Dagur - 18.10.1990, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 18. október 1990 - DAGUR - 7
Til að halda okkar striki megum við hvergi slaka á
- setningarræða Halldórs Ásgrímssonar, sjávarútvegsráðherra, sl. þriðjudag
Fiskeldi er enn ung atvinnugrein
á íslandi, þar sem blasa við allt í
senn andstreymi, bernskubrek og
stórbrotnir möguleikar. Reyndar
ætluðum við íslendingar að koma
þessari grein á hér á landi með
rykk og áhlaupi eins og mörg
dæmi eru um í okkar atvinnu-
sögu. En hremmingar þær sem
laxeldi á nú í vegna offramboðs
og verðfalls mega alls ekki draga
úr okkur kjark til að kanna nýjar
leiðir og halda okkar striki í
fiskeldi. Við eigum ekki að láta
staðar numið eða gefast upp á
lax- og silungseldi. Á því sviði
verðum við að vinna ötullega að
því að verða samkeppnisfærir,
með því að ná keppinautum okk-
ar í kynbótum og öðrum fram-
leiðsluþáttum. En spurningin er
hvort samkeppnisstaða okkar
geti ekki orðið betri í eldi ýmissa
annarra tegunda þar sem m.a.
þekking okkar á vinnslu og sölu á
fiski kæmi að góðum notum. Ég
tel að við eigum að vinna ötullega
að aukinni þekkingu á eldi sjáv-
arýra á breiðari grundvelli en
hingað til, en það er einmitt við-
fangsefni þessarar ráðstefnu.
Eldi sjávardýra
er yfírgripsmikið svið
Afrakstursgeta heimshafanna er
nánast fullnýtt með hefðbundnum
veiðum en eftirspurn eftir fiski
heldur áfram að vaxa. Bilið verð-
ur fyrst og fremst brúað í fram-
tíðinni með auknu eldi, bæði
ferskvatns- og sjávarfiska. Pann-
ig er því spáð að heildarfram-
leiðsla og eldi muni allt að því
þrefaldast á næstu tuttugu árum,
úr u.þ.b. tíu milljónum tonna í
þrjátíu milljónir tonna á ári.
Þessa staðreynd verður veiðiþjóð
eins og íslendingar að horfast í
augu við í fullri einurð og alvöru.
Reyndar er ég sannfærður um að
ekki verður fylgst með þessari
þróun með öðru móti en virkri
þátttöku og eigin rannsókna- og
þróunarstarfi. Reynslan úr lax-
eldi sýnir að byggja verður upp
haldgóðan innlendan þekking-
argrunn áður en farið er út í viða-
miklar fjárfestingar.
Eldi sjávardýra er yfirgrips-
mikið svið og getur fræðilega
spannað allt frá litlum krabba-
dýrum, eins og rækju, upp í stór-
lúðu og jafnvel hvali. Einnig get-
ur eldið átt sér stað með mjög
mismunandi hætti; í kerum, í
lónum, í innfjörðum eða jafnvel
með ræktun og viðhaldi villtra
úthafsstofna. Oft er því slegið
fram að til að mæta meiri eftir-
spurn eftir fiskmeti verði þróunin
í vaxandi mæli frá sjávarútvegi til
sjávarbúskapar. Landbúnaður
hefur þróast að mestu leyti frá
hjarðmennsku til ræktunar og án
efa munu þau viðhorf einnig
gilda í auknum mæli við nýtingu
auðlinda hafsins.
Mörgum spurningum
ósvarað
Hér á landi búum við svo vel að
framleiðni á mann í íslenskri
útgerð er talin sú hæsta sem
þekkist, þannig að fyrirsjáanlegt
er að hefðbundnar veiðar munu
halda samkeppnistöðu sinni
gagnvart eldi lengur en víðast
annars staðar. Engu að síður ber
okkur að líta á fiskimið okkar
sem hafbeitarstöð sem verður að
umgangast með ræktunarsjón-
armið að leiðarljósi. Séð í þessu
ljósi má segja að skipulag og
stjórn fiskveiða sé liður í eldi
sjávardýra.
Sem fiskveiðiþjóð verðum við
m.a. að spyrja okkur eftirfarandi
spurninga: Verður hægt að ala
hefðbundnar tegundir eins og
þorsk, ufsa og steinbít svo ódýrt
að draga muni verulega úr eftir-
spurnarverðhækkunum á veidd-
um fiski? Verður alinn sjávarfisk-
ur hugsanlega eftirsóknarverðari
á fiskmörkuðum en veiddur
vegna meiri ferskleika og stöðug-
leika í gæðum og útflutningi? Er
Island ekki í sérstakri aðstöðu til
ræktunar í sjónum vegna ein-
angrunar landsins og 200 mílna
efnahagslögsögu allt í kringum
landið? Væri raunhæft í framtíð-
inni að taka einhvers konar rækt-
unargjald af handhöfum afla-
heimilda, sem myndi standa und-
ir ræktun og eflingu á nytjastofn-
um sjávar?
