Dagur - 13.12.1990, Síða 1
Beðið eftir grænu ljósi fyrir framhaldsnám við rekstrardeild HA:
„Fáar aðgerðir í byggða-
málum geta skilað jafiuniklu“
- segir Stefán Jónsson, deildarstjóri rekstrardeildar HA
„Gróflega áætlað er rekstrar-
og stofnkostnaður á þessuni
brautum um 40 milljónir á ári.
Ef tekið er tillit til þess hve
miklu máli þessir 70 nemendur
skipta fyrir bæjarfélagið þá er
Ijóst að bærinn fengi aðra eins
upphæð eða hærri í gegnum
þessa nemendur. Þetta væri
því hagstæð aðgerð og ég held
að fáar aðgerðir í byggðamál-
um, sem ekki kosta nema 40
milljónir á ári, hafi meiri áhrif
til lengri tíma litið,“ segir Stef-
án Jónsson, deildarstjóri
rekstrardeildar Háskólans á
Akureyri, vegna þeirra tillagna
sem nú eru fram komnar um
framhaldsnám við deildina
þannig að hún geti útskrifað
nemendur með BA eða BS
próf.
Þess er nú beðið að fjárlaga-
frumvarp fái afgreiðslu á Alþingi
en þá sést hvort fé verður veitt til
aukinnar uppbyggingar rekstrar-
deildarinnar. Sú afgreiðsla segir
Stefán að sé fyrsta skrefið í átt til
þess að hinar nýju tillögur verði
að veruleika.
„Fyrsta skrefið er að fá pen-
inga til þessa verks og fáist þeir
munum við gera eins og við get-
um til að koma þessum tillögum
sem fyrst í framkvæmd," sagði
Stefán.
Hann veitti forstöðu þeirri
nefnd menntamálaráðherra sem
skipuð var til að gera tillögur um
framhaldsnáin við rekstrardeild
HA. Nefndin lagði til að settar
Loðnuleiðangur Árna Friðrikssonar RE:
Leitar nú fyrir Norðurlandi
- ekkert nýtt kom fram við leit
fyrir Austijörðum
Hafrannsóknaskipið Árni
Friðriksson RE 100 lauk
nýlega við loðnuleit fyrir aust-
an land, án þess að nýjar eða
óvæntar upplýsingar kæmu
fram. Skipið hélt til áframhald-
andi leitar fyrir Norðurlandi í
gær.
Sveinn Sveinbjörnsson, leið-
angursstjóri, segir að leitin hafi
byrjað fyrir suðaustan land, síð-
an var haldið norður með Aust-
fjörðum og austur fyrir Langa-
nes. Dálítið fannst á litiu svæði,
en vitað var um þá loðnu áður,
og ekki vart við neinar breytingar
enn sem komið er. Næstu daga
verður leitað áfram fyrir norðan
og norðaustan land, og síðan
haldið á Strandagrunn.
í fyrra varð ekki vart við loðnu
úti fyrir Austfjörðum fyrir ára-
mót, en þá lá loðnan alveg upp
undir ísbrún við Kolbeinsey og
bátarnir náðu ekki að athafna
sig. I desember var loðna austur
undir Sléttugrunni, en lítið sem
ekkert veiddist af henni. „Loðn-
an er á bletti fyrir Austurlandi,
og fyrr á vertíðinni var búið að
veiða svolítið af blandaðri loðnu
á þeim slóðum, eins og reyndar á
öllu svæðinu. Gangan kemur í
janúar, en spurningin er hversu
stór hún verður. Ég á ekki von á
að hún verði stór ef ekki kemur
eitthvað nýtt inn í hana. Ég veit
ekki hvaðan viðbót ætti að koma,
því búið er að leita víða. í októ-
ber og nóvember var farið norður
undir 69 gráður, utan hefðbund-
inna útbreiðslusvæða á þeim
tíma. Loðnan hefur yfirleitt verið
komin miklu sunnar og vestar í
eðlilegum árum. Hefðbundin
loðnuganga safnast saman fyrir
Vestfjörðum og gengur norður
og austur fyrir land, eða kemur
beint norður úr hafi á Kolbeins-
eyjarsvæðið og tekur svo
strikið,“ segir Sveinn. EHB
yrðu á laggirnar fjórar brautir,
eins og greint var frá í blaðinu sl.
þriöjudag, og á þessum brautum
yrðu 70 nemendur. í skýrslu
nefndarinnar kemur skýrt fram
að uppbygging þessara brauta er
hugsuð með það fyrir augum að
þeir nemendur sem af þeim koma
nýtist vel fyrir atvinnulífið á
landsbyggðinni.
„Við lítum svo á að oft þurfi
fólk með fjölbreyttari menntun
úti á landi vegna smæðar fyrir-
tækja þar. Þessi fyrirtæki þurfa
því menn sem hafa breiðari
þekkingu og geta sótt eftir sér-
fræðiþekkingunni þegar við á,"
segir Stefán.
„Við finnum að margir bíða
eftir ákvörðun um þetta nám,
bæði fólk sem er í námi og líka
fólk sent hyggur á endurmennt-
un. Þetta yrði stórt skrcf l'yrir
skólann og þar með gætu allar
deildirnar útskrifað nemendur
með BA eða BS próf. Ég lít svo
á að með þessu yrði stigið spor
sem leiðir af sér frekari uppbygg-
ingu skólans. Það er mjög mikil-
vægt að áfram sé haldið stöðugri
uppbyggingu." JÓH
Ekki er á vísan að róa.
