Dagur - 18.10.1990, Page 1

Dagur - 18.10.1990, Page 1
Mynd: KL Skýrsla iðnaðarráðherra um álmálið: Mótmæli greiddu ekki fyrir staðsetningu við EyjaQörð Lögð hefur verið fram á Al- þingi skýrsla Jóns Sigurðsson- ar, iðnaðarráðherra, þar sem hann gerir grein fyrir stöðu álmálsins. Ráðherrann ræðir í skýrslunni um þá möguleika sem uppi hafi verið um staðsetningu við Eyja- fjörð og víkur einnig máli sínu að mótmælum íbúa úr hreppum við Góð sala hjá Hegranesinu Skagfirski togarinn Hegranes seldi í gær rúm 147 tonn á Þýskalandsmarkað. Heildar- verðmæti aflans var um 14,1 milljón. Aflinn var nær eingöngu karfi og mestur hluti hans fór á 110 króna meðalkílóverði. Er það hæsta verð sem fengist hefur í Bremerhaven í vikunni. Gísli Svan Einarsson, útgerðarstjóri Fiskiðjunnar, segir að siglingin hafi gengið vel og þótt verðið hafi ekki verið metverð geti þeir verið nokkuð ánægðir með það. Búist var við að Hegranes héldi heim- leiðis í gærkvöld. SBG Eyjafjörð og segir að þessi mót- mæli sem send hafi verið forsætis- ráðherra og Atlantsál-fyrirtækj- unum „hafi ekki greitt fyrir stað- setningu álvers í Eyjafirði.“ í skýrslunni segir ráðherrúnn að athuganir hafi í upphafi mið- ast við að nýju álveri yrði valinn staður á Dysnesi við Eyjafjörð. Kostnaður við lóð á þessum stað hefði hins vegar orðið hærri en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir og því hafi verið beint sjónum að lóð í landi Hvamms. Sú lóð sé þó „hvorki talin góð né hagkvæm auk þess ýmsir óvissuþættir fylgja staðsetningunni," segir orðrétt í skýrslunni. JÓH Hvammstangi: Stafrænt símkerfi og ljósleiðari Nýlega var tengdur á Hvamms- tanga svokallaöur „llakkari" sem er færanleg stafræn sím- stöð á vegum Pósts og síma. Á meðan „flakkarinn“ sinnir símnotendum er búnaður sím- stöðvarinnar endurnýjaður og stafrænum búnaði komið fyrir. Ljósleiðari var tengdur um leið og „flakkarinn“ svo að símasam- - „flakkarinn“ þjónar fólki dreifðist síðan jafnt og þétt um dreifbýlið fram yfir 1980. í tengsl- um við opnun stafrænu stöðvar- innar er tilboðsverð á stafrænum símtækjum á Hvammstanga og segir Magna fólk notfæra sér það óspart. Ekki er ljóst hvenær lokið verður við uppsetningu stafræna kerfisins í símstöð staðarins, en á meðan vinnur „flakkarinn“ sitt verk. SBG Froststrá. Rafverktakar í Ólafsfirði eru reiðir Vegagerð ríkisins: Gagnrýna að verktaki á Akureyri setji upp lýsingu í Múlagöngum - bæjarstjórn Ólafsflarðar með harðorða ályktun um málið band símnotenda stöðvarinnar á Hvammstanga er nú allt annað en áður var. Magna Magnúsdótt- ir, stöðvarstjóri, segir sambandið vera betra, öruggara og að fólki finnist mikill munur á að ná sambandi til annarra landshluta. Einnig gefst því kostur á að not- færa sér ýmsa sérþjónustu sem stafræna kerfið býður upp á. „Þetta er stórt skref og ég hugsa að mörgum finnist þetta álíka stökk og að fara úr hand- virka símanum í þann sjálfvirka á sínum tíma,“ sagði Magna. Sjálfvirki síminn kom fyrst á Hvammstanga árið 1968 og Á bæjarstjórnarfundi á Sauð- árkróki sl. þriðjudag bar m.a. salmonellumálið svonefnda á góma. Þar kom fram að beðið er eftir opinberri greinargerð um málið frá Hollustuvernd ríkisins, en talað var um það, á fundi yfirvalda í Skagafirði og Hollustuverndar, að unnin yrði frekari greinargerð sem síðan kæmi til með að birtast í blöðum. Á bæjarstjórnarfundinum var einnig kosið í þriggja manna við- ræðunefnd af hálfu Sauðárkróks- Mikil óánægja er meðal raf- verktaka í Ólafsfirði vegna þeirrar ákvörðunar Vegagerð- ar ríkisins að ganga til samn- inga við Rafiðn á Akureyri um uppsetningu á lýsingu í Múla- bæjar til viðræðna við fulltrúa Skarðshrepps um lögsögumál og samstarf sveitarfélaganna. Tólf ár eru frá því slíkar viðræður hófust, en lítið hefur þokast. í þessa nefnd bæjarins