Erfíð bernska
íslensks fískeldis
íslenskt lax- og silungseldi á .sér
ekki nema tíu til fimmtán ára
sögu. Upphaf greinarinnar
byggðist nær eingöngu á seiðaeldi
og voru um tíma starfandi fast að
90 seiðaeldisstöðvar. Eins og
kunnugt er olli lokun seiðamark-
aðarins í Noregi, Skotlandi og
írlandi því að allt of margir fóru
of fljótt í matfiskeldi. Þannig var
farið út í framleiðsluna til að
leysa framleiðsluvanda, en ekki
samkvæmt kalli markaðarins. I
dag eru flestir stærstu fram-
leiðendanna í íslensku laxeldi
orðnir gjaldþrota og er líklegt að
samanlögð framleiðslugeta þess-
ara fyrirtækja sé 50-60% af heild-
arframleiðslugetu greinarinnar.
En hvers vegna fór svona fyrir
íslensku fiskeldi í frumbernsku?
Skýringarnar eru eflaust margar,
en m.a. má nefna þessar. Sú
staðreynd að sala og verð keppi-
nautanna ræður verðinu á okkar
vöru hefur ekki verið virt sem
skyldi. Á tímum offramboðs,
þegar verð nálgast æ meir fram-
leiðslukostnað ræður kostnaðar-
verð keppinautanna alfarið
afkomu íslenskra fyrirtækja á
þessu sviði. Það sem íslendingar
hafa álitið staðarkosti, s.s. jarð-
hita, er oft á tíðum lítið meira en
mótvægi við samkeppnislegt
óhagræði sem fellst í norðlægri
legu landsins og er því oft ofmet-
ið þegar ráðist er í framkvæmdir.
Mikilvægi erfðafræði og kynbóta
fyrir arðsemi starfseminnar hefur
verið vanmetið og ekki nægjan-
lega sinnt. Uppbygging fyrir-
tækja hefur í litlum mæli grund-
vallast á markaðsspá og markaðs-
greiningu. Fjárfestingar hafa í
miklum mæli byggst á lánsfé sem
gerir reksturinn of viðkvæman
fyrir verðsveiflum afurða.
Sígandi lukka er best
Þessi atriði eru víti til varnaðar.
Gildir það um allt eldi, hvort sem
um er að ræða sjávardýr eða
ferskvatnsfisk og í reynd um ann-
an atvinnurekstur. En fráleitt
væri að gefast upp að svo komnu.
Við eigum að vinna áfram hægt
og sígandi á þessu sviði, jafn-
framt því sem við víkkum þekk-
ingu okkar og förum inn á nýjar
brautir eins og eldi á sjávarfisk-
um. Þannig gætu t.d. eldisrann-
sóknir á helstu nytjafiskum sjáv-
ar stóraukið líffræðilega þekk-
ingu okkar á þessum stofni. í
Noregi er eldisfiskur nú um 35%
af verðmæti allra sjavarafurða og
er verðmæti eldislax meira en
verðmæti þorskaflans þar. í öðr-
um nágranna- og viðskiptalönd-
um okkar, s.s. Danmörku,
Þýskalandi og Frakklandi, eru
framleiddar þúsundir tonna af
silungi meðan við íslendingar
komumst vart á blað í þessum
efnum. Metnaður Norðmanna til
byltingar í eldi sjávarfiska er í
samræmi við hinn ótrúlega upp-
gang laxeldis þar í landi. Þar er
nú unnið ötullega að rannsókn-
um á þorskeldi ásamt áframhald-
andi tilraunum með lúðueldi.
Mjög margar stofnanir og ráðu-
neyti vinna saman að samræmdri
áætlun í norskum eldisrannsókn-
um. Þau vinnubrögð væru okkur
verðug fyrirmynd og norskir
ráðamenn hafa boðið upp á nána
samvinnu við íslendinga um þessi
mál.
Staðarkostir á íslandi
Hér á landi hafa farið fram til-
raunir á síðustu fimm til sex árum
um eldi á hörpudiski, kræklingi,
sæeyra og síðast en ekki síst
lúðu. Á þessu stigi hafa ekki
fengist svör um hagkvæmni þessa
eldis miðað við núverandi verð-
forsendur. Ólíkt því sem var í
frumbernsku íslensks laxeldis
hefur eldi sjávardýra frá upphafi
miðast við matfiskeldi. Ljóst er
að eldi getur aldrei borgað sig
nema einhver lágmarks verðmæti
séu í boði. Þess vegna mun ekki
borga sig að ala ódýrari fiskteg-
undir. Tegundir eins og þorskur
geta þó hugsanlega stórhækkað í
verði í framtíðinni, þannig að
eldi þeirra verði arðsamt síðar
meir. Og sums staðar mun jafn-
vel marhnútur í hávegum hafður
þótt ótrúlegt sé.