Myntl: (iolli
Óvenjuleg flugferð frá Akureyri í gær:
Guggnir farþegar eftir
tveggja tíma hringsól
- hvorki hægt að lenda í Reykjavík né Keflavík
Fyrsta áætlunarferð Flugleiða
frá Akureyri til Reykjavíkur í
gærmorgun var heldur betur
með öðru sniði en áætlunin
segir til um. Fokkerinn fór í
loftið frá Akureyri á réttum
tíma, kl. 9.20, en í stað þess að
lenda í Reykjavík upp úr kl. 10
lenti vélin aftur á Akureyrar-
flugvelli um kl. 11.30.
Skýring á þessari sérstæðu
flugferð var sú að vélin gat eþki
lent í Reykjavík vegna mikillar
Landnemarnir í brons á næsta ári:
Helgi magri í víking til Englands
- Skipadeild Sambandsins styrkir hann til utanfarar
Landnámsmaðurinn Helgi
magri liyggst fara í víking
ásamt spúsu sinni, Þórunni
hyrnu, og hefur Skipadeild
Sambandsins boðist til að
styrkja þau hjónin til utanfar-
ar. Sem kunnugt er hafa Helgi
og Þórunn verið lengi í afvötn-
un á Akureyri en nú er förinni
heitið í eftirmeðferð til Eng-
lands.
Hér er að sjálfsögðu átt við
styttu Jónasar S. Jakobssonar,
Landnemarnir, sem vindar og
vatn höfðu leikið illa. Styttan
hefur undanfarin ár verið í þurrki
í húsnæði Hitaveitu Akureyrar
og beðið viðgerðar.
Að sögn Ingólfs Ármannsson-
ar, menningarfulltrúa, liggur fyr-
ir beiðni hjá bæjarstjórn um að
Landnemarnir verði steyptir í
brons í Englandi og verður vænt-
anlega gert ráð fyrir þessum lið í
fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.
„Það er rétt að skipadeildin
hefur boðist til að flytja styttuna
án endurgjalds og við gerum það
með mikilli ánægju," sagði Jón
Arnþórsson hjá Skipadeild Sam-
bandsins.
Jón á sæti í menningarmála-
nefnd og hann sagðist hafa gert
sér vonir um að hægt hefði verið
að koma Landnemunum upp á
þessu ári því nú væru 1100 ár lið-
frá landnámi Eyjafjarðar.
ín
en
Þetta reyndist ekki gerlegt
hann kvaðst ánægður með það að
bæjaryfirvöld virtust ætla að taka
myndarlega á niálinu og veita fé
til vandaðra endurbóta á stytt-
unni. SS
hálku á flugbrautunum þar. Þá
var vélinni flogið til Kéflavíkur
og freistað þess að lenda þar.
Sökum mikjts óróleika í lofti taldi
flugstjóri hins vegar ekki ráðlegt
að lenda vélnni á Keflavíkurflug-
velli og flaug hcnni aftur til
Akureyrar.
Að sögn afgreiöslumanns Flug-
leiða á Akureyrarflugvelli var
upplitið á þeim rúmlega 20 far-
þegum, sem fóru mcð vélinni,
misjafnlega uppörvandi þegar
komiö var aftur til Akureyrar.
Sumir voru gráir og guggnir og
höfðu kastað upp. Aðrir báru sig
vel og fóru með annarri vél suður
skammt eftir hádegi í gær.
Aftur varð röskun á flugi milli
Akureyrar og Reykjavíkur um
miðjan daginn í gær, en að öðru
leyti gekk það samkvæmt áætlun.
óþh
Húseign Öluns hf.
á Dalvík:
Byggða-
stoftmn
Húseign þrotabús fískcldis-
fyrirtækisins Öluns hf. á Dal-
vík var slegin Byggðastofnun
á þriðja og síðasta nauðung-
aruppboði í gær fyrir 6,5
milljónir króna. Byggða-
stofnun átti hæstu kröfuna í
þrotabúið, rúmlega 17 millj-
ónir króna. Eldiskvíar fyrir-
tækisins voru ekki seldar á
upphoðinu í gær.
Búiö er að slátra öllum
nýtanlegum fiski í eigu þrota-
búsins og að sögn Ólafs Birgis
Árnasonar, bústjóra, er þess
vænst að síðustu seiðin fari úr
stööinni í dag. Fiskeldisfyrir-
tækið Strönd hf. í Hvalfirði hef-
ur keypt öll seiðin, sem eru á
bilinu 200-250 gaðþyngd. óþh
Bráðabirgðalögin:
Sex þingmemi sátu hjá
Bráðabirgöalög ríkisstjórnar-
innar vegna BHMR fóru í gegn-
um neðri deild Alþingis í gær
og voru samþykkt með 19 at-
kvæðum gegn 12. Sex þing-
menn sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna.
Við atkvæðagreiðsluna sátu
eftirfarandi þingmenn hjá:
Eggert Haukdal, Friðjón Þórðar-
son, Hjörleifur Guttormsson,
Ingi Björn Albertsson, Matthfas
Bjarnason og Stefán Valgeirsson.
Málinu var vísað til þriðju
umræðu í þinginu. EHB