Dagur - 13.09.1990, Page 9
Fimmtudagur 13. september 1990 - DAGUR - 9
- segir Dagur í Haga
- Nú ert þú fæddur og uppal-
inn hér í Aöaldalnum, varstu
ungur þegar þú fórst fyrst í réttir?
„Ég held að ég hafi ekki farið
fyrr en ég var níu eða tíu ára. Þá
var ekki farið á bílum og ekki far-
ið með eins ung börn og nú, en
hér eru nokkurra mánaða gömul
börn í dag. Síðan ég kom fyrst í
réttina hef ég aldrei sleppt
réttum. Það er stemmning sem
fylgir því að fá féð heim af fjalli
og hún hefur fylgt öllum réttum
frá ómunartíð. í Hraunsrétt er
alltaf mikill mannfjöldi og
umhverfið og réttin sjálf er
óvenjuleg ntiðað við það sem ég
þekki annars staðar."
- Það var hér Húsvíkingur að
hafa orö á því að menn væru
hættir að súpa á glasi og syngja,
og enginn væri lengur fullur í
réttunum.
„Þaö hefur dregið mjög úr því
og þó er þetta ekki alveg horfið
þvf ég hef nokkrum sinnum séð
fleyg hér á lofti. Þaö er ekkert
MORATEMP
Dagur Jóhannesson, oddviti í
Aðaldal, var spurður hvort
oddvitinn hefði einhverjum sér-
stökum skyldum að gegna á
réttardaginn.
„Engum sérstökum nema að
draga sitt fé. Réttarstjóri er í
raun einvaldur á réttinni, en það
er Hólmgrímur Kjartanssson frá
Hrauni. Réttarstjóri er eins og
skipstjóri á skipi. Gangnaforingi
í Þeistareykjagöngum, sem eru
okkar aðalgöngur, er Agnar
Kristjánsson í Norðurhlíð. Þetta
eru þriggja daga göngur."
- Fórst þú í göngurnar?
„Nei, ég var að vinna við við-
gerð á réttinni og það voru að
hluta mín gangnaskil. Ég veit þó
að göngurnar gengu vel, hægt en
mjög vel. Það er talið að hér séu>
nú á fimmta þúsund fjár og lík-
lega eru heimtur góðar því það
smalaðist vel. Lömbin eru frekar
smá en sæmilega feit."
farið að syngja og ég er ekki viss
um að það verði. Það liggur mjög
vel á mönnum hér en vantar for-
söngvara."
- Nú er mjög gestkvæmt í
réttinni, hvað finnst Aðaldæling-
um um það?
„Það er til að einum og einum
manni finnist þetta of mikið en
mér finnst það nauðsynlegur
hluti af Hraunsrétt að hér séu
sem allra flestir gestir. Það er
mikið atriði að fólk - hvort sem
það býr í sveit eða kaupstað - fái
að kynnast svona degi.“ IM
Dagur Jóhannesson, oddviti í Haga, oddvitahundurinn Neró og Þórhildur Sigurðardóttir húsfreyja í Haga.
AUÐSTILLT
MORATEMP blöndunar-
tækin eru með auðveldri
einnar handar stillingu á
hitastigi og vatnsmagni.
MORA sænsk gæða-
vara fyrir íslenskar
aðstæður.
meiri ánægja
DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI
SÍMI (96)22360
Vil hafa sem
flesta gesti
I
i