Dagur - 25.10.1990, Page 3

Dagur - 25.10.1990, Page 3
Fimmtudagur 25. október 1990 - DAGUR - 3 -i frétfír l- Málmiðnaðarmenn búa sig undir álversframkvæmdir: Stoftia Sameinaða iðnverktaka með aðild 37 fyrirtækja aðildarfyrirtækjanna á Seyðis- I Á Siglufirði er um að ræða I smiðjuna Odda hf., Slippstöðina firði og annað í Vestmannaeyj- Vélaverkstæði Jóns og Erlings, á hf. og Járntækni hf.. Á Húsavík um. Akureyri er um að ræða Vél- er um að ræða Málm hf. JÓH Saltfiskmatsmenn á endurmenntunarnámskeiði: Mikil eftirspum eftir saltfíski Síðastliðinn föstudag var stofn- að fyrirtækið Sameinaðir iðn- verktakar hf. en að þessu fyrir- tæki standa 37 málmiðnaðar- fyrirtæki á landinu. Markmið þessa félags er að afla verkefna á sviði þjónustu-, verktaka- og framleiðslustarfsemi innan lands sem utan og auka sam- starf íslenskra iðnfyrirtækja þeirra í millum og við erlenda samstarfsaðila. Hér er sérstak- lega horft til möguleika íslenskra málmiðnaðarfyrir- tækja á verkefnum tengdum uppbyggingu og rekstri hugs- anlegs álvers á Keilisnesi. í greinargerð um þetta nýstofnaða fyrirtæki segi'rað þau málmiðnaðarfyrirtæki sem að stofnun Sameinaðra iðnverktaka hf. standa séu alls staðcr af land- inu. Sérstök áhersla verði lögð á að dreifa verkefnum um landið þannig að þensluáhrifum verði að nokkru létt af höfuð- borgarsvæðinu. Þannig geti starfsfólk nýst á heimaslóðum án þess að það þurfi að flytja á Reykjanes. Saman hafa þessi fyrirtæki yfir að ráða 900 manna sta-rfsliði, þar af 600 faglærðum iðnaðarmönn- um. „Samningsstaða þeirra sam- an ætti því að vera góð gagnvart erlendum aðilum sem þurfa að tryggja sér aðstöðu hér á landi til að geta gefið raunhæf tilboð,“ segir í upplýsingum um hið nýstofnaða fyriræki. Geti íslenskur vinnumarkaður ekki utvegað nægilegt vinnuafl er ekki hægt að neita erlendum verktökum um að flytja inn er- lent vinnuafl. Að mati þeirra sem standa að þessu fyrirtæki hafa reynst vanhöld á að þessir erlendu aðilar greiði sambærileg laun og greiði gjöld í sameigin- lega sjóði landsmanna líkt og þeim beri skylda til. Þess vegna sé það sameiginlegt áhugamál innlendra aðila að reynt verði fyrirfram að stefna á að erlent vinnuafl sé flutt inn af fslenskum fyrirtækjum vegna álversupp- byggingarinnar. Af þessum 37 fyrirtækjum koma 19 af höfuðborgarsvæðinu, 4 úr Keflavík, 5 úr Njarðvík, eitt af Akranesi, eitt úr Stykkishólmi, eitt frá Siglufirði, þrjú frá Akur- eyri og eitt frá Húsavík. Þá er eitt „Þaö fóru tíu milljarðar í gegn- um hendur þessara matsmanna á síöasta ári svo það má eyða dálitlum tíma í námskeiðahald fyrir þá,“ sagði Bjarni Bene- diktsson í samtali við Dag. Samband íslenskra fiskfram- leiðenda er þessa dagana með samræmingar- og endurmennt- unarnámskeið í saltfiskmati á Norðurlandi. í dag er nám- skeið á Sauðárkróki, í gær var námskeið á Dalvík og á Húsa- vík í fyrradag. Þar voru saman- komnir 17 starfandi matsmenn af svæðinu frá Vopnafirði til Akureyrar. Slík námskeið eru haldin árlega og reynt er að stíla upp á þann tíma sem dauðastur er í Á spilakvöldi í Hamri sl. þriðjudagskvöld afhenti Stefán Gunnlaugsson einn eigenda Bautans á Akureyri, verðlaun fyrir sigur í Bautamóti Bridgefélags Akureyrar sem lauk fyrir skömmu. Mótið var tvímenningskeppni, alls þrjú spilakvöld og sigurvegarar urðu þeir Anton Haraldsson og Jakob Kristinsson. Á myndinni eru Anton og Jakob með sigurlaunin og á milli þeirra Stefán Gunnlaugsson með Bautabikarinn sem geymdur er í afgreiðslusal Bautans. Á gripinn eru rituð nöfn sigurvegara frá upphafi mótsins sem hcfur verið haldið alls 7 sinnum. Mynd: Goiii Siglufjörður: Sairaiingur við Vegagerðina um snjómokstursefMt undirritaður Undirritaður hefur verið samningur Siglufjarðarbæjar og Vegagerðar ríkisins um að Hreinn Júlíusson, starfsmaður Siglufjarðarbæjar, hafi eftirlit með snjómokstri á Siglufjarð- arvegi fyrir hönd Vegagerðar- innar. Samningurinn gildir til reynslu til eins árs. Hreinn verður eftir sem áður starfsmaður Siglufjarð- arbæjar, en Vegagerðin greiðir bænum fyrir vinnu hans við snjómoksturseftirlit. Á undanförnum árum hafa