Dagur - 17.10.1990, Blaðsíða 4

Dagur - 17.10.1990, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 17. október 1990 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttlr), SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGA RSTJÓRI: INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASÍMI 22791 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Astandið í A-flokkimimi Með myndun ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar á haustdögum 1988 gafst A-flokkunum kærkomið tækifæri til að vinna saman. Nokkuð hafði borið á röddum um að tímabært væri að þessir erkifjendur í íslenskri alþýðu- pólitík færðu sig nú nær hvor öðrum. Lag væri til þess þar sem eldri forystumenn, sem lifað höfðu sögulega átaka- tíma þessara flokka, væru ýmist gengnir á vit feðra sinna eða hættir að hafa afskipti af stjómmálum af öðrum orsök- um. Hinir ungu formenn A-flokkanna virtust taka þessa hugsjón alvarlega til að byrja með. Þeir þeyttust um land- ið og héldu fjöruga og oft skemmtilega fundi. Þeir kenndu ferðalög sín við rautt ljós, litinn í kratarósinni og roðann í austri þótt rautt ljós tákni stöðvun í þeirri umferð sem flestir landsmenn lifa og hrærast í daglega. Víst voru bundnar vonir við að þetta starf formanna A-flokkanna bæri nokkrun árangur. Stjórnmálaflokkar á Alþingi íslendinga eru þegar orðnir of margir og mynda margs- konar erfiðleika við myndanir ríkisstjórna og allt starf þjóðþingsins. Af þeim sökum væri æskilegt að meiri samstaða næðist milli skyldra hugmynda um þjóðmál og hér störfuðu færri og öflugri stjórnmálaflokkar. En vonin brást. Rauða ferðaljós formannanna slokknaði. Að minnsta kosti um stund. Ef litið er til ástandsins sem nú ríkir innan þessara flokka er ólíklegt að það verði tendrað í bráð. Mikil átök hafa átt sér stað innan Alþýðubandalagsins að undanförnu. Á yfirborðinu virðist tekist á um menn. Undir niðri er tekist á um grundvallarviðhorf í stefnu flokksins. Hrun kommúnismans hefur skilið eftir sig sár innan Alþýðubandalagsins eins og annarra stjórnmála- flokka sem höfðu fræði Karls Marx að leiðarljósi. Átök fara því fram milli manna sem erfitt eiga með að losa sig úr viðjum hugmynda er hafa gengið sér til húðar og jafnað- armanna sem aldrei hafa trúað á Kommúnistaávarpið en kosið að fylgja Alþýðubandalaginu. Misjöfn sjónarmið Alþýðubandalagsmanna virðast því ósættanleg. Á með- an svo verður er tæpast hægt að ræða um flokkinn sem hluta af stærri heild íslenskra jafnaðarmanna. Átök eiga sér einnig stað innan Alþýðuflokksins. Ann- ars vegar takast á jafnaðarmenn, sem hrifist hafa af hug- sjón uppanna og eiga sér meðal annars það markmið að koma íslandi á borð Evrópubandalagsins, að því er virðist án tillits til þess hvað við myndum bera úr býtum innan slíkra samtaka. Hins vegar eru þeir jafnaðarmenn, sem enn leggja áherslu á félagslega uppbyggingu með Jóhönnu Sigurðardóttur í broddi fylkingar. Rimma for- manns og varaformanns Alþýðuflokksins á nýafstöðnu þingi hans er einstök fyrir samstarf í forystusveit stjórn- málaflokks. Þótt Jón Baldvin hafi sagt að rifrildi skerpi ástina í sinni fjölskyldu fer ekki hjá því að flokksþing Alþýðuflokksins skilur eftir sig fregnir um djúpa gjá, sem nær allt inn í miðja forustusveit flokksins. Með þetta veganesti ætluðu formenn A-flokkanna að ganga til þess leiks að sameina flokkana undir birtu hins rauða ljóss. Með þetta veganesti ætla þeir að efla nauð- synlega atvinnuuppbyggingu á íslandi. Með þetta vega- nesti ætla þeir að skapa stóraukinn hagvöxt í framtíðinni. Með þetta veganesti ætla þeir að bjóða landsmönnum áframhaldandi þjónustu sína, hvor í sínu lagi eða í fleiri flísum sem hugsanlega læðast frá móðurskipum þeirra á vordögum. ÞI Námskeið um hjónabandið og fjölskylduna - hjónabands- og ijölskylduráðgjafinn Eivind Froen í heimsókn á Norðurlandi öðru sinni í lok októbermánaðar eiga Norð- lendingar, von á góðum gesti, en þá fáum við í heimsókn hjóna- bands- og fjölskylduráðgjafann Eivind Frden. Hann mun flytja fyrirlestra um hjónabandið og fjölskylduna í þremur kirkjum að þessu sinni. í nýútkomnu safnaðarblaði Glerárkirkju (3. tbl. 5. árg.) er m.a. ritað um þessi námskeið: Hjónabandið er einn af horn- steinum þjóðfélags okkar. Og víst er að fátt er mikilvægara en að