Dagur


Dagur - 27.09.1990, Qupperneq 12

Dagur - 27.09.1990, Qupperneq 12
Lögreglan á Siglufirði: Innbrot í verslun upplýst Lögreglan á Siglufirði hefur upplýst innbrot í verslunina Torgið á Siglufirði síðastliðið föstudagskvöld. Þjófarnir hafa viðurkennt innbrotið og nær allt þýfi er fundið. Innbrotið var framið um mið- nætti aðfaranætur laugardags og fékk lögreglan tilkynningu um innbrotið síðar um nóttina. Inn- brotsþjófarnir spörkuðu upp hurð og komust á þann hátt inn í verslunina. Þeir höfðu á brott með sér ýmsar vörur úr búðinni, m.a. geisladiska en peningar voru ekki til staðar. Að sögn lög- reglunnar á Siglufirði viðurkenn- du fleiri en einn aðili aðild að innbrotinu og fær þetta mál nú eðlilega meðferð í dómskerfinu. JÓH Töluverð óánægja bænda í Öxarfirði með slátrun §ár úr Fjallahreppi á Húsavík: Undanþága veitt að beiðni Fjöllunga - segir Sigurður Sigurðarsson, dýralæknir Illa útleikið biðskýli SVA í Glerárhverfi eftir heimsókn skemmdarvarganna. Akureyri: Veggjakrot og skemmdarerk áberandi þegar skólar hefja göngu sína Dagur hefur heimildir fyrir því aö töluverðrar óánægju gæti Þormóður rammi hf.: Heimalöndunar- álagið hækkaö Heimalöndunarálag hjá togur- um Þormóðs ramma hf. á Siglufirði var hækkað í byrjun þessa mánaðar. Sjómenn á togurum félagsins fá nú sama álag á fisk sem landað er í heimahöfn og aðrir sjómenn á stærstu útgerðarstöðum norðanlands. Róbert Guðfinnsson, fram- kvæmdastjóri Þormóðs ramma, segir að heimalöndunarálagið sé 30 prósent ofan á grundvallar- verð fisksins. „Við erum komnir með það sama og þeir á Dalvík, Akureyri og Húsavík. Þessi hækkun varð frá og með síðustu mánaðamótum, á sama tíma og Útgerðarfélag Akureyringa hækkaði álagið hjá sér,“ segir Róbert. Að sögn Róberts hafa afla- brögð togaranna verið fremur treg undanfarið, en september er oft lélegur aflamánuður hjá togurum norðanlands. EHB Loðdýrabændur í Skagafirði og Húnavatnssýslum eru ekki á þeim buxunum að gefast upp að sögn Úlfars Sveinssonar, formanns Loðdýraræktarfé- lags Skagafjarðar. Fyrir skömmu var haldinn fundur í félaginu þar sem Húnvetningar mættu líka og enginn var ákveðinn í því að drepa og hætta loðdýrabúskapnum. Umræður voru einnig um það hvernig ætti að halda fóður- stöðinni Melrakka gangandi. Hugmyndir eru uppi um að hlutafélag verði stofnað um rekstur fóðurstöðvarinnar eftir meðal bænda í Öxarfirði með að hluta af fé úr Fjallhreppi var á dögunum siátrað á Húsa- vík. Segja bændur að þessum flutningum fylgi mikil áhætta, því farið sé yfír sauðfjárveiki- varnalínuna Jökulsá á Fjöllum og þeirri hættu sé boðið heim að riðuveikin berist austur yfír Jökulsá á ósýkt svæði. Ákveðið hafði verið að slátra öllu fé úr Fjallahreppi hjá Fjalla- lambi á Kópaskeri, en vegna mikillar ófærðar á Hólssandi var brugðið á það ráð að flytja hluta af fénu úr hreppnum til slátrunar á Húsavík. Sigurður Sigurðsson, dýralæknir á Keldum, segir að gefið hafi verið leyfi fyrir þessum sláturfjárflutningum. „Veitt var undanþága í þessu tilfelli vegna beiðni þeirra Fjöllunga þar sem þeir áttu von á því að erfitt yrði að flytja féð til Kópaskers. Heim- ild er fyrir flutningi á fé til slátr- unar. Hins vegar er algjörlega bannað að flytja fé til lífs yfir markalínu eins og Jökulsá á Fjöllum, nema um fjárskipti sé að ræða,“ sagði Sigurður. Hann sagði auðvitað mjög óheppilegt að flytja fé á milli varnarhólfa og leitast sé við að hindra sli'ka flutninga, nema nauðsyn krefji. næstu áramót. Rekstur Hesteyrar II, fyrirtækis KS sem tók að sér reksturinn þegar Melrakki var lýstur gjaldþrota fyrr í mánuð- inu, nær einungis fram að áramót- um og spurningin er hvað gerist eftir það. „Þar sem allir loðdýrabænd- urnir ætla sér að halda áfram verður að halda rekstrinum á Melrakka gangandi eftir áramót. Hlutafélagsstofnun