Dagur - 19.09.1990, Blaðsíða 10

Dagur - 19.09.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 19. september 1990 myndasögur dags ÁRLANP Viö skulum sjá... Zinkpasta á nefið... Varasalva meö ...og loks ...sólarolíu númer 2 meö sítrónuilmi svo maö- ur verði brúnn og sætur. o ANDRÉS ÖNP BJARGVÆTTIRNIR Koban, innfæddi leiðsögumaöurinn notfæröi sér augnabliks hrifningu Ted ogMatty af górillunum... ffikj # Fótbolti og aftur fótbolti Hvar sem menn hittast þessa dag- ana á Akureyri þá er rætt um knatt- spyrnu. Þór er fallið niður í aðra deild og KA, meistararnir frá í fyrra, héldu vart haus, en löfðu þó í deildinni. Hvað er að? Áhuga- menn um knattspyrnu á Akureyri spyrja æ ofaní æ þessarar sömu spurningar og margur er sár. Til hvers að vera sár? Sérhver góður íþróttamaður verður að kunna að taka tapi jafnt í fótbolta sem öðr- um íþróttum og nú er aðeins að herða upp hugann og bæta sig og mæta til leiks næsta sumar vel þjálfaður og harður í skallann. Vissulega ber framámönnum íþróttarinnar á Akureyri að búa mönnum sínum betur i haginn, því vissulega er það rétt sem margur bendir á, að aðstæður til iðkunar knattspyrnu eru miklu verri á Akureyri en í Reykjavík. Þetta ber að athuga og laga. Meinið er þó örugglega djúpstæð- ara. Knattspyrnufélögin, bæði, hafa ekki sýnt ungu mönnunum í yngri flokkunum nægilegan skiln- ing og trúnað. Of oft hefur ungur spilari ekki komist í úrvalsliðið vegna þess að aðfenginn leikmað- ur er sóttur til Reykjavikur til að spila boltann með liðinu knáa í norðri. Sé þannig haldið á málum myndast ekki stöðugleiki i liðinu, leikmennirnir að sunnan stoppa stutt við, aðeins sumarlangt, og efnilegu spilararnir okkar frá Akur- eyri hætta æfingum. Betra er að fara í aðra íþróttagrein þar sem þeir fá að njóta sín og sá sem þetta ritar veit að þetta er sannleikur. Já, forráðamenn knattspyrnu á Akur- eyri, byggið upp ykkar menn og ykkar bolta, efniviðurinn er fyrir hendi og það sem fæst í Reykjavík er ekki það besta. • CSKA Sofia og KA Og þá er það Evrópukeppni meist- araliða í kvöld. Margur áhangandi KA er kvíðinn, sem vonlegt er. Þetta meistaralið frá Búlgaríu er sagt gott og hugsið ykkur, KA er búið að tapa tvisvar í röð fyrir erki- fjendunum Þór, sem eru fallnir í aðra deild. í ágústmánuði 1919 unnu islend- ingar stórkostlegan sigur á Dönum, en þá voru brögð höfð með í tafli. Við minnumst þessa leiks og þannig var sagt frá honum í dagblöðunum: „Svona var i fáum orðum liðið, sem gerði það, sem enginn bjóst við. En ótalið er ennþá það, sem mestu réð um úr- slit leiksins, og heitir það harð- sperrur. Heimboðsnefndin sá, að eina ráðið til þess, að A.B. gæti fengið slæma útreið, var að fara með Danina í „útreiðartúr“! Þetta hreif, og í fyrrakvöld, þegar þeir komu úr Firðinum, voru þeir allir iiðamótalausir um hnén, og það, sem snert hafði hnakkinn, eins og glóandi eldhaf.“ Þannig fórum við nú með Danina og væri ekki ráð fyrir KA að semja við hestamenn úr Létti um svo sem einn lítinn reiðtúr út Hiíðina og þá er sigurinn jjkkar. dagskrá fjölmiðla Sjónvarpið Miðvikudagur 19. september 17.50 Síðasta risaeðlan (21). (Denver, the Last Dinosaur.) 18.20 Rósa fer til borgarinnar. Bandarísk teiknimynd. 18.50 Táknmálsfréttir. 18.55 í lausu lofti (1). (The Adventures of Wally Gubbins). Breskur myndaflokkur um fallhlífarstökk og myndatöku í háloftunum. 19.20 Staupasteinn (5). (Cheers.) 19.50 Dick Tracy. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Grænir fingur (22). í Lóni. í þættinum verður rætt við Sigurlaugu Árnadóttur í Hraunkoti í Lóni en hún er þjóðkunn fyrir ræktun sína. 20.45 Blóðlitað haf. (Sea of Slaughter.) Seinni hluti. Kanadísk heimildamynd um þróun lífríkis sjávar eins og hún kemur umhverfis- verndarsinnanum Farley Mowat fyrir sjónir. 21.35 Skærur. (Weekend). Frönsk-ítölsk bíómynd frá 1967 um konu sem ætlar sér að verða skæruliði. Aðalhlutverk: Mireille Darc, Jean Yanne, Jean-Pierre Kalfon og Valerie Lagrange. Atriði í myndinni eru ekki við hæfi barna. 23.00 EUefufréttir. Skærur framhald. 23.30 Dagskrárlok. Stöð 2 Miðvikudagur 19. september 16.45 Nágrannar. 17.30 Skipbrotsbörn. (Castaway.) 17.55 Albert feiti. 18.20 Tao Tao. 18.45 í sviðsljósinu. (After Hours.) 19.19 19:19. 20.10 Framtíðarsýn. (Beyond 2000.) 