Dagur - 18.10.1990, Side 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 18. október 1990
Bridge - Bridge
Sveitakeppni
Bridgefélags Akureyrar
hefst nk. þriðjudag kl. 19.30 að Hamri.
Tilkynningar um þátttöku sveita þarf aö tilkynna fyrir kl.
20.00 föstudaginn 19. október í síma 24624 (Ormarr).
Athugið! aðstoð er veitt við myndun sveita.
Allt spilafólk velkomið!
Bridgefélag Akureyrar.
Þið gerið betri
mtarkaup
ÍKEANETTQ
Flóru poppmaís 500 g.............. 87 kr.
Flóru kakó 400 g.................. 186 kr.
Flóru kakókvikk 500 g............. 198 kr.
Flóru súpujurtir.................. 55 kr.
Flóru þykkni m/appelsínubragði % 1. 139 kr.
Flóru þykkni m/appelsínubragði 21. 315 kr.
TILBOÐ
Fanta 2 1 100 kr.
Kjúklingar 444 kr./kg
Kjúklingavængir stubbar.... 150 kr./kg
Bruður 250 g 116 kr.
WC pappír m/8 rúllum ........ 149 kr.
Atlwgið opið virka daga frá kl. 13.00-18.30.
Laugardaga frá kl. 10.00-14.00.
KynnSst NElTTÓ-verðE
a KEA NETTÓ
Útgáfubækur Bókaforlags
Odds Bjömssonar 1990
Bókaforlag Odds Björnssonar
á Akureyri gefur út á næstu
vikum 7 bækur, sem allar eru
mjög áhugaverðar og höfða til
mjög fjölmenns hóps lesenda.
Hestamenn og áhugafólk um
íslenska hestinn fær til aflestrar
tvær bækur.
Ættbók og saga íslenska hests-
ins 6. bindi, eftir Gunnar Bjarna-
son. í þessu bindi er lýsing stóð-
hesta frá nr. 1141 til 1174 og lýs-
ing á hryssum frá nr. 4717 til
8072. Þar með hefur Gunnar
unnið það afrek að koma í eina
aðgengilega ritröð öllum hryssum
sem hafa fengið dóma og ættbók-
arnúmer fyrir maílok 1990 og öll-
um stóðhestum sem hafa fengið
dóma og ættbókarnúmer fyrir
júlílok 1990.
Hvergi annars staðar geta
hestamenn og áhugamenn um
hrossarækt gengið að öllum þess-
um upplýsingum. Gunnar reið á
vaðið - og komst fyrstur yfir.
Jódynur 2. bindi, hestar og
mannlíf í Austur-Skaftafells-
sýslu. Árið 1988 kom út fyrsta
bindi af ritverkinu Jódynur, sem
hlaut mjög góðar viðtökur og
staðfestir það hinn almenna
áhuga fyrir meiri kynnum á þess-
um landshluta. Hestar, menn og
svaðilfarir er hluti af daglega líf-
inu og um það vilja menn
fræðast. í þessu bindi Jódyns er
fjöldi greina sem allar eru tengd-
ar hornfirska hestinum og því
nána sambandi sem myndast hef-
ur milli fólksins og hestsins.
Meðal efnis er grein eftir Egil
Jónsson, „Til móts við nýja öld“.
Þorkell Bjarnason skrifar um
ræktun hornfirskra hrossa, Stein-
unn B. Sigurðardóttir um Hóla-
hestana, Guðmundur Jónsson
um Fornustakkahrossin, Einar
E. Gíslason um stofnræktun í
Borgarfirði, Steinþór Gestsson
um áhrif hornfirskra hesta á
hrossarækt í Árnessýslu, Úlfar
Antonsson urn hesta og fólk í
Árnesi og Óskar Indriðason um
Blakk 129.
