Dagur - 19.09.1990, Blaðsíða 11
íþróttir
Miðvikudagur 19. september 1990 - DAGUR - 11
l
Söguleg stund í akureyrskri knattspyrnu:
Fyrsti Evrópuleikurinn á Akureyri í dag
- KA mætir CSKA Sofia í Evrópukeppni meistaraliða kl. 17.30
í dag rennur upp söguleg stund
í akureyrskri knattspyrnu. Þá
mætast KA og búlgarska liðið
CSKA Sofia í Evrópukeppni
meistaraliða en leikurinn fer
fram á Akureyrarvelli og hefst
kl. 17.30. Þetta er í fyrsta sinn
sem akureyrskt knattspyrnulið
leikur í Evrópukeppni meist-
araliða og jafnframt í fyrsta
sinn sem Evrópuleikur fer
fram á Akureyri.
CSKA Sofia var stofnað árið
1948 og hét þá CDNA Sofia. Pað
Nikodinov á æfingunni á Akureyrarvelli í gær. Mynd: kl
„Við göngum ekki
að neinu vísu“
- segir aðalþjálfari CSKA
„Við komum hingað til að ná
hagstæðum úrslitum og spila
góðan fótbolta eins og alltaf
þegar við leikum,“ sagði
Asparouh Nikodinov, aðal-
þjálfari CSKA Sofia, áður en
liðið hóf æfingu á Akureyrar-
velli í gær.
Nikodinov sagðist lítið þekkja
KA-liðið og íslenska knatt-
spyrnu. Hann hefði þó nokkrum
sinnum séð leiki með íslenska
landsliðinu í sjónvarpinu. „Ég
held að leikurinn verði erfiður og
við göngum ekki að neinu vísu
þar en gerum okkar besta. Við
eigum seinni leikinn eftir úti ef
illa fer og ég hef trú á að við kom-
umst í aðra umferð. Snjórinn
kemur okkur vissulega nokkuð á
óvart þar sem veturinn er seinna
á ferðinni heima en góð lið verða
að geta leikið knattspyrnu við
mismundandi aðstæður, m.a. þær
sem hér eru, og við munum haga
leikskipulagi okkar í samræmi
við þær,“ sagði Nikodinov.
Aðspurður urn breytingarnar á
liðinu sagði hann að það hefði
misst reynslumikla og góða leik-
menn. „Það á sér stað endurnýj-
un í liðinu um þessar mundir og
liðið er vissulega reynsluminna
en í fyrra. Hins vegar búa miklir
hæfileikar í þessum leikmönnum
og ég bind miklar vonir við þá,“
sagði Nikodinov.
Akureyrarvöllur:
Girðingavinnu lokið
Nokkrar framkvæmdir hafa
verið í gangi á Akureyrarvelli á
síðustu vikum eins og vallar-
gestir hafa væntanlega tekið
eftir.
Girt hefur verið frá báðum
hliðunum að stúkunni og er ætl-
ast til að áhorfendur haldi sig
ofan girðingarinnar. Þá hefur
verið byggt yfir ganginn þar sem
gengið er inn í vallarhúsið og til
bráðabirgða yfir stéttina fram að
hlaupabraut.
Með CSKA komu 9 búlgarskir
blaðamenn og aðspurður uni
aðstöðu fyrir þá sagði Hreinn
Óskarsson, vallarstjóri, að þeir
yrðu í tveimur flutningabílum
sern hægt er að opna hliðarnar á.
Bílarnir verða staðsettir norðan
við stúkuna.
Fari svo að snjór verði á Akur-
eyrarvelli þegar leikurinn hefst
verður reynt að ryðja af línunum
þannig að sjáist í grænt og hvítt.
„Annað getum við ekki gert,“
sagði Hreinn Óskarsson.
varð búlgarskur meistari strax á
fyrsta ári enda í eigu hersins og
gat valið úr leikmönnum sem
gegndu herskyldu. Sigurganga
þess í búlgarskri knattspyrnu hef-
ur verið með ólíkindum allt frá
upphafi, það hefur 26 sinnum
orðið búlgarskur meistari og
margoft unnið bæði deild og bik-
ar sama árið. Bikarmeistari hefur
það orðið 14 sinnum. Á 6. ára-
tugnum hófst mikið gullaldar-
skeið hjá liðinu en þá vann það
meistaratitilinn 9 ár í röð og varð
fjórum sinnum bikarmeistari á
sama tíma. í fyrra var liðið það
langsterkasta í Búlgaríu, hafði
tryggt sér sigur í deildarkeppn-
inni heilum mánuði áður en tíma-
bilinu lauk auk þess sem bikar-
meistaratitillinn fékk að fljóta
með.
Liðið lagt niður vegna
slagsmála
Á árunum 1963-'64 var nafni liðs-
ins breytt í CSKA Sofia og
gegndi það því nafni allt til ársins
1985 en þá áttu skrítnir hlutir sér
stað í búlgarskri knattspyrnu.
