Dagur - 25.10.1990, Page 1

Dagur - 25.10.1990, Page 1
Akureyri: Gjaldþrotamálum fer fjölgandi Mörg nauðungaruppboð eru auglýst í viku hverri hjá embætti bæjarfógetans á Akureyri. Virðist sem um nokkra aukn- ingu uppboða sé að ræða. Hjá embættinu fengust einnig þær upplýsingar að gjaldþrotamál- um hefði fjölgað. Erfitt er að segja til um fjölda nauðungaruppboða á árinu, fyrr en í árslok. Þó hafa margir á til- finningunni, að uppboðum hafi haldið áfram að fjölga allt þetta ár. Hvað gjaldþrotamálin snertir er um aukningu að ræða á þessu ári. Eyþór Þorbergsson, fulltrúi hjá bæjarfógeta, segir að mörg gjaldþrotamál einstaklinga eigi rætur að rekja til almennrar óreiðu í peningamálum. Dæmi eru um, að ungt fólk hafi orðið gjaldþrota vegna hálfrar milljón- ar króna skuldar, en taisverður hluti þess fólks sem lendir í gjald- þroti er yngra fólk. Að sögn Eyþórs kemur alltaf fyrir af og til að fólk tekur banka- lán, sem það ræður ekki við að borga. Lánstraust er oft miðað við ábyrgðarmenn, en í versta falli endar dæmið með gjaldþroti. Þá fyrnast lýstar kröfur ekki fyrr en eftir tíu ár, en þó er hægt að endurnýja þær og halda málinu gangandi miklu lengur. Margir virðast álíta að gjaldþrot sé ein- hver lausn, en því er þó ekki þannig varið, því við gjaldþrot lengist fyrningarfrestur úr fjór- um árum upp í tíu. EHB Akureyri: Eldur laus í sendibifreið Sendibifreið á Akureyri skemmdist töluvert í eldi sem upp kom í henni sl. þriðjudags- Loðnuvertíðin: Fyrsta loðnan til Vopnafjarðar í gær Súlan EA landaði í gær 650 tonnum af blandaðri loðnu á Vopnafirði. Þetta er fyrsta ioðnan sem þar er landað á þessari vertíð. Á síðustu mánuðum hefur ver- ið unnið að gagngerum endurbót- um á loðnubræðslunni á Vopna- firði, sem Pétur Antonsson í Grindavík og fleiri festu kaup á af Tanga hf. fyrr á þessu ári. Fyrirtækið heitir nú Lón hf. í gær var verksmiðjan prufu- keyrð með síldarúrgangi og að því búnu átti að hefja bræðslu á loðnufarminum úr Súlunni. Á undanförnum árum hafa slæm hafnarskilyrði á Vopnafirði gert stórum loðnuskipum erfitt fyrir með að leggjast þar að bryggju. Á þessu verður ráðin bót á næstunni, en gerður hefur verið samningur við Köfunar- stöðina um dýpkun Vopnafjarð- arhafnar. óþh kvöld. Bifreiðin stóð fyrir utan heim- ili eiganda síns í Ásabyggð þegar eldur kom upp í henni. Eigand- anum og lögreglu tókst að ráða niðurlögum eldsins áður en slökkvilið kom á staðinn. Ekki er vitað hvað eldinum olli, en töluverðar skemmdir urðu á vél og mælaborði bifreið- arinnar. I fyrrinótt var stolið kyrrstæðri bifreið í Þingvallastræti á Akur- eyri og fannst hún síðar við Þórs- völlinn í Glerárþorpi. Engar skemmdir virtust hafa verið unn- ar á henni. óþh Bograð yfir málningunni. Mynd: Golli Salan á hlut HlutaQársjóðs í Hraðfrystihúsi ÓlafsQarðar hf.: Við erum að skoða málið“ - segir Gunnar Sigvaldason hjá Sæbergi hf. 55 Blönduvirkjun: Deilur um skipulagsmál - ekkert land undir tengilínu „Þetta kom okkur á óvart, því svona lagað hefur ekki tíðkast annars staðar, en við það er kannski ekkert við því að segja þó menn vilji nota þann rétt sem þeir telja sig hafa,“ sagði Ólafur Jensson, yfirstaðarverkfræðingur við Blönduvirkjun, um mál það er nú er komið upp í samskiptum Landsvirkjunar og landeig- enda þriggja jarða sem leggja þarf raflínu yfír í Svínavatns- hreppi. Að sögn Ólafs var lagning lín- unnar lögð fyrir sveitarstjórn vegna þess að hún vildi meina að línuna þyrfti að leggja fyrir sem skipulagsmál. Slíkt hefur ekki tíðkast hingað til í sambandi við línulagningar og kom Lands- virkjun því á óvart. Ólafur sagði að línan hefði svo farið inn á borð bygginganefndar Svína- vatnshrepps, sem fjalla átti um málið sem skipulagsnefnd. Nefndin felldi erindi Landsvirkj- unar og nú er lagningin að stöðvast. Lína sú sem um ræðir er tengi- lína milli byggðalínu og Blöndu- virkjunar. Búið var að semja við landeigendur á Guðlaugsstöðum áður en umrætt mál kom upp á, en leggja þarf línuna í gegnum