Siglfirðingar gagnrýnt mjög framkvæmd snjómoksturs á Siglufjarðarvegi og hafa þeir gert kröfu um að heimamenn fái meira um það að segja hvenær mokað er í þau þrjú skipti í viku sem heimild er fyrir snjómokstri. Nefndur samningur er til kominn í framhaldi af þessari gagnrýni. Kristján Möller, forseti bæjar- stjórnar Siglufjarðar, segir að þessi samningur sé mjög jákvætt skref í rétta átt, en eftir sem áður leggi bæjaryfirvöld áherslu á að. aðilar á Siglufirði annist mokstur á þjóðvegum í næsta nágrenni bæjarins. óþh bridds i Sveitakeppni Bridgefélags Akureyrar: Sveit Dags leiðir mótið Sveitakeppni Bridgefélags Akureyrar hófst sl. þriðjudags- kvöld í Hamri. Alls spila 12 sveitir og eru spilaðir tveir 16 spila leikir hvert spilakvöld, tvöföld umferð. Sveit Dags er með sem fyrr í keppninni og vann báða sína leiki í fyrstu umferð örugglega og er nú efst með 48 stig af 50 mögu- legum. Röð efstu sveita er þessi: 1. Dagur 48 2. Jakob Kristinsson 40 3. Hermann Tómasson 39 4. -5. Jónas Róbertsson 38 4.-5. Grettir Frímannsson 38 6. Ævar Ármannsson 36 7. Ormarr Snæbjörnsson 31 Næstu tvær umferðir verða spilaðar í Hamri þriðjudaginn 30 okt. kl. 19.30. Rétt er að geta þess að aðstaða fyrir áhorfendur er góð í Hamri og þar er hægt að kaupa veitingar á vægu verði. saltfiskverkuninni, því skiljan- lega er rnæting ekki góð á há- annatímanum. Dagur hafði spurnir af því að illa hefði gengið að finna nægilega marga saltfiska á Húsavík, til handa mats- mönnunum að æfa sig í saltfisk- matinu. Tveir leiðbeinendanna á námskeiðinu, Bjarni Benedikts- son, framleiðslustjóri og Júlíus Bergsson, eftirlitsmaður sögðu að nægjanlegur fiskur hefði feng- ist fyrir námskeiðið, en 150-200 fiska þyrfti til að sýna hverjum nemanda. Hins vegar væri lítill saltfiskur til, og væru það í raun bestu meðmælin fyrir SÍF. Mark- aðsverð væri í toppi, greiðslur örar og afskipanir færu fram jafn- óðum, það hefði því ekki verið jafn lítill saltfiskur til á landinu í mörg herrans ár. „Saltfiskverðið er mjög gott núna, það er eins og best var þegar best gekk 1986 og ’87. Það sem er að, er að það vantar fisk, hráefnið. Menn eru mjög jákvæðir fyrir söltun en það vant- ar kvótann," sagði Bjarni. Hann sagði að nú biðu menn eftir 1. nóv. en eftir þann tíma fengju þeir að tvöfalda þann kvóta sem þeir ættu eftir að veiða. Aðspurður um breytingar á saltfiskmatinu frá ári til árs sagði Bjarni að þær væru ekki miklar. Samræmdur gæðastaðall væri milli kaupenda og seljenda og síðan væri hver staðall til sölu á því verði sem upp væri sett. En það væri eilífðarmál að samræma störfin við matið þar sem um skynmat væri að ræða. 1M skák Hausthraðskákmótið: Ólafur sigraði eftir baráttu við Arnar Ólafur Kristjánsson var sigur- sæll á mótum Skákfélags Akureyrar um síðustu helgi. Hann sigraði í 10 mínútna móti og einnig í Hausthraðskákmót- inu eftir harða keppni við Arn- ar Þorsteinsson. Alls tóku 20 keppendur þátt í Hausthraðskákmótinu og sigraði Ólalur nreð \l'/i vinning. Arnar varð í öðru sæti með 17 vinninga en þessi tveir keppendur skáru sig úr og er töluvert bil í næstu menn. í 3. sæti varð Rúnar Sigurpáls- son með 13'/2 vinning og í 4. sæti varð Jón Björgvinsson með sama vinningafjölda, en hann tapaði fyrir Rúnari í einvígi um þriðja sætið. Röð næstu manna varð þessi: 5.-6. Bogi Pálsson og Þórleifur Karlsson 12'A v. 7.-8. Gylfi Þór- hallsson og Smári Ólafsson 11 Vi v. 9.-10. Tómas Hermannsson og Srnári Teitsson 11 vinningar. SS Skákfélag Akureyrar: Opið hús Skákfélag Akureyrar verður með opið hús í kvöld, fimmtu- dagskvöld, frá kl. 20.00 í fé- lagsheimili sínu Þingvallastræti 18. Allir eru hjartanlega vel- komnir og er þetta kærkomið tækifæri til að kynnast starfi félagsins. Að sögn Þórs Valtýssonar er stefnt að því að halda 15 mínútna mót á vegurn skákfélagsins næst- komandi sunnudag kl. 14.00. SS Haustfundur Kvenfélagsins Aldan Voröld, verður í Freyvangi, laugardaginn 27. október kl. 14.00. Stjórnin. ■ alíslenska greiðslukortið Umboð: Vátryggingafélag íslands hf. Glerárgötu 24, Akureyri.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.