Dagur - 18.10.1990, Page 2

Dagur - 18.10.1990, Page 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 18. október 1990 Húsavík: Bæjarmála- punktar ■ Iðnþróunarfélagið hefur sent beiðni um að bærinn ger- ist hluthafi í atvinnuþróunar- félagi sem stofnað verði upp úr Iðnþróunarfélaginu. í fram- haldi af því hefur atvinnu- málanefnd samþykkt að mæla með því að bæjarstjórn gerist hluthafi í slíku félagi er taki yfir svæði er nái frá Vaðlaheiði að vestan og að Langanesi að austan. Félagið hafi það að markmiði að styrkja atvinnu á þessu svæði og auka samvinnu í atvinnumálum á svæðinu. ■ Kaupfélag Þingeyinga hef- ur óskað eftir umsögn bygg- inganefndar um hugmynd að stækkun á matvöruverslun KÞ við Garðarsbraut. Byggingin yrði á einni hæð norðan og austan við núverandi bygg- ingu. Bygginganefnd óskaði eftir nánari útfærslu á hug- myndinni. ■ Byggiugancfnd hefur borist fyrirspurn frá Búseta um lóðir vegna umsóknar fyrir næsta ár. Óskað er eftir yfirlýsingu bygginganefndar um að lóðir verði til ef eftir verður leitað. Þessa yfirlýsingu á að senda Húsnæðisstofnun. Bygginga- nefnd lýsir því yfir að lóðir verði til. Jafnframt felur bygginganefnd byggingafull- trúa að undirbúa auglýsingu allra lausra lóða í bænum og leggja fyrir næsta fund nefnd- arinnar. ■ Á fundi framkvæmdalána- sjóðs nýlega gerði bæjarstjóri grein fyrir nýrri kröfu frá Glitni, vegna einfaldrar ábyrgðar sjóðsins á kaupleigu- samningi sem Naustir hf. gerðu á sínum tíma vegna kaupa á pokasaumavélum. Krafan á sjóðinn hljóðar upp á kr. 2.405.721.-. Stjórn sjóðs- ins samþykkti að ganga frá greiðslu kröfunnar með lán- töku til eins árs, er komi til greiðslu með 12 endurgreiðsl- um á næsta ári. Samþykktin er bundin því að sjóðurinn fái umræddar vélar til frjálsrar ráðstöfunar, án nokkurs endurgjalds. ■ Bæjarráði hefur borist erindi frá tveimur mæðrum sem stunda nám við Fram- haldsskólánn, þar sem óskað er eftir niðurgreiðslu dagvist- argjalda af hálfu bæjarins, þar sem hlutaðeigandi mæður eiga ekki kost á dagvist á Bestabæ fyrir börn sín. Bæjarráð sam- þykkti erindið en með fyrir- vara um að viðkomandi nemendur séu í fullu námi við Framhaldsskólann. Jafnframt var rætt um að semja tillögu að reglum um þessi mál. ■ Á fundi bæjarráðs nýlega var fjallað um hallann á rekstri sjúkrahússins á síðasta ári, sem var um 7 milljónir. Bæjarráð samþykkti að leggja til við bæjarstjórn að bærinn taki að sínum hluta, á móti öðrum aðildarsveitarfélögum, þátt í hluta rekstrarhalla SH 1989, eða um 1,3 milljónir kr. gegn þvt að ríkissjóður leggi fram 5 milljónir kr. og önnur sveitarfélög 700 þúsund kr. Sundlaug Akureyrar: 1 fréftir „Aðsókn yngri borgaranna hefur þrefaldasf Sundlaug Akureyrar hefur allt- af jafn mikið aðdráttarafl og aðsóknin er jöfn og mikil. Áðsókn yngri borgaranna hef- ur þrefaldast vegna vatnsrenni- brautarinnar, sem er þriggja metra há. Á vordögum eru fyrirhugaðar framkvæmdir við - segir Haukur Berg, sundlaugarstjóri gerð busllaugar og polla á suðurlóðinni. Að sögn forstöðumanns Sund- laugar Akureyrar, Hauks Berg, fer stór hluti dagsins til skólanna, en laugin er afar ásetin vegna kennslu. Nokkuð þröngt er því um almenning. Sundlaugin er opnuð hvern morgun kl. 7.00 en þá mæta morgunhanarnir, til að hressa upp á sálu og líkama, áður en farið er til vinnu. Þessi árrisuli hópur stækkar dag frá degi. Fólk á öllum aldri stundar morgun- sundið. í hádeginu mætir alltaf Verslunardeild Sambandsins og Mikligarður hf. sameinast - Ólafur Friðriksson ráðinn framkvæmdastjóri Miklagarðs hf. A stjórnarfundi Sambandsins í vikunni var ákveðið að sam- eina rekstur Verslunardeildar Sambandsins og Miklagarðs hf. í eitt fyrirtæki. Með þessari nýskipan sjá menn fram á verulega hagræðingu í rekstri. Nú er unnið að víðtækri endur- skipulagningu hjá Samband- inu, í framhaldi af samþykkt aðalfundar í byrjun júní. Sá fundur samþykkti tillögur til stjórnar um meiri háttar breyt- ingar á öllu skipulagi Sam- bandsins. Stefnt er að því að Ijúka þessum breytingum fyrir áramót. Ný stjórn var kjörinn á aðal- fundi Miklagarðs hf. fyrir skömmu en hana skipa; Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambands- ins, formaður, Þórir Páll Guð- jónsson, kaupfélagsstjóri Borg- arnesi, varaformaður, Ásgeir Jóhannesson, forstjóri ritari, Björn Ingimarsson, fjármála- stjóri