Dagur - 18.12.1990, Qupperneq 11
oeer isdmsssb 3r iug6bu(6h<t ~ HíiöAQ - or
Þriðjudagur 18. desember 1990 - DAGUR - 11
Blak, 1. deild karla:
KA-menn höfðu betur
í toppslagnum
KA-mcnn unnu góðan sigur á
toppliði Þróttar í fjórum hrin-
um á íslandsmótinu í blaki á
laugardag. Leikurinn fór fram
í íþróttahöllinni á Akureyri en
þar hafa Þróttarar aldrei náð
sér á strik og á því varð engin
breyting á laugardag.
Þróttarar unnu að vísu fyrstu
hrinu og voru þá heldur sprækari.
Þeir höfðu yfirhöndina lcngst af
þrátt fyrir að KA-menn væru
aldrei langt undan og lokatölurn-
ar urðu 10:15. KA-menn byrjuöu
af miklum krafti í næstu hrinu og
komust í 6:0 en Þróttarar jöfn-
uðu. KA-menn skoruðu þá 5
næstu stig og það gerði útslagið
ásarnt góðum uppgjöfunt Sigurð-
ar Arnar á lokakaflanum sem
Þróttarar réðu ekki við og hrinan
lór 15:8. Þriðja hrinan var sveiflu-
kennd. KA-menn komust í 9:1
en Þróttur minnkaði muninn í
tvö stig og náði síðan að jafna
13:13 en KA-menn unnu þó
15:13. Þeir höfðu síðan yfirburöi
í síðustu hrinu og þrátt fyrir að
Þn'marar klóruðu í bakkann í
lokin fór hún 15:9 og sanngjarn
KA-sigur var í höfn.
Handknattleikur, 1. deild:
Fátt um ffna drætti
- þegar KA sigraði Fram 24:19
KA sigraði Fram sl. föstudags-
kvöld í VÍS-keppninni í hand-
knattleik, 24:19. Leikurinn fór
fram í Laugardalshöll og var
afar slakur. KA-menn hlutu þó
tvö mikilvæg stig og liðið á nú
þokkalega möguleika á að
komast í hóp 6 cfstu liða áður
en úrslitakeppnin hefst.
KA-menn náðú fljótlega
undirtökunum og höfðu foryst-
una franr í miðjan fyrri hálfleik
eða þar til Framarar jöfnuðu 5:5
og komust yfir skömmu síðar.
Þeir komust í 8:6 en þá skoruöu
KA-menn 5 mörk í röð og staöan
í hléi var 8:11.
Framarar skoruðu 9. markið
ekki fyrr en 5 mínútur voru liðn-
ar af seinni hálfleik og KA-menn
höfðu forystuna þar til Framarar
jöfnuðu öðru siunj, 16:16. Þeir
höfðu þá tnisst Karl Karlsson af
leikvelli vegna þriggja brottvís-
ana og létu léikmenn liðsins þaö
fara mikið í skapiö á sér. Ljót
brot sáust í varnarleik liösins en
KA-menn, létU; ekki slá sig út af
laginu og gerðu út um leikjnn á
síðustu 10 mínútúnum.
, Eins og fyrr segir var leikurinrj
slakuf hjá báðum liðum. Háns og
Erlingur voru skástir KA-manna,
einkum var Érlingur góður í
séinni hálfleik. Þá varði Axel 13
skot í markinu.
Erlingur Kristjánsson þjálfari KA
átti ágætan leik er lið hans lagði
Fram að velli.
Hjá Fram var Jason Ólafsson
langbestur og Þór Björnsson
varði þokkalega.
Mörk Fram: Jason Ólafsson 7/2. F.gill
Jóhanncsson 4. Karl Karlsson 3. Páll
Þórólfsson 2. Jón G. Sævarsson 2. Gunn-
ar Kvaran I.
Mörk KA: I láns Guðnuindsson 8/2, Erl-
ingur Kristjiínsson 6. Pctur Bjnrnnson 4.
Guömundur Guömundsson 3. Sigurpnll
Aönlstcinsson 2/1. Andrcs Mngnússon 1.
Dómarar: Hákoii Sigurjónsson og Guö-
jón Sigurösson. Dæmdu vcl.
