Dagur - 06.11.1990, Blaðsíða 10

Dagur - 06.11.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 6. nóvember 1990 íþróttir H Anders Iimpar bjargaði Arsenal Á laugardaginn fóru fram 9 leikir í 1. deild ensku knatt- spyrnunnar, en mörgum fannst laugardagurinn þunnur þar sem glansliöin Liverpool og Tottenham léku ekki. i’rátt fyrir það voru margir athygl- isverðir leikir á dagskrá og viö skulum líta nánar á þá. Á Old Trafford í Manchester mættust lið Utd. og Crystal Pal- ace sem léku til úrslita um FA- bikarinn sl. vor. Búist var við hörkuleik þar sem Palace hafði ekki tapað leik í 1. deild og Man. Utd. hafði slegið Liverpool úr deildabikarnum fyrr í vikunni. Áhorfendur urðu ekki fyrir von- brigðum, leikurinn var mjög fjör- ugur og í fyrri hálfleik léku heima- menn mjög vel. Á 12. mín. náði Utd. forystu með marki Neil Webb eftir góðan undirbúning Lee Sharpe. Ekki þurftu áhorf- endur lengi að bíða eftir næsta marki því á 20. mín. bætti Danny Wallace öðru marki við fyrir Utd. með glæsilegu skoti eftir sendingu frá Webb. Síðari hálf- leikurinn var mjög fjörugur og minnti mest á bikarleik, en hvor- ugu liðinu tókst þó að bæta við mörkum og fyrsta tap Palace í deildinni hafði því litið dagsins ljós. Colin Harvey framkvæmda- stjóri Everton var rekinn fyrr í vikunni eftir tap liðsins í deilda- bikarnum gegn Sheffield Utd. Við stöðu hans tók þjálfarinn Jimmy Gabriel til bráðabirgða og það bar góðan árangur gegn Q.P.R. um helgina. Everton hafði þó heppnina með sér í leiknum, á 22. mín. virtist Mike Neweíl rangstæður er hann slapp í gegnum vörn Q.P.R. og skoraði gegn gangi leiksins. Roy Wegerle var ekki á skotskónum hjá Q.P.R. í leiknum, en liðið lék góða knattspyrnu framan af. Pat Nevin bætti öðru marki Everton við er 15 mín. voru liðnar af síð- ari hálfleik og liðið náði völdun- um í leiknum og Neil McDonald bætti þriðja markinu við á síð- ustu mín. leiksins. Brottrekstur Harvey hafði lengi legið í loftinu og ef til vill verður hann til þess að bjartari tíð sé framundan hjá liðinu. Arsenal lék erfiðan leik á úti- velli gegn Coventry og með sigri hafði liðið tækifæri til að minnka Úrslit 1. deild Chelsea-Aston Villa 1:0 Coventrj-Arsenal 0:2 Derby-Luton 2:1 Everton-Q.P.R. 3:0 Leeds Utd.-Nottingham For. 3:1 Man. Utd.-Crystal Palace 2:0 Nonvich-Sheffield Utd. 3:0 Sunderland-Manchcster City 1:1 Wimhledon-Southainpton 1:1 Toltenham-Liverpool 1:3 2. deild Blackburn-Millwall 1:0 Bristol City-Watford 3:2 Charlton-Plymouth 0:1 Hull City-Newcastle 2:1 Ipswich-Brighton 1:3 Middleshrough-Barnsley 1:0 Notts County-West Ham 0:1 Oxford-Leicester 2:2 Portsmouth-Wolves 0:0 Sheffield Wed.-Oldham 2:2 Swindon-Port Vale 1:2 W'.B.A.-Bristol Rovers 3:1 Úrslit í vikunni: Notts County-Charlton 2:2 - Crystal Palace tapaði leik - 2. deildin blasir við Sheffield Utd. Svíinn Anders Limpar gerði bæði mörk Arsenal gegn Coventry og leikur mjög vel um þessar mundir. forskot Liverpool í eitt stig. Alan Smith miðherji Arsenal fór meiddur út af í fyrri hálfleik og lengst af virtist Coventry líklegra liðið til að sigra í leiknum. David Seaman í marki Arsenal hafði í nógu að snúast gegn sókndjörf- um leikmönnum Coventry, en vörn Arsenal varðist vel. Það var síðan 7 mín. fyrir leikslok að þol- inmæði Arsenal bar árangur og Anders Limpar skoraði fyrir liðið með fallegu langskoti. Limpar bætti síðan öðru marki við fyrir Arsenal undir lokin af stuttu færi eftir góðan undirbúning Nigel Winterburn og þessi sigur Arsen- al setti því pressu á Liverpool fyr- ir leik þeirra gegn Tottenham á sunnudag. Sunderland fékk slæma útreið í deildabikarnum er liðið tapaði 6:0 gegn Derby, en leikmönnum tókst þó að næla í stig eftir 1:1 jafntefli gegn Manchester City á laugardag. Miðherji Sunderland Marco Gabbiadini átti slæman dag gegn City og misnotaði dauða- færi fyrir liðið strax á 4. mín., en sást varla eftir það. Leikurinn þótti slakur og lítt spennandi, en Peter Davenport náði forystu fyr- ir Sunderland með marki af stuttu færi á .30. mín. Lið Man. City hafði ávallt undiríökin í leiknum og náði að jafna á 53. mín. með marki David White. Tony Norman í marki Sunder- land varði þrívegis mjög vel og kom í veg fyrir sigur Man. City í leiknum. Leeds Utd. tók á móti Notting- ham For. á Elland Road og nú léku heimamenn einn besta leik sinn í vetur. Des Walker mið- vörðurinn sterki hjá Forest var meiddur og það nýtti Lee Chap- man sér vel er hann náði forystu fyrir Leeds Utd. eftir sendingu Gordon Strachan. Strachan bætti síðan öðru marki Leeds Utd. við úr vítaspyrnu rétt fyrirhlé. Gary McAllister skoraði þriðja mark Leeds Utd. með glæsilegu skoti, hans fyrsta rnark fyrir félagið, en Nigel Jemson náði að laga aðeins stöðuna fyrir Forest með eina marki liðsins undir lokin. Slæmur dagur hjá Brian Clough stjóra Forest sem rekinn var frá Leeds Utd. á sínum tíma og horfði nú á Chapman sem hann seldi til Leeds Utd. skora ásamt Gary McAIlist- er sem hann reyndi að kaupa til Forest, en varð að horfa á eftir til Leeds Utd. Derby virðist vera að komast í sitt gamla góða form, en þó var enginn glans yfir sigri liðsins gegn Luton. Liðið átti ekki skot á mark fyrsta hálftímann, en eftir að Luton hefði getað verið búið að skora tvö mörk náði Derby forystu. Skot frá Mike Forsyth var varið á línu af David Preece sem notaði hendurnar til þess og Dean Saunders skoraði úr víta- spyrnunni. Leikmenn Luton gáf- ust þó ekki upp og eftir 3 mín. í síðari hálfleik hafði liðið náð að jafna. Dean Saunders átti skot í slána hjá Luton, Phil Gee náði boltanum en skalli hans fór framhjá og Luton fékk mark- spyrnu. Lars Elstrup fékk bolt- ann úr markspyrnunni, óð upp hægri kant og sendi vel fyrir mark Derby þar sem Kingsley Black skoraði af öryggi framhjá Peter Shilton. Sigurmark Derby kom á 65. mín. er Nigel Callaghan láns- maðurinn frá Aston Villa skoraði með glæsilegu langskoti. Chelsea vann sanngjarnan sig- ur á heimavelli gegn Aston Villa í 1:0 leik sem sást í sjónvarpinu. David Platt og Gordon Cowans lykilmenn Villa voru í strangri gæslu í leiknum og Tony Daley fór meiddur útaf. En Chelsea gerði mcira en koma í veg fyrir að Villa næði sínum eðlilega leik, því sóknarleikur Chelsea var góður og liðið hefði hæglega get- að.unnið stærri sigur. Sigurmark- ið skoraði Graeme Le Saux fyrir Chelsea eftir aðeins 5 mín. leik eftir undirbúning Gordon Durie og Dennis Wise. Le Saux átti síð- an skot í stöng og Wise og Kevin Wilson fengu góð marktækifæri fyrir Chelsea sem þeim tókst ekki að nýta. Mjög slökum leik Wimbledon og Southampton Iauk með 1:1 jafntefli. Um miðjan síðari hálf- leik komst Wimbledon yfir með furðulegu marki. Mickey Adams leikmaður Southampton ætlaði að hreinsa frá marki, en tókst ekki betur til en svo að hann spyrnti boltanum í markvörð sinn Tim Flowers og af honum fór boltinn í netið og markið skrifast á Flowers. Roger Joseph var síð- an nærri að skora sjálfsmark hjá Wimbledon er hann skallaði rétt framhjá rnarki sínu, en Sout- hampton náði síðan að jafna 10 mín. fyrir leikslok og tryggja sér sanngjarnt stig úr leiknum. Matt- hew Le Tissier skoraði úr víta- spyrnu. 2. deildin virðist blasa við Sheffield Utd. nú þegar, liðið er á botni deildarinnar með aðeins 3 stig og ekkert gengur hjá leik- mönnum liðsins. Á laugardag í vikunni fór 3. umferð deildabik- arsins fram og urðu úrslit sem hér segir: Aston Villa-Millwall 2:0 Chelsea-Portsmouth 0:0 Coventry-Hull City 3:0 Crystal Palace-Leyton Orient 0:0 Derby-Sunderland 6:0 Ipswich-Southampton 0:2 Leeds Utd.-Oldham 2:0 Manchester City-Arsenal 1:2 Manchester Utd.-Liverpool 3:1 Middlesbrough-Norwich 2:0 Oxford-West Ham 2:1 Plymouth-Nottingham For. 1:2 Q.P.R.-Blackburn 2:1 Sheffield Utd.-Everton 2:1 Sheffield Wed.-Swindon 0:0 Tottenham-Bradford 2:1 Liverpool tapaði hér sínum fyrsta leik á tímabilinu er Man. Utd. sigraði örugglega 3:1 í stór- leik umferðarinnar. Steve Bruce, Mark Hughes og Lee Sharpe skoruðu mörk Utd. í leiknum, en eina mark Liverpool gerði Ray Houghton. Að þessum leikjum loknum var dregið um hvaða lið leika saman í 4. umferð keppninnar sent verður leikin í lok mánaðar- ins. Drátturinn er þannig: Sheffield Utd.-Tottenham. Shefficld Wed./Swindon-Derby. Southampton-Crystal Palace/Leyton Orient. Aston Villa-Middlesbrough. Oxford-Chelsea/Portsmouth. tapaði Sheffield 3:0 á útivelli gegn Norwich þar sem Tim Sher- wood náði forystunni á 30. mín. í síðari hálfleik skoraði Vinnie Jones sjálfsmark og kom þar með Norwich í 2:0 og lokaorðið átti David Phillips með þriðja marki Norwich í leiknum. 2. deild • Toppslagurinn í 2. deild var milli Sheffield Wed. og Oldham. Leiknum Iauk með 2:2 jafntefli eftir að þeir Nick Henry og David Currie höfðu komið Old- ham í 2:0, en tvær vítaspyrnur John Sheridan tryggðu Sheffield Wed. jafnteflið. • West Ham er í öðru sæti, liðið náði að sigra Notts County með marki undir lok leiksins. • Paul Kerr tryggði Middles- brough sigurinn gegn Barnsley. • Peter Swan skoraði sigurmark Hull City gegn Newcastle. Þ.L.A. Q.P.R.-Leeds Utd. Arseital-Manchester Utd. Coventry-Nottingham For. Man. Utd. er því enn á ný þátt- takandi í aðalleik umferðarinnar er liðið mætir Arsenal. Deilda- bikarmeistarar Nottingham For. mæta Coventry í erfiðum leik á útivelli. Þ.L.A. Staðan 1. deild Liverpool 11 10-1-0 25: 7 31 Arsenal 11 8-3-0 20: 5 27 Tottenham 11 6-4-1 18: 7 22 Crystal Palacc 11 5-5-1 17:11 20 Manchester City 11 4-6-116:1318 Manchester Utd 11 5-2-415:1417 Lceds Utd. 11 4-4-3 16:12 16 Luton 11 4-2-5 12:17 14 Aston Villa 11 3-4-4 13:11 13 Nottinghain For 11 3-4-414:1613 Chelsea 11 3-4-4 14:18 13 Noruich 11 4-1-6 14:19 13 Wimbledon 11 2-6-3 12:14 12 Q.P.R. 11 3-3-5 16:19 12 Soothampton 11 3-3-5 14:18 12 Coventry 11 3-2-6 11:15 11 Everton 11 2-4-5 16:17 10 Sunderland 11 2-4-5 13:17 10 Derbv 11 2-3-6 8:17 9 Sheffíeld Utd. 11 0-3-8 6:22 3 2. deild Oldham 15 10-5-0 28:13 35 W'cst Ham 15 9-6-0 25: 9 33 Sheffield Wed. 14 8-5-1 31:14 29 Millwall 14 7-4-3 25:15 25 Middlesbrough 14 7-3-4 23:12 24 Wolves 15 6-6-3 24:15 24 Barnsley 14 6-4-4 25:17 22 Notts County 15 6-3-6 21:19 21 Brighton 14 6-3-5 24:27 21 Ipswich 15 6-3-6 18:23 21 Bristol City 13 6-2-5 20:22 20 Plymouth 15 4-7-4 16:17 19 Portsmouth 15 5-4-6 21:23 19 W.B.A. 14 4-6-417:17 18 Port Vale 15 5-3-7 23:2618 Newcastle 14 4-5-5 14:15 17 Blackburn 15 5-2-8 20:23 17 Swindon 15 4-4-7 19:26 16 Bristol Rovers 13 4-2-7 17:20 14 Hull City 15 3-5-7 20:34 14 Leicester 15 4-2-9 20:35 14 Oxford 14 2-5-7 18:26 11 Charlton 15 2-4-9 16:23 10 Watford 14 2-3-9 11:21 9 Öruggt hjá Liverpool Stórleikur helgarinnar var á sunnudag er Tottenham og Liverpool mættust. Þeir sem héldu að Liverpool væri að gefa eftir vegna tapsins í deildabikarnum gegn Man. Utd. í vikunni voru snarlega leiðréttir. Þrátt fyrir að John Barnes færi meiddur út af hjá Liverpool spemma í leiknum hafði það eng- in áhrif á liðið sem var mun sterk- ari aðilinn í leiknum. Ian Rush skoraði eina mark fyrri hálfleiks- ins á 38. mín. fyrir Liverpool er hann lyfti laglega yfir Erik Thorst- vedt markvörð -Tottenham eftir sigraði Tottenham 3:1 góða sendingu frá Jan Mplby. Leikmenn Tottenham vildu þó meina að um rangstöðu hefði verið að ræða. Aðeins 3 mín. voru liðnar af síðari hálfleik er Rush hafði bætt við sínu öðru marki eftir góða sendingu David Burrows og Liv- erpool virtist hafa tryggt sér sigurinn. En aðeins 2 mín. síðai; lagaði Gary Lineker stöðuna fyr- ir Tottenham með marki eftir að David Howells hafði átt þrumu- skot í stöng Liverpool marksins. Paul Gascoigne átti slakan leik hjá Tottenham að þcssu sinni og barðist meira af kappi en forsjá og tókst ekki að drífa lið sitt áfram til að jafna leikinn. Það var síðan Peter Beardsley sem kom inn á fyrir Barnes sem varamaður sem bætti þriðja marki Liverpool við á 67. mín. Gary Ablett lék fram völlinn, sendi út á vinstri vænginn til Rush sem sendi fyrir mark Tottenham og þar kom Beardsley og skoraði af öryggi. Guðni Bergsson var í byrjun- arliði Tottenham, en átti fremur daufan leik og var skipt útaf í leikhléi. Sigur Liverpool var mjög sanngjarn og liðið heldur því enn fjögurra stiga forskoti í 1. deild. Þ.L.A. Deildabikarinn: Iiverpool úr leik

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.