í fljótu bragði virðist eldi kald-
sjávarfiska eins og lúðu, steinbíts
og sandhverfu liggja beint við
miðað við íslenskar aðstæður.
Svona til hvatningar má geta þess
að í síðustu viku seldist stórlúða
á Fiskmarkaði Suðurnesja á 500
krónur kílóið á meðan laxinn fór
á sama markaði á 165 krónur
kílóið. ísland býr ótvírætt yfir
fjölmörgum staðarkostum í eldi
kaldsjávarfiska. í því sambandi
má m.a. nefna eftirfarandi atriði:
íslendingar eru vel settir í öflun
fóðurs vegna loðnuveiða, síld-
veiða og úrgangs frá fiskvinnslu.
Fóður er einmitt sá framleiðslu-
þáttur sem hugsanlega gæti orðið
takmarkandi í framtíðinni ef
fiskeldi vex eins mikið og spáð
er. Á íslandi er nægt framboð af
hreinum sjó, gæðavatni ásamt
jarðhita á mörgum stöðum.
Þekking og orðspor á fisk-
mörkuðum er traust og gamal-
gróið hér á landi. Umhverf-
isvandamál tengd eldi eru hverf-
andi við okkar aðstæður. Miklir
möguleikar eru fyrir hendi í
tengslum við íslenskan sjávar-
útveg, á framhaldseldi á ýmsum
aukaafla, einkum flatfiska. Til
viðbótar við hefðbundið eldi
vaknar sú spurning hvort hafbeit
þorsks á innfjörðum gæti ein-
hvern tímann orðið raunhæfur
kostur við íslenskar aðstæður,
t.d. í Eyjafirði. Til að svara því
þarf að gera víðtækar merkingar-
tilraunir jafnframt klaktilraun-
um. Ef í ljós kemur að þorskur er
ekki nægilega staðbundinn, en
menn ná þó að klekja þorski í
miklum mæli, þá vaknar spurning
hvort selja ætti heimildir til veiða
á sleppiþorski. Að sama skapi
hlyti þá að koma til greina að
ákveðinn hluti af verðmæti
úthlutaðra veiðiheimilda færi í
rannsóknir og ræktun á viðkom-
andi fisktegund, sem myndi
þannig stuðla að varanlegu gildi
slíkra heimilda.
Unnið að mótun
meginstefnu á vegum
sjávarútvegsráðuneytisins
Mörg dæmi sanna að umgengni
mannsins við auðlindir lands og
sjávar lýtur í meginatriðum sömu
lögmálum. í Svíþjóð og Noregi
hefur sú kvöð t.d. lengi gilt að
fyrir hvert tré sem hoggið er, er
gróðursett annað. Kemur ekki
einhvern tímann að því að
afrakstur úr auðlindum sjávar
verði háður svipuðum kvöðum,
þó með öðrum hætti verði? Til að
halda okkar striki á þessu sviði
megum við hvergi slaka á í því
starfi sem hefur verið unnið á
vegum Hafrannsóknastofnunar
og Fiskeldis Eyjafjarðar á undan-
förnum árum. Fjárþörf til að
halda skriði á þessari starfsemi
nemur nokkrum tugum milljóna
á ári, sem er þó lítilræði miðað
við það sem í húfi er. Ég er sann-
færður um að þessi ráðstefna
mun þjappa okkur saman um að
efla rannsóknir á eldi sjávardýra.
Ég er einnig viss um að erindin
sem hér verða flutt í dag og á
morgun munu stórauka innsæi
okkar og yfirsýn á þessu sviði.
Um þessar mundir vinnur sjávar-
útvegsráðuneytið einmitt að því
að móta meginstefnu í rann-
sókna- og þróunarstarfi í sjávar-
dýraeldi. Það er von mín að frá
þessari ráðstefnu komi mikilvæg-
ir vegvísar í íslenska rannsókna-
áætlun um eldi sjávardýra.
Ég vil sérstaklega bjóða vel-
komna hingað gesti okkar frá
Noregi, John Haug, Snorre Til-
seth og Rolf Engelsen. Starfshópi
sjávarútvegsráðuneytisins, sem
undirbjó þessa ráðstefnu með
miklum ágætum og öðrum fyrir-
lesurum vil ég færa sérstakar
þakkir. Fjöldi þátttakenda sem
hér er staddur segir allt sem þarf
um þann áhuga sem að baki býr
og þýðingu þessa málefnis.
(Millifyrirsagnir eru blaðsins.)
UNNUHte
Opið
Tilboð
Fiskborgarar var 577
nú 481
Kiwi 9 stk. í poka kr. 163
Perur kg kr. 151
Kínakál kr. 99
Nýtt!
Sælkerabökur 6 réttir.
Sérlega gómsæt nýjung.
Beint í ofninn.
Grillaðir kjúklingar
597 per. stk.
frá kl. 9-20
frá mánudagi til föstudags.
Laugardag
kl. 10-20.
Sjáumst
í Sunxi uhlíð !
Sunnuhlíð 12