Eins og í fyrsta bindinu hefur
þessi bók að geyma fjölda greina
um baráttu manna og hesta við
náttúruöflin og má þar m.a.
nefna íslandsævintýri, sem er
ferðasaga fjögurra enskra vís-
indamanna á Vatnajökul árið
1932, Björgun úr Jökulsá í Lóni
eftir Sigrúnu Eiríksdóttur, Einn á
ferð yfir Skeiðarársand eftir Örn
Ó. Johnson, Minnisverð fjöru-
ferð eftir Sigurð Björnsson, Þor-
bergur Þorleifsson eftir Steinunni
B. Sigurðardóttur og er þá aðeins
NámskeiÖ í notkun
TOSHIBA
örbylgjuofna
Leiðbeinandi: Dröfn Farestveit, hússtjórnarkennari.
Námskeiðin verða haldin 19v 20. og 21. október.
Skráning þátttakenda í Járn- og glervörudeild. Takmarkaður fjöldi.
Járn- og
glervörudeild.
hluti greina upptalinn.
Börnin fá sitt lestrarefni.
Depill gistir eina nótt, eftir Eric
Hill. Ný barnabók um Depil, sem
nú fær að gista eina nótt hjá
Stebba vini sínum. Eins og fyrri
bækurnar um Depil, er þessi bók
tilvalin fyrir börn sem byrjuð eru
að lesa og ekki síður fyrir foreldra
til að lesa fyrir börn.
Bókaforlag Odds Björnssonar
gleymir ekki unnendum ljóða, en
forlagið gefur út tvær bækur í
þeim flokki.
/ Fqrsæiudal, eftir Ólaf Sigfús-
son. í þessari bók eru ljóð og
lausavísur eftir Ólaf í Forsælu-
dal, en hann er löngu landsþekkt-
ur fyrir ljóð sín og lausavísur.
Söngelskir íslendingar sem koma
saman og taka lagið, hvort heldur
er í réttum, á hestamannamótum
eða í heimahúsum, vilja syngja
um ást sína á landinu, gróðri þess
og draumalöndum og er þá næsta
víst að margt af því sem sungið
er, er eftir Ólaf í Forsæludal.
Ólafur er maður tilfinninga og
hafði næmt fegurðarskyn eins og
mörg ljóð hans bera vott um.
Ólafur var fjórði maður frá Bólu-
Hjálmari, en margir niðjar hans
eru vel hagmæltir og lék Ólafi
hagmælskan snemma á tungu.
Af erlendum tungum, ljóða-
þýðingar eftir Braga Sigurjóns-
son. Að þessu sinni sendir Bragi
frá sér bók með 67 ljóðum, sem
hann hefur þýtt úr ensku,
dönsku, sænsku og norsku.
Öllum, sem fylgst hafa með
Ijóðagerð Braga, er fagnaðarefni
að fá nú í hendur þýðingar hans á
erlendum ljóðum. Þær koma
fæstum á óvart, því að í þrem
ljóðabókum af níu, sem Bragi
hefur sent frá sér frá árinu 1947,
er að finna þýðingar, er bera vitni
öruggum tökum skálds og orð-
snjalls þýðanda. Hann er trúr
þeim erlendu verkum, sem hann
glímir við, og stíll og hættir frum-
gerðanna fara aldrei forgörðum,
heldur blómstra í áhrifamiklum
íslenskum búningi.
Spennusögurnar í ár er tvær,
Síðustu fréttir, eftir Arthur Hailey
og Martröð á miðnætti, eftir
Sidney Sheldon.
Síðustu fréttir segja frá hinni
þrungnu spennu, sem liggur í
loftinu á fréttastofu CBA sjón-
varpsstöðvarinnar. Tveir reynd-
ustu fréttamennirnir, sem báðir
voru í Víetnam ungir menn, eru
þar í sviðsljósinu. Skelfilegur
atburður í lífi fjölskyldu annars
þeirra færir sögusviðið vítt um
heim þar sem skæruliðaforingi
frá Kólumbíu setur á miskunnar-
lausan hátt svip á atburðarásina.
Þetta er ósvikin spennubók eft-
ir höfund bókanna Hótel, Banka-
hneykslið, Hinsta sjúkdóms-
greiningin, Gullna farið (Air-
port), Skammhlaup og Sterk lyf.
Sidney Sheldon, sem er mest'
lesni skáldsagnahöfundur í
Bandaríkjunum, sendir nú frá sér
nýja skáldsögu og tekur upp
þráðinn um Catherine Douglas
úr bókinni „Fram yfir miðnætti“.