21.00 Lystaukinn. 21.30 Okkar maður. í þættinum ræðir Bjarni Hafþór við Kristján Tryggvason en hann hefur verið blindur síðan um fermingu. Kristján, sem er sjötugur, starfar sem smiður á eigin verkstæði á Akureyri. 21.45 Spilaborgin. (Capital City.) Nýr breskur framhaldsmyndaflokkur um fólk sem vinnur á verðbréfamarkaði. Menn geta grætt milljón fyrir hádegi en smá hik getur þýtt milljónatap. Fólkið lifir hratt og flýgur hátt en vitneskjan um hugsanlegt hrap er alltaf fyrir hendi. Þetta er annar þáttur. 22.35 Tíska. (Videofashion.) 23.05 Hjálparsveitin. (240 Robert). Spennumynd sem greinir frá ævintýraleg- um björgunaraðgerðum hjálparsveitar nokkurrar. Hún hefur tekið tæknina í þjónustu sína og notar þyrlu óspart til að komast að fórnarlömbum slysa. Þó geta komið upp erfiðleikar við björgunarstörf, s.s. þegar fíkniefnasmyglarar vilja hreint ekki láta bjarga sér. Aðalhlutverk: John Bennett Perry, Mark Harmon og Joanna Cassidy. 00.15 Dagskrárlok. Rás 1 Miðvikudagur 19. september 6.45 Veðurfregnir • Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Auglýsingar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00. 9.00 Fréttir. 9.03 Litli barnatíminn: „Á Saltkráku" eftir Astrid Lindgren. Silja Aðalsteinsdóttir les (33). 9.20 Morgunleikfimi - Trimm og teygjur. 9.30 Landpósturinn - Frá Norðurlandi. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Úr bókaskápnum. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. 11.53 Á dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir • Dánarfregnir • Aug- lýsingar. 13.00 í dagsins önn. 13.30 Miðdegissagan: „Ake" eftir Wole Soyinka. Þorsteinn Helgason les (12). 14.00 Fréttir. 14.03 Harmonikuþáttur. 15.00 Fréttir. 15.03 Sumarspjall. 16.00 Fréttir. 16.03 Að utan. 16.10 Dagbókin. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á síðdegi. 18.00 Fréttir. 18.03 Sumaraftann. 18.30 Tónlist • Auglýsingar • Dánarfregnir. 18.45 Veðurfregnir • Auglýsingar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Auglýsingar. 19.32 Kviksjá. 20.00 Fágæti. 20.15 Samtímatónlist. 21.00 Á ferð. 21.30 Sumarsagan: „Hávarssaga ísfirð- ings." Örnólfur Thorsson les (3). 22.00 Fréttir. 22.07 Að utan. 22.15 Veðurfregnir • Orð kvöldsins. 22.30 Suðurlandssyrpa. 23.10 Sjónaukinn. 24.00 Fréttir. 00.10 Samhljómur. 01.00 Veðurfregnir. Rás 2 Miðvikudagur 19. september 7.03 Morgunútvarpið - Vaknið til lífsins. Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson hefja daginn með hlustendum. 08.00 Morgunfréttir. - Morgunútvarpið heldur áfram. 9.03 Morgunsyrpa. 11.03 Sólarsumar með Jóhönnu Harðardóttur. - Þarfaþing kl. 11.30. 12.00 Fréttayfirlit. 12.20 Hádegisfréttir. - Sólarsumar heldur áfram. 14.10 Brot úr degi. 16.03 Dagskrá. 17.30 íþróttarásin - Evrópukeppni bika- rhafa og meistaraliða í knattspyrnu. íþróttafréttamenn lýsa leikjum: Fram og Djurgaarden frá Svíþjóð sem fram fer á Laugardalsvelli og leik KA og Sredetz Sof- ia frá Búlgaríu sem fram fer á Akureyrar- velli. 18.03 Þjóðarsálin. Þjóðfundur í beinni útsendingu, sími 91- 686090. 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Lausa rásin. 20.30 Gullskífan. 21.00 Úr smiðjunni. 22.07 Landið og miðin. 01.00 Næturvakt á báðum rásum til morguns. Fréttir eru sagðar kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24. Næturútvarpið 1.00 Með grátt í vöngum. 2.00 Fróttir. 2.05 Næturtónar. 3.00 í dagsins önn. 03.30 Glefsur. 4.00 Fréttir. 4.03 Vélmennið. 4.30 Veðurfregnir. Vélmennið heldur áfram. 5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam- göngum. 5.01 Landið og miðin. 6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam- göngum. 6.01 Áfram ísland. Ríkisútvarpið á Akureyri Miðvikudagur 19. september 8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands. 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands. Bylgjan Miðvikudagur 19. september 07.00 Eiríkur Jónsson. 09.00 Fréttir. 09.10 Páll Þorsteinsson. 12.00 Haraldur Gíslason. 14.00 Snorri Sturluson. 17.00 Síðdegisfréttir. 17.15 Reykjavík síðdegis. 18.30 Hafþór Freyr Sigmundsson. 22.00 Haraldur Gíslason. 02.00 Freymóður T. Sigurðsson. Hljóðbylgjan Miðvikudagur 19. september 17.00-19.00 Axel Axelsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.