CSKA mætti erkifjendunum í
Levski Sofia í úrslitaleik bikar-
keppninnar. Leikurinn var gífur-
lega grófur og harður og CSKA
hafði forystu þegar upp úr sauð á
vellinuin. Leikmenn liðanna
lentu í miklum slagsmálum og
skömmu eftir þetta var tilkynnt
að liðin tvö hefðu verið lögð
niður. Það breytti þó ekki miklu
því stofnuð voru ný lið með
breyttum nöfnum en þau léku í
sömu búningum og voru að
mestu skipuð söniu leikmönnum.
CSKA var skýrt CFKA Sredets
og hét það allt þar til á síðasta ári
að nafninu var breytt á ný og er
nú CSKA Sofia.
Mikið „Evrópulið“
CSKA hefur margoft tekið þátt í
Evrópukeppni í knattspyrnu
og náð ágætum árangri. Það hef-
ur 19 sinnum tekið þátt í Evrópu-
keppni meistaraliða, þrisvar
komist í 8-liða úrslit og tvisvar í
undaúrslit. Það komst í 8-liða
úrslit í fyrra en tapaði þar 0:1 og
1:3 fyrir Marseille. Þá hefur liðið
leikið fimm sinnum í Evrópu-
keppni bikarhafa, einu sinni
komist í undanúrslit, og fjórum
sinnum í Evrópukeppni meist-
araliða.
Miklar breytingar á liðinu
Eftir síðasta keppnistímabil urðu
miklar breytingar á liðinu. Það
seldi aðalmarkvörð landsliðsins
og alla framlínuna, þ. á m. stjörn-
una Stoichkov sem seldur var til
Barcelona fyrir metfé í Búlgaríu,
2,8 milljónir punda.
Þrátt fyrir það er ljóst að liðið
sem mætir KA-mönnum í dag er
mjög sterkt. í því eru fimm leik-
menn sem leikið hafa með búlg-
arska landsliðinu en þrír af þeim
eru í því um þessar mundir,
Georgi Georgiev, Trifon Ivanof
og Kostadin Yanchev. Þá er einn
leikmaður með U-21 árs landslið-
inu og tveir aðrir sem leikið hafa
með því. Þess má geta að Ivanov
er varnarmaður sem varð annar í
kjörinu um knattspyrnumann
ársins í Búlgaríu í fyrra.
Það er því greinilega erfitt
hlutskipti sem bíður KA-manna
en hafa ber í huga að í knatt-
spyrnu getur allt gerst, ekki síst
ef áhorfendur fjölmenna á völl-
inn og hvetja sína menn.
Nokkrir félagar CSKA Sofia á æfingu í snjónum á Akureyrarvelli í gær.
Mynd: KL
Dagskiptmin er sterk vöm
- segir Guðjón Þórðarson, þjálfari KA
„Mér líst í sjálfu sér ágætlega
á leikinn en ilía á veðurfarið.
Það hefði verið í lagi að hafa
aðeins eins til tveggja stiga
hita en þurran og góðan
völl,“ sagði Guðjón Þórðar-
son, þjálfari KA, aðspurður
hvernig leikurinn legðist í
hann.
„Maöur veit í sjálfu sér afar
lítið um þetta iið. Þaö virðist þó
vera sterkt og í því margir góðir
leikmcnn. Þaö er yfirleitt mjög
erfitt að eiga við þessi Austur-
Evrópulið því þau spila yfirleitt
hraöan og agaðan bolta með
fáurn snertingum. Leikmenn-
irnir eru oftast líkamlega vel
þjálfaðir og snöggir og geta
piatað menn og sprengt upp
leikinn. Með öðrurn orðum er
yfirleitt að finna hjá þeim alla
þætti sem gera lið sterk."
Þegar viðtalið fór fram var
Iníðarmugga á Akureyri og
knattspyrnuvöllurinn alhvítur.
Guöjón sagði hugsanlegt að
veðrið og aðstæður á litlum vell-
inum myndu há Búlgörunum
eitthvað en þeir væru eflaust
ýinsu vanir og ekki væri hægt að
treysta á slíkt.
Hann sagði ennfremur að KA
myndi stilla upp sínu sterkasta
liði og dagskipunin væri sterkur
varnarleikur. „Við megum ekki
elta þá um allan völl, þá er voð-
inn vís. Við verðum bara að
vonast til aö andinn komi yfir
strákana. Evrópuleikir geta ver-
ið mjög skemmtilegir en til þess
verða menn aö gefa allt sem
þeir eiga og það ntyndi ekki
saka að hafa góðan stuöning
áhorfenda. Þetta eru erlendir
leikmenn sent við spilum við og
þeir skilja engar glósur af áhorf
endapöllunum. En ef við fáum
jákvæðan stuðning þá finna þeir
fyrir því,“ sagði Guðjón Þórð-
arson.