Dagur - 13.12.1990, Page 6

Dagur - 13.12.1990, Page 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 13. desember 1990 íþróttafélagið Magni 75 ára: ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 725 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RfKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FPfMANN FRlMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASÍMI 22791 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Kvótamál Grímseyinga Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, hélt fund í Grímsey vegna kvótamála um síðustu helgi. Miklar gagnrýnisraddir hafa undanfarið heyrst úr eynni vegna kvóta þess sem smábátum þar var úthlutað, og hafa sjómenn sagt að næsta vonlítið sé að halda útgerðinni áfram með þeim aflaheimildum sem bjóðast. Sjónarmið bátasjómanna og útgerðarmanna á fund- inum í Grímsey var að útgerðin standi svo tæpt að alls ekki megi skerða þann kvóta sem bátarnir hafa. Verði það gert sé byggð stefnt í hættu, og viðbúið sé að skriðan fari af stað ef fjórar til fimm fjölskyldur flytja brott úr þessu hundrað og tuttugu manna byggðar- lagi. Sjómenn benda á nýlega höfn, sem kostaði sjötíu til áttatíu milljónir króna, og telja notagildi hennar standa og falla með aflakvóta sem nægi bátunum til sæmilegrar afkomu. í Grímsey hefur mörgu grettistakinu verið lyft á undanförnum árum, því fyrir utan hafnarbæturnar er þar ný sundlaug og helmingur íbúðarhúsanna í eynni hefur verið byggður á undanförnum fimmtán árum. Þar býr duglegt fólk, sem hefur séð sér farborða með fiskveiðum og nýtingu sjávarafla, og verðmætasköpun hefur verið mikil í eynm. Þrátt fyrir það hefur verðið sem fæst fyrir fisk Grímseyinga oftast verið svonefnt verðlagsráðsverð, eða lágmarksverð, og gerir lega eyjarinnar það m.a. að verkum, eins og kom fram í ræðu sjávarútvegsráðherra. Varpaði hann fram þeirri spurningu hvort ekki mætti auka verðmæti aflans, til að bæta arðsemi fiskveiða og útgerðar. Halldór Ásgrímsson viðurkenndi sérstöðu Grímseyj- ar á fundinum, og setti hann Grímsey í flokk með Bakkafirði og Borgarfirði eystra. Ræddi hann um að Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins myndi koma þeim byggðarlögum til hjálpar sem á þyrftu að halda á næsta ári. Staðreyndin væri því miður sú að fiskstofnar hefðu dregist saman, og því væri ekki um annað að ræða en skerða kvótann nokkuð. Grímseyingar tóku þeirri hugmynd ekki vel að leita á náðir Hagræðingarsjóðs, og vísa til þess að þeir hafi engir bónbjargarmenn verið til þessa. Ráðherra minnti þá á höfnina, sem Grímseyingar hefðu ekki getað fjármagnað sjálfir, og sagði að sjálfsagt hefði þótt að byggja það mannvirki fyrir almannafé landsins. Lét ráðherra í Ijós það álit að enginn þyrfti að minnkast sín fyrir að þiggja opinberan stuðning í erf- iðleikum. Á fundinum kom fram að áfram verður unnið í mál- um Grímseyinga og þau skoðuð í ráðuneytinu. Umræður hafa verið miklar um kvótamál á öllu land- inu, og sýnist sitt hverjum eins og gengur. Bent hefur verið á að margir hafi offjárfest í dýrum bátum, sem fyrirfram var vafasamt að gætu staðið undir sér. I eina tíð var sagt að bátur eða skip þyrfti að afla fyrir upp- hæð sem svaraði til andvirðis síns á fyrsta útgerðarár- inu, ætti hann að standa