Dagur - 27.10.1990, Side 5
Laugardagur 27. október 1990 - DAGUR - 5
Deilur hrossaræktaraianna
- teygður skali einkunnagjafar í byggingardómum
veldur óeiningu meðal hestamanna
Landsþing hestamanna er haldið á Húsavík um þessa
helgi. Miklar deilur hafa sett svip á starfsemi hrossa-
ræktarmanna að undanförnu og ekkert bendir til að þær séu
á enda. Fulltrúar Skagfirðinga, Vestur-Húnvetninga og einn
fulltrúi af Vesturlandi gengu af aðalfundi Hrossaræktarsam-
bands íslands á Akureyri um síðustu helgi. Þá hafði tillaga
um stuðning við afgreiðslu stjórnar Búnaðarfélags Islands á
deilumálunum vegna kynbótadóma frá því í sumar verið
samþykkt. Skagfírðingar og Vestur-Húnvetningar höfðu far-
ið fram á að tillagan yrði dregin til baka en því var hafnað af
flutningsmönnum.
Snarpar deilur á aftalfundi Hrossaræl
T'li .
1 uouin fyrir
mirtjan
■ nóvember
jlccnoi""------- j . •\ri " ■ '*«•
lauk. •*!* 11 ll»a* I'..* '*■'■" -
Mikil óánægja blossaði upp á
meðal hrossaræktarmanna með
þá kynbótadóma sem fram fóru á
síðastliðnu sumri. Á fundi með
fulltrúum frá Félagi hrossa-
bænda, hrossaræktarsamböndum
og hestamannafélögum úr öllum
landshlutum, sem haldinn var á
Hvanneyri 27. júní var samþykkt
ályktun og send Búnaðarfélagi
íslands. í ályktuninni er farið
fram á að skýr verkaskipting
verði gerð milli landsráðunauta í
hrossarækt á þann veg, að Krist-
inn Hugason komi hvergi nærri
dómarastörfum frá og með 1.
janúar 1991. Krafa er gerð um að
framkvæmd kynbótadóma verði
endurskoðuð og kynbótadómar
frá 1990 verði sérstaklega athug-
aðir með tilliti til ósamræmis sem
virðist vera og einnig vegna lækk-
unar á eldri byggingareinkunn.
Þá er þess krafist að eigendum
kynbótahrossa 1990 verði heimilt
að afturkalla dóma á hrossum
sínum, fari þeir fram á það skrif-
lega.
Áður sýnd hross stór-
lækkuð í byggingardómi
í ályktun Hvanneyrarfundarins
til Búnaðarfélags íslands segir
meðal annars að aldrei áður hafi
byggingardómum hrossa verið
breytt jafn mikið. Dæmi eru
nefnd um að 1. verðlaunahross
hafi verið dæmd úr ættbók og að
nokkur hross hafi verið bygging-
ardæmd tví- og þrívegis og fengið
mismunandi einkunn. Síðan segir
í ályktuninni: „Eigendur urðu
fyrir því að áður sýnd hross sem
fengið höfðu góða byggingar-
einkunn og verið þjálfuð til auk-
inna kosta til að komast á lands-
mót eða í 1. verðlaun voru stór-
lækkuð í byggingardómi, þannig
að meðaleinkunn lækkaði, í sum-
um tilfellum að hross féllu úr 1.
verðlaunum í 2. verðlaun og í
öðrum tilfellum að áður sýnd ætí-
bókarfærð hross náðu ekki
meðaleinkunn til ættbókar-
færslu.“
Fulltrúar í hrossaræktarnefnd-
inni segja að samþykkt hafi verið
að eldri byggingardómar ættu að
vera óbreyttir nema í undantekn-
ingartilfellum og að engar rök-
studdar forsendur hafi legið fyrir
um breytingar á byggingardóm-
um, eins og virðist hafa orðið,
þar sem djúpbyggð hross hafi
verið lækkuð í einkunnum miðað
við það sem áður var. Fulltrúar í
hrossaræktarnefndinni telja að
dómarar hafi sett sér nýjar kröfur
um byggingarlag hrossa, sem séu
í ósamræmi við byggingu
íslenskra hrossa.
Aldrei lægra hlutfall
hrossa komist í ættbók
í ályktun Hvanneyrarfundarinns
segir að aldrei hafi hærra hlutfall
af hrossum, sem komið hafa til
dóms í fyrsta sinn, verið í þeim
hópi sem ekki hafi náð að komast
í ættbók. Fyrir landsmótið 1986
hafi 65,9% fyrst dæmdra hrossa
náð ættbók og á undanförnum
árum hafi fjöldi ættbókarfærðra
hrossa verið um 65% af sýndum
hrossum. Fyrir landsmótið á síð-
astliðnu sumri höfðu hins vegar
aðeins 56,4% af öllum sýndum
hrossum náð ættbók og þannig
megi öruggt telja að innan við
50% af fyrst sýndum hrossum
hafi komist í ættbók. Munurinn
sé því a.m.k. 15% á þessu ári. '
Ekki þörf á nýjum dómara
- engin tök á að
afturkalla dóma
Stjórn Búnaðarfélags íslands tók
athugasemdir Hvanneyrarfund-
arins til athugunar og á fundi
stjórnarinnar 17. september var
gerð bókun um málið. Bókunin
er svar Búnaðarfélags íslands við
gagnrýni og kröfum þeirra full-
trúa landshluta og hrossaræktar-
nefndar Búnaðarfélagsins sem
sátu fundinn á Hvanneyri. í bók-
un stjórnar Búnaðarfélagsins er
kröfum Hvanneyrarfundarins
svarað á þann veg að ekki eru tal-
in efni til að breyta verkaskipt-
ingu á milli ráðunauta félagsins í
hrossarækt og telur stjórnin eng-
in rök hafa komið fram sem
styðja þá kröfu. Stjórn Búnaðar-
félagsins tekur undir þá ábend-
ingu að framkvæmd kynbótadóma
verði öll endurskoðuð og bendir
á að unnið sé að setningu reglu-
gerðar við hin nýju búfjárræktar-
lög þar sem ákvæði um tilhögun
sýninga í hrossarækt eigi heima.
Stjórnin telur að nákvæmar þurfi
að kveða á um framkvæmd kyn-
bótadóma, svo sem um gildi
dóma frá mismunandi stigum
sýninga með því að setja stigun-
arkvarða fyrir dóma. Þá telur
stjórn Búnaðarfélagsins einsýnt
að verða við þeim tilmælum að
kynbótadómar frá 1990 verði
endurskoðaðir sérstaklega.
Ráðunautar félagsins í hrossa-
rækt hafi tjáð að alltaf hafi staðið
til að meta árangur og afleiðingar
þeirra breytinga á notkun dóms-
skala og á vægjum einstakra
þátta, sem hrossaræktarnefnd
varð sammála um. Stjórn Búnað-
arfélagsins telur hins vegar en
engin tök séu á að heimila eig-
endum hrossa að afturkalla dóma
frá formlegum löggiltum sýning-
um en vísaði þessu erindi þó til
hrossaræktarnefndar til nánari
athugunar.
Afstaða Búnaðarfélagsins
- undirrót óánægju
Að Búnaðarfélag íslands neitar
að breyta verkaskiptingu í hrossa-
rækt á þann veg að Kristinn
Hugason komi ekki nálægt dóm-
arastörfum frá 1. janúar 1991 og
að ekki er orðið við þeirri kröfu
að heimila eigendum hrossa að
afturkalla dóma á hrossum sínum
frá 1990 virðist undirrót þess að
Skagfirðingar, Vestur-Húnvetn-
ingar og einn fulltrúi Vestlend-
inga treystu sér ekki til að sitja á
aðalfundi Hrossaræktarsambands
íslands eftir að tillaga til stuðn-
ings þeim starfsaðferðum, sem
Kristinn Hugason og Þorkell
Bjarnason hafa viðhaft var sam-
þykkt á fundinum. Á undanförn-
um árum hefur þróast samstarf
með Þorkeli Bjarnasyni, ráðu-
nauti í hrossarækt, og dr. Þor-
valdi Árnasyni, kynbótafræðingi,
sem starfar í Svíþjóð. Er Kristinn
Hugason réðst til starfa sem
hrossaræktarráðunautur Búnað-
arfélags íslands kom hann inn í
þetta samstarf. Árið 1986 var
svonefnt „Blöpp" kerfi tekið í
notkun við framkvæmd bygging-
ardóma. Ákvörðunin sem hinu
mikla fjaðrafoki hefur valdið er
sú að teygt var á einkunnaskala
kerfisins til þess að ná fram aukn-
um breytileika í dómum. Með
því að auka breidd í einkunna-
gjöf telja ráðunautarnir að dóm-
ar verði öruggari og betur sé hægt
að greina góð hross frá þeim lak-
ari og það sem meira máli skipti;
auðveldara verði að greina frá-
bær hross frá góðurn. Með því að
auka breidd einkunnagjafarinnar
sé unnt að hraða ræktunarstarf-
inu og ná skjótari og betri árangri
í búgrein sem eigi mikla framtíð
fyrir sér á íslandi.
Áfram verði haldið á
braut aukinnar teygni
einkunnagjafar
1 tillögu til stuðnings ráðunautum
Búnaðarfélags íslands í hrossa-
rækt, sem samþykkt var á Akur-
eyri um síðustu helgi, er meðal
annars lýst furðu á kröfum uni að
Kristinn Hugason komi ekki
nálægt dómstörfum og að eigend-
um hrossa verði heimilað að
afturkalla dóma frá 1990. Þá er
lögð áhersla á að haldið verði
áfram á þeirri braut sem mörkuð
var í upphafi þessa árs um aukna
teygni einkunnagjafar og athug-
un á því hvernig sú breyting hef-
ur reynst í framkvæmd. í álykt-
uninni er bent á að faglegt erfða-
fræðilegt mat á kynbótagildi ein-
stakra gripa sé undirstaða rækt-
unarstarfsins og myndi grunninn
að raunhæfu úrvali kynbótagripa
jafnt í hrossarækt sem og öðrum
búgreinum. Lýst er fullum stuðn-
ingi við störf dr. Þorvaldar Árna-
sonar og þung áhersla lögð á að
hann komi aftur til starfa að
hrossaræktinni með hliðstæðum
hætti og verið hefur.
Ekki vilja allir vera
bendlaðir við ályktunina
frá Hvanneyri
Mikill hiti virðist í mönnum út af
þessari tillögu og vildu þeir sem
blaðið náði tali af sem minnst
segja. Sveinn Guðmundsson á
Sauðárkróki, einn þeirra er
gengu af fundi á Akureyri, vildi
ekki láta hafa neitt eftir sér. Guð-
mundur Sigurðsson, ráðunautur
á Hvanneyri, einn flutningsmanna
Akureyrartillögunnar sagði að
tillagan hefði verið lögð frant
vegna þess að ekki vildu allir
liggja undir því að vera bendlaðir
við ályktun Hvanneyrarfundar-
ins. Hann benti á að hugsanlega
myndi tillagan frá Akureyrar-
fundinum hreinsa andrúmsloftið
þegar frá liði þótt hún hefði vald-
ið deilum í byrjun. Kristinn
Hugason benti á að menn vildu
ekki horfast í augu við árangur af
nákvæmari dómum seni aukin
breidd í einkunnagjöf gæfi færi á.
Hann sagði að ef litið væri á tölur
yfir fjölda sýningarhrossa kæmi í
ljós að hrossum sem hlutu góða
dóma og komust í ættbók hefði
ekki fækkað. Hlutfall þeirra af
fjölda frumsýndra og sýndra
hrossa hefði fyrst og fremest
lækkað vegna aukins fjölda
hrossa sem komið væri með á
sýningar.
Ræktunin er sá sem tapar
á illindum
Ljóst er að deilur innan hrossa-
ræktarinnar verða ekki settar
niður á næstu dögum. Til þess er
ágreiningurinn of djúpstæður.
Það eina sem virðist geta samein-
að hrossaræktarmenn á nýjan
leik er góður og almennur árang-
ur í ræktunarstöríum. Þrátt fyrir
tilvist þarfasta þjónsins á íslandi
um aldir er hrossaræktin ung
búgrein, sem nú virðist eiga góða
möguleika til útflutnings, ef til
vill ein íslenskra búgreina. Því er
slæmt að harðvítugar deilur skuli
setja jafn mikinn svip á hana og
raun ber vitni. Á þeim græðir
enginn en ræktunarstarfið er sá
aðili sem tapar. ÞI
Kynbótasýningar: Sýningar- Fjöldi Fjöldi Hlutfall
ár alls frumsýndra frumsýndra
1987 748 649 86,8%
1988 956 829 84,1%
1989 810 734 90,6%
1990 1135 914 80,5%
Fjöldi hrossa sem nær fyrstu Stóöhestar verðlaunum: Hryssur
Sýningarár Alls Frumsýndir Alls Frumsýndar
1987 5 1 20 2
1988 9 0 10 1
1989 14 8 14 3
1990 38 8 57 20
Hlutfall frumsýndra hrossa í ættbók:
Stóðhcstar í ættbók Hryssur í xttbók
Sýningarár Sýndir Hlutfall Sýndar Hlutfall
1987 91 20 22,0% 558 367 65,8%
1988 89 23 25,8% 740 394 53,2%
1989 105 41 39,0% 629 394 62,6%
1990 131 36 27,5% 783 394 Heimild: Búnaðarféiag 50,3% Islands.