voru kosnir þeir Knútur Aadnegard, Stefán Logi Haraldsson og Björn Sigur- björnsson. í fundargerð frá húsnæðis- nefnd kom fram að samþykkt hefði verið að sækja um 26 lóðir sem á verður byggt næstu tvö árin. Þar af eru 20 íbúðir til við- bótar við Laugatún fyrir 10 félagslegar eignaríbúðir og 10 almennar kaupleiguíbúðir. SBG göngunum. Gagnrýna þeir að rafverktökum í Ólafsfírði skyldi ekki gefínn kostur á að bjóða í verkið og þannig að sitja við sama borð og aðrir rafverktakar. Málið kom inn á borð bæjarstjórnar Ólafsfjarð- ar sl. þriðjudag þar sem um það var samþykkt harðorð ályktun. Ályktunin sem borin var fram af Sigurði Björnssyni og sam- þykkt með 7 atkvæðum er svo- hljóðandi: „Bæjarstjórn Ólafs- fjarðar mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Vegagerðarinnar að afhenda rafverktökum á Akur- eyri vinnu við uppsetningu á lýs- ingu í Múlagöngum. Þess er kraf- ist að ákvörðunin verði endur- skoðuð og verktökum í Ólafsfirði verði gefinn kostur á verkinu. Vísað er á bug rökum umdæmis- verkfræðings á minnisblaði frá 9.10. 1990 og telur bæjarstjórn að vegna óvissu um tímamörk á verkinu mundi það leiða bæði til sparnaðar og hagræðis að semja við heimamenn. Þá vill bæjar- stjórn upplýsa umdæmisverk- fræðing um að rafverktakar í Ólafsfirði hafa áratuga reynslu og hafa starfað með ágætum með hönnuðum frá Akureyri og Reykjavík.“ I bókuninni er vísað til minnis- blaðs Guðmundar Svafarssonar, umdæmisverkfræðings Vegagerð- arinnar á Akureyri til vegamála- stjóra. t>ar kemur m.a. fram að vegna þess hve verkið er lítið (kostnaður upp á 1,5 milljónir) hafi ekki þótt svara kostnaði að efna til útboðs á því sem kynni að kosta um 300 þúsund krónur. Þá segir að vegna hins stutta verktíma hafi verið lögð áhersla á að „fá vana menn til verksins.“ Rafiðn hafi verið með lægsta til- boðið í lýsingu í jarðgöngunum í Blönduvirkjun ásamt Ljósgjafan- um og nýverið lokið því verki. Þá segir Guðmundur að eina fyrir- tækið sem hafi spurst fyrir um þessa vinnu hafi verið Rafiðn. í síðasta minnispunkti segir: „Ef til vill hefði mátt lækka milliferða- kostnað með því að ráða fyrir- tæki úr Ólafsfirði í verkið. Því hefur verið komið á framfæri við Rafiðn, að þeir taki rafvirkja úr Ólafsfirði í vinnu, þurfi þeir á aðstoð að halda við verkið." Gunnlaugur J. Magnússon, rafvirki hjá Raftækjavinnustof- unni sf. í Ölafsfirði, segir að hún og Björn Guðmundsson, rafvirki í Ólafsfirði, hafi ætlað að samein- ast um að bjóða í verkið, en þeim hafi aldrei verið gefinn kostur á því. Hann sagðist ekki geta fallist á allar röksemdir Vegagerðarinn- ar í þessu máli. Meðal annars mætti benda á að verktakar í Ólafsfirði hafi átt mjög gott sam- starf við Raftákn á Akureyri og starfsmaður þess sem hannaði lýsinguna hafi lært hjá Birni Guðmundssyni í Ólafsfirði. Þá segir hann ekki rétt að aðeins Rafiðn hafi spurst fyrir um verkið. „Við vorum einnig búnir að spyrjast fyrir um það, en feng- um alltaf þau svör að það yrði boðið út og biðum eftir því,“ sagði Gunnlaugur. Ennfremur sagði hann að ekki komi til greina af hálfu rafverktaka í Ólafs- firði að gerast undirverktaki raf- verktaka á Akureyri við uppsetn- ingu lýsingar í göngunum. Guðmundur Svafarsson segir að búið sé að ganga frá samning- um við Rafiðn um umrætt verk og því verði héðan af erfitt að stokka upp spilin. Um ástæðu þess að gengið var til samninga við Rafiðn sagði Guðmundur: „Það var nýbúið að fara fram útboð á svona lýsingu í Blöndu- göngum og þeir voru þar lægstir og skiluðu sinni vinnu með ágæt- um. Við álitum að þetta væru bæði vanir og góðir menn, enda höfum við af þeim góða reynslu,“ sagði Guðmundur. óþh Sauðárkrókur: Greinargerðar frá Hollustuvemd beðið -viðræðunefnd við Skarðshrepp skipuð

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.