Sambandsins, meðstjórn- andi og Þröstur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri meðstjórnandi. Mikligarður hf. mun leggja áherslu á smávöruverslun í fimm stórverslunum á SV-landi en þær eru: Mikligarður við Sund, Mikli- garður vestur í bæ, Kaupstaður í Mjódd, Mikligarður í Miðvangi Hafnarfirði og Mikligarður í Garðabæ. Auk þess mun Mikli- garður hf. annast vöruflutning og sölu til kaupfélaga. Áætluð sala fyrirtækisins á næsta ári er 4,5 milljarðar króna. Framkvæmdastjóri Miklagarðs hf. hefur verið ráðinn Ólafur Friðriksson og tekur hann við starfinu af Þresti Ólafssyni sem sagt hefur starfi sínu lausu. Ólaf- ur var áður framkvæmdastjóri Verslunardeildar Sambandsins en tekur við hinu nýja starfi um Þjóðarflokkurinn: Landsfundur í Borgar- nesi 16.-18. nóvember Landsfundur Þjóöarflokksins verður að öllum líkindum haldinn í Hótel Borgarnesi dagana 16.-18. nóvember nk. Að sögn Árna Steinars Jóhannssonar, sem unnið hefur að undirbúningi fundarins, verð- ur aðalmál hans mótun kosninga- stefnuskrár fyrir komandi alþing- iskosningar, en Þjóðarflokkurinn hyggst bjóða fram lista í öllum kjördæmum. Ekkert er enn ákveðið hvenær gengið verður frá framboðslistum flokksins, en Árni Steinar segir að hvert og eitt kjördæmafélag annist það og ekki séu fyrirhuguð prófkjör til að stilla upp fram- boðslistum. óþh skák i Skákfélag Akureyrar: Steftit að alþjóð- legu skákmóti Aðalfundur Skákfélags Akur- eyrar var haldinn fyrir skömmu. Þar var m.a. rætt um að halda alþjóðlegt skákmót á næsta ári en fyrirhugað var að halda slíkt mót á Akureyri í ár. Páll Hlöðvesson var endur- kjörinn formaður félagsins. Nýir í stjórn eru áhaldaverðirnir Jakob Þór Kristjánsson og Smári Teitsson, en úr stjórn gengu Gylfi Þórhallsson og Júlíus Björnsson, Gylfi eftir langa stjórnarsetu. Aðrir í stjórn eru sem fyrr Þór Valtýsson, varaformaður, Ingi- mar Friðfinnsson, ritari, Sigur- páll Vilhjálmsson, gjaldkeri, og Albert Sigurðsson, meðstjórn- andi. SS Akureyri: Mót á vegum Skákfélagsins Skákfélag Akureyrar stendur fyrir 10 mínútna móti í kvöld, fimmtudagskvöld, og hefst það kl. 20.00 í skákheimiiinu. Á sunnudaginn kl. 14.00 fer fram Hausthraðskákmót Skák- félags Akureyrar og er það hald- ið í framhaldi af Haustmótinu. Þá má minna á æfingar fyrir börn og unglinga í skákheimilinu á laugardaginn kl. 13.30. SS næstu mánaðamót. Núverandi starfsmannafjöldi er tæplega 600 manns. Ólafur Friðriksson er fæddur á Kópaskeri 5. júní 1953. Eftir að hafa lokið námi í Samvinnu- skólanun árið 1974, tók hann um haustið við starfi Kaupfélags- stjóra hjá Kaupfélagi Langnes- inga á Þórshöfn. Árið 1976 flutti hann sig um set og varð kaupfé- lagsstjóri hjá Kaupfélagi N.- Þingeyinga á Kópaskeri og þar var hann í sex ár eða allt til 1. júní 1982 er hann tók við starfi framkvæmdastjóra Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki. Ólafur gegndi því starfi til ársins 1988 en þá tók hann við stöðu framkvæmdastjóra Verslundar- deildar Sambandsins. Maki Ólafs er Freyja Tryggvadóttir og eiga þau 3 börn. viss hópur manna og kvenna og kýs frekar sundið en mat og hádegislúr. „Laugin er opnuð fyrir almenna tíma á mánudögum og þriðjudögum kl. 17.00 en kl. 16.00 á miðvikudögum, fimmtu- dögum og föstudögum. Á laugar- dögum er opið frá kl. 8.00 til 16.00 og á sunnudögum frá kl. 8.00 til hádegis. Barnafólkið nýt- ir þessa helgaropnun vel, þá sér- staklega innilaugina fyrir yngstu borgarana, kornabörnin. Sundfélagið Óðinn þjálfar sitt fólk alla daga og oft tvisvar á dag. Þegar þjálfuninni er þannig hátt- að hefjast æfingar kl. 6.00 á morgnana. Keppnissundið er þjálfað stíft og framförin er mikil hjá krökkunum. Þau njóta góðra þjálfara. Á vordögum er ráðgert að hefjast handa við gerð busllaugar og vaðpolla á suðurlóðinni. Mik- ill hugur er í íþrótta- og tóm- stundaráðsmönnum um að hrinda þessari framkvæmd af stað. Við höfum verið að funda og útlitið er bjart. Fram komu þrjár tillög- ur í vor og menn hafa komið sér saman um hver er heppilegust. Á næstu misserum verður Sundlaug Akureyrar tekin út af fagfólki. Athugað verður um styrkleika steypunnar í lauginni, en hún var byggð 1922. Laugin er orðin gömul. Hún hefur staðið sig vel, enda stórhuga menn sem byggðu,“ sagði Haukur Berg. ój spgU©

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.