Dagur - 18.10.1990, Side 9

Dagur - 18.10.1990, Side 9
Fimmtudagur 18. október 1990 - DAGUR - 9 Konungsskuggsjá og Sverrissaga og bók um galdrastafi og rúnir ofan á. Hjalti með Steinsbiblíu. Safnahússins. Slíkt magn af gögnum hafði borist til safnsins að það var orðið á mörgum stöð- um innan hússins og aðstaða fyrir það að öllu leyti ófullnægjandi. Ákveðið var að flytja það á neðri hæð hússins og hafist handa við framkvæmdir í október á síðasta ári. Hvað er héraðsskjalasafn? Eldtraust skjalageymsla með stórum færanlegum hilluskápum á teinum er orðin að veruleika og segir Hjalti það hafa verið stórt skref sem stigið var með þessari breytingu. Vinnuaðstaða er öll orðin betri og þó að eldsvoði verði eru hin miklu verðmæti ekki í mikilli hættu. En hvað er héraðsskjalasafn? Hjalti Pálsson við teinahillurnar. í grein Kristmundar, sem áður hefur verið vitnað í, segir hann m.a. þetta um skjalasöfn: „Tilgangur skjalasafna er margþættur, svo sem almennt fræðilegt gildi varðandi sögu og skyldar greinar svo og hagnýtt gildi fyrir samtíðina eins og í hag- fræðilegum og læknisfræðislegum efnum og í dómsmálum. Þau spegla þúsund ára reynslu fólks- ins af landinu og landsins af fólk- inu.“ Héraðsskjalasafn Skagfirðinga inniheldur, líkt og önnur slík söfn, bæði skjalasafn og hand- ritasafn. í skjalasafni eru hin opinberu gögn eins og gögn hreppsfélaga, oddvita og hrepp- stjóra, ásamt gögnum ýmissa fé- lagasamtaka. Allt það er lýtur að stjórnsýslu innan héraðs. Sumu má halda eftir í safninu, en annað fer suður á Þjóðskjalasafn og um það gilda ákveðnar reglur. Afrit er þó reynt að taka af því sem mestu þykir skipta áður en það er sent suður. Sú lagaskylda hvílir á þeim félögum sem notið hafa opinbers styrks að skila gögnum sínum til héraðsskjalasafna eða Þjóðskjalasafns. Handritasafnið er annars eðlis. Þar er um að ræða svokölluð einkagögn, t.d. sendibréf, dag- bækur, ljóð, líkræður og yfirleitt flest það er menn hafa skrifað hjá sér. Þegar Dagur var á ferðinni hjá Hjalta hafði safninu nýlega borist einkagögn úr gömlu búi. í því kenndi ýmissa grasa; jarða- bréf, endurminningar, samtín- ing um fjallvegi o.fl. mátti sjá þegar flett var hratt í gegnum það. Að sögn Hjalta er búið að skrásetja yfir 2500 slík númer í safninu svo trúlega er handrita- safnið hið stærsta á einum stað utan Reykjavíkur. Dýrgripirnir Þegar hér er komið sögu er blaðamaður farinn að brenna í skinninu að berja augum eitthvað af dýrgripum safnsins svo að gengið er inn í hina eldtraustu geymslu þess. Þar má sjá hillur fullar af alls kyns skjölum og bókum. Próf úr skólum, fundar- gerðabækur, skinnslitur, biblíur, ljóðabækur að ógleymdum göml- um klöddum úr skólum Skaga- fjarðar þar sem hægt er að sjá skólaferil fólks sem og mætingu. Hjalti tekur fram Steinsbiblíu prentaða á 18. öld á Hólum. Hana fékk safnið að gjöf frá gömlum Sauðárkróksbúa, Ottó Michelsen, en hann hefur hyglað safninu mörgum verðmætum ritum. Upp úr kassa dregur hann síðan elstu bók safnsins, kirkju ordinata, prentaða á Hólum árið 1635. Handrit frá um 1660 Elsta handrit safnsins er Kon- ungsskuggsjá og Sverrissaga á einni bók. Það handrit er skrifað af Magnúsi Þórólfssyni fyrir Magnús Jónsson digra í Vigur um 1660. Ekki er vitað hvenær safnið eignaðist handritið, en árum saman var bókin í láni, m.a. í Kaupmannahöfn. Heim til Hér- aðsskjalasafns Skagfirðinga kom handritið svo uppdubbað eftir hreinsun og viðgerð. í grein Kristmundar segir m.a.: „. . . í safninu eru leifar af því veganesti, sem horfnar kynslóðir þurftu á lífsgöngu sinni: bænir, sálmar, stólræður, líkræðusöfn og predikana-, tækifærisræður, ævisöguþættir, kvæði og kviðling- ar, þættir úr atvinnusögu, rfmur og þulur, dagbækur og einka- bréfasöfn, o.s.frv.“ Á áttunda þúsund mannamynda En það eru ekki einungis rituð gögn sem fyrirfinnast í safninu á Sauðárkróki. Ein ljósmynd segir miklu meira heldur en mörg orð og í ljósmyndasafninu er að finna margar merkilegar heimildir. Búið er að skrá hátt á áttunda þúsund mannamynda og atburða- og umhverfismyndir eru einnig margar til. Hjalti segir eitt af markmiðum safnsins vera að eignast myndir af öllum Skagfirð- ingum, en oft er leitað til þess þegar gamalla mynda er þörf t.a.m. við gerð einhverra rit- verka. „Við erum sérstaklega sólgnir í myndir af gömlum bæjum og ýmsum atburðum. Oft fáum við lánaðar myndir til eftirtöku, en heilu myndasöfnin koma einnig til okkar t.d. úr dánarbúum. 1 sambandi við það vil ég koma þvf á framfæri að fólk merki sínar gömlu myndir. Við verðum fyrir því hvað eftir annað að komið er með gamlar ómerktar myndir og erfitt getur verið að afla upplýs- inga um það eða þá sem á mynd- unum eru, en ef ekkert er vitað um efni myndar er hún lítils virði. Einnig held ég að merktum ljósmyndum sé ógjarnan hent svo þetta getur líka verið lífsspurs- mál fyrir myndirnar,“ segir Hjalti. . andlegt veganesti kynslóðanna“ Lengi er hægt að eyða tíma í skoðun á dýrgripum Héraðs- skjalasafns Skagfirðinga og orð- um í útlistun á þeim. Það verða hinsvegar þeir að gera upp á eigin spýtur sem lyst hafa til, en þessa grein er tilhlýðilegt að enda á orðum Kristmundar Bjarnason- ar, sem nú vinnur að endurskoð- un handritaskrár safnsins og nafnalyklagerð að henni með styrk úr Vísindasjóði til verksins: „Ymsir líta svo á, að handrita- söfn séu aðeins sótt af eldra fólki, sem gengið er í barndóm, lifir í fortíðinni. Slíkt er vitaskuld mis- skilningur. Geta má þess t.a.m., að ljóðskáld og sagnaskáld íslenzk hafa beint eða óbeint sótt til fanga í handritasöfn. Safnið hér sækir fólk á öllum aldri. Þeir, sem þangað koma til að stunda stefnulaust grúsk, gætu eflaust farið verr með tímann. Það er menningarleg skemmtun að grúskinu, forvitnilegt að kynna sér andlegt veganesti kynslóð- anna.“ Myndir og texti: Skúli Björn Gunnarsson Tilboö! D-Discount kaffi 500 g 169 kr. WC 8 rúllur 152 kr. Nemli þvottaefni 5 kg 370 kr. Nemli mýkingarefni 5 lítrar 156 kr. Nemli hreingerningalögur 2 lítrar 85 kr. Verslið hagstætt Krónan er verðmikil hjá okkur Kjörbúð KEA Brekkugötu 1

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.