla að eltast við
kindina. Lofaði hann dásemdir
Aðaldalsins og sagðist ekki hafa
gert sér grein fyrir hinni miklu
fegurð landsins fyrr. Kennarinn
mun eflaust seint gleyma sprett-
inum á eftir aðaldælsku rollunni,
en hann hafði þó komið í réttir
fyrr því í sl. haust var hann í
Lapplandi er hreindýr voru rekin
í rétt. Fannst honum margt líkt
með réttardegi Aðaldælinga og
Lappa en spurði þó af hverju
íslendingar notuðu ekki langa
stafi eins og Lapparnir hefðu til
að ná hreindýrunum með því að
krækja í hornin á þeim. IM
„Ákaflega hraust og fallegt fé,“
Bárður Guðmundsson dýra-
læknir Þingeyjarumdæmis eystra
var mættur í Hraunsrétt og Dag-
ur spurði hvort hann væri í em-
bættiserindum eða sér til ánægju.
„Það er nú bæði og. Vegna
riðuveikinnar sem fundist hefur
kem ég hér og kíki eftir hvort
finnast einhverjar ær sem eru
með einkenni. Einnig fæ ég
spurningar um eitt og annað. Og
svo er ég hér líka mér til ánægju.
Ég er fæddur og alinn upp við
þetta og læt réttir aldrei fara fram
hjá mér.“
- Ferðu í göngur?
„Ég fór í gær í eina tvo tíma
hér niður í hraunið á hesti, en í
gamla daga var ég vanur að
hlaupa í fjöllunum.“
- Hefur þú séð nokkuð alvar-
legt að fénu í haust?
„Nei, mér sýnist þetta ákaflega
segir Bárður dýralæknir
Bárður Guðniundssun, dýralæknir.
hraust og fallegt fé sem kemur af
fjalli. Ærnar eru feitar og lömbin
feit, að vísu ekki mjög stór að sjá
svo ég veit ekki hvernig verður
með O-flokkinn.
Hér var fé skorið niður vegna
riðu ’86 og nokkrir bæir í viðbót
hafa verið að koma á hverju ári.
Þeim fer fækkandi og ég vona að
það náist fyrir þetta, það getur þó
verið að tínast eitthvað úr í tíu ár
frá niðurskurði en eftir það vona
ég að við finnum ekki mikið af
riðu.“
- Hvað skapar þessa sérstöku
réttarstemmningu að þínu mati?
„Ætli það sé ekki þegar fólk
kemur saman svona einu sinni á
ári. Það hafa allir gaman af að
koma og vera innan um féð og
draga það í dilkana. Fólk á öllum
aldri hefur gaman af þessu og
maður mætir alltaf hérna.“ IM
Ein dregin í
Finnskur kennari frá Riihimáki og Ingimundur Jonsson.
Friðjón hreppstjóri á Sandi:
Á sjötugsafmælinu
í Hraunsrétt
Friðjón Guðmundsson hrepp-
stjóri á Sandi lét sig ekki vanta í
réttina þó að hann ætti merkisaf-
mæli, væri sjötugur á réttardag-
inn.
Friðjón hefur sjaldan látiö sig
vanta í Hraunsrétt og hann hefur
verið talsmaður fyrir því að rétt-
inni yrði haldið við og hún notuð
í stað þcss að byggö yrði ný.
Hraunsrétt er hlaðin úr hraun-
grýti og var byggð um 1830.
„Á tímabili var bygging nýrrar
réttar á dagskrá en ég var á móti
því og vildi endurbæta réttina því
þaö væri svo mikil söguleg hefö
að halda henni við. Mönnum
fannst réttin í niðurníðslu og að
erfitt væri að halda henni viö
vegna þess að hér flæddi vatn á
veturna og veggirnir færu illa á
því. Það var hlaðin fyrirstaða við
ána svo vatnsrennslið inn á svæð-
ið minnkaði og síðan var gólfið í
réttinni hækkað svo vatnið stæði
ekki eins liátt. Reynir Vilhjálms-
son, landslagsarkitekt var feng-
inn til að hanna verkið en það er
ekki búið að framkvæma mikið af
úrbótunum. Nú er samdráttur í
sauðfjárframleiðslu og minni
hugur í mönnum aö gera stóra
hluti."
- Hvernig líst þér á féð í rétt-
inni?
„Ég er ekki mikill fjármaöur
en mér sýnist þaö nokkuö fallegt,
ekki mjög vænt en í góöu
standi." IM
Friðjón Guðmundsson, hreppstjóri
á Sandi.