-bjb
KA-menn léku þennan leik
ágætlega og unnu sanngjarnan
sigur. Liðiö virðist þó ekki hafa
náð fyrri styrk og leikur þess er
köflóttur. Hávörnin var ágæt á
köflum en sh'ik þess á milli og
móttakan ekki nægilega góö.
Sóknarleikurinn er hins vcgar
góður og Þróttarar áttu fá svör
\ið honum. Fyrirliðinn Haukur
Valtýsson var bestur KA-manna
en Sigurður Arnar og Hafstcinn
Jakobsson áttu ágæta spretti.
Hafsteinn Jakobsson og félagar í KA unnu enn einn heiniasigurinn á Þrótti
og standa nti best að vígi í 1. deild karla.
Þýska knattspyrnan:
Eyjólfur skoraði ann-
að marka Stuttgart
- liðið vann góðan sigur á Frankfurt um helgina
Eyjólfur Sverrisson knatt-
spyrnukappi frá Sauðárkróki,
skoraði annað marka Stuttgart
er liðið lagði Frankfurt að velli
í þýsku Bundesligunni á sunnu-
dag. Með sigrinuin vænkaðist
hagur Stuttgart til rnuna og lið-
ið færðist úr 16. sæti og upp í
það 12. Eyjólfur hefur leikið í
byrjunarliðinu í síðustu leikj-
um og staðið sig vel.
Fyrri hálfleikur í leik Sluttgart
og Frankfurt, sem fram fór á
Neckar-leikvanginum, var marka-
laus en strax á 2. mín. síðari hálf-
leiks náði Stuttgart forystunni, er
Buchwald skoraði með góðum
skalla. Eyjólfur bætti öðru marki
við á 62. mín., einnig með góðurn
skalla. A lokamínútunni náðu
gestirnir að klóra í bakkann en
það dugði ekki til að lcikmenn
Stuttgart fögnuðu góöum sigri.
Eyjólfur fékk mjöggóðadóma
í þýsku pressunni fyrir leik sinn
og greinilegt er að frammistáöa
lians með liðinu hefur vakiö
mikla athygli. Nokkrar af fræg-
ustu stjörnum Stuttgart, hafa
þurft að gera sér að góöu að horfa
á leiki liðsins frá varamanna-
bekknum, enda telur þjálfari
liösins ekki ástæðu til þess aö
gera breytingar á meðan liöið
stendur sig vel.
I samtali við Dag í gær, sagði
Eyjólfur að leikurinn viö Frank-
furt hafi verið hörkuviðureign
eins og jafnan þegar þessi ná-
grannalið eigast við. Hann var
nokkuð sáttur við sinn hlut í
leiknum en vildi ekki að öðru
leyti gera mikið úr frammistööu
Handknattleikur, 2. deild:
Þór sigraði ÍBK
Þórsarar héldu áfram sigurgöngu
sinni í 2. deild handboltans er
þeir lögðu Keflvíkinga á Akur-
eyri á föstudagskvöldið, 23:18.
Það var þó ekki ntikil reisn yfir
þessum sigri Þórsara, þeir létu
slaka gestina draga sig niður á sitt
plan og útkoman var einn slakasti
leikur vetrarins á Akureyri.
Eyjólfur Svcrrisson var á skotskón-
um er Stuttgart vann Frankfurt í
þýsku knattspyrnunni á sunnudag.
sinni. Hann sagöist koma heint í
jólafrí i dag og dvelja á Islandi
fram yfir áramót. í janúar heldur
Stuttgart í æfingaferð til Flórída í
Bandaríkjunum en síöan tekur
við keppni á innahússmótum í
Þýskalandi. Keppni í Bundeslig-
unni hefst síðan að nýju í lok
lébrúar. ES/KK
Handbolti
yngri flokka:
Jólamót
Coca Cola
Jólamót Coca Cola í hand-
bolta fer fram í Iþróttahöll-
inni á Akureyri á miðviku-
daginn keniur.
Mót þetta er fyrir byrjendur
í íþróttinni, bæði stelpur og
stráka 12 ára og yngri. Bæöi
KA og Þór mæta með ntörg lið
til leiks og er reiknað nteð að
um 80 krakkar taki þátt í mót-
inu.
Keppni hefst kl. 16 og mót-
inu lýkur um kvöldið með úr-
slitaleik.