þessi hornsteinn standi traust- ur. Þess vegna er mikilvægt að hjónabandinu sé sinnt og það eflt innan frá. í júní sl. kom í heimsókn í Glerárkirkju hjónabands- og fjölskylduráðgjafinn Eivind Fr0en og hélt mjög gott nám- skeið með hjónum (og einstakl- ingum). Umsagnir þátttakenda eftir námskeiðið eru besti dómur á hversu vel Eivind tekst til. „Hann opnaði leið fyrir okkur hjónin að nálgast hvort annað af meiri einlægni en venjulega,“ sagði einn þátttakenda. „Við hjónin upplifðum svo Eivind Freen. margt úr eigin hjónabandi þegar Eivind var að lýsa sínum vand- kvæðum,“ sagði ung kona og hún bætti við: „Ég teldi það nauðsyn- legt að ungt fólk sem ætlar að fara að giftast eða er nýlega gift, sæki svona námskeið. Það var ekkert sérstakt að í hjónabandi mínu, en námskeiðið breytti samt heilmiklu. Þetta var meiri- háttar." Námskeiðin eru m.a. fyrir þá sem: - Vilja fræðast um mikilvæg atriði í hjónabandinu og fjöl- skyldulífinu. - Vilja gera gott hjónaband og fjölskyldulíf enn betra en það er nú. - Eiga við einhvern vanda að stríða og vilja finna bestu leiðina út úr honum. - Hyggja á hjúskap í náinni framtíð. Námskeiðin verða í fyrirlestr- arformi og verður allt mál fyrir- lesarans túlkað jafnóðum á íslensku. Þau eru tveggja kvölda frá kl. 20 til 23 hvort kvöld og verða í Glerárkirkju 29.-30. okt., í Siglufjarðarkirkju 31. okt.-l. nóv. og í Húsavíkurkirkju 4.-5. nóv. Skráning fer fram hjá hlutað- eigandi sóknarprestum og hjá umsjónarmanni námskeiðanna Þorsteini Kristiansen í síma 27585. Námskeiðsgjald er kr, 1.500,- á mann (3.000,- á hjón). (Fréttatilkynning.) Akureyri: Félagslegar eignaríbúðir við Litluhlíð Um mánaðamótin síðustu skilaði byggingarfyrirtækið Trétak hf., Akureyri, frá sér til Hús- næðisnefndar Akureyrarbæjar fjórum félagslegum eignaríbúð- um (áður verkamannabústaðir), sem byggðar eru að Litluhlíð 5a til 5d. fbúðirnar eru fjögurra her- bergja, 110 m2 að stærð, í einnar hæðar raðhúsi. Framkvæmdir hófust ekki fyrir alvöru fyrr en í ágúst 1989 og hefur húsið því ris- ið að mestu leyti á 13 mánuðum. Húsið er byggt úr steinsteypu og afhendist, eins og lög og reglur um félagslegar eignaríbúðir gera ráð fyrir, fullfrágengið að utan sem innan ásamt lóð með bíla- stæðum. Húsið er byggt í grónu hverfi á góðum stað í bænum og fellur vel inn f umhverfi sitt, þar sem það stendur á grænu svæði milli Litluhlíðar og Seljahlíðar. Til gamans má geta þess að þetta hús er með þeim fyrstu á Akureyri (ef ekki það fyrsta), þar sem nær öll hönnun (arkitekta og burðarþol) og gerð útboðsgagna er gerð með aðstoð tölvu. Öll gögn varðandi verkið voru unnin skv. viðurkenndu útboðsgagna- kerfi, sem auðveldaði mjög allt byggingar- og greiðslueftirlit með framkvæmdinni. Hönnuður húss og innréttinga er Höskuldur Sveinsson, arkitekt. Burðarþols- og lagnahönnun var í höndum Guðna F. Guðjónsson- ar, byggingartæknifræðings, en hönnuður raflagna var Stefán Sigtryggsson, tæknifræðingur (Rafa-el, Akureyri). Eins og ofan greinir annaðist byggingar- verktakinn Trétak hf., Ákureyri, allar byggingarframkvæmdir. Sjallinn á Akureyri: Stórsýningin Rokk - Trúður og Trylltar Meyjar í loftið Stórsýningin Rokk - Trúður og Trylltar Meyjar er nú að fara í loftið í Sjallanum á Akureyri. Frumsýning verður laugardaginn 20. október nk., og verður sýn- ingafjöldi takmarkaður. í sýningu þessari er fylgst með ungum sveitapilti, Lúðvík Ling- dal og fyrstu ferð hans til höfuð- borgarinnar. Lúðvík er saklaus sveitapiltur sem lendir í hinum ýmsu ævintýrum þegar í borgina er komið. Höfundur sýningarinnar er Jóhannes Bachmann sem ásamt mótdansara sínum, Maríu Huld- arsdóttur, er fslandsmeistari í rokki, og sýna þau nýja sveiflu í rokkinu sem ekki hefur sést áður á íslandi. Urvalslið söngvara og dansara ásamt hljómsveitinni Rokkband- inu sjá um að sveifla rokksins haldist sleitulaust, og gullaldar- tónlistin hljómi inn í hjörtu gesta Sjallans. Söngvarar sýningarinn- ar eru: Bjarni Ara, Júlíus Guð- mundsson, Berglind Björk Jón- asdóttir og Rúnar Þór. Kynnir og sögumaður er engin önnur en Rósa Ingólfsdóttir. Miðaverð með glæsilegum þríréttuðum kvöldverði er kr. 3.500,- Miðasala og borðapant- anir eru daglega í Sjallanum í símum 9.6-2.2770 og 96-22970.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.