undir sér. Hvort það á við í dag skal ekki dæmt um hér, enda greiðslukjör allt önn- ur en áður þekktist. En kapp er best með forsjá í útgerð eins og öðrum atvinnugreinum. EHB íímamóíamia mirmst í afmælishóíi Loftsson gerður að heiðursfélaga - Kristleifur íþróttafélagið Magni á Greni- vík á 75 ára afmæli á þessu ári og af því tilefni var haldin helj- armikil afmælisveisla í Greni- víkurskóla sl. föstudag. Þar voru saman komnir á annað hundrað félagsmenn og aðrir velunnarar félagsins. Ýmislegt var gert til skemmtunar á þessu kvöldi, sem endaði með dansleik, undir stjórn Geir- mundar Valtýssonar og félaga. Veislustjóri var Jón Þorsteins- son og stjórnaði hann samkom- unni af miklum myndarskap. Hófið hófst með borðhaldi og samfara því var boðið upp á ýmis skemmtiatriði sem flutt voru af félagsmönnum. Magnakonur sungu nokkur Magnalög og knatt- spyrnumenn fluttu skemmti- atriði. Auk þess fluttu nokkrir veislugestir ávörp og Björn Ing- ólfsson formaður Magna stiklaði á stóru í sögu félagsins. Félaginu bárust gjafir og góðar kveðjur í tilefni þessara tíma- móta og auk þess voru félags- menn og félagið heiðraðir. Björn Ingólfsson formaður Magna var sæmdur silfurmerki Borðtennissambands íslands en hann hefur unnið manna mest að framgangi íþróttarinnar á staðnum. Þá var Kristleifur Loftsson gerður að heiðursfélaga Magna. Kristleifur sem starfar á Englandi í dag, hefur unnið ómetanlegt starf í þágu félagsins í gegnum árin. Hann var m.a. for- maður félagsins frá árinu 1976 til 1988, að tveimur árum undan- skildum. Kvenfélagið Hlín færði Magna blómakörfu en þessi. tvö félög hafa átt mjög gott samstarf í Björn Ingólfsson formaður Magna rakti sögu félagsins í stórum drátt- um og fórst það mjög vel úr hendi. Afmælisgestirnir kunnu vel að meta skemmtidagskrá eins og sést á mynd- inni. Fyrir miðju er Jón Þorsteinsson veislustjóri. Punktar frá fyrstu árum Iþróttafélagsins Magna: „Við reyndum að þvælast þetta fyrir þeim og veijast í fyrri háifleik“ - þá var enginn vandi að vinna í síðari hálfleik Björn Ingólfsson formaður íþróttafélagsins Magna stiklaði á stóru í sögu félagsins í afmælishófinu og kom m.a. inn á aðdragandann að stofnun félagsins fyrir 75 árum og fyrstu árin. Það er rétt á þess- um tímamótum í félaginu að vitna í nokkur atriði úr ræðu Björns: í miðju félagsmerki Magna er fótbolti. Það er vel við hæfi þótt félagið heiti að sönnu íþróttafé- lagið Magni. Því ef við lítum til upphafsins komumst við að því að þetta félag var stofnað utan um einn fótbolta og hefur víst að mestu snúist um þann hlut síðan. Fyrsta árið er það reyndar ýmist kallað „Fótboltafélagið í Grýtu- bakkahreppi" eða „Knattspyrnu- félag Grýtubakkahrepps." Það er ekki fyrr en 13. ágúst 1916 sem ákveðið er með 9 atkv. gegn 4 að félagið heiti Magni. f fyrstu gjörðabók Magna segir svo um „Stofnun íþróttafélags í Grýtbakkahreppi:" Æfðu sig í knattsparki „Sumarið 1915 höfðu nokkrir menn í Laufássókn keypt knött (fótbolt) sér til gamans. Varð það orsök til þess að ungir menn hér í sveitinni fóru að koma saman í frístundum sínum, einkunt um helgar til þess að æfa sig í knatt- sparki. Var þeim til leiðbeiningar Magnús Björnsson í Laufási, sem stundað hafði knattspyrnuíþrótt- ina í Reykjavík og hlotið frægð- arorð sem íþróttamaður í þeirri grein. Eftir því sem fleiri urðu leikmótin, því fjölmennari urðu þau og fóru reglulegar fram þeg- ar menn fóru að kynnast megin- atriðum leikreglanna. Á einu slíku leikmóti, sem haldið var á svonefndri Geitakofagrund neð- an við Skarðstún, var að loknunt knattleik skotið til lítilsháttar málfundar þar í brekkunni og á þeim fundi komu eftirtaldir menn sér saman um að stofna knatt- spyrnufélag hér í sveitinni." Síðan eru taldir upp 16 stofn- félagar. Allir eru þeir menn látnir nú en við könnumst þar við nokkur nöfn s.s. Bjarni Áskels- son á Skuggabjörgum, Jón Jó- hannsson á Skarði, Sæmundur Guðmundsson á Ljómatjörn og Óskar Jónsson í Kolgerði. Litliflötur lánaður félaginu Á fyrsta félagsfundi var samið við Friðrik Kristinsson að hann lán- aði félaginu Litlaflöt endurgjalds- laust meðan hann byggi í Hlé- skógum. Á Litlafleti var síðan aðalleikvöllur félagsins eftir það á þriðja áratug. A öðrum fundi var samþykkt að búningur félags- ins verði bláar peysur og hvítar buxur. Þannig gekk þetta til. Fótbolti og aftur fótbolti. Áhuginn var geysilegur. Menn létu sig ekki muna um að hlaupa framan úr Skuggabjörgum og utan úr Gríms- nesi á hverjum sunnudegi til að fara á æfingu á Litlafleti. Fyrsta keppnisferðin var farin austur á Vatnsendabáru sumarið 1917. Þar sigraði Magni Reykdælinga 4:1. Sama ár var fyrsti „stór- leikurinn“ á Litlafleti. Magni- Svalbarðsströndungar 4:0. Ekki er ætlunin að fara að rekja söguna alla, enda fátt til af traustum heimildum, því miður. En það má af ýmsu ráða að Magni hafi á árunum 1920-1940 haft á að skipa einu allra sterk- usta knattspyrnuliði hér norðan- lands. Um það vitna titlar eins og „Knattspyrnuverðlaun fjórð- ungsins" 1920 og Norðurlands- meistari 1935. Því miður eru ekki til myndbandsupptökur frá leikj- um gamla Magna en við höfum mörg okkar heyrt lýsingar hjá gömlu kempunum á því hvernig þeir náðu þessum árangri: Enginn vandi að vinna í síðari hálfleik „Við höfðum þetta mest á seiglu og dugnaði, minna á knattleikni. Við reyndum að þvælast þetta fyrir þeim og verjast í fyrri hálf- leik. Þá var enginn vandi að vinna í síðari hálfleik.“ Þannig fórust orð einum úr „gullaldarlið- inu“ , Friðbirni Guðnasyni m.a. Að seiglast, það var markið. Þegar mótherjarnir vildu hætta og gefa leikinn upp á 12 marka mun einhverju sinni á Akureyri, sagði formaður Magna, Þor- steinn í Gröf: „O, ætli maður nuddi ekki.“ Leikurinn endaði 11:0 fyrir Magna. Sjúkdómurinn grasserar enn Síðan þetta var hafa margir leikir verið flautaðir af og mörg mörk verið skoruð. Við höldum samt dyggilega uppi merki þeirra sem mættu á Geitkofagrundinni 10. júlí 1915. Fótboltabakterían sem stakk sér hér niður þá hefur ekk- ert farið síðan. Sjúkdómurinn sem hún veldur grasserar enn og eru margir illa haldnir. Það mun t.d. vera fremur auðvelt að finna hér á Grenivík stráka, jafnvel stelpur, sem telja það æðsta tak- mark lífsins og mestu hamingju að verða góður í fótbolta. En lífið er nú einu sinni ekki bara knattspyrna og í lögum Magna stendur að tilgangur félagsins sé að stuðla að íþróttum og félagslífi í sveitinni. Ög aðrar íþróttir hafa vissulega komist að þótt í talsvert minna mæli væri. -KK

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.