land Höllustaða, Ytri- og Syðri- Löngumýrar að auki. Ólafur sagði að verktakinn sem sá um að leggja vegslóða með línunni væri horfinn frá og fljótlega yrði verktakinn með undirstöðurnar búinn að ljúka sínu verki á því landsvæði sem um má fara. Sveitarstjórnin á eftir að fjalla um niðurstöðu nefndarinnar og að sögn eins hreppsnefndar- manna mun það trúlega verða gert fljótlega. Þangað til stendur niðurstaðan óhögguð og lönd bæjanna lokuð fyrir línufram- kvæmdum. Hvort sveitarstjórnin staðfestir nefndarúrskurðinn er óljóst eins og er, en ef nefndin eða henni æðra vald breytir niðurstöðunni verður trúlega að auglýsa verkið, samkvæmt skipu- lagslögum, og fá það samþykkt að öllu leyti. Að sögn Ólafs gæti þessi seink- un, ef hún verður til vors, haft þau áhrif, ef illa vorar, að fresta yrði ræsingu virkjunarinnar en hann sagði jafnframt að ekkert væri hægt að fullyrða í því sam- bandi. SBG „Viö höfum ekki keypt Hrað- frystihúsið. Hlutafjársjóður vill hins vegar selja okkur hlut sinn í því og við fáum frest í tíu daga til þess að skoða hvort við viljum kaupa það,“ sagði Gunnar Sigvaldason hjá Sæbergi hf. í Ólafsfírði. Eins og fram kom í Degi í gær hefur Hlutafjársjóður lýst vilja sín- um til að selja 49% hlut sinn í Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar til Sæbergs hf. í Ólafsfírði. „Við fáum endurskoðanda okkar norður og munum skoða fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Það er margt að skoða í þessu sarm bandi. Ég viðurkenni að það kemur mér á óvart að þessi staða er komin upp. Það kemur mér á óvart að Hlutafjársjóður skuli vilja selja hlut sinn svo skömmu eftir að hann kom með fjármagn inn í rekstur fyrirtækisins,“ sagði Gunnar. Ef Sæberg hf ákveður að kaupa hlut Hlutafjársjóðs mun það eignast meirihluta í fyrirtæk- inu og í framhaldi af því yrði því kjörin ný stjórn. í núverandi stjórn sitja Jón Þórðarson, Jón Ellert Lárusson, Björn Þór Ólafsson, Bjarni Kr. Grímsson og Gunnar Þór Magnússon. Vandi Hraðfrystihússins er mikill. Fyrirtækið skuldar um hálfan milljarð króna. Séu birgð- ir reiknaðar inn í dæmið lækkar þessi tala um nokkra tugi millj- óna. Skuldabyrðin er ekki mikil á frystihúsinu sjálfu, en reksturinn er þeim mun erfiðari á Ólafi bekk. Samkvæmt heimildum Dags nema skuldir á honum á - segir Hörður Bændur í Öngulsstaðahreppi í Eyjafírði heimta illa fé sitt af Garðsárdalnum, en í haust vantar mikið af lömbum sem og fyrir ári. Engin skýring fínnst og bændur hafa gengið dalinn þrisvar nú á haustdög- um. „Mig vantar ekkert, enda á ég enga kind, hrossin skiluðu sér öll,“ sagði Óttar Björnsson, bóndi á Garðsá, þegar hann var spurður um heimtur af Garðsár- dalnum. Að sögn Óttars hafa bændur heimt illa af dalnum tvö ár í röð og enga skýringu er að finna. Tuttugu og þrjú lömb vantar frá Svertingsstöðum og einn gemling og á Hóli vantar þrjátíu og fimm lömb. Svipaða sögu er að segja af öðrum bæjum, en sjö bæir nýta sér afréttina á Garðsárdal. Menn fjórða hundrað milljónum króna. Þessar miklu skuldir eru til komnar vegna kostnaðarsamrar endurbyggingar skipsins árið 1988. óþh Guðmundsson hafa gengið dalinn þrisvar á þessu hausti, nú síðast í fyrra- dag, og þá fundust þrjú lömb frá Mýri í Bárðardal. Gangnamenn fundu hræ af sex kindum, sem síðast sáust í fyrra í kjafti Mel- rakkadals, en hurfu síðan og fundust ekki. Leitarmenn gengu fram á hræin í botni Melrakka- dals og trúlega hafa þessar kindur drepist úr hungri í vetur sem leið. „Skýringar fyrir þessum slæmu heimtum er ekki að finna. í fyrra vantaði mig 33 lömb af dalnum og þá datt okkur í hug að garna- pest væri valdurinn. í vor voru öll lömb sprautuð gegn garnapest. Nú vantar 23 lömb, þannig að pestin er ekki skýringin. Hvergi finnast hræ, það er sem dalurinn hafi gleypt lömbin,“ sagði Hörð- ur Guðmundsson, fjallskilastjóri og bóndi á Svertingsstöðum. 'ój Illar heimtur af Garðsárdal: „Er sem dalurmn hafi gleypt lömbin“

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.