hefur borið á góma og eins að fá jafnvel KS eða annan fjársterkari aðila tii að reka stöðina í eitt ár eða svo meðan þessi óvissa ríkir, hvort verðið fer upp eða ekki. Það eru, Skemmdarverk hafa verið nokkur á eigum og aðstöðu Strætisvagna Akureyrar nú þegar skólar hefja göngu sína. Tímatöflur eru rifnar niður svo og auglýsingaspjöld í biðskýl- um sem íþróttafélagið Þór hef- ur komið þar fyrir. Jafnframt er mikið um veggjakrot, en þessar upplýsingar fengust hjá forstöðumanni Strætisvagna Eigendur hlutafélagsins Blá- hvamms hf. á Akureyri, sem reka veitingahúsin Fiðlarann og Bláhvamm í Skipagötu 14, samt engar niðurstöður eða ákvarðanir komnar. Verðið fyrir skinnin er farið að hækka og menn hafa trú á að það hækki áfram. Það væri sorglegt að þurfa að hætta ef verðið kæmi síðan upp skömmu seinna,“ sagði Úlfar Sveinsson. í Skagafirði og Húnavatnssýsl- um eru ennþá rúmlega 20 bændur sem fá fóður frá Melrakka og forráðamenn laxeldistöðvarinnar Miklalax í Fljótum hafa einnig hug á að fá fóður frá stöðinni í laxinn, en tækin til þeirrar fram- leiðslu eru til, aðeins er eftir að tengja þau. SBG Akureyrar, Stefáni Baldurs- syni. Að sögn Stefáns virðist sem alda skemmdaverka rísi ætíð í byrjun skóla á haustin, í jóla- mánuðinum og undir vor í apríl, en á öðrum tímum liggur þetta niðri. „Raunhæft er að segja að spjöll á og í strætisvögnunum séu hafa fest kaup á Hótei Akur- eyri í Hafnarstræti 98 af Byggðastofnun. Þeir félagar ætla að reka hótelið áfram undir sama nafni. Húsnæðið hefur verið í eigu sama aðila sl. 17 ár en Byggðastofnun keypti það á uppboði á síðasta ári. Ekki fékkst gefíð upp kaup- verð hússins en brunabótamat- ið hljóðar upp á 43 milljónir króna. „Við erum mjög ánægðir með kaupin og leggjum út í þetta fullir bjartsýni. Með þessum kaupum erum við að renna styrkari stoð- um undir þann veitingarekstur sem Bláhvammur hf. rekur í Skipagötu 14. Þá á ég við t.d. að samnýta hótelið og veitingaað- stöðuna á 4. hæð í Skipagötunni fyrir félagasamtök og hópa sem hér eru á ferðinni allan ársins hring,“ sagði Sigmundur Einars- son einn Bláhvammsmanna í samtali við Dag. í hótelinu eru yfir 20 herbergi og auk þess veitingastaður sem rekinn hefur verið undir nafninu Lautin síðustu ár. Hótel Akur- eyri hefur verið lokað síðustu hverfandi. Áður fyrr var þetta vandamál, sætin voru skorin og stoppið rifið úr og klæðningar fengu ekki frið fyrir skemmdar- vörgum en í dag er þetta ekki vandamál. Við settum upp skilti í vagnana þar sem reynt er að höfða til unglinganna og það bar árangur,“ sagði Stefán Baldurs- son. ój mánuði eða síðan Ólafur Laufdal hætti hótelrekstri þar. Þeir félag- ar eiga enn eftir að ganga frá kaupum á innviðum hótelsins en verið er að vinna að því máli. „Við stefnum að því að opna hótelið sem fyrst en áður þarf að gera á því smávægilegar lagfær- ingar. Öll herbergin voru nýlega tekin í gegn, þannig að ekki þarf að gera mikið fyrir þau. - Og þó svo að húsið sé komið til ára sinna er hér um mjög gott hús að ræða. Hótelið er staðsett í hjarta bæjarins og við teljum að hér bjóðist mjög góður og ódýr val- kostur fyrir þá sem ætla að gista á Akureyri.“ í hótelinu hefur verið rekinn veitingastaður og sagði Sigmund- ur að þeir félagar myndu halda þar áfram veitingarekstri en þó væru uppi ýmsar hugmyndir um breytingar á þeim rekstri. Þá er í húsinu þvottahús sem þeir félag- ar ætla nota fyrir allan sinn rekstur. Eigendur Bláhvamms hf. eru fimm, þeir Sigmundur Einarsson, Vignir Þormóðsson, Héðinn Bech, Bjarni Ingvason og Snæ- björn Kristjánsson. -KK óþh Loðdýrabændur í Skagafirði og Húnavatnssýslum: „Ekki á því að gefast upp“ - hlutafélagsstofnun um Melrakka rædd Akureyri: Eigendur Bláhvamms hf. hafa fest kaup á Hótel Akureyri

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.