Það er grískur auðjöfur, Demir-
is, sem hefur örlög hennar í
hendi sér, en hann þarf einnig að
afmá spor sem ekki mega sjást.
Atburðarásin er hröð og spenna
mikil, því öll meðul eru notuð til
að koma fram vilja sínum.
Sidney Sheldon kann þá list að
koma lesandanum á óvart, það
þekkja þúsundir íslendinga sem
notið hafa lesturs bóka hans
undanfarin ár.
Styrkjum úr Frímerkja-
og póstsögusjóði úthlutað
Á Degi frímerkisins, 9. október
sl. var úthlutað styrkjum úr Frí-
merkja- og póstsögusjóði, sem
stofnaður var með reglugerð nr.
449, 29. okt '^er 1986. Var þetta
fjórða úthlu i n sjóðsins.
Tilgangu” Frímerkja- og póst-
sögusjóðs.r, er að efla og styrkja
störf og rannsóknir á sviði frí-
merkjafræða og póstsögu og
Örn og Örlygur:
Maðuriun - Líkaiiiiiui
í máli og myndum
Örn Og Örlygur hafa sent frá sér
aðra útgáfu af bókinni MAÐUR-
INN - Líkaminn í máli og
myndum. Stefán B. Sigurðsson
íslenskaði frumútgáfuna en
Hálfdan Ómar Hálfdanarson,
Heimir Hálfdanarson og Þuríður
Þorbjarnardóttir endurskoðuðu
textann fyrir 2. útgáfu.
MAÐURINN - Líkaminn í
máli og myndum - er 110 blað-
síður að stærð með skýrum og vel
gerðum litmyndum sem sýna
gerð og starfsemi helstu líffæra
og líffærakerfa. Blandað er saman
teikningum, ljósmyndum og iínu-
ritum svo að fram komi auðskil-
inn, aðgengilegur og lifandi texti
sem samsvarar nútíma kröfum til
fræði- og kennslubóka.
Þótt bókin sé ítarleg veitir hún
einnig stutt og greinargóð svör.
Bókin svarar einstökum spurn-
ingum - en gefur auk þess
heildaryfirlit um uppbyggingu
líkamans og starfsemi hans.
hvers konar kynningar- og
fræðslustarfsemi til örvunar á
frímerkjasöfnun, svo sem með
bóka- og blaðaútgáfu. Ennfrem-
ur er það hlutverk sjóðsins að
styrkja sýningar og minjasöfn,
sem tengjast frímerkjum og póst-
sögu.
Samtals úthlutaði sjóðurinn til
greiðslu á þessu ári styrkjum fyrir
4,3 millj. kr. til ýmissa verkefna.
Jafnframt staðfesti stjórn sjóðs-
ins fyrri samþykkt um uppgjör á
greiðslum til Sýningarnefndar
Frímerkjasýningarinnar Nordía
’91.
Þessir aðilar fengu styrki:
1) Sýningarnefnd Frímerkjasýn-
ingarinnar Nordía ’91 til að
greiða kostnað við frímerkjasýn-
inguna.
2) Landssamband ísl. frímerkja-
safnara til ýmissa verkefna.
3) Ólafur Elíasson og Kristian
Hopballe til útgáfu rits um
póstmál á íslandi 1939-1945.
4) Félag frímerkjasafnara til að
efla starf fyrir börn og unglinga,
m.a. til kaupa á áhöldum og
tækjum og til útgáfustarfsemi.
5) Klúbbur Skandinavíusafnara
til að efla unglingastarf.
6) Frímerkjafélagið Akka á Dal-
vík til unglingastarfs í skólum.
7) Frímerkjaklúbburinn Askja á
Húsavík til leiðbeiningar og
fræðslu um frímerkjasöfnun í
grunnskóla Húsavíkur.
8) Iceland Review til útgáfu
bókar á ensku um íslensk frí-
merki.
Formaður stjórnar sjóðsins er
Halldór S. Kristjánsson, skrif-
stofustjóri í samgönguráðuneyt-
inu.