Dagur - 18.12.1990, Side 1

Dagur - 18.12.1990, Side 1
Hlutabréfasala í ÚA: Eftirspum nokkuð umfram framboð Frestur til áskriftar ad hluta- bréfum í Útgerðarfélagi Akur- eyringa stóð yfir í síðustu viku og rann út á föstudag. Þá Datt í stiga í SjaJlanum Sjúkrabifreið Slökkviliðs Ak- ureyrar var kölluð að skemmti- staðnum Sjallanum síðastliðið föstudagskvöld. Kona hafði dottið í stiga og hlotið höfuð- áverka og var hún flutt á Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri. Að öðru leyti var helgin slysa- laus á Eyjafjarðarsvæðinu. Akur- eyrarlögreglan þurfti þó að hafa nokkur afskipti af fólki í miðbæn- um á föstudags- og laugardags- kvöld þar sem var mikil ölvun. Nokkrar rúður voru brotnar og einhverjir pústrar milli manna en engin meiriháttar meiðsi. Lögreglumenn út með vestan- verðum Eyjafirði fylgdust með mikilli umferð vegna opnunar Ólafsfjarðarganganna en þrátt fyrir stöðuga umferð um hin nýju göng virtust ökumenn ekki eiga í nokkrum vandræðum með að mætast á útskotum. „En það er alveg á hreinu að svona stórvið- burði lifum við Ólafsfirðingar ekki í bráð,“ sagði lögreglumaður í Ól- afsfirði í samtali við Dag. JÓH höfðu borist óskir um kaup að nafnvirði 39.149.900 kr. en til sölu voru bréf að náfnverði 33.418.100 krónur. Eftirspurn- in var því umfram framboð. Tekið var á móti pöntunum í þessi bréf hjá Kaupþingi hf. í Reykjavík og Kaupþingi Norð- urlands hf. á Akureyri. Þau bréf sem seld voru í þess- ari hlutabréfasölu voru bréf sem Akureyrarbær nýtti sér forkaups- rétt á í hlutafjárútboði í félaginu nýverið. Samkvæmt þeim skil- málum sem settir voru í þessari sölu verða allar umbeðnar fjár- hæðir umfram 35.000 kr. að nafn- verði, skertar um 22,02% vegna umframeftirspurnarinnar. Gengi bréfanna var 3,6 og því er heildarfjárhæðin sem beðið var um 140.939.640 kr. á sölu- verði. Rúmlega fjögur hundruð kaupendur skráðu sig fyrir hlutabréfum í féláginu. Þeim hafa nú verið sendir gíróseðlar sem greiða á eigi síðar en 28. des- ember næstkomandi. Útgerðarfélag Akureyringa hefur selt hlutafé fyrir 100.547.050 kr. að nafnverði í tveimur hlutafjárútboðum á þessu ári en söluverð þessara hlutabréfa er í heild 304.414.405 kr. Hlutafé í félaginu eftir þessi útboð er í heild 430 milljónir króna sem er samkvæmt þeirri samþykkt sem gerð var á aðal- fundi síðastliðið vor. JÓH Kosið um sameiningu ÖxarQarðar- og Presthólahrepps: Hið nvja sveitarfélag mun heita Oxarfjarðarhreppur - verði sameiningin samþykkt í kosningum á laugardag íbúar í Öxarfjarðarhreppi og Presthólahreppi munu ganga að kjörborðinu laugardaginn 22. desember og greiða atkvæði um það hvort sameina eigi hreppana í eitt sveitarfé- lag. Kosið verður frá kl. 13-16 í grunnskólanum á Kópaskeri og Lundarskóla í Öxarflrði. Reynist meirihluti fyrir sam- einingunni munu hreppsnefnd- 6 íkujar tiíi ó(a irnar koma sér upp sameiginleg- um framboðslista og fái þessi listi mótframboð skal efnt til kosn- inga innan mánaðar. í lok janúar ætti því að vera komin ný sveitar- stjórn fyrir þennan nýja hrepp, ef af samei.ningu verður. Sameiningarnefnd lagði til að ef hrepparnir verða sameinaðir þá muni hið nýja sveitarfélag heita Öxarfjarðarhreppur. Þessi tillaga fékk góðan hljómgrunn þótt menn hafi verið að velta nýju nafni fyrir sér. Að sögn Ingunnar St. Svavars- dóttur, oddvita Presthólahrepps, þótti mönnum Öxarfjarðarnafnið tengja hreppinn vel við svæðið, enda vita flestir landsmenn hvar Öxarfjörður er. Hún benti á að þetta væri í rauninni sama niður- staða og menn hefðu komist að í Eyjafjarðarsveit. Nánar verður fjallað um sam- einingarmálin í blaðinu síðar í vikunni og þá verður greint frá því hvaða ávinning hreppsnefnd- ir Öxarfjarðarhrepps og Prest- hólahrepps telja sig hafa af sam- einingu. SS Guðmundur Svafarsson, umdæmisverkfræðingur Vegagerðar ríksisins á Akureyri, og Stcfán Guðbergsson frá Krafttaki sf. takast í licndur og staðfesta með því afhendingu verktakans á Múlagöngunum til Vcgagerðarinnar. Fyr- ir aftan þá eru meðal annarra Bjarni Kr. Grímsson, bæjarstjóri í Ólafsfirði, Tryggvi Jónsson, staðarstjóri Krafttaks sf. í Ólafsfjarðarmúla og Hreinn Haraldsson, jarðfræðingur hjá Vegagerð ríkisins í Reykjavík. Múlagöngin voru formlega opnuð fyrir umferð sl. sunnudag: Stöðugur straumur bfla í gegnum göngin á opnunardegi - formleg vígsla ganganna verður væntanlega síðari hluta febrúarmánaðar Ekki var laust við að Ólafsfirð- ingar hafl varpað öndinni létt- ar þegar Steingrímur J. Sigfús- son, samgönguráðherra, rauf lásinn á keðjunni fyrir munna Múlaganganna Ólafsfjarðar- megin upp úr kl. þrjú sl. sunnu- dag og opnaði þau fyrir umferð. Þar með má segja að sé endanlega rofln cinangrun Ólafsfjarðar við byggðir Eyjafjarðar. Gífurlegan fjölda bíla úr Ólafsfirði og nágrannasveitarfé- lögum dreif að til þess að fara í gegnum Múlagöngin opnunar- daginn. Ekki er gott að átta sig á hversu margir bílar fóru um göngin, en óhætt er að segja aö þar liafi verið samfelld bílaröð fyrsta hálftímann. Menn skutu á að í það minnsta hálfur bílafloti Ólafsfirðinga hafi farið í gegnum göngin á sunnudaginn. Á slaginu kl. þrjú bauð Stefán Guðbergsson, forstjóri verktaka- fyrirtækisins Krafttaks, gesti velkomna og afhenti Guðmundi Svafarssyni, umdæmisverkfræö- ingi Vegagerðarinnar á Akur- eyri, lykil að hengilás á keðju þeirri sem strengd var fyrir ganga- munnann. Guönuindur sagði við þetta tækifæri að vel hafi verið staðið að verkinu, sem sýndi sig best á því að göngunum væri skil- að nokkru fyrr en áætlanir heföu gert ráö fyrir. Að svo mæltu bað hann Steingrím J. Sigfússon. samgönguráðherra, að opna göngin formlega fyrir umferð. Eftir að hafa rofið hengilásinn á keðjunni góðu settist samgöngu- ráðherra undir stýri í Subaru- bifreið Vcgagerðarinnar og ók i broddi fylkingar í gegnum göng- in. Óhætt er að segja að gerð Múla- ganganna liafi gengið vcl. Vinna við sprengingarnar, sem hófst á haustdögum 1988, gekk vel og var þeim lokið um miðjan mars á þessu ári. Þá tók við vinna við frágang ganganna, klæðningu. malbikun, uppsetningu motta inni í göngunum, uppsetningu Ijósabúnaðar o.fl. Þessum verk- þáttum var lokið í síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum Kraft- taks er heildarkostnaður við Múlagöngin, á verðlagi desember 1990, um 900 milljónir króna. Mörgum kann að þykja sú upp- hæð há, en til samanburðar skal þess gctið að kostnaöur við við- gerð á Þjóðleikhúsinu, sein nú stendur yfir, slagar upp í þessa tölu. Til stóð að sctja upp hurðirnar fyrir gangamunnana fyrrihluta janúarmánaðar og vígja göngin síöari hluta þess mánaöar. Sam- kvæmt heimildum Dags verður einhver dráttur á því, vegna tafa á afhendingu hurðanna í Noregi og nú er gert ráð fyrir að þær verði settar upp í byrjun febrúar. Ef allt gengur upp má því ætla að efnt verði til veglegrar vígsluhá- tíðar Múlaganganna síðari hluta febrúarmánaðar. óþh Atvinnuástandið á landinu: Mest atviimuleysi á Norðurlandi - 1,3% atvinnuleysi á landinu öllu Atvinnuleysi í nóvembermán- uði var 1,3% á landinu öllu sem þýðir að 1600 manns hafl að meðaltali verið án atvinnu. A Norðurlandi var hlutfalls- lega mest atvinnuleysi, eða 2,6% í báðum fjórðungum. Á Vestfjörðum mældist atvinnu- leysi aðeins 0,1% og 0,8% á höfuðborgarsvæðinu. Atvinnuleysisdögum á landinu fjölgaði um 7,5% frá október- mánuði en þeir eru þó færri en í nóyembermánuði 1989. Á Norðulandi vestra voru 127 án atvinnu í nóvember en 80 í október. Á Sauðárkróki voru 36 atvinnulausir, 23 á Siglufirði, 15 á Blönduósi, 14 á Hvammstanga og 11 í Lýtingsstaðahreppi. Á Norðurlandi eystra voru 315 atvinnulausir í mánuðinum á móti 273 í október. Á Akureyri voru 195 án atvinnu, þar af 90 konur, 67 á Húsavík, 20 á Dalvík og II í Ólafsfirði. Þrátt fyrir fjölgun atvinnuleysisdaga á svæð- inu öllu frá októbermánuði voru færri á atvinnuleysisskrá á Dalvík og í Árskógshreppi í nóvem- bermánuði. SS

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.