Dagur


Dagur - 06.11.1990, Qupperneq 13

Dagur - 06.11.1990, Qupperneq 13
Þriðjudagur 6. nóvember 1990 - DAGUR - 13 Vetrarstarf vélsleðamanna að hefjast: Starfið felst í lengri og skemmri ferðum á vélsleðum - almennur fundur í Vín í Eyjafirði á fimmtudag Vetrarstarf er nú að hefjast hjá félögum í Landssambandi íslenskra vélsleðamanna. Vetrarstarfið felst helst í lengri og skemmri ferðum á vélsleðum. Landssambandið leggur mikla áherslu á gætni við öll ferðalög og góða umgengni við okkar við- kvæmu náttúru. Sérstaklega hef- ur það í huga að félagar aki ekki yfir gróðursvæði og skemmi t.d. tré og runna. Landssambandinu er skipt upp í svæði og eru trúnaðarmenn skipaðir um allt land. Trúnaðar- menn í Eyjafirði hafa óskað eftir því við Akureyrarbæ að hann gefi út kort til félaganna þar sem viðkvæm gróðursvæði eru sér- staklega merkt og mun það auð- velda þeim, er þeir aka sleðum sínum í bæjarlandinu. Stjórn landssafnbandsins er kosin til tveggja ára í senn og núverandi stjórn er skipuð félög- um úr Þingeyjarsýslu. Næsta stjórn verður hins vegar skipuð Austfirðingum. Trúnaðarmenn í Eyjafirði gangast fyrir almennum fundi félaga í Blóntaskálanum Vín næstkomandi fimmtudag 8. nóvember kl. 21.00. Þar verður samin áætlun vetrarins, en áætlað er að halda sýningu á nýjum vél- sleðum, fjölskyldudag og jafnvel bjóða upp á námskeið í hjálp í viðlögum og meöferð áttavita og lórantækja. Þá munu félagarnir einnig halda árshátíð sína sem notið hefur geysivinsælda. Á fundinum í Vín verða sýnd- ar nýjar myndir frá framleiðend- um vélsleða, frá keppnum síðasta vetrar og fl. Á fundinn koma stjórnarmenn landssambandsins og nýir og gamlir félagar. Mál og menning: Á íslendinga- slóðum í Kaup- mannahöfn Út er komin hjá Máli og menn- ingu bókin Á Islendingaslóðum í Kaupmannahöfn eftir Björn Th. Björnsson. Þetta cr ný útgáfa samnefndrar bókar sem kom út 1961 en hefur lengi verið ófáan- leg. Textinn hefur nú verið auk- inn og endurbættur. Einnig eru á þriðja hundrað nýjar ljósmyndir í bókinni og hverjum kafla fylgir götukort sem gerir bókina hand- hæga til að rata eftir um íslend- ingaslóðir. I bókinni rekur höfundur þró- un Kaupmannahafnar, fjallar um sögufrægar byggingar og rifjar upp örlagasögur af ísléndingum sem þangað sigldu, bæöi brosleg- ar og átakanlegar. Hér koma Fjölnismenn við -sögu, Jónshús, furðufuglinn Þorleifur Repp. Jóhann skáld Sigurjónsson. Árnasafn og íslenskir námsmenn á Gamlagarði, svo nokkuð sé nefnt. Hinir vinsælu sjónvarps- þættir höfundar um íslendinga í Kaupmannahfön sem sýndir voru sl. vor voru byggðir á nokkrum köflurn úr bókinni. Bókin er 278 bls. að stærð. Flestar ljósmyndir eru eftir Kristján Pétur Guðnason. Gísli B. Björnsson hannaði bókina, en hún var unnin í Prentsmiöjunni Odda hf. Bókin er gefin út bæði innbundin og í kilju. Mál og menning: Svefnhjólið - skáldsaga eftir Gyrði Elíasson Út er komin hjá Máli og menn- ingu skáldsagan SvefnhjóUð eftir Gyrði Elíasson. í sögunni ber margt fyrir augu lesenda sem er bæði kunnuglegt og kátlegt. og jafnframt ævintýralegt, dularfullt og ógnvekjandi. Hér er lýst- ferðalagi ungs manns um ísland, bæði ofanjarðar og neðan, hérna megin og hinum megin, frá litlu þorpi um stærra kauptún til dá- lítiliar borgar og tills staöar sérís- lensk kennileiti sem lesendur þekkja mætavel en verða hér engu að síður torkennileg af samhengi sínu. Þetta er önnur skáldsaga Gyrð- is EÍíassonar en að auki hefur hann áður sent frá sér smásagna- safn og sex Ijóðabækur. Árið 1989 hlaut hann Stílverðlaun Þórbergs Þórðarsonar, fyrstur manna. Formenn SÍH frá upphafí: Jóhannes Zoéga, fyrrverandi hitaveitustjóri Hita- veitu Reykjavíkur, Wilhelm Steindórsson, fyrrvcrandi hitaveitustjóri Hita- veitu Akureyrar, Ingólfur Hrólfsson, hitaveitustjóri Hitaveitu Akrancss og Borgarfjarðar, og núverandi formaður SIH, Franz Árnason, hitaveitustjóri Hitaveitu Akureyarar. Samband íslenskra hitaveitna: Gjöf til landgræðslu í tilefiii 10 ára afinælis Nú nýlega átti Samband íslenskra hitaveitna SÍH 10 ára'afmæli. Af því tilefni voru Landgræðslu ríkis- ins gefnar 200 þús. kr. Gjöfinni er ætlað að styðja verkefni sem Landgræðslan er að vinna að sem er þróun á landgræðsluplöntum, þá sérstaklega sjí.fbjarga þ.e. köfnunarefnisbinda i li plöntum eins og lúpínum. Er.nfremur er unnið í verkefni við að þróa svo- nefndar landgræðslueiningar t.d. birki nteð köfnunarefnisgefandi plöntum eins og smára eða baunagrasi sér við lilið. Sam- bandið vildi með þessu sýna vott um vilja hitaveitna til að skila landinu af sér í sama horfi til næstu kynslóðar. Samband íslenskra hitaveitna eru samtök 33 hitaveitna sem til samans þjóna um 87% af lands- mönnum. Markmið þess er að efla samstarf á milli veitna, vinna að sameiginlegum hagsmunamál- um og miðla reynslu og upplýs- ingum. Franz Árnason, formaöur SÍH afhendir Sveini Runólfssyni, landgræðslu stjóra gjöf SÍH. I||l Árshátíð framsóknarmanna verður haldin að Hótel Húsavík laugardag- inn 10. nóvember. Nánar auglýst síðar. Aukakjördæmisþing í Norðurlandskjördæmi eystra Sunnudaginn 11. nóvember verður haldið aukakjör- dæmisþing KFNE á Hótel Húsavík. Dagskrá: Kl. 13.00 Prófkjör vegna alþingiskosninga. Kl. 17.00 Þingslit. I|i| Kjördæmisþing í Norðurlandskjördæmi eystra 35. þing KFNE veður haldið á Hótel Húsavík laugar- daginn 10. nóvember. Dagskrá: 9.00 Skráning þingfulltrúa, þingsetning, ávörp þingmanna og gesta, framlagning mála, ræða forsætisráðherra. 12.30-13.30 Matarhlé. 13.30 Stjórnmálaumræður, nefndarstörf, afgreiðsla mála, kosningar, önnur mál. 19.30 Þingslit. 20.30 Kvöldfagnaður á Hótel Húsavík. Gestir þingsins eru Steingrímur Hermannsson forsætisráð- herra, Sif Friðleifsdóttir formaður SUF, Unnur Stefánsdóttir formaður LFK og Egill H. Gíslason framkvæmdastjóri Fram- sóknarflokksins. Ég sendi börnum mínum, barnabörnum og vinum mínar bestu þakkir fyrir heimsóknir, góðar gjafir og kveðjur á afmælisdaginn minn þann 2. nóvember s.l. Lifið heil! RÚTUR ÞORSTEINSSON. Faðir okkar, JAKOB R. BJARNASON, múrarameistari, lést á heimili sínu þann 1. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 8. nóvember n.k. kl. 13.30. Halldóra Jakobsdóttir, Bjarni Jakobsson, Gunnar Bergsveinsson. Öllum þeim sem auðsýndu okkur hjálp og samúð í veikindum og við fráfall HARTMANNS KRISTINS GUÐMUNDSSONAR frá Þrasastöðum, sendum við bestu þakkir. Sérstakar þakkir til lækna og annars starfsfólks Handlæknis deildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyrir frábæra hjúkr- un og hlýju. Gæfan fylgi ykkur. Kristín Halldórsdóttir